Morgunblaðið - 21.02.2002, Side 18
SUÐURNES
18 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Kanebo kynning í dag og á morgun kl. 12-17
FARÐINN SEM FULLKOMNAR HINA SÖNNU FEGURÐ!
Austurstræti.
MIKIL stemning ríkir í Myllubakka-
skóla þessa dagana enda 50 ára af-
mælishátíð í fullum gangi. Þegar
Morgunblaðið leit þar inn á þriðju-
dagsmorgni mátti heyra hlátur, tón-
list og vélarhljóð úr öllum hornum
þar sem ratleikur var í fullum gangi
á göngunum og vinnusmiðjur eru
starfandi víðsvegar um skólann í
vikunni.
Afmælishátíðin hófst á mánudags-
morgun og höfðu allir nemendur þá
valið sér smiðjur til að starfa í, eina
fyrir hvern dag. Um tuttugu smiðjur
voru í boði, margvíslegar listasmiðj-
ur eins og myndlistarsmiðja, leikræn
tjáning, skrautskrift, danssmiðja og
gifssmiðja en einnig heilsu- og mat-
arsmiðja, eðlisfræðismiðja og tölvu-
smiðja, svo einhverjar séu nefndar.
Smiðjurnar eru allar aldursbland-
aðar og að sögn aðstandenda þeirra
hefur starfið gengið vel. „Þau hafa
verið mjög umburðarlynd hvert við
annað og þetta hefur verið mjög
skemmtilegt,“ sagði Dröfn Rafns-
dóttir myndmenntakennari, sem
ásamt Svanhildi Skúladóttur mynd-
menntakennara var að aðstoða
börnin við að búa til kassamálverk.
„Við höfðum ákveðið að búa til
málverk á harðan flöt til að hengja
síðan upp í vikunni og þegar við fór-
um að ræða þetta nánar varð úr að
við sniðum stóran pappakassa úr
mörgum smærri. Óneitanlega nokk-
uð fyrirferðarmikið en mjög
skemmtilegt og kemur vel út,“ sagði
Svanhildur.
Í bókasafni skólans voru nem-
endur í sögusmiðju. Þau lásu hvert
fyrir annað sögur og ævintýri og
settust að því loknu niður og skrif-
uðu sína eigin sögu. Í efnafræðistof-
unni voru nemendur að grandskoða
eðlisþyngd ýmissa efna og í leik-
rænni tjáningu fengu nemendur að
upplifa gamla skólaandann.
Mörg falleg verk hafa litið dagsins
ljós í smiðjunum og mörg eiga eftir
að verða til. Víðsvegar um skreyttan
skólann hefur verið skilið eftir autt
veggpláss til þess skreyta með þeim
verkum.
Miðstig skólans, það er að segja 5.,
6. og 7. bekkur, hefur ásamt umsjón-
arkennurum unnið að heimildaöflun
um sögu skólans á Bókasafni
Reykjanesbæjar. Að sögn Hildar Ell-
ertsdóttur var hverjum árgangi út-
hlutað ákveðnu tímabili og síðan
réðust þau í að finna heimildir. „Við
erum að athuga hvernig og hvað
hefur verið skrifað um Myllubakka-
skóla í fimmtíu ára sögu hans. Við
höfum að mestu stuðst við heimildir
úr Faxa, þar sem það er efnistekið,
en einnig flettum við í gegnum önn-
ur Suðurnesjablöð. Við tökum svo
ljósrit af því sem við finnum, snyrt-
um þau til og límum í úrklippubók
sem varðveitt verður í skólanum.
Hún mun verða ómetanleg heimild
um skólasöguna. Þessir sömu nem-
endur hafa einnig verið að taka við-
töl við gamla nemendur við skólann
og þau viðtöl verða einnig varðveitt í
bók og hún geymd í skólanum,“
sagði Hildur.
400 blöðrum sleppt
Í afmælisvikunni verður opið hús í
skólanum og öllum velkomið að
skoða húsnæðið og þá starfsemi sem
fram fer. Foreldrar og forráðamenn
nemenda skólans hafa sérstaklega
verið hvattir til að mæta. Til að að-
stoða fólk við að komast leiðar sinn-
an um skólagangana og rata á réttar
smiðjur hefur foreldrafélag skólans
sett upp tvær stöðvar og er félagið
boðið og búið að aðstoða þá sem
vilja.
Næstkomandi föstudag verður
haldið upp á afmælið með pomp og
prakt. Ef veður leyfir munu börnin
byrja daginn á því að tengjast hönd í
hönd á skólalóðinni, syngja afmæl-
issönginn og sleppa að því loknu 400
blöðrum út í himinblámann. Þá
munu nemendur og kennarar ganga
fylktu liði að þeim stöðum þar sem
skóli var áður starfræktur í Kefla-
vík. Frá Sólvallagötu verður gengið
að Íshússtíg, þar sem fyrsti skólinn
stóð, og þaðan upp að Skólavegi, að
gamla skólanum sem reistur var
1911 og hýsir nú Miðstöð símennt-
unar á Suðurnesjum. Að göngu lok-
inni verður nemendum boðið upp á
skemmtiatriði og stór afmælisterta
verður komin í hús.
Þess er minnst að 50 ár eru liðin frá
vígslu skólahúss Myllubakkaskóla
Hlátur, tónlist
og vélarhljóð
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Dröfn Rafnsdóttir og Svanhildur Skúladóttir myndmenntakennarar að-
stoða börnin í listasmiðju skólans við að gera pappakassamálverk.
Keflavík
KÍTTA þarf betur meðfram glugg-
um Íþróttamiðstöðvarinnar í Njarð-
vík til þess að koma í veg fyrir að
vatn pípi þar inn og skemmi park-
etgólf íþróttasalarins. Gólfið er að-
eins farið að skemmast með veggjum
Ljónagryfjunnar þekktu.
Friðrik Ragnarsson, þjálfari
körfuknattleiksliðs UMFN og fram-
bjóðandi í prófkjöri Samfylkingar-
innar í Reykjanesbæ, vakti athygli á
því í framboðsgrein að vegna slæms
viðhalds íþróttamannvirkja lægi
parketið í íþróttamiðstöðinni í
Njarðvík undir skemmdum vegna
leka og hefði raunar þegar skemmst.
Í framhaldi af því fluttu bæjar-
fulltrúar Samfylkingarinnar tillögu
um að bæjarstjóra yrði falið að gera
úttekt á því hvaða framkvæmdir
væru nauðsynlegar til að koma í veg
fyrir verulegt tjón og að láta gera
kostnaðaráætlun fyrir verkið. Var
tillagan samþykkt samhljóða í bæj-
arstjórn í fyrrakvöld.
Hafsteinn Ingibergsson, forstöðu-
maður Íþróttamiðstöðvarinnar, seg-
ir að gluggar hússins séu orðnir
óþéttir og vatn pípi þar inn þegar
suðvestan slagviðri geri. Það hafi
verið að ágerast í vetur en sem betur
fer séu veðurskilyrði sjaldan óhag-
stæð. Hann segir að byrjaðar séu að
sjást skemmdir á parketinu við út-
veggi en þær séu ekki alvarlegar enn
sem komið er.
Ólokið er framkvæmdum við
Íþróttamiðstöðina sem hafnar voru
fyrir nokkrum árum. Meðal annars
er eftir að innrétta félagsaðstöðu á
efri hæð hússins. Samhliða þeim
verður húsið klætt að utan og lagað í
kringum glugga. Framkvæmdirnar
voru áformaðar á þessu ári en hefur
verið frestað fram á næsta ár. Stefán
Bjarkason, íþrótta- og tómstunda-
fulltrúi Reykjanesbæjar, segir að
vegna þessarar frestunar á lokafrá-
gangi hússins verði að kítta betur
með gluggunum til bráðabirgða.
Hann segir að sem betur fer sé park-
etinu ekki mikil hætta búin.
Körfurnar í lagi
Friðrik Ragnarsson fullyrti jafn-
framt í grein sinni að körfurnar í
húsinu væru orðnar allt að 11 sentí-
metra lágar vegna þess að þakið
hefði sigið. Af þessu tilefni lét Stefán
mæla körfurnar í gær. Hann segir að
aðalkörfurnar séu í réttri hæð, 3,05
uppi við spjaldið. Þær halli hins veg-
ar örlítið fram vegna slits í legum en
það sé innan skekkjumarka. Hann
segir að ein milljón sé ætluð á fjár-
hagsáætlun til að laga keppniskörf-
urnar og verði það gert að loknu
keppnistímabilinu. Hann segir að
svo virðist sem Friðrik eigi við ein-
hverjar af æfingakörfunum sem eru
til hliðar í salnum þegar hann tali um
að körfurnar séu of lágar. Það skipti
minna máli. Eigi að síður verði
fengnir sérfræðingar til að mæla
þær nákvæmlega svo hægt verði að
laga þær einnig í sumar.
Lekur inn í Ljónagryfjuna
Njarðvík
EKKI er annað hægt að segja en að
starfsemin í Handverkshúsinu Sjó-
list í Grindavík fari vel af stað. For-
stöðukonan, Linda Kristín Odds-
dóttir, er ánægð með starfsemina
og segir að félagar séu nú orðnir
24.
Starfsemin er mjög fjölbreytt og
nánast allt handverk sem dettur
þarna inn. Þegar blaðamann bar að
garði var í gangi myndlistar-
námskeið undir öruggri leiðsögn
Reynis Katrínarsonar.
„Nú er að fara af stað leirlist-
anámskeið og vonandi líka ung-
linganámskeið í leirnum. Þetta fer
ákaflega vel af stað og ég er mjög
ánægð með þátttökuna,“ sagði
Linda.
Myndlist
í Sjólist
Grindavík
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Anna Hanna Valdimarsdóttir málar á námskeiði í Sjólist.
Hafna hug-
myndum
hagsmuna-
samtaka
Sandgerði
HAFNARRÁÐ Sandgerðisbæjar
hefur sent frá sér ályktun þar sem
hafnað er hugmyndum „svokallaðra
hagsmunasamtaka í sjávarútvegi“
um breytingar á lögum um stjórn
fiskveiða.
Í greinargerð með ályktuninni
kemur fram að ráðið telur að slík
lagabreyting muni skaða höfnina,
fiskvinnslu og útgerðir kvótalausra
og kvótalítilla skipa. Hafnarráðið
telur hins vegar brýnt að endur-
skoða lög um stjórn fiskveiða í
heild, með hagsmuni heildarinnar
að leiðarljósi.
Bæjarstjóri
í stjórn HS
GUÐJÓN Hjörleifsson, bæjarstjóri
í Vestmannaeyjum, hefur tekið
sæti í stjórn Hitaveitu Suðurnesja
hf.
Í gær var gengið endanlega frá
formsatriðum varðandi kaup Hita-
veitu Suðurnesja á Bæjarveitum
Vestmannaeyja. Fulltrúar hluthaf-
anna undirrituðu hluthafasam-
komulag vegna samrunans. Síðan
var haldinn formlegur hluthafa-
fundur þar sem Vestmannaeyjabær
tilnefndi sinn fulltrúa sem er tólfti
maðurinn í stjórn fyrirtækisins.
Reykjanes
♦ ♦ ♦