Morgunblaðið - 21.02.2002, Síða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 21
OUTLET 10
+++merki fyrir minna+++
Faxafeni 10, s. 533 1710
Opið
mán.-fös. 12-18
laugardag 11-16
50-80% lægra verð
GERÐU
GÓÐ KA
UP
Levis gallabuxur -- 1.450
Diesel gallabuxur -- 1.450
Fila úlpur -- 1.900
Billi bi stígvél -- 2.450
CAT skór 1.450
Sparkz bolir -- 500
Morgan buxur -- 250
InWear peysur -- 990
Öll jakkaföt -- 4.950
á merkjavöru og t ískufatnaði
Brettaskór 500
Mod Ecran jakkar 1.900
Fila sundföt 990
Hudson skór 500
Henry Jones skyrtur 500
Matinique nærföt 250
Barnaföt frá 990
Justin kjólar 1.900
Kookai töskur 500
Dæmi:
OUTLET 10
OG NÚNA
ÚTSÖLULOK
50%
aukaafsláttur
af öllum
útsöluvörum
Nýjar vörur komnar
Kanebo kynning í dag og á morgun kl. 13-18
FARÐINN SEM FULLKOMNAR HINA SÖNNU FEGURÐ!
Strandgötu 32, Hafnarfirði.
REYKÁS - ÚTSÝNI
2ja herb.
Þverholti 2 270 Mosfellsbæ Sími 586 8080 Fax 586 8081 www.fastmos.is
Falleg 2ja herbergja 77 fm íbúð
á jarðhæð við Reykás með ein-
stöku útsýni að Bláfjöllum og
Rauðavatni. Rúmgott baðher-
bergi með sturtu og baðkari.
Flísar á öllum gólfum. Úr stofu
er gengið út í sérgarð til suðurs.
Verð kr. 9,5 millj. Áhv. 4,2 millj.
ÍSRAELSSTJÓRN hefndi grimmi-
lega fyrir fall sex Ísraela í fyrirsát á
Vesturbakkanum á þriðjudagskvöld
þegar hún fyrirskipaði her landsins
að gera harðar árásir á palestínsk
skotmörk á Gaza-svæðinu og á Vest-
urbakkanum. Alls féllu fimmtán Pal-
estínumenn í árásunum sem stóðu
alla fyrrinótt og fram á morgun en um
var að ræða árásir úr lofti, frá sjó og
af landi. Þetta eru hörðustu árásir
Ísraelshers á palestínsk skotmörk frá
því að átök blossuðu upp í heimshlut-
anum fyrir sautján mánuðum.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, hefur mátt sæta gagnrýni
heimafyrir að undanförnu fyrir úr-
ræðaleysi en hann hét Ísraelum því á
sínum tíma að kæfa uppreisn Palest-
ínumanna með valdi. Í staðinn virðist
hins vegar komin upp endalaus hring-
rás ofbeldisverka og nú hafa meira en
þrjátíu manns fallið í skærum síðan á
mánudag.
Hefndaraðgerðir Ísraela í gær fólu
m.a. í sér að skotið var flugskeytum af
sjó á höfuðstöðvar Yassers Arafats,
leiðtoga Palestínumanna, í Gaza-borg
og fórust þar fjórir úr lífvarðasveit
Arafats og fjórir til viðbótar særðust.
F-16-sprengjuflugvélar Ísraelshers
vörpuðu einnig sprengjum á lögreglu-
stöðina í Gaza-borg og síðan hófu
Apache-herþyrlur Ísraela árásir á
ýmis skotmörk í borginni og stóðu
þær í alls fimm klukkustundir aðfara-
nótt miðvikudags.
Skriðdrekar Ísraelsher réðust
jafnframt til atlögu í austurhluta bæj-
arins Nablus á Vesturbakkanum og
féllu níu palestínskir lögreglumenn í
aðgerðunum þar. Skutu skriðdrek-
arnir látlaust á bækistöðvar lögregl-
unnar í þessum hluta borgarinnar. Þá
lést einn í árásum á Ramallah og loks
lést palestínskur lögreglumaður í
smábæ í nágrenni Ramallah.
Stóðu skærur enn í útjaðri Ramall-
ah er dagaði í gær en palestínskir
byssumenn gerðu tilraunir til að veita
skriðdrekasveitum Ísraela skráveifu
eftir að árásirnar voru hafnar.
Farið fram á neyðarfund
í Öryggisráði SÞ
Fyrirsátin í fyrrakvöld átti sér stað
við herstöð Ísraela nærri þorpinu Ein
Arik, vestur af Ramallah á Vestur-
bakkanum. Hófu palestínskir byssu-
menn skothríð á herstöðina, með
þeim afleiðingum að sex létust og einn
til viðbótar særðist. Ódæðismennirnir
komust undan.
Greindu talsmenn heimastjórnar-
innar frá því að farið yrði fram á neyð-
arfund í Öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna vegna stigvaxandi ofbeldis í
heimshlutanum.
Hörðustu árásir hers
Ísraela fram að þessu
Reuters
Palestínumenn fjarlægja ósprungna sprengihleðslu ísraelsks flugskeyt-
is úr garði barnaskóla á vegum Sameinuðu þjóðanna í Gaza-borg.
Fimmtán Palest-
ínumenn féllu í
aðgerðum Ísraela
!"#$%
#&
'(
"
)
#
*
#
' + ,# $!,-"
.#//0
1#2#
!340
5
6
7
!"#$%
7
5
6
$#
18
!
"
"#
$
%
&
"
'
((
*
Jerúsalem. AFP.