Morgunblaðið - 21.02.2002, Side 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 15
„ÁHRIF KOLLAGENS
ÁN SPRAUTUNNAR“
COLLAGENIST
DREGUR ÚR HRUKKUM - STYRKIR
Nýtt krem og serum með efnum sem örva
myndun kollagens og húðin veður
sjáanlega unglegri.
Bankastræti 8, sími 551 3140
Viltu kynnast byltingarkenndum snyrtivörum?
Skemmtilegar konudagsgjafir.
Ráðgjafi verður frá Helena Rubinstein
í dag og á morgun.
RÚMLEGA 14.000 tonn af loðnu
hafa borist í verksmiðju Ísfélags
Vestmannaeyja í Krossanesi á Ak-
ureyri á yfirstandandi loðnuvertíð.
Um hádegisbil í gær var lokið við
að landa fullfermi, um 1.000 tonn-
um af loðnu, úr Antaresi VE og um
svipað leyti sigldi annað skip Ís-
félagsins, Sigurður VE, með full-
fermi, um 1.500 tonn, inn til Ak-
ureyrar. Ekki var hægt að hefja
löndun úr Sigurði strax, vegna þess
að olíuskip lá við bryggju í Krossa-
nesi en stefnt var að því að hefja
löndun úr skipinu um miðnætti.
Að sögn Hilmars Steinarssonar
verksmiðjustjóra í Krossanesi hef-
ur borist meiri afli á land nú en á
sama tíma í fyrra. Fram til 18. mars
á síðasta ári bárust um 22.000 tonn
af loðnu í Krossanes en Hilmar von-
ast eftir enn meiri afla í ár, enda
mokveiði á loðnumiðunum þessa
dagana.
Morgunblaðið/Kristján
Sigurður VE siglir með fullfermi af loðnu inn til Akureyrar.
Loðnu landað í Krossanesi
Vorum að taka upp nýjar vörur
Freemans - Bæjarhrauni 14 -
s: 565 3900 - www.freemans.is
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Silhouette
EIGENDUR veitingastaðarins La
Primavera í Reykjavík, þeir Leifur
Kolbeinsson og Ívar Bragason,
verða gestir Karólínu Restaurant
dagana 21.-23. febrúar. Þeir bjóða
gestum Karólínu upp á sérréttamat-
seðil í anda hins alþjóðlega ítalska
eldhúss. Allar konur meðal gesta
munu fá sérstakan glaðning þessa
daga í tilefni af konudeginum.
Ívar mun í kvöld verða með kynn-
ingu á ítölskum vínum og flytur um
þau fyrirlestur ásamt því að kynna
nýútkomna bók um La Primavera.
Að lokinni kynningu verður boðið
upp á léttar ítalskar veitingar.
Hefst kynningin kl. 20.30 og er
þátttökugjald kr. 1.000. Tekið er við
bókunum á Karólínu í síma eða
tölvupósti, karolina@karolina.is.
La Primavera á Karólínu Restaurant
Ítalskur matur og vín
KVÖLDSKEMMTUN verður í
Deiglunni annað kvöld, föstu-
dagskvöldið 22. febrúar, og
hefst hún kl. 22.
Fram koma nokkur söngva-
skáld frá Akureyri og úr nær-
sveitum, meðal annars Brand-
ur, Eiríkur Bóasson, Jón
Laxdal, Toggi og Geiri og Þór-
arinn Hjartarson.
Kvöld-
skemmtun
alltaf á föstudögum