Morgunblaðið - 21.02.2002, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 21.02.2002, Qupperneq 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 11 FRUMVÖRP hafa verið lögð fram að nýju á Alþingi um að fjár- málaráðherra fari annars vegar með hlut ríkissjóðs í Landssíman- um en ekki samgönguráðherra og hins vegar með hluti ríkisins í Búnaðarbankanum og Lands- bankanum í stað viðskiptaráð- herra. Svanfríður Jónasdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar á Norðurlandi eystra, leggur fyrra frumvarpið fram ásamt sam- flokksmanni sínum, Lúðvík Berg- vinssyni úr Suðurlandskjördæmi, og Lúðvík er svo aðalflutnings- maður þess síðarnefnda. Frum- vörpin voru flutt á síðasta þingi en urðu ekki útrædd og eru nú endurflutt með nokkrum breyt- ingum. Þingmennirnir benda í áþekk- um greinargerðum sínum með frumvörpunum á þá meginreglu í reglugerð um Stjórnarráð Ís- lands að fjármálaráðuneytið fari með eignir ríkisins. Á þessu hafi hins vegar verið gerðar undan- tekningar með sérstökum ákvæð- um í lögum, m.a. með Símann og samgönguráðherra. „Fagráðherra á hverju sviði verður þá fagráðherra allra fyr- irtækja á viðkomandi sviði en ekki sérstakur ráðherra ein- stakra fyrirtækja. Slíkt hefur vakið tortryggni og hafa fyrir- tæki á markaðnum haldið því fram að það leiddi til samkeppn- isforskots að hafa undir höndum upplýsingar um að stjórnvalds- reglur af tilteknu tagi séu í und- irbúningi,“ segir orðrétt í báðum greinargerðunum. Tveir þingmenn Samfylkingar endurflytja frumvörp á Alþingi Fjármálaráðherra fari með hlut ríkisins í Sím- anum og bönkunum DRÖG liggja fyrir að samningi um kaup Borgarbyggðar, Sparisjóðs Mýrasýslu og Kaupfélags Borgfirð- inga á tækjum og vörumerkjum Norðlenska matborðsins ehf. vegna slátrunar og kjötvinnslu í Borgar- nesi. Jafnframt eru leigusamningar á húsnæði yfirteknir. Stefnt er að því að hefja stórgripa- slátrun og kjötvinnslu í Borgarnesi eigi síðar en um næstu mánaðamót og byrjað verður að ráða starfsmenn á næstu dögum. Í fréttatilkynningu segir að með þessu hefur óvissu um framtíð stórgripaslátrunar og kjöt- vinnslu í Borgarnesi verið eytt en fyrirkomulag sauðfjárslátrunar er ekki ljóst. Á grundvelli fyrrnefnds samkomu- lags verður stofnað félag um rekstur sláturhúss og kjötvinnslu sem mun yfirtaka eignir og leigusamninga á húsnæði sem Norðlenska matborðið ehf. hafði á leigu í Borgarnesi. Stefán Kalmansson, bæjarstjóri Borgarbyggðar, segir að sveitarfé- lagið muni leggja fram 25 milljónir í hlutafé, Sparisjóður Mýrasýslu 50 milljónir en Kaupfélag Borgfirðinga mun eiga talsvert minni hlut. End- anlegt samkomulag er háð samþykki stjórnar Norðlenska og stjórnar nýs félags, en gert er ráð fyrir að það liggi fyrir innan tíu daga. Norðlenska tók við rekstri sláturhúss og kjöt- vinnslu í Borgarnesi af Goða hf. en hætti þar starfsemi í janúar. Hjá fyr- irtækinu störfuðu alls tæplega 40 manns í um 26 stöðugildum. Stefán segir í samtali við Morgun- blaðið að ekki verði hægt að tryggja öllu þessu fólki atvinnu hjá hinu nýja félagi en stórum hluta þeirra verði boðin þar vinna. „Gert er ráð fyrir að þetta fari rólega af stað og frekar hægt að bæta [starfsfólki] við þegar þetta hefur náð fótfestu,“ segir Stef- án. Flestir þeirra sem unnu við kjöt- vinnslu og slátrun eru enn á upp- sagnarfresti og hefur starfsfólkið litið til þess að rekstur hæfist á ný. Aðspurður um hvort 25 milljóna fjár- festing sé ekki stór biti fyrir sveitar- félagið segir Stefán að það fari eftir því hvernig á það sé litið. Þetta sé veruleg fjárhæð en minnir á að tekjur sveitarfélagsins dragist sam- an ef margir íbúar missa atvinnuna. Með þessu sé einnig verið að vernda þá þekkingu sem er til staðar í Borg- arnesi, en þar hefur verið kjötvinnsla áratugum saman. „Aðalatriðið fyrir sveitarfélagið er að þessi starfsemi nái að bera sig þannig að hægt sé að fá þessa pen- inga til baka. Það er markmið sveit- arfélagsins að fá peninga til baka sem fyrst.“ Ætlunin sé að fá aðra að- ila að rekstrinum sem fyrst en ekki hafi verið forsendur til þess með svo skömmum fyrirvara. Stefán telur einsýnt að hefði ekki náðst sam- komulag nú hefði verið hætta á því að rekstur kjötvinnslu og sláturhúss hefði lagst af í Borgarnesi. Starfsfólk hafi t.d. þurft að finna sér aðra vinnu og kjötiðnaðarmenn væntanlega þurft að leita í önnur bæjarfélög. Slátrun og kjötvinnsla hefjast á ný í Borgarnesi Byrjað að ráða starfsmenn á næstu dögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.