Morgunblaðið - 21.02.2002, Page 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 13
ÍSLENDINGAR virðast hóflega
bjartsýnir á möguleika landsliðsins á
að komast í úrslit Evrópukeppninn-
ar í knattspyrnu sem fram fer í
Portúgal árið 2004, að því er fram
kemur í nýlegri könnun Pricewater-
houseCoopers.
Rétt liðlega fimmtungur svarenda
taldi möguleikana vera mjög mikla
eða frekar mikla en 52% telja þá hins
vegar vera mjög litla eða frekar litla.
Konur virðast vera heldur bjart-
sýnni en karlarnir: fjórðungur
kvenna telur möguleika mikla eða
frekar mikla en aðeins rúm 16%
karla.
20% telja möguleikana góða
TÓLF gefa kost á sér í prófkjöri sjálf-
stæðismanna í Bessastaðahreppi sem
fram fer nk. laugardag. Þar af eru
þrír núverandi sveitarstjórnarmenn,
þeir Guðmundur G. Gunnarsson, odd-
viti hreppsnefndar, Snorri Finnlaugs-
son og Þórólfur Árnason. Jón G.
Gunnlaugsson, sem verið hefur í
hreppsnefnd þrjú síðustu kjörtímabil,
hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér
aftur. Sjálfstæðisfélag Bessastaða-
hrepps hefur nú meirihluta í hrepps-
nefnd, þ.e. fjóra fulltrúa af sjö.
Aðrir frambjóðendur í prófkjörinu
eru: Erla Guðjónsdóttir skólafulltrúi,
Sigurdís Ólafsdóttir háskólanemi,
Sigríður Rósa Magnúsdóttir við-
skiptafræðingur, Gissur Pálsson
verkfræðingur, Hervör Poulsen skrif-
stofumaður, Doron Eliasen deildar-
stjóri, Halla Jónsdóttir líffræðingur,
Hildur Ragnars lyfjafræðingur og
Bragi Jónsson verkstjóri.
Kjörstaður opnaður kl. 10
Í frétt frá Sjálfstæðisfélagi Bessa-
staðahrepps kemur fram að prófkjör-
ið fari fram nk. laugardag og er kjör-
staður í íþróttamiðstöð Bessastaða-
hrepps. Kjörstaður verður opinn frá
kl. 10 til 18. Prófkjörið er opið öllum
stuðningsmönnum sjálfstæðisfélags-
ins sem eiga kosningarétt á kjördegi,
25. maí nk., og öllum félögum í Sjálf-
stæðisfélagi Bessastaðahrepps sem
náð hafa 16 ára aldri.
Sjálfstæðismenn í Bessastaðahreppi
Tólf gefa kost á sér
Í KÓREU er ekki not-
að skordýraeitur né
önnur eiturefni við
framleiðslu á rauðu
ginsengi. Korea Gin-
seng Corp., sem er
ríkisfyrirtæki, og
framleiðir og selur
rautt eðalginseng,
fylgist grannt með
framleiðslu hvers
bónda eða framleið-
anda þar í landi til
þess að tryggja gæði
ginsengsins.
Þetta kom fram í
vitnisburði dr. Si-
Kwan Kim fyrir Hér-
aðsdómi Reykjavíkur
á þriðjudag en Korea
Ginseng Corp. höfð-
aði mál á hendur Heilsuverslun Ís-
lands vegna fullyrðinga sem fram
komu í auglýsingu á vegum
Heilsuverslunarinnar í fyrra þess
efnis að við ræktun ginseng-
jurtarinnar í Kóreu sé jarðvegur
oft bættur með kemískum efnum.
Eðalvörur eru umboðsaðili fyrir-
tækisins hér og á hinum Norð-
urlöndunum og var
von á fulltrúum fyr-
irtækis, sem kaupir
ginseng af Eðalvör-
um, í fylgd danskra
blaðamanna.
Stefnandi, Korea
Ginseng Corp., fer
fram á að fullyrð-
ingar í auglýsingu
Heilsuverslunarinnar
verði dæmdar dauðar
og ómerkar enda hafi
þær valdið fyrirtæk-
inu fjárhagslegu
tjóni.
Dr. Si-Kwan Kim er
prófessor við Konk-
uk-háskólann í Seúl
og virtur sérfræð-
ingur á sviði nátt-
úrulegra efna sem notuð eru við
lyfjagerð og til lækninga. Kóresk
stjórnvöld standa straum af kostn-
aði vegna komu dr. Kim hingað til
lands.
Dr. Kim bar fyrir réttinum að
notkun skordýraeiturs væri bönn-
uð við ræktun ginsengjurtarinnar
svo og notkun tilbúins áburðar.
Spurður hvort hugsast gæti að
framleiðendur gætu hreinsað burt
eiturefni á framleiðslustiginu
hefðu þau verið notuð við rækt-
unina sagði Kim að það væri
fræðilegur möguleiki en slíkt
svaraði alls ekki kostnaði og væri
ekki stundað í Kóreu. Hann lagði
áherslu á að framleiðsla á ginseng
í Kóreu væri árþúsunda gömul og
hluti af menningu og sögu Kóreu
og orðspor ginsengsins skipti
stjórnvöld þar miklu máli og m.a.
þess vegna kæmi ríkið að fram-
leiðslunni, til þess að tryggja gæði
og hreinleika vörunnar.
Í samtali við Morgunblaðið
sagði dr. Kim að í efnahagslegu
tilliti skipti útflutningur á gin-
sengi Kóreu nær engu máli. Hins
vegar vildu stjórnvöld stjórna og
hafa eftirlit með framleiðslunni
vegna þess að ginseng væri í raun
hluti af þjóðarímynd Kóreu. „Öld-
um saman höfum við verið stolt af
framleiðslu okkar á ginsengi og
það er í okkar eigin þágu að fram-
leiða hreina og góða vöru. Við vilj-
um fyrir enga muni stofna því orði
sem af ginseng fer í hættu.“
Sérfræðingur og prófessor við háskólann í Seúl
Ginseng hluti af ímynd Kóreu
Dr. Kim: „Notkun
eiturefna við fram-
leiðslu á ginseng er
bönnuð í Kóreu.“