Morgunblaðið - 21.02.2002, Side 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 25
ÞESSIR glöðu tónleikar, með
söngvum sem náðu flugi upphaflega
í Vín, London og New York, áttu að
fara fram hálfum mánuði fyrr, en
þeim varð að fresta vegna ótíðar.
Það er orðin býsna rík hefð hjá okk-
ur að létta skapið í byrjun nýs árs
með síungum vínarljóðum og raun-
ar geri ég ráð fyrir að sjónvarpið
okkar hafi vanið okkur á þetta með
árlegri nýárskveðju frá Vín fluttri á
tónmáli bestu tónskálda vínardansa
frá nítjándu öldinni og upphafi
þeirrar tuttugustu. Þessi ljúfa tón-
listarþýða í miðjum vetrarkuldan-
um fellur fólki vel í geð og heyrist
mér á auglýsingum að vínartónlist-
arveislur séu í boði um allt land og
fari vel á borði á þessum tíma með
þjóðlegum þorraréttunum okkar.
Í fyrri helmingi voru vínarljóðin
flutt og voru flest laganna frá síð-
asta skeiði eða silfurtíma vínar-
dansanna frá ofanverðri nítjándu
öld til fyrri heimsstyrjaldar, með
þeirri undantekningu þó að Johann
Strauss yngri, oft nefndur valsa-
kóngurinn, og þeir Karl Zeller
ásamt Karl Millöcker áttu þarna sín
sígildu lög frá gullskeiðinu. Í byrj-
un var kröftugur upptaktur sleginn
í polka um „Vín sem á að vera Vín“
eftir Johann Schrammel. Það var
einkar ljúft að heyra fiðlutóna Sig-
rúnar og klarinettustef Sigurðar
Ingva í heitum „heurigen“ atlotum
og greinilegt að góð kynni af vín-
arstemmningu stýrði ferðinni. Svo
komu einsöngvararnir: Fyrst gekk
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, létt-
stígum söngfetum um Pratergarð-
inn í Vín í lagi Robert Stolz í einum
vinsælasta söng hans Im Prater
blühn wieder die Bäume. Gaman að
vitna í orð Stolz sem átti að hafa
sagt það dæmigert fyrir austur-
ríska keisaraveldið að fara í
fremstu víglínu með ónýt vopn, en
heimsins bestu hljómsveit. En
þetta lag samdi hann er hann sinnti
herskyldu í fyrri heimsstyrjöld og
hefur það orðið öllum vopnum lang-
lífara. Flutningur lagsins var glæsi-
legur, en styrkleikabreytingar voru
að mínu mati ónógar.
Næstur söngvaranna, Bergþór
Pálsson, greip mann sterkum tök-
um með áhrifamiklum og glæsileg-
um flutningi á Dökkrauðu rósinni
eftir Karl Millöcker úr óperettunni
Gasparone frá um 1880. Frammi-
staða Bergþórs á þessum tónleikum
var einstök og rýrir það á engan
hátt hlut annarra.
Óskar Pétursson söng lag Kálm-
án, Grub mir mein Wien, falleg og
fín tenórrödd hans naut sín ekki
sem skyldi og lagið ekki eins hríf-
andi og vínarsöngvar hinna á efnis-
skránni. Sá glans sem rödd hans er
gædd komst þó fullkomlega til skila
í terzettsöngnum í Vín borg minna
drauma eftir Rudolf Sieczynski í
síðasta lagi fyrir hlé og í aukalög-
unum eftir Lehar: Lippen Schweig-
en og Dein ist mein ganzes Herz.
Lokaatriðin fyrir hlé voru með heiti
hins ungverska hraðaskipta dans
Czardas, sem einnig er notað um
sígauna. Þannig lék Sigrún Eðvalds
af glæsibrag á fiðluna Czardas eftir
Monti, en með því lagi opnaði hún
eyru þjóðarinnar forðum og nú hef-
ur bæst við ofurtækni hennar dýpt
og þroski í túlkun sem lætur engan
ósnortinn. Misritað var í efnisskrá
að lagið Kossar eru engin synd væri
eftir Hans Eysler, því maðurinn hét
Edmund og ekki sá Hans sem var
nemandi Arnold Schönberg. Sú
villa hamlaði þó í engu mögnuðum
söng og leik Bergþórs. Diddú flutti
líka Czardassönginn úr Leðurblök-
unni með óviðjafnanlegum tilþrif-
um. Tenging milli Vínardansanna
og söngleikjanna er stílrænt nokk-
uð erfið. Landfræðilega auðveldari
ef vitnað er í Robert Stolz og Emm-
erich Kálmán sem báðir flúðu nas-
ismann og voru stríðsárin í Banda-
ríkjunum. En það voru þeir bræður
Ira og Georg Gershwin sem gáfu
Diddú og Önnu Guðnýju tækifæri
til að brúa bilið með valsi þeirra
bræðra By Strauss, en þar tengja
þeir á gamansaman hátt saman stef
og stíl vínartónlistar og Broad-
waysöngleikja. Flutningur hljóm-
sveitar og söngvara á bandarísku
söngleikjatónlistinni var lofsverður
og náði hápunkti í lokin í ástardú-
ettinum Bess þú ert konan mín...
sem Bergþór og Diddú fluttu.
Hápunktur var einnig ótrúlega
tjáningarríkur flutningur Bergþórs
á Ol’man river úr Showboat eftir
Jerome Kern og geislandi túlkun
Diddúar á söng Bernsteins úr Birt-
ingi (Candide). Lög Andrew Lloyd
úr Cats og Óperudraugnum féllu
ekki nógu vel að efnisskránni að
mínu mati. Summertime söng
Diddú af mikilli innlifun og skreytti
í lokin með bláum tónstigum af
smekkvísi, ég hefði þó kosið að hún
hefði sungið enn veikara í byrjun og
látið fallegasta blæ raddarinnar
njóta sín lengur.
Vandaður hljóðfæraleikur naut
sín vel í Laugarborg og fannst mér
helst í þessum góða endurhljómi á
stundum full sterkt leikið. Einstak-
lega áhrifamikill var flutningur
hljómsveitarinnar á syrpu af lögum
Kálmáns úr Czardas-furstafrúnni.
Nýstofnuð áhugasamtök, Líf og
list, stóðu fyrir þessum tónleikum
og eiga þau miklar þakkir skildar
fyrir framtakið, eins og fullur salur
hrifinna áheyrenda þakkaði í lokin
vel og lengi.
Það er mikið fagnaðarefni að fá
að njóta tónleika í svo góðum tón-
leikasal sem Laugarborg býður og
full ástæða til að hrósa stjórn Eyja-
fjarðarsveitar fyrir mikla framsýni.
En þessi mikilvægi áfangi í menn-
ingarlífi Eyfirðinga ætti að gera
Akureyringum enn ljósara hvers
þeir fara á mis og á Akureyri verð-
ur að skapa mótvægi við höfuðborg-
arsvæðið á þessu sviði sem öðru og
þar verður að rísa vandað tónleika-
hús.
VÍNARRÓMANTÍKIN var við
völd í Hlégarði sl. sunnudag, ásamt
söngleikjalögum frá blómaskeiði
Broadways, sem leysti vínaróper-
ettuna af hólmi sem ein af aðallind-
um alþjóðlegra dægurlaga upp úr
1940 og entist sem slík fram undir
1970. „Aldurstakmark“ var þar af
leiðandi nokkrum áratugum ofar en
það sem eitt sinn gilti á sveitaballs-
árum félagsheimilisins, eins og af
hærum meðalhlustandans mátti sjá.
Veizlutríóið ásamt Sigrúnu Eð-
valdsdóttur konsertmeistara hóf
dagskrána á alkunnum gömlu-
dansamarsi eftir Joh. Schrammel,
Wien bleibt Wien, og negldi strax
stemmninguna niður, þó ekki væri
áhöfnin með öllu kórréttur
„schrammelkvartett“ (2 fiðlur, gítar
og klarínett). Diddú söng Im Prater
blühn wieder die Bäume, vals með
polka A-kafla eftir síðasta vínar-
valsakónginn, Robert Stolz, af hlýju
og Bergþór Dunkelrote Rosen Mill-
öckers með sjarmerandi ábúð. Hinn
auglýsti norðlenzki tenór Óskar
Pétursson var forfallaður, svo í stað
fyrsta númers hans lék kvartettinn
ónafngreindan galopp, m.a. á ísk-
urhátt D-klarínett, sjaldgæfu sópr-
anínó-systur litla Es-klarínettsins,
og Lumpenpolka Schrammels beint
á eftir. Bergþór og Diddú sungu,
svolítið óperulega, Schenkt man
sich Rosen in Tirol úr Fuglasala
Zellers, og Sigrún Eðvalds rúllaði
sér út á fimum sígaunanótum í fír-
ugum Czárdas Montis. Bergþór var
hinn ísmeygilegasti í Küssen ist
keine Sünd (Eysler) og Diddú söng
Czárdas Rósalindu úr Leðurblök-
unni með seiðandi accelerandóum
frá ungversku púsztunni. Kvart-
ettinn tók þá lagasyrpu til bæna úr
meistarastykki Kálmáns, Czárdas-
furstynjunni, sem að lagrænum
ferskleika slær flestu öðru við úr
þýzk-austurrísku óperettunni.
Diddú og Bergþór luku síðan fyrri
hrinu með sópandi útfærslu af Wien
du Stadt meiner Träume. Spila-
mennska kvartettsins var í heild
svolítið skapdauf – m.a. var kontra-
bassi of veikur og áherzlur í píanói
víðast allt of linar – en á hinn bóg-
inn merkilega samtaka í hraða-
breytingum, sennilegast þökk sé
bendingum Sigurðar, sem mun vel
heima í Vínarstílnum frá námsárum
sínum þar í borg.
Diddú hóf seinni lotu á By
Strauss, kersknu lagi Gershwins,
hvar eftir Bergþór tók kostulega
fyrir I am what I am Jerrys Her-
mans úr Cage aux folles, dúðaður
skræpóttum strútsbóujakka sem
hefði verið verðugur Liberace. Þá
söng hann Memory úr Cats (Lloyd
Webber) af tilfinningu og þau
Diddú Nú má nóttin víkja í vel bal-
anseruðum dúett úr Óperudraugn-
um, bezta söngleik brezka rokkleik-
hústónskáldsins. Diddú sýndi svo
ekki varð um villzt í Can’t help lov-
in’ dat man úr Showboat Kerns
hvernig á að „krúna“ Broadway, og
hefðu margar hérlendar óper-
ustarfssystur getað lært sitthvað af
því. Bergþór tók að því loknu dá-
marga slagi hjá áheyrendum með
öðru Showboat-lagi, Ol’ man river,
þó að persónulega sé ég að vísu
ekki 100% sannfærður um útlegg-
ingu hans á framburðarmáta Suð-
urríkjablökkumanna. Glitter and be
gay, fjögurra stíla heljarstökksaría
Kúnígúndar úr „Candide“ Bern-
steins sem fengið hefur að vera
merkilega mikið í friði fyrir öðrum
söngkonum lýðveldisins, glampaði
og skein í meistaralegum meðförum
Diddúar, og Bergþór tók It ain’t ne-
cessarily so af kíminni íbyggni. Eft-
ir þokkamjúka túlkun Diddúar á
Summertime luku þau Bergþór
dagskránni á glæsilega útfærðum
dúett úr Porgy and Bess, Bess you
is my woman now, svo vart varð á
betra kosið.
Vín og Broadway
TÓNLIST
Laugarborg
Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran, Bergþór
Pálsson, baríton, Óskar Pétursson, ten-
ór, Anna Guðný Guðmundsdóttir á píanó,
Sigurður Ingvi Snorrason á klarínett, Páll
Einarsson á kontrabassa og Sigrún Eð-
valdsdóttir á fiðlu. Föstudagur 15. febr-
úar.
VÍNARLJÓÐ OG LÖG ÚR SÖNGLEIKJUM
Bergþór
Pálsson
Sigrún
Hjálmtýsdóttir
Jón Hlöðver Áskelsson
Ríkarður Ö. Pálsson
Hlégarður
Lög eftir Schrammel, Millöcker, Kálmán,
Zeller, Monti, Eysler, J. Strauss, Siec-
zynsky, Gershwin, Herman, Webber, Kern
og Bernstein. Sigrún Hjálmtýsdóttir sópr-
an, Bergþór Pálsson barýton; Sigrún Eð-
valdsdóttir, fiðla; Veizlutríóið (Anna
Guðný Guðmundsdóttir, píanó; Sigurður
Ingvi Snorrason, klarínett; Páll Ein-
arsson, kontrabassi). Sunnudaginn 17.
febrúar kl. 17.
VÍNAR- OG BROADWAYTÓNLEIKAR
Óskar
Pétursson
...á Mallorca
...á Benidorm
...á Krít
...í Portúgal
...til Alicante
Ó
d‡
ra
st
ir
a
lls
s
ta
›a
r
Ó
d‡
ra
st
ir
a
lls
s
ta
›a
r
Verðdæmi á mann með SólarPlús
2. september.
Innifalið: Flug, gisting í 2 vikur (ekki
fyrirfram vitað um nafnið), ferðir til
og frá flugvelli erlendis og íslensk
fararstjórn.
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Flugvallarskattar, 3.730 kr. fyrir
fullorðna og 2.955 kr. fyrir börn, ekki
innifaldir.
39.900 kr.
Verðdæmi á mann með SpariPlús.
Innifalið: Flug, gisting á Tropic Mar
í 2 vikur, ferðir til og frá flugvelli
erlendis og íslensk fararstjórn.
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Flugvallarskattar, 3.730 kr. fyrir
fullorðna og 2.955 kr. fyrir börn, ekki
innifaldir.
46.600kr.
Verðdæmi á mann með SpariPlús.
Innifalið: Flug, gisting á Skala í
2 vikur, ferðir til og frá flugvelli
erlendis og íslensk fararstjórn.
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Flugvarllaskattar, 4.470 kr. fyrir
fullorðna og 3.695 kr. fyrir börn, ekki
innifaldir.
54.700kr.
Verðdæmi á mann með SpariPlús.
Innifalið: Flug, gisting á Sol Dorio í
2 vikur, ferðir til og frá flugvelli
erlendis og íslensk fararstjórn.
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Flugvarllaskattar, 4.455 kr. fyrir
fullorðna og 3.680 kr. fyrir börn, ekki
innifaldir.
49.700kr.
Verðdæmi á mann miðað við
brottför 2. apríl eða 22. maí.
Innifalið er flug.
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Flugvallarskattar, 3.730 kr. fyrir
fullorðna og 2.955 kr. fyrir börn, ekki
innifaldir.
26.900kr.
Hlí›asmára 15 • Kópavogi
Uppselt 17. júní og 15. júlí.
Uppselt 31. júlí.
Uppselt 30. maí og 20. júní.
Uppselt 18. júní og 16. júlí.