Morgunblaðið - 21.02.2002, Qupperneq 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 19
Viðhald í lágmarki. Húsin eru einangruð að utan og
klædd með áli og harðvið að hluta og gluggar eru
álklæddir.
Innréttingar, skápar og hurðir eru vandaðar og
hægt er að velja milli þriggja viðartegunda.
Lögð er sérstök áhersla á góða hljóðeinangrun.
Gólfplötur annarar hæðar og ofar verða
einangraðar undir gólfílögn.
Í öllum íbúðum er þvottahús auk sér geymslu í
kjallara.
Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna að
undanskyldum baðherbergisgólfum sem eru
flísalögð.
Í öllum íbúðum er dyrasími tengdur myndavél í
anddyri. Settur verður upp tengikassi í hverja íbúð
fyrir síma, loftnet og ljósleiðara og verða sjónvarps-,
síma- og nettengingar mögulegar úr öllum
herbergjum.
Sér bílastæði í bílageymsluhúsi fylgir öllum íbúðum.
Sameign og lóð verða fullgrágengin með
snjóbræðslu í stétt fyrir framan húsið.
Til sölu glæsilega hannaðar mjög rúmgóðar 2ja,
3ja og 4ra herbergja, 86 til 142 fm, íbúðir við
Laugarnesveg 87 og 89. Allar íbúðir eru með
sérinngangi. Íbúðirnar verða afhendar 1. des.
2002.
Allar svalir snúa einkar vel á móti sólu
Ítarlegar upplýsingar á www.iav.is
Hafðu samband við söludeild ÍAV í síma 530 4200
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti kvaðst í
gær vilja viðræður við stjórn Norður-Kóreu
og sagði að stjórn sín hefði engin áform um að
gera árás á landið. Hann fordæmdi hins vegar
einræðisstjórnina í Pyongyang þegar hann
skoðaði víggirt landamæri Kóreuríkjanna og
sagði að hún ætti það fyllilega skilið að vera
kennd við „hið illa“.
Bush skoðaði meðal annars lestastöð um
180 m frá hlutlausa beltinu, sem hefur skipt
Kóreuskaga frá stríðinu 1950-53 sem lauk með
vopnahléi en ekki formlegum friðarsamningi.
Forsetinn spáði því að friðarsamkomulag
næðist milli ríkjanna. „Ég sé fyrir mér Kóreu
sem verður dag einn sameinuð í viðskiptum og
samvinnu, ekki skipt í tvennt með gaddavír og
ótta.“
Þegar Kim Dae-jung, forseti Suður-Kóreu,
sýndi Bush lestastöðina heyrðu þeir norður-
kóreska áróðurstónlist frá varðstöð handan
við gaddavírsgirðingu á landamærunum. Bush
notaði þá tækifærið til að fordæma kúgunina í
Norður-Kóreu. „Kóresk börn ættu aldrei að
svelta meðan gríðarstór her er mettur. Ekk-
ert ríki ætti að vera fangelsi eigin þjóðar.“
Bush fór einnig í suður-kóreska varðstöð
við landamærin og notaði sjónauka til að
skoða gaddavírsgirðingar og jarðsprengju-
belti á landamærunum. Herforingi sagði hon-
um að Norður-Kóreumenn hömpuðu nú öxum,
sem beitt var til að drepa bandaríska hermenn
í Kóreustríðinu, í „Friðarsafninu“ í Pyong-
yang. „Það er engin furða að ég skuli telja þá
illa,“ sagði þá Bush.
Norður-Kóreustjórn hefur sent meira en
milljón hermanna og tugi þúsunda stórskota-
liðstækja og flugskeyta að landamærunum
þótt allt sé í lamasessi í landinu og margir íbú-
anna svelti. Bush notaði tækifærið til að út-
skýra frekar hvers vegna hann liti á Norður-
Kóreu, Íran og Írak sem „öxul hins illa“. Hann
hefur hingað til lagt áherslu á meint tengsl
ríkjanna við hryðjuverkasamtök og tilraunir
þeirra til að smíða gereyðingarvopn en í gær
talaði hann um áhyggjur sínar af hörmung-
arástandinu í Norður-Kóreu.
„Mér hrýs hugur við stjórn sem lætur
hungursneyð viðgangast,“ sagði hann. „Ég hef
miklar áhyggjur af fólkinu í Norður-Kóreu.“
Bush lýsti yfir fullum stuðningi við þá
stefnu Kims forseta að koma á sáttum milli
Kóreuríkjanna og kvaðst vilja hefja viðræður
við stjórnina í Pyongyang. Hann lagði þó
áherslu á að hann myndi ekki treysta Kim
Jong Il, leiðtoga Norður-Kóreu, nema hann
léti af kúguninni og reyndi að bæta kjör þjóð-
arinnar.
Suður-kóreski forsetinn kvaðst vera ánægð-
ur með niðurstöðu viðræðnanna við Bush og
neitaði því að hann væri andvígur stefnu hans
í málefnum Norður-Kóreu. Stuðningsmenn
friðarumleitana Suður-Kóreustjórnar hafa
sagt að stefna Bush magni spennuna á Kóreu-
skaga.
Óeirðalögreglan í Seoul barðist í gær við
hundruð manna sem söfnuðust saman í mið-
borginni til að mótmæla heimsókn Bush. Mót-
mælendurnir kveiktu í bandarískum fánum og
mynd af Bush með áletruninni: „Bush er öxull
hins illa“.
Forsetinn fer til Peking í dag og kveðst
ætla að ræða mannréttindamál, einkum trú-
frelsi, á fundi sínum með Jiang Zemin, forseta
Kína.
Bush vill við-
ræður við stjórn
Norður-Kóreu
Dorasan. AFP, AP.
Bush forseti skoðar víggirðingar og jarð-
sprengjubelti N-Kóreumanna við landa-
mæri Kóreuríkjanna ásamt bandaríska
hershöfðingjanum Thomas Schwartz (t.h.)
og undirhershöfðingjanum William Mill-
er. Bush hefur sagt að Norður-Kórea
myndi „öxul hins illa“ ásamt Íran og Írak.
Skoðar „öxul hins illa“
AP
LIONEL Jospin, forsætisráð-
herra Frakklands, tilkynnti í
gær að hann hygðist bjóða sig
fram gegn Jacques Chirac for-
seta í for-
setakosning-
unum í apríl
og maí.
Francois
Hollande,
fram-
kvæmda-
stjóri
Sósíalista-
flokksins,
skýrði enn-
fremur frá
því að forystumenn flokksins
myndu koma saman á sunnu-
daginn kemur til að staðfesta
framboð forsætisráðherrans
formlega. Franskir sósíalistar
hafa sakað Chirac um að hafa
svikið loforð sem hann gaf fyrir
forsetakosningarnar 1995 þeg-
ar hann bar sigurorð af Jospin.
Skoðanakannanir benda til
þess að lítill munur sé nú á fylgi
þeirra.
Tommy Suharto
í fangelsi
TOMMY Suharto, yngsti sonur
fyrrverandi einræðisherra
Indónesíu, var færður í fangelsi
í gær og verður þar í haldi þar
til dómur verður kveðinn upp í
máli hans.
Hann hefur
verið
ákærður
fyrir morð á
hæstarétta-
dómara,
sem hafði
dæmt hann
í fangelsi
fyrir spill-
ingu, en
mannréttindahreyfingar í
Indónesíu efast um að hann
verði dæmdur til dauða.
Tommy Suharto, sem er 39
ára, var handtekinn 28. nóvem-
ber eftir að hafa verið á flótta í
rúmt ár.
STUTT
Jospin í
forseta-
framboð
Lionel
Jospin
Tommy
Suharto