Morgunblaðið - 21.02.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.02.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ RÍKISENDURSKOÐUN gerir al- varlegar athugasemdir vegna greiðslna fyrir verkefni sem Guð- mundur Magnússon, forstöðumaður Þjóðmenningarhúss, og Ólafur Ás- geirsson, þjóðskjalavörður, unnu fyr- ir stofnanirnar sem hvor annar stjórnaði og greiðslur sem stofnan- irnar inntu af hendi vegna forstöðu- mannanna auk ýmissa annarra at- hugasemda. Forsætisráðherra tekur undir gagnrýnina Alvarlegar athugasemdir eru gerð- ar við ýmis atriði er lúta að fjárreið- um, störfum og aukastörfum for- stöðumanns Þjóðmenningarhússins vegna atriða sem upp komu við hefð- bundna fjárhagsendurskoðun og gerð ársreiknings Þjóðmenningar- hússins fyrir árið 2002. Í bréfi for- sætisráðherra til forstöðumannsins kemur fram að Ríkisendurskoðun telji skýrsluna upplýsa alla þætti til fulls og ekki sé þörf á rannsókn ann- arra aðila. Forsætisráðuneytið fellst á niðurstöðurnar og telur að í mörg- um tilvikum sé um ámælisverða framkvæmd að ræða. Greinargerðin var send forsætis- ráðuneytinu 4. febrúar sl. en bréf for- sætisráðherra til Guðmundar Magn- ússonar, forstöðumanns Þjóðmenn- ingarhússins, var sent 7. febrúar. „Leggur ráðuneytið áherslu á að úr öllum þessum annmörkum verði þeg- ar bætt og mannahaldi og ákvarðanir um greiðslur til einstaklinga fyrir einstök verk verði hagað þannig að hafið sé yfir allan vafa og verði ekki til þess fallnar að vekja tortryggni,“ segir m.a. í bréfi forsætisráðherra. Rúmlega 3 milljónir fyrir sérfræðiþjónustu Í greinargerð Ríkisendurskoðunar kemur fram að Þjóðskjalasafnið greiddi forstöðumanni Þjóðmenning- arhússins 2.375.000 kr. fyrir sér- fræðiþjónustu á árinu 2001, en um var að ræða greiðslur ritlauna vegna sérfræðilegrar vinnu fyrir Þjóð- skjalasafn Íslands, m.a. rannsókn á íslenskum innsiglum frá miðöldum. Á árinu 2000 fékk hann samtals greiddar 395.200 kr. fyrir sambæri- lega þjónustu, þ.e. 104 tíma x 3.800 kr. fyrir vinnu við íslensk innsigli frá miðöldum í Þjóðskjalasafni Íslands og gerð skýrslu og skrá vegna sýn- ingar og útgáfu. „Að auki fékk for- stöðumaðurinn greidd á árinu 2001 skv. reikningi útgefnum 15. júlí 250.000 kr. „ritlaun vegna sögu tæknifræði á Íslandi skv. sérstöku samkomul.“ eins og þar segir. Á sama hátt fékk hann greiddar 250.000 kr. á árinu 2000 skv. reikningi útgefnum 24. nóvember þ.á. í „ritlaun vegna tæknifræði á Íslandi og sögu Tækni- fræðifélags Íslands 1960 til 1980“. Báðir þessir reikningar eru stílaðir á „Iðnsögu Íslendinga“, samþykktir af Ásgeiri Ásgeirssyni, ritstjóra hennar og greiddir af fjárlagalið 02.983, Ýmis fræðastörf. Samtals nema tekjur for- stöðumannsins af útseldri sérfræði- þjónustu til Þjóðskjalasafnsins og vegna ritunar Iðnsögu Íslands á ár- unum 2000 og 2001 því 3.270.200 kr. og koma greiðslur vegna þessara verkefna beggja úr ríkissjóði.“ Heimild vantaði Á árinu 2000 greiddi Þjóðmenning- arhúsið forstöðumanni þess samtals 1.057.500 kr. fyrir sérfræðiþjónustu og samþykkti Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður reikningana fyrir hönd hússins. Samkvæmt skýrslunni höfðu ekki verið lögð fram gögn, sem mæltu fyrir um umboð Ólafs til að samþykkja reikningana fyrir hönd stjórnarinnar. Í kjölfar athugunar- innar hafi stjórnin sagt í bréfi að sam- þykkt hefði verið að greiða forstöðu- manninum fyrir yfirvinnu vegna undirbúnings og gerðar sýninga í húsinu vorið 2000, sem unnin hafi verið áður en úrskurður kjaranefnd- ar um laun hans hafi tekið gildi. Vegna þessa bendir Ríkisendur- skoðun á að fyrsti reikningurinn að fjárhæð 360.000 kr. hafi verið dag- settur 10. mars 2000. „Um er að ræða „ritlaun vegna textagerðar fyrir sýn- ingar í Þjóðmenningarhúsinu (skjald- armerki, þjóðfáni og þjóðlitir, saga hússins, sýningar í fundarstofum). 90 stundir x 4000 kr. pr klst.“ eins og þar segir. Annar reikningur hans er gef- inn út 1. maí 2000 og er hann að fjár- hæð 405.000 kr. Um er að ræða „rit- laun vegna texta í sýningarskrár og sýningarkassa. 90 stundir x 4.500.“ eins og þar segir. Þriðji reikningur- inn er gefinn út 20. júní 2000 að fjár- hæð 292.500 kr. Um er að ræða „rit- laun vegna texta í sýningarskrár og sýningarkassa. 60 tímar x 4.500 kr.“ eins og þar segir.“ Ríkisendurskoðun bendir vegar á að reikningarnir beri með sér að um hefðbundna sérfræðiþjónustu hafi verið að ræða en ekki yfirvinnu og að stjórnin hafi ekki haft heimild til að samþykkja greiðslur til forstöðu- manns vegna yfirvinnu eða annarra aukastarfa á umræddu tímabili enda hafi Kjaranefnd verið búin að ákveða laun og önnur starfskjör forstöðu- manns. Ráðningarsamningur við eiginkonuna Forstöðumaður Þjóðmenningar- húss gerði ráðningarsamning við eig- inkonu sína og gilti hann frá 20. mars 2001 til 1. október sama ár, en heild- arlaun hennar á árinu námu 1.510.848 kr. Ríkisendurskoðun gerir athuga- semd við þennan ráðningarsamning og framkvæmd hans. Samkvæmt at- hugun Ríkisendurskoðunar innti eig- inkonan vinnuskyldu sína ekki af hendi í Þjóðmenningarhúsinu á hefð- bundnum vinnutíma, en samkvæmt samningnum átti hún að sinna bók- haldi, skjalavörslu og verkefnisstjórn á virkum dögum milli kl. 9 og 17 og fá greiddar 40 yfirvinnustundir á mán- uði auk samningsbundinna mánaðar- launa. Fram kemur að forstöðumaður hafi upplýst að eiginkonan hafi átt við allnokkur veikindi að stríða á ráðn- ingartímabilinu og því verið nokkuð frá vinnu en vakin er athygli á því að miðað við starfstíma hafi réttur henn- ar til launa vegna veikinda verið tak- markaður. Á árinu 2000 fékk eigin- konan greiddar samtals 233.040 kr. vegna ræstinga og voru greiðslurnar samþykktar af forstöðumanninum. Að mati Ríkisendurskoðunar stuðla svona ráðningarsambönd undantekn- ingarlítið að tortryggni í garð þeirra sem aðild eiga að þeim og almennt sé viðurkennt að forðast beri að stofna til slíkra ráðningarsambanda. Eiginkona forstöðumanns fékk 128.000 kr. greiddar fyrir vinnu við gagnagrunna og tölvuinnslátt vegna skýrslugerðar á árinu 2001 og 108.000 kr. á árinu 2000 fyrir vinnu við gagnagrunna og tölvuinnslátt vegna árbókar en forstöðumaður samþykkti greiðslurnar. „Að mati Ríkisendurskoðunar eiga svipaðar athugasemdir við um samninga um kaup á sérfræðiþjónustu af maka for- stöðumanns og gerðar eru við samn- ing við hann,“ segir í greinargerðinni. Ótrúverðugar skýringar Forstöðumaður Þjóðmenningar- húss fékk alls 587.896 kr. greiddar fyrir 12.069 km akstur eigin bifreiðar á árinu 2001 og 524.798 kr. fyrir 12.095 km akstur á árinu 2000, en hann samþykkti aksturinn jafnan sjálfur. Akstursbók lá ekki fyrir þeg- ar athugun Ríkisendurskoðunar hófst en síðan hefur forstöðumaður skilað ófullkominni akstursbók. Í greinargerðinni kemur fram að skýr- ingar í akstursbókinni geti ekki að öllu leyti talist nægjanlega traustar eða trúverðugar. Í því sambandi er nefnt að akstur sé skráður hér á landi á sama tíma og forstöðumaðurinn hafi verið staddur erlendis í opinber- um erindagjörðum og í öðru tilviki sé skráður akstur á eigin bifreið á sama tíma og hann hafi farið erinda safns- ins á bílaleigubíl. Í bréfi forstöðumanns til Ríkisend- urskoðunar, dagsett 16. janúar sl., tekur forstöðumaðurinn fram að samantekt hans um aksturinn hafi verið unnin upp úr dagbókum á nokkrum klukkustundum og ljóst að akstursbókhaldið hafi ekki verið nægjanlega nákvæmt þar sem það hafi stundum verið fært nokkru eftir að akstur hafi farið fram. Persónuleg útgjöld í bland Forstöðumaður fékk greiddar 70.820 kr. í dagpeninga 25. október 2001 vegna ferðar til Skotlands og hafði Ólafur Ásgeirsson stjórnarmað- ur, fyrir hönd Þjóðmenningarhúss- ins, samþykkt ferðaheimildina dag- inn áður. Áætluð brottför var 26. október og áætluð heimkoma 28. október en fargjald var áætlað 32.457 kr. Á viðskiptareikningi forstöðu- manns var auk dagpeninga færður reikningur að fjárhæð 106.845 kr. vegna flugs til Glasgow 2. nóvember og til baka daginn eftir. Í greinargerðinni kemur fram að samkvæmt upplýsingum Ólafs Ás- geirssonar hafi ekki orðið af fyrr- greindu ferðinni og forstöðumaður- inn hafi verið í persónulegum erindagjörðum í síðarnefndu ferð- inni. Því ber honum að endurgreiða kostnaðinn og auk þess segir Ríkis- endurskoðun að það sé andstætt reglum og því gagnrýnisvert að blanda persónulegum útgjöldum saman við útgjöld Þjóðmenningar- hússins. Eins liggi ekki fyrir að Ólaf- ur Ásgeirsson hafi haft formlegt um- boð til að samþykkja fyrrnefnt fyrir hönd stjórnar. Forstöðumaður gaf út þrjár ávís- anir á liðnu ári samtals að fjárhæð 71.500 kr. og voru þær innleystar úr sjóði í lok desember sl. „Lántaka af þessu tagi er í algerri andstöðu við reglur og eru gerðar alvarlegar at- hugasemdir við hana,“ segir í grein- argerðinni. Menntamálaráðherra átelur vinnubrögð þjóðskjalavarðar Menntamálaráðuneytið er sam- mála þeim athugasemdum sem Rík- isendurskoðun gerir vegna tiltekinna aukastarfa Ólafs Ásgeirssonar þjóð- skjalavarðar skv. bréfi sem Björn Bjarnason menntamálaráðherra sendi þjóðskjalaverði vegna málsins 18. febrúar sl. Í bréfi ráðherra til þjóðskjalavarð- ar segir að ráðuneytið sé sammála at- hugasemdum ,,varðandi það með hvaða hætti hefði átt að standa að greiðslum til yðar fyrir þá sérfræði- þjónustu sem þar er um fjallað í ljósi stöðu yðar sem þjóðskjalavörður og hlutverks kjaranefndar skv. lögum nr. 120/1992 um Kjaradóm og kjara- nefnd sem ákvarðar laun embættis- manna,“ segir m.a. í bréfinu. ,,Menntamálaráðuneytið átelur þau vinnubrögð sem um er fjallað í bréfi Ríkisendurskoðunar um auka- störf yðar og fyrirkomulag greiðslna og telur þau ámælisverð og í and- stöðu við góða stjórnsýsluhætti, í ljósi gildandi laga og reglna sem Ríkis- endurskoðun bendir á. Er lögð áhersla á að þér bregðist þegar við ábendingum Ríkisendurskoðunar og gerið ráðuneytinu grein fyrir því hvernig það verði gert,“ segir í bréfi menntamálaráðherra. Gagnrýnisverð viðskipti Fram kemur í greinargerð Ríkis- endurskoðunar að á árinu 2001 greiddi Þjóðmenningarhúsið þjóð- skjalaverði 1.140.000 kr. samkvæmt fjórum reikningum fyrir sérfræði- þjónustu, einkum textagerð vegna sýninga í húsinu eða undirbúnings þeirra. Á sama hátt greiddi Þjóð- menningarhúsið honum 180.000 kr. á árinu 2000 fyrir rannsókn og texta- gerð vegna sýninga í húsinu og voru umræddir reikningar allir samþykkt- ir af forstöðumanni Þjóðmenningar- hússins, en sambærileg athugasemd er í greinargerðinni vegna Þjóð- menningarhússins. Í athugasemdum Ríkisendurskoðunar segir jafnframt að Þjóðskjalasafnið hafi keypt sér- fræðiþjónustu af forstöðumanninum fyrir 395.000 kr. Vakin er athygli á að skv. ákvæð- um laga skal kjaranefnd ákvarða föst laun fyrir dagvinnu og kveða á um önnur starfskjör embættismanna sem undir hana heyra. Nefndinni beri og að úrskurða hvaða aukastörf tilheyra aðalstarfi og hver beri að launa sérstaklega. ,,Ríkisendurskoðun telur sig hvorki hafa sérstaka ástæðu til þess að draga í efa að þau verkefni, sem þjóðskjalavörður tók að sér að inna af hendi fyrir Þjóðmenningarhúsið, [...] né þau verkefni, sem forstöðumaður Þjóðmenningarhússins tók að sér á sama tíma fyrir Þjóðskjalasafnið, hafi verið innt af hendi. Engu að síður verður eins og á stendur að telja við- skipti þessi gagnrýnisverð. Í því sam- bandi nægir að nefna það samband, sem er á milli þessara tveggja emb- ættismanna í og við stjórn Þjóðmenn- ingarhússins, þ.e.a.s. annar þeirra er stjórnarmaður og hinn forstöðumað- ur, og hins vegar tengsl þeirra sem forstöðumanna ríkisstofnana. Gagn- kvæmt samkomulag þeirra í millum sem forstöðumanna um jafn um- fangsmikil kaup á sérfræðiþekkingu hvors annars eru þess eðlis að þau hljóta að vekja tortryggni og þá eink- um í ljósi hættu á hagsmunaárekstr- um,“ segir m.a. í greinargerðinni. Einnig er í greinargerðinni nokkuð fjallað um reikninga sem Ólafur fékk greidda vegna útgáfuverkefna. Þar er m.a. um að ræða 487.889 kr. reikn- ing vegna vinnu við ritun „Rafvæð- ingarsögu“ og 150.930 kr. greiðslu úr sjóði í vörslu Þjóðskjalasafns vegna ritunar fræðilegs formála við Minnis- og reikningabók Guðbrands biskups. Bendir Ríkisendurskoðun m.a. á að þjóðskjalavörður sat í stjórn sjóðsins og var framkvæmdasjtóri hans en tekur fram að greiðslurnar voru und- antekningarlaust samþykktar af sjóðsstjórninni. Ítrekar stofnunin af þessu tilefni hlutverk kjaranefndar og góða stjórnsýsluhætti. Gert að endurgreiða akstursgreiðslur Fram kemur að á árinu 2000 fékk þjóðskjalavörður alls greiddar 495.202 kr. fyrir 11.380 km akstur eigin bifreiðar og á árinu 2001 fékk hann greiddar alls 567.514 kr. fyrir 11.681 km. akstur. Akstursdagbók vegna þessa aksturs var ekki haldin og var hann krafinn um skýringar á akstrinum. Skilaði hann af þessu til- efni greinargerð um aksturinn sem Ríkisendurskoðun telur ekki ástæðu til þess að bera brigður á. ,,Hins vegar skal vakin athygli á því að meðal tilefna til greiðslu akst- urspeninga var akstur til og frá Keflavíkurflugvelli í tengslum við ferðir þjóðskjalavarðar til útlanda í opinberum erindagjörðum. Um er að ræða 2.100 km akstur af þessu tilefni á árinu 2000 og 1.200 km á árinu 2001. Vegna þessa þykir rétt að taka fram að samkvæmt reglum um greiðslu ferðakostnaðar vegna ferðalaga á vegum ríkisins skulu dagpeningar m.a. standa undir kostnaði við ferðir til og frá flugvöllum. Að mati Ríkis- endurskoðunar ber því þjóðskjala- verði að endurgreiða umræddar akstursgreiðslur,“ segir í greinar- gerðinni. Alvarlegar athugasemdir og ámælisverðar framkvæmdir Ríkisendurskoðun gerir athugasemdir við fjárhagsendurskoðun Þjóðmenningarhúss og Þjóðskjalasafns og forsætisráðherra og menntamálaráðherra taka undir þær. Vinnubrögð og greiðslur fyrir aukastörf forstöðumanns Þjóðmenningarhúss og þjóðskjalavarðar eru talin ámælisverð. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ríkisendurskoðun gerir athugasemdir við endurskoðun Þjóðmenningarhúss og Þjóðskjalasafns
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.