Morgunblaðið - 21.02.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SAMSTARFSSAMNINGUR milli
Sambands íslenskra samvinnu-
félaga, SÍS, og Viðskiptaháskólans
á Bifröst í Borgarfirði var undir-
ritaður á Bifröst í gær í tilefni af
100 ára afmæli SÍS þann dag. Í
samningnum leggja SÍS og skólinn
áherslu á sameiginlegar rætur sín-
ar og sögu. Stjórn Sambandsins
kom einmitt saman í gær til hátíð-
arfundar á Bifröst.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu í gær gengur samning-
urinn einkum út á það að skólinn
mun standa fyrir rannsóknum á
stöðu samvinnustarfseminnar er-
lendis með tilliti til þess á hvaða
sviðum slíkt rekstrarform myndi
henta í íslensku þjóðfélagi á 21.
öldinni. Gert er ráð fyrir að verk-
efnið sé hálfs árs starf fræðimanns
og skiptist kostnaður þannig að
skólinn leggur til fjórðung og SÍS
afganginn.
Skilgreina á umfang þessa verk-
efnis og afmörkun með sérstökum
samningi. Viðskiptaháskólinn mun
einnig taka að sér ritun viðskipta-
þáttarins í sögu SÍS.
Samningurinn felur fleira í sér,
líkt og fram kom við undirritunina
í gær. SÍS mun kosta uppsetningu
á brjóstmynd af Jónasi Jónssyni
frá Hriflu, fyrsta stjórnanda skól-
ans, við nýtt skólahús sem taka á í
notkun á Bifröst í haust. Þá ætlar
Sambandið árlega að styrkja náms-
mann á öðru ári, sem náð hefur
framúrskarandi árangri, til náms á
þriðja ári með greiðslu skólagjalda
hans. Síðan segir í samningnum:
„Viðskiptaháskólinn á Bifröst
mun varðveita og halda á lofti
menjum um sögu Sambandsins sem
staðsettar eru á Bifröst. Þá mun
skólinn jafnframt opna sérstakan
söguvef á heimasíðu sinni þar sem
m.a. tengslum skólans við sam-
vinnuhreyfinguna eru gerð skil.
Skólinn mun jafnframt láta gera
sérstakt skjaldarmerki til nota á
útskriftarskírteini og við hátíðleg
tækifæri. Merkið taki mið af al-
þjóðlegum háskólahefðum um slík
merki, þar komi fram stofnár hans
og að hann eigi sér rætur í sam-
vinnuhugsjóninni.“
Að síðustu kemur fram í samn-
ingnum að með undirskrift hans
samþykki stjórn SÍS að leggja
fram á næsta aðalfundi þess tillögu
um viðurkenningu á nafnbreytingu
skólans sem átti sér stað árið 1999,
enda liggi þá fyrir „vel útfært
skjaldarmerki hans“, gert í sam-
ráði við stjórn SÍS. Þess má geta
að Sambandið stofnaði sjálfseign-
arstofnun um rekstur skólans fyrir
fjórum árum.
Runólfur Ágústsson, rektor Við-
skiptaháskólans, sagði við Morg-
unblaðið að samkomulagið við SÍS
væri fyrst og fremst táknrænt og
gert til að minnast merkra tíma-
móta. Það væri ávallt einnig mik-
ilvægt fyrir skólann að fá fjár-
magn til rannsókna en Sambandið
leggur tvær milljónir til verkefn-
isins.
„Meðal samvinnumanna var
óánægja með nafnbreytinguna á
skólanum. Með samningnum ætlar
stjórn Sambandsins að setja það
mál niður með fullri sátt,“ sagði
Runólfur. Hann sagðist ekki vilja
gefa sér það fyrirfram að sam-
vinnufélagsformið ætti möguleika
á einhverjum sviðum. Það væri
hvorki fræðimannslegt né tíma-
bært að draga ályktanir eða birta
niðurstöður af rannsókn sem ekki
væri hafin.
Stjórn SÍS ákvað einnig á fundi
sínum í gær að efna til ráðstefnu
síðar á afmælisárinu um sam-
vinnuskipulagið sem rekstrarform
á 21. öld og láta fara fram athugun
á því að gera Sambandið að sam-
starfsvettvangi allra samvinnu-
félaga í landinu. Á stjórnarfund-
inum var einnig gerð grein fyrir
skráningu skjalasafns SÍS og öðru
því sem verið er að vinna varðandi
sögu hreyfingarinnar.
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, og Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður
SÍS, undirrita samkomulagið að viðstöddum fulltrúum nemenda við skólann.
Áhersla
lögð á
sameig-
inlegar
rætur
Viðskiptaháskólinn á Bifröst og SÍS gera með sér samstarfssamning
Samþykkt að
styrkja upp-
byggingu við
MH og MR
BORGARRÁÐ samþykkti á þriðju-
dag að styrkja byggingu íþróttahúss
við Menntaskólann við Hamrahlíð og
jafnframt samþykkti borgarráð að
styrkja uppbyggingu Menntaskól-
ans í Reykjavík.
Koma styrkirnir til greiðslu á
árinu 2003 en í samþykkt borgarráðs
er þó hafður sá fyrirvari varðandi
styrk á næsta ári vegna íþróttahúss
MH að framkvæmdir hafi þá hafist
við byggingu íþróttahússins.
Upphæð styrkjanna verður ákveð-
in við gerð fjárhagsáætlunar fyrir
árið 2003.
Umræðan
orðin
hápólitísk
FRIÐRIK Pálsson, stjórnarformað-
ur Landssímans, segir að umræðan á
Alþingi og atburðarásin síðustu daga
þegar aðal- og varafulltrúar Sam-
fylkingarinnar í stjórn Símans hafa
sagt sig úr stjórninni lýsi því að mál-
ið sé hápólitískt.
Aðspurður um úrsagnirnar segir
Friðrik: „Ég er ekki í stjórnmálum
og legg alla áherslu á það að stjórn
félagsins og starfsmenn þess fái nú
vinnufrið til þess að halda áfram því
góða verki sem hjá Símanum er unn-
ið. Mér finnst vissulega leitt að tveir
ágætir stjórnarmenn skuli hafa horf-
ið úr stjórninni. En það var þeirra
ákvörðun og ég virði hana. Nýir
stjórnarmenn munu taka þeirra sæti
og Landssíminn mun halda áfram að
sinna sínum mikilvægu verkefnum
af fullum krafti.“
Aðspurður um fullyrðingar þess
efnis að honum hefði borið að víkja af
stjórnarfundi þar sem rætt var um
kjör hans sjálfs segir Friðrik: „Á
fundinum var ekki verið að ákvarða
kjör mín, heldur vorum við að fjalla
um það, hvernig þetta mál var vaxið
og þegar hefur verið gerð ítarleg
grein fyrir því.“
Stofnunin
ekki vanhæf
í Lands-
símamálinu
SIGURÐUR Þórðarson ríkisendur-
skoðandi segist vera algerlega
ósammála Össuri Skarphéðinssyni
alþingismanni og formanni Sam-
fylkingarinnar, um að Ríkisendur-
skoðun sé vanhæf til að rannsaka
Landssímamálið. Össur hélt því
fram í blaðinu í gær að stofnunin
gæti ekki skoðað þau mál sem
tengjast einkavæðingu Landssím-
ans þar sem fram hafi komið að rík-
isendurskoðandi lagði blessun sína
yfir fyrirkomulag á greiðslum til
ráðgjafarfyrirtækis í eigu Friðriks
Pálssonar, stjórnarformanns félags-
ins.
Sigurður vísar þessu á bug.
,,Þetta álit okkar sem við gáfum á
sínum tíma gerir okkur ekkert van-
hæfa til að skoða þetta mál í dag,“
segir Sigurður. Hann segir að hann
hafi á sínum tíma svarað spurningu
um fyrirkomulag á þessum
greiðslum til stjórnarformannsins
sem endurskoðandi Landssímans.
,,Það sem við vildum tryggja var
fyrst og fremst að eðlilegt eftirlit
væri viðhaft og ábyrgur aðili áritaði
þann kostnað sem þarna um ræðir.
Ég vísa því þessum ummælum al-
gerlega á bug,“ segir Sigurður.
Ríkisendur-
skoðandi
STÆRSTU tryggingarfélögin þrjú,
Sjóvá-Almennar, Tryggingamið-
stöðin og VÍS, hafa öll lækkað trygg-
ingariðgjöld vegna einkabifreiða frá
áramótum. Mjög mismunandi er
hversu miklar lækkanirnar eru hjá
félögunum, hvort þær taka til bæði
ábyrgðar- og kaskótryggingar
einkabifreiða og hvernig lækkunin
er framkvæmd í reynd og allur sam-
anburður því erfiður.
Tryggingariðgjöld vegna einkabif-
reiða vega þyngst í tryggingum
heimilanna og því munar um þessar
lækkanir. Af orðum stjórnenda
tryggingarfélaganna má þó ráða að
samkeppni á markaði hafi ráðið
mestu um lækkanirnar þótt þær falli
um leið vel að markmiðum ASÍ um
að halda verðbólgunni í skefjum.
Ákvörðun um lækkun
tekin óháð óskum ASÍ
Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvár-
Almennra, segir að félagið hafi
breytt iðgjaldaskrám á ökutækja-
tryggingum einkabifreiða 2. janúar
síðastliðinn, bæði í lögboðinni
ábyrgðartryggingu og kaskótrygg-
ingu. „Það má segja að þetta hafi
verið gert óháð aðgerðum ASÍ en
það hittist þó þannig á að vera okkar
innlegg í baráttuna við verðbólguna.
Þegar við urðum varir við áhuga ASÍ
á að ræða við okkur þá buðum við
þeim hingað til viðræðna og útskýrð-
um fyrir þeim hvað við höfum verið
að gera. Það var ánægjulegt,“ segir
Einar, „að geta skýrt þeim frá því að
við hefðum þegar gert breytingar
þótt þær hafi ekki verið gerðar fyrir
atbeina ASÍ.“
Aðspurður segir Einar að breyt-
ingin á gjaldskrám ökutækjatrygg-
inga Sjóvár-Almennra þýði að ið-
gjaldatekjur félagsins vegna bif-
reiðatrygginga lækki um á annað
hundrað milljónir á ársgrundvelli,
gróflega metið megi ætla að þetta sé
lækkun á heildariðgjöldum um 2%.
Hann segir lækkunina vera mismun-
andi eftir áhættuflokkum og bílum
þannig að erfitt sé að segja nákvæm-
lega til um lækkunina í krónum talið
til hvers og eins.
VÍS lækkar bifreiða- og
fjölskyldutryggingar
Að sögn Eggerts Ágústar Sverr-
issonar, framkvæmdastjóra hjá VÍS,
lækkaði félagið iðgjöld ökutækja-
trygginga og fjölskyldutrygginga 4.
febrúar síðastliðinn. Hann segir það
hafa verið meðvitaða ákvörðun að
greina ekki frá þessari lækkun í fjöl-
miðlum, VÍS hafi viljað leggja sitt af
mörkum til þess að halda verðbólgu í
skefjum en hafi ekki talið rétt að
auglýsa það sérstaklega.
Eggert segir að lækkunin hafi fal-
ist í því að gjaldskránni hafi verið
haldið óbreyttri en fastir afslættir
sem tengjast F-plús og Kjarna-fjöl-
skyldutryggingum og ökutækja-
tryggingum hafi verið hækkaðir.
Hann segist ætla að heildaráhrif
þessara breytinga séu 3,7% lækkun
á iðgjöldum ökutækjatrygginga.
Óbreytt gjaldskrá gildi fyrir þá sem
ekki séu með fjölskyldutryggingu.
Markaðsaðstæður
réðu ferðinni
Gunnar Felixsson, forstjóri
Tryggingamiðstöðvarinnar, segir, að
tekin hafi verið ákvörðun um það
seinni hlutann í janúar að lækka
kaskó-tryggingar á einkabifreiðum,
þ.e. hámarksbónus kaskótrygginga
hjá einstaklingum sem séu í TM-Ör-
yggi hafi verið hækkaður úr 50% í
55% en það samsvari um 10% lækk-
un á iðgjaldi.
„Þessi ákvörðun var tekin vegna
markaðsaðstæðna en fellur auðvitað
að því sem hefur verið að gerast í
verðlagsmálum. Við töldum heppi-
legast að lækka kaskótryggingar bif-
reiða þar sem útkoma í þeim flokki
hefur verið betri en oft áður. Við
funduðum með forystumönnum ASÍ
í síðustu viku og greindum þeim frá
þessari lækkun og þeir virtust
ánægðir með hana.“
Hafa lækkað tryggingar-
iðgjöld einkabifreiða
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦