Morgunblaðið - 21.02.2002, Qupperneq 17
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 17
Borgartúni 28, 562 2901
www.ef.is
OSO
hitakútar
úr ryðfríu stáli
30 ára frábær reynsla á
þúsundum íslenskra heimila
30/50/100/120/200 eða 300 lítra
Blöndunar- og öryggisloki fylgir
20% orkusparnaður
Hagstætt verð
ISO 90
02
Frábæ
r endi
ng!
HUGMYNDIN um að nota lín-
trefjar til að blanda í plastefni með
glertrefjum eða í stað þeirra varð til
þess að Auðunn Óskarsson á Rauð-
kollsstöðum í Eyja- og Miklaholts-
hreppi ákvað að kynna sér mögu-
leika á aðvinna lín á Íslandi með það í
huga að framleiða hráefni fyrir plast-
verksmiðju sína, Trefjar ehf. í Hafn-
arfirði. Tilraunir af þessu tagi hafa
verið gerðar um nokkurt skeið hjá
Sicomb, rannsóknar- og þróunarfyr-
irtæki í Svíþjóð. Þessar tilraunir
snúast helst um það að finna hag-
kvæma leið til að framleiða vistvæna
plastvöru úr lífrænum efnum.
Auðunn naut í upphafi aðstoðar
þeirra Ingibjargar Styrgerðar, vef-
listakonu, og Smára Ólafssonar, eig-
inmanns hennar, en þau létu í té
ýmsar gagnlegar upplýsingar um
ræktun hörs og vinnslu líns auk þess
sem fyrstu frækornin komu frá þeim.
Í fyrravor var tveimur frætegund-
um sáð í akrana á Rauðkollsstöðum
til að fá samanburð. Í ljós kom að
önnur tegundin kom mun betur út,
en alls var sáð í sex hektara. Upp-
skera var góð og fyllilega sambæri-
leg uppskeru bænda annars staðar í
Evrópu eða 6–8 tonn af hörstráum á
hvern hektara. Þetta er annað árið
sem einhverju magni er sáð og nú
síðast var gengið alla leið þannig að
þetta yrði véltækt. Þar sem hör er
ekki sleginn heldur honum rykkt
upp með rót var flutt inn upptökuvél
frá Póllandi. Þegar hörinn hefur ver-
ið tekinn upp raðar vélin honum á ak-
urinn og eftir þurrkun er hann tek-
inn upp með rúlluvél.
Lín er síðan unnið úr hörstráum
með feygingu og er miðað við að 20–
22% af líni fáist úr hörnum. Þá skipt-
ist línið í tvo meginflokka, stutt-
trefjar og langtrefjar. Þær fyrr-
nefndu eru notaðar í plastiðnaði en
langtrefjar eru mest nýttar í spuna-
verksmiðjum. Það að aðskilja lín úr
hörstráinu er kallað feyging.
Tilraunaverksmiðja
sett á laggirnar
Félagið Feyging ehf. var stofnað
um starfrækslu verksmiðju í þessu
skyni og vinnsluna á að byggja á
jarðhita. Lítil tilraunaverksmiðja
hefur verið sett á laggirnar á þeirra
vegum til að þróa tæki og aðferðir,
en ekki er vitað til þess að jarðhiti
hafi verið nýttur í þessum tilgangi
fyrr. Möguleiki er með því að ná for-
skoti á keppinautana. Tilraunir hafa
gengið vel og lofa góðu. Þessum til-
raunum stýrir Kristján Eysteinsson
hjá Feygingu ehf.
Mikið af ræktuðu landi til sveita er
lítið eða ekki í notkun. Ef vel tekst til
gæti þetta aukið möguleika bænda
til nýtingar lands og véla. Hins vegar
styrkir ESB sína bændur við ræktun
líns verulega svo samkeppnin á
markaði er ósanngjörn. Það mun þó
vera stefna EBS að leggja af þessa
styrki fyrir árið 2005.
Þörfin fyrir náttúrulega vöru á
borð við líntrefjar hefur aukist á ný
eftir samdrátt á svokölluðum pólý-
esterárum, þ.e. þegar framleiðsla úr
gerviefnum var ráðandi. Með auk-
inni áherslu á umhverfisvernd er
þróunin hins vegar að snúast við og
sífellt er leitað vistvænni leiða í iðn-
aði.
Eftirspurn eftir líntrefjum fer
vaxandi og notkun þeirra í plastiðn-
aði hefur aukist til muna. Þær þykja
eftirsóknarvert hráefni í plastiðnaði
því þar er um að ræða umhverfis-
vænan kost. Mikil áhersla er á vist-
væna framleiðslu þannig að þegar
hlutverki vöru lýkur eyðist hún fljótt
í náttúrunni eða fer í endurvinnslu.
Sem dæmi um kosti líntrefja í plast-
iðnaði má nefna tölvugeirann því
stöðurafmagn eða núningsupp-
hleðsla er lítil sem engin í vörum
framleiddum úr líntrefjum. Auk þess
er ofnæmi og kláðaóþol sem oft fylgir
gerviefnum og glertrefjum minna og
jafnvel ekkert sé varan unnin úr
náttúrulegum trefjum eins og líni.
Markaðurinn fer þar af leiðandi
vaxandi og eru því miklir möguleikar
fyrir góða vöru. Nefna má að stærð
íslensks markaðar fyrir líntrefjar, til
notkunar í plastiðnaði, er áætluð
u.þ.b. tuttugu tonn á ári.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Auðunn Óskarsson með sýnishorn af framleiðslunni.
Hörframleiðsla á
Rauðkollsstöðum
Eyja- og Miklaholtshreppur