Morgunblaðið - 21.02.2002, Side 32

Morgunblaðið - 21.02.2002, Side 32
UMRÆÐAN 32 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ E inhvers staðar hef ég lesið að besta ráðið til að halda ástar- sambandi frísku og innilegu sé að þeir sem eru í sambandinu geri eitt- hvað uppbyggilegt saman. Reyndar held ég að ég hafi lesið þetta á mörgum stöðum og eru ráðgjafar sammála um að ekki þurfi stóra hluti til heldur geti maður gert nánast hvað sem er. Nú er ég búin að vera í sambúð með mínum manni í tíu ár og það svo sem gengið stórslysalaust fyr- ir sig. Einhverra hluta vegna fékk ég þó þá flugu í höfuðið snemma á síðasta ári að nú væri kominn tími til að við tækjum okkur eitthvað upp- byggilegt fyrir hend- ur og þar sem ég er praktísk manneskja að eðlisfari datt mér í hug hvort ekki væri sniðugt að slá tvær flug- ur í einu höggi og flikka upp á hjónabandið með því að flikka upp á heimilið í leiðinni. Manninum mínum fannst þetta ekki svo galin hugmynd enda höf- um við alltaf verið hálfóánægð með litinn á eldhúsinu sem við máluðum þegar við fluttum inn. Þá máluðum við líka stofuna en einhverra hluta vegna hefur lit- urinn á henni illa staðist tímans tönn. Við máluðum hins vegar ekki holið og höfum verið af- skaplega sátt við litinn þar! Eigi að síður; holið var orðið hálfsjúskað og því var ákveðið að mála þessi þrjú herbergi (tvö í nýjum óvefengjanlega smekk- legum litum og eitt í sama lit og áður). „Bara ekki strax,“ sagði bóndinn. „Nú er sumarið að koma og við skulum heldur nota birtuna og sumarylinn til að vera úti. Það koma betri tímar síðar.“ Um haustið, þegar búið var að þurrka tjaldið og gönguskóna, impraði ég aftur á heim- ilisframkvæmdum við manninn minn. „Jújú, elskan,“ sagði hann svo sannfærandi að ég var komin hálfa leið niður í Litaver áður en ómur af því sem hann sagði í framhaldinu stöðvaði mig. „En gætum við ekki beðið aðeins, það er svo mikið sem ég þarf að gera í vinnunni eftir sumarfríið. Eigum við ekki að komast almennilega inn í rútínuna áður en við setjum heimilið á hvolf?“ Ég beit svolítið á jaxlinn, tuldr- aði eitthvað og reyndi eins og ég gat að hugsa um að mennirnir hefðu rétt til þess að vera mis- jafnir. Þó að ég vildi rubba hlut- unum af gæti verið skynsamlegra að bíða eftir rétta tímanum til að fá hámarksnautn út úr hinni sam- eiginlegu iðju. Eftir því sem ég hugsaði meira um þetta varð ég ánægðari og hugsaði á hlýlegan hátt um hvernig andstæðurnar bæta hvor aðra upp – hugsa sér ef ég hefði anað út í málningarvinn- una og endað í einhverjum tíma- skorti með allt saman? Nóvember kom og varlega nefndi ég það við minn betri helm- ing hvort nú væri ekki tilvalið að lyfta pensli. „Ertu frá þér kona,“ sagði hann hálfskelfdur á svip. „Ætlarðu að fara að bæta þessu ofan á jólastressið?“ Ég þagði þunnu hljóði enda var mér satt best að segja orða vant. Eftir smástund fékk ég þó málið og í kjarnyrtri ræðu lét ég minn elskulega heyra að það þýddi ekk- ert endalaust að vera með afsak- anir, menn yrðu bara að drífa í hlutunum. Einhverra hluta vegna bifaðist ektamaðurinn lítið við þessar röksemdir en niðurstaðan varð þó sú að sett var tímasetning á málið. Eftir jól skyldi allt tekið í gegn. Það var því engrar undankomu auðið nú í febrúar þegar fram- kvæmdagleðin rann á mig að nýju, jafnvel þótt aðkallandi fé- lagsstörf stæðu fyrir dyrum hjá mínum heittelskaða. Saman skunduðum við á fund litakorta og flísaprufa og áður en varði var heimilið orðið undirlagt af máln- ingardollum, penslum, plastund- irleggi, rúllum og bökkum. Nú skyldi sko málað, skrafað og hleg- ið, svona eins og í auglýsingunum. Þetta byrjaði svo sem vel og á fyrsta degi klöstruðum við umferð á stofuloftið. Á öðrum degi þurfti maðurinn hins vegar að sinna áð- urnefndum félagsstörfum sem reyndust grunsamlega drjúg þeg- ar leið á vikuna. Á meðan málaði ég sem óð væri og þegar funda- höldum bóndans lauk var stofan að verða búin og eldhúsið langt komið. Það tók sinn tíma en full tilhlökkunar horfði ég til alls þess sem við myndum áorka í samein- ingu þegar helgin rynni upp. Næsta frídag fékk ég því mann- inum flísar og lím í hönd og benti inn í eldhús. Vaskur gekk hann til vinnu sinnar og ástfangin upp fyr- ir haus horfði ég á verklagni hans þar sem hver flísin af annarri rað- aðist á vegginn á listilegan hátt. Draumurinn varði þó ekki lengi. Daginn eftir kom í ljós að flísavinnan hafði orðið manni mín- um ofviða og með þann eymd- arlegasta svip sem uppi hefur ver- ið á nokkurri mannskepnu lagðist hann í rúmið og lýsti því yfir að hann væri veikur. Máttvana teygði hann sig eftir fjarstýring- unni og leitaði titrandi hendi eftir norsku rásinni á Breiðbandinu þar sem vetrarólympíuleikarnir eru sýndir. Ekkert hljóð innan úr herbergi nema einstaka hósti og stuna af vesölustu gerð. Og óm- urinn af ólympíuleikunum. Á meðan hamaðist ég eins og ég ætti lífið að leysa við að mála og flísaleggja og hugsaði kallinum þegjandi þörfina. Ég fann ekki fyrir vorkunnarvotti heldur ein- ungis ólýsanlegri reiði sem kom dýpst úr iðrum sálarkima minna. Aldrei hef ég fundið fyrir öðrum eins pirringi í hjónabandinu. Og ekki hjálpaði til að vinnufélagar mínir flykktu sér um sjúklinginn með þeim undarlegu röksemdum að ólympíuleikarnir væru bara á fjögurra ára fresti! Sem betur fer er framkvæmd- um að mestu lokið. Reyndar á eft- ir að mála stofugluggann en ég held að við bíðum með það um sinn. Í hreinskilni sagt er ég ekki viss um að hjónabandið þoli fleiri heimilisframkvæmdir í bili. Að vinna saman „… þar sem ég er praktísk manneskja að eðlisfari datt mér í hug hvort ekki væri sniðugt að slá tvær flugur í einu höggi og flikka upp á hjónabandið með því að flikka upp á heimilið í leiðinni.“ VIÐHORF Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is SÍÐAST liðna fimmtán mánuði hafa sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar verið í samningaviðræðum við Tryggingastofnun ríkisins (TR). Frá miðjum janúar hafa viðræðurnar verið við nýskipaða samninga- nefnd heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytis og Trygginga- stofnun ríkisins, köll- uð samninganefnd HTR. Lítið hefur þokast í samkomulagsátt og er nú svo komið að þol- inmæði sjúkraþjálfara er á þrotum. Um síðustu áramót sögðu sjúkra- þjálfarar samningnum upp til að þrýsta enn frekar á um leiðréttingu en gjaldskrá sjúkraþjálfara hefur rýrnað að raungildi um tæp 30% síðan 1995. Hjá hinu opinbera hefur launa- skrið háskólamenntaðs fagfólks verið frá 40–60% síðan 1998. Rök samninganefndar HTR gegn eðlilegri hækkun gjaldskrár eru þau að ekki sé til fjármagn og að halda beri útgjöldum vegna sjúkra- þjálfunar innan ákveðinna marka. Heildarkostnaður vegna sjúkra- þjálfunar hefur vaxið undanfarin ár en kostnaðurinn hefur aðallega vaxið vegna fjölgunar þeirra sem þurfa helst á þjónustu sjúkraþjálf- ara að halda s.s. aldraðra og ör- yrkja. Árið 2000 var heildarfjöldi þeirra er þurftu á sjúkraþjálfun að halda rúmlega tuttugu og fjögur þúsund. Samningar Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið hefur gert einstaka samninga við stofnanir um sjúkra- þjálfun s.s. samning við Styrktar- félag lamaðra og fatlaðra (SLF). Það sem einkennir þann samning er einkum tvennt, í fyrsta lagi er samningurinn verðtryggður og í öðru lagi er samið um mun hærri gjaldskrá eða 34–68% hærri með- ferðargjöld miðað við þá gjaldskrá sem sjálfstætt starfandi sjúkra- þjálfarar starfa eftir. Göngudeildarþjónusta á öðrum stofnunum hefur farið vaxandi und- anfarin ár og þá ekki síst síðustu misseri. Annars vegar er um að ræða föst stöðugildi hjá stofnunum við göngudeildarþjónustu og hins vegar eru sjúkraþjálfarar sem eru launþegar að nota aðstöðu stofnana sem verktakar eftir hefðbundinn vinnu- tíma. Undirritaður er í hópi sjúkraþjálfara sem kvartað hafa til Samkeppnisstofnunar yfir þessari starfsemi þar sem við teljum hana í óeðlilegri sam- keppni við einkarekn- ar sjúkraþjálfunar- stöðvar. Fjárframlög Fjárframlög ríkisins til stofnana hafa vaxið gífurlega undanfarin ár, sem dæmi 68% til Reykjalundar, 57% til Heilsustofnunar í Hveragerði (NLFÍ) og 88% til SLF frá 1995. Lítum á einstaka stofnanir: Á árunum 1995–2002 hafa fram- lög ríkisins til Reykjalundar hækk- að úr 461.691 milljónum í 773.900 milljónir. Sú hækkun nemur 68%. Framlög til Heilsustofnunar í Hveragerði hækkaði úr 198.616 milljónum í 312.800 eða 57% og framlög til Styrktarfélags lam- aðra og fatlaðra hækkaði úr 52.563 milljónum í 98.800 eða 88%. Undirritaður hefur ekki í hyggju að kasta rýrð á það mikilvæga starf sem unnið er hjá líknarfélögum og á stofnunum en hins vegar bent á að hluti af fjármagninu frá ríkinu fer í að bygga upp göngudeildar- þjónustu sem er í óeðlilegri sam- keppni við einkareknar stofur sjúkraþjálfara. Sýn ráðuneytisins? Hjá samninganefnd HTR hefur það komið fram að stefna Heil- brigðismálaráðherra sé sú að fram- tíðaruppbygging endurhæfingar yrði hjá NLFÍ í Hveragerði og ber nýlegt framlag upp á 65 milljónir króna til húsnæðisuppbyggingar þess glöggt vitni. Fróðlegt væri að vita hvað móti stefnu ráðherra. Hveru mikið vægi hafa hagkvæmn- issjónarmið í stefnumörkuninni? Getur verið að tengsl ráðuneytisins við heilbrigðisstofnanir í eigu rík- isins séu of náin og það dragi úr öllum hagkvæmnisáhrifum? Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálf- arar búa við þá sérkennilegu stöðu að á sama tíma og gjaldskrá fæst ekki leiðrétt, gerir ráðuneytið verð- tryggðan samning við SLF um mun hærri meðferðargjöld. Þær stofnanir sem ekki eru með sam- bærilegan samning við ráðuneytið og SLF fá hins vegar greidda fulla gjaldskrá fyrir göngudeildarþjón- ustu sjúkraþjálfara þrátt fyrir að hið opinbera hafi í raun greitt fyrir rekstrarhluta taxtans með föstum fjárlögum til stofnana. Það vekur furðu að útgjaldafrek- asta ráðuneytið skuli ekki gera meiri kröfur til hagkvæmi og stuðla að örvandi og nútímalegu rekstr- arumhverfi. Því er spurt hvort eðlilegt sé að stofnanir á föstum fjárlögum reki göngudeildarþjónustu með aðgangi að verktakasamningi sem Trygg- ingastofnun hefur gert við sjúkra- þjálfara? Það er því ótrúverðugt að hlusta á fulltrúa í samninganefnd HTR spyrna við fótum um eðlilega leið- réttingu gjaldskrár sjálfstætt starf- andi sjúkraþjálfara á sama tíma og skrifað er upp á sjálfvirka útgjalda- aukningu. Krafa sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara er að eðlilegt rekstr- arumhverfi skapist í kringum göngudeildarþjónustu sjúkraþjálf- ara Kvörtun til Samkeppnisstofnunar Kvörtun sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara til Samkeppnisstofn- unar gengur út frá þeirri megin- reglu að ef sjúklingur er ekki inni- liggjandi á stofnun en þarfnast sjúkraþjálfunar er eðlilegt að sú þjálfun fari fram á stofum sjálf- stætt starfandi sjúkraþjálfara. Það mun ætíð vera hagkvæmast og ýtir undir eðlilegt rekstrarumhverfi. Því miður virðist stefna ráðu- neytisins ekki vera sú að jafna leik- inn og er það miður. Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar hafa því ákveðið að losa sig undan þeirri stöðu sem þeir hafa búið við í ára- raðir og boða breytingu á rekstr- arumhverfi og leiðréttingu á gjald- skrá 1. mars nk. Breyting á rekstrarumhverfi sjúkraþjálfara mun m.a. hafa það í för með sér að viðskiptavinir sjúkraþjálfara munu sjálfir sækja endurgreiðslu til TR. Þá mun koma í ljós hvort Tryggingastofnun rík- isins standi undir því hlutverki sem stofnuninni ber samkvæmt lögum. Ójafn leikur í sjúkraþjálfun Kristján Hj. Ragnarsson Sjúkraþjálfun Hjá hinu opinbera, segir Kristján Hj. Ragnarsson, hefur launaskrið háskóla- menntaðs fagfólks verið frá 40–60% síðan 1998. Höfundur er sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari, Sjúkraþjálfun Kópa- vogs ehf. NÝLEGA kynnti Umhverfis- og heil- brigðisstofa Reykja- víkur niðurstöður könnunar á því hversu margir sölustaðir í Reykjavík selja börn- um tóbak. Eins og fram kom í fjölmiðlum hefur hlutfall þeirra staða, sem seldu börn- um tóbak, lækkað úr 58% í 14% á rúmlega ári. Þetta er lofsverður árangur sem hefur náðst með samstilltu átaki undir forystu Hrannars B. Arnars- sonar, formanns heil- brigðisnefndar Reykjavíkurborgar. Hann hefur ekki látið deigan síga þrátt fyrir efasemdaraddir um að átakið ætti rétt á sér. Hrannar á hrós skilið fyrir framtakssemina og staðfestuna sem og þau Rósa Magnúsdóttir hjá Heilbrigðiseftir- litinu og Soffía Pálsdóttir og Sigrún Sveinbjörnsdóttir hjá Íþrótta- og tómstundaráði. Árangur á sviði tóbaksvarna næst ekki nema með sam- stilltu átaki. Og tób- aksvarnir eru síður en svo einkamál Tóbaks- varnanefndar. Allir ættu að láta sig mál- efnið varða því eins og flestir vita er tóbak eitt mest ávanabind- andi fíkniefnið. Og þeir krakkar sem byrja að reykja leiðast oft út í neyslu á ,,harðari“ fíkniefnum. Það að ná tökum á sölu á sígar- ettum til barna og ungmenna er hluti af því að stuðla að heil- brigðu lífi komandi kynslóða. En vissulega má gera enn betur því 14% sölustaða eru enn að brjóta lög. Og sum hverfi eru sýnu verri í þeim efnum en önnur. Átaks er þörf í Vesturbænum, Breiðholti og Árbæ, eins og fram kemur í upp- lýsingum frá Umhverfis- og heil- brigðisstofu Reykjavíkur. Það er verðugt verkefni fyrir foreldrafélög hverfanna að hafa áhrif á sölustaði tóbaks, með því að gera stöðunum grein fyrir alvarleika málsins. Sömuleiðis ættu önnur sveitarfélög, sem hafa ekki enn veitt sölustöðum tóbaks aðhald, að feta í fótspor for- ystumanna Reykjavíkur í þeim efn- um. Reynslan sýnir að eftirlits er þörf. Það er dauðans alvara ef börn byrjaað reykja og það er á ábyrgð fullorðinna að forða þeim frá því að verða þessu fíkniefni að bráð, því eitt leiðir af öðru eins og dæmin sanna. Ofangreindir einstaklingar hafa gengið fram fyrir skjöldu en við getum ekki einvörðungu treyst á dugnað þeirra og atorkusemi. Við eigum öll að stuðla að því að ung- mennum sé ekki selt tóbak og hvetja börnin okkar heilbrigðra lífs- hátta. Til hamingju! Þorgrímur Þráinsson Tóbaksvarnir Það er dauðans alvara, segir Þorgrímur Þráinsson, ef börn byrja að reykja. Höfundur er framkvæmdastjóri Tóbaksvarnanefndar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.