Morgunblaðið - 21.02.2002, Síða 34
UMRÆÐAN
34 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Bessastaðahreppur
er sveitarfélag í mikilli
uppbyggingu og mót-
un. Það kjörtímabil
sem nú er að líða hefur
verið mikið uppbygg-
ingar- og framfara-
skeið í sveitarfélaginu.
Megináherslan og
mestu fjármunirnir
hafa farið í að skapa að-
stöðu fyrir og byggja
upp öflugt leikskóla- og
grunnskólastarf. Bæði
leikskólinn og grunn-
skólinn hafa verið
stækkaðir og starfið í
báðum þessum stofn-
unum eflt svo um munar.
Íbúafjölgun hefur verið talsverð
og á síðasta ári fjölgaði hlutfallslega
mest í Bessastaðahreppi af öllum
sveitarfélögum í landinu. Fólk sækir
í að búa í slíku sveitarfélagi, sem býr
yfir friðsæld og náttúrufegurð en er
samt í nálægð við öfluga þjónustu
borgarsamfélagsins. Ekki síður sæk-
ir fólk í að búa í samfélagi sem stend-
ur vel að hlutum er varðar megin-
þarfir góðs fjölskyldulífs, góða
umönnun barna, öflugt skólastarf og
síðast en ekki síst góða og vaxandi
aðstöðu fyrir íþróttir, útiveru og
hvers konar tómstundir og félags-
starf.
Aðalskipulag hreppsins gerir ráð
fyrir einu grunnskólahverfi með um
3.000 íbúum. Við tökum nýjum íbú-
um fagnandi, því við gerum okkur
grein fyrir því að hagkvæm stærð
sveitarfélags gerir okkur enn frekar
kleift að byggja upp öflugt sveitarfé-
lag með bættri þjónustu við íbúana.
Bessastaðahreppur er enn í mótun
og mörg verkefni eru framundan. Ég
legg áherslu á:
a) Að skapa aðstöðu fyrir ungt fólk
og þá sem eldri eru til að geta haft
búsetu í íbúðarhúsnæði af þeirri
stærð og gerð sem þeim hentar best.
Þetta vil ég gera með því að hraða
frágangi skipulags á
nýju svæði, þannig að
hægt verði að fara í
framkvæmdir sem
fyrst til að skapa þessa
aðstöðu.
b) Að koma málum
þannig fyrir, með fram-
kvæmdum og innra
starfi við skóla og
íþróttahús, að þrír
efstu bekkir grunnskól-
ans flytjist í Álftanes-
skóla á allra næstu ár-
um.
c) Að skapa tækifæri
fyrir öll börn á leik-
skólaaldri til að fá inni á
leikskóla og verði þar af leiðandi ekki
um neina varanlega biðlista að ræða.
d) Að skapa bestu aðstöðu og þjón-
ustu við íbúana fyrir öflugra íþrótta-,
tómstunda- og félagslíf hvers konar,
sem hæfir hverjum og einum.
Ég hef starfað í sveitarstjórn á
metnaðarfullan hátt, læt mig varða
öll þau mál sem til úrlausnar þarf að
taka. Ég vil verða áfram virkur þátt-
takandi á því sviði.
Ég skora á íbúa Bessastaðahrepps
að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðis-
félagsins sem fram fer laugardaginn
23. febrúar og velja það fólk til
ábyrgðar sem það treystir best til að
móta og byggja upp samfélag okkar
á næstu árum.
Uppbygging
fyrir íbúana
Snorri Finnlaugsson
Höfundur er formaður hreppsráðs
Bessastaðahrepps og er þátttakandi
í prófkjöri Sjálfstæðisfélagsins.
Bessastaðahreppur
Ég hef, segir Snorri
Finnlaugsson, starfað
í sveitarstjórn á
metnaðarfullan hátt.
ÉG vil varðveita
sveitina Álftanes. Ég
kýs að búa í sveit í
borg og ef ég fæ til
þess stuðning mun ég
beita mér fyrir því að
haldið verði í sveitina á
Álftanesi. Kannanir
sýna að stór hluti fólks
sem býr í úthverfi eins
og Álftanesinu er unn-
endur útilífs og nátt-
úru. Við kjósum að
búa í sveit og viljum
búa í nánum tengslum
við náttúruna. Ég er
fylgjandi því að mann-
virki á Álftanesinu eigi
að falla sem best að náttúrunni og
ég mun því berjast gegn þéttbýlu,
kassalaga, malbikuðu umhverfi
enda er nóg af slíku – annars stað-
ar. Við eigum sérstöðu sem er eft-
irsóknarverð og alltaf að verða eft-
irsóknarverðari og henni eigum við
að halda. Helsti sjarminn við Álfta-
nesið er hreinu fjörurnar okkar, úti-
vistarsvæðin og lítt manngert um-
hverfi. Við eigum að vernda sveitina
okkar og ígrunda alla uppbyggingu
vel áður en hafist er handa. Náttúr-
an, dýralífið, víðsýnið og rýmið eru
verðmæti sem skipta miklu máli.
Ég legg áherslu á að unnið sé
markvisst að umhverfismálum
sveitarfélagsins og tel að þau eigi
að vera hluti af öllum málum rétt
eins og fjármál, útlit og ímynd. Um-
hverfismálin eru miklu meira en að
halda umhverfinu hreinu, þrifalegu
og snyrtilegu og frárennslismálum í
góðu lagi. Markmiðið er að við njót-
um þeirra möguleika sem Álftanes-
ið býður upp á og að við skilum því í
betra ástandi til afkomenda okkar.
Með aukinni byggð á nesinu er
tímabært að flytja 8., 9. og 10. bekk
heim á Álftanesið og hætta að
senda börnin í Garðabæ. Það að
senda börnin burt slítur tengsl á
milli vina og á milli árganga og er
óþarfa rask á viðkvæmu þroska-
skeiði þeirra. Allur grunnskólinn á
Álftanesi undirstrikar sjálfstæði
sveitarfélagsins.
Í nútímaþjóðfélagi
þurfa margar fjöl-
skyldur á því að halda
að báðir foreldrar
starfi utan heimilisins
til að afla nægra
tekna. Skoðun mín er
sú að sumarleyfi for-
eldra sé of stutt og að
rétt sé að gefa foreldr-
um með lítil börn tæki-
færi til þess að taka
nokkurra vikna launa-
laust frí á hverju ári
fyrir fjölskylduna.
Þetta er hins vegar
enn sem komið er
einkamál hvers vinnu-
veitanda og launamanns auk þess
sem margir hefðu ekki efni á að
nýta sér aukafrí þótt það byðist. En
börnin geta ekki verið ein og fæst
okkar eru svo heppin að eiga ætt-
ingja sem taka börnin að sér yfir
sumarmánuðina. Þess vegna þarf að
skapa börnunum uppbyggjandi og
skemmtileg viðfangsefni á sumrin.
Á þeim árstíma er kjörið að kenna
börnunum náttúrufræði úti við,
sýna þeim gróðurinn í blóma, fylgj-
ast með atferli dýra, kenna reið-
mennsku, flekasmíði, siglingar og
svona mætti lengi telja því mögu-
leikarnir eru margir og spennandi.
Skólinn þarf að geta sinnt þörfum
allra barna, bæði þeirra sem eru
fljót að læra, þeirra sem hafa mikla
styrkleika á ákveðnum sviðum og
þeirra sem hafa einhverjar haml-
anir. Til alls þessa þarf að gefa
skólanum enn meira svigrúm til að
sinna öflugu, framsýnu og metn-
aðarfullu starfi, og stefna skal að
því að leikskólinn Krakkakot og
Álftanesskóli verði í fararbroddi
fyrir framsækni, nýjungar og eft-
irsóknarvert starfs- og vinnuum-
hverfi fyrir börnin okkar og metn-
aðarfulla lærimeistara. Það að búa
vel að börnum er eitt af meginbar-
áttumálum mínum. Ég bý að þeirri
reynslu að hafa alist upp í hreppn-
um og hafa sótt barnaskóla bæði
hér og í Garðabænum og ég er
móðir tveggja barna sem voru í
Krakkakoti og eru nú í Álftanes-
skóla.
Fjármálin
Traust fjármál eru nauðsynleg
fyrir sveitarfélög sem og fjölskyld-
ur til að hafa styrk til að takast á
við óvænt tækifæri og verkefni sem
þarf að leysa. Áherslumál mín sam-
tvinnast í slagorðinu „Fjölskyldan í
sveit í borg“.
Ég hef sett stefnuna á 2.–4. sætið
á lista sjálfstæðismanna á Álftanesi
í prófkjörinu 23. febrúar næstkom-
andi. Allir Álftnesingar, sem hafa
kosningarétt, geta kosið í prófkjör-
inu. Ég hvet Álftnesinga til þess að
nýta sér rétt sinn til að hafa áhrif
með því að kjósa.
Álftanes, nátt-
úruperla á höfuð-
borgarsvæðinu
Halla Jónsdóttir
Bessastaðahreppur
Við eigum sérstöðu
sem er eftirsóknarverð,
segir Halla Jónsdóttir,
og henni eigum
við að halda.
Höfundur er líffræðingur og gefur
kost á sér í 2.–4. sætið á lista sjálf-
stæðismanna á Álftanesi.
Í PRÓFKJÖRI
Samfylkingarinnar í
Kópavogi laugardag-
inn 23. febrúar gefst
Kópavogsbúum kostur
á að hafa áhrif á
hverjir skipa fjögur
efstu sæti framboðs-
lista Samfylkingarinn-
ar í bæjarstjórnar-
kosningum í vor.
Samfylkingin á nú
fjóra fulltrúa í bæjar-
stjórn og stefnir að því
að ná meirihluta í
bænum eftir alltof
langan valdatíma
Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarflokks.
Hverfanefndir
Í Kópavogi á að vera fjölskyldu-
vænt samfélag þar sem stefnumót-
un tekur mið af þörfum ungra jafnt
sem aldinna, kvenna jafnt sem
karla. Virðing fyrir umhverfinu á að
vera í fyrirrúmi við skipulagsvinnu
á vegum bæjarins og íbúar eiga að
hafa möguleika á að koma að
stefnumótun í sveitarfélaginu á
skipulegan hátt. Koma þarf á fót
samráðsnefndum íbúa, fulltrúa úr
atvinnulífinu, fulltrúa félagasam-
taka og frá bænum fyrir einstök
hverfi. Þar verður fjallað um þau
málefni sem snerta hvert hverfi fyr-
ir sig s.s. skólamál, umferðar- og
skipulagsmál. Þannig færist um-
ræðan nær íbúunum og þeim sem
starfa í viðkomandi hverfi og sjón-
armið þeirra komast á framfæri.
Tel ég brýnt að koma slíkum
hverfanefndum á jafnt í nýju hverf-
unum og þeim eldri.
Skipulagsmál er
dæmigerður mála-
flokkur sem fjalla ætti
um í hverfanefndum.
Hægt er að kynna
breytingar á skipulagi
hverfa eða svæða í
hverfanefnd auk hins
lögboðna kynningar-
ferils. Hugmyndir um
bryggjuhverfi í vestur-
bænum eða tækni-
svæði í landi Lundar
ætti t.d. að kynna sér-
staklega í hverfanefnd
viðkomandi hverfis,
svo ekki sé minnst á
Vatnsendann. Þar brást meirihluta
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks
algerlega bogalistin í því að taka til-
lit til sjónarmiða íbúa. Þeir þoldu
afskaplega illa þegar lagðir voru
fram undirskriftalistar gegn því
skipulagi sem þeir vildu hafa á
svæðinu.
Skólamál eru annar málaflokkur
sem hverfanefndir ættu að fjalla
um, t.d. hvernig hægt er að tengja
starf leik- og grunnskóla innan
hverfa og tengja íþrótta-, æskulýðs-
og listastarfsemi við starf skólanna.
Mikilvægt er að íbúar á ólíkum
aldri komi inn í hverfanefndir og
t.d. gætu eldri borgarar verið reiðu-
búnir til að taka þátt í verkefnum
með skólum í hverfinu. Næg verk-
efni eru framundan og verður
örugglega ekki skortur á hugmynd-
um.
Gerum góðan bæ betri
Hverfanefndir stuðla að opnari
stjórnsýslu. Þar gefst bæjarbúum
tækifæri til að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri og taka þátt í
stjórnun og ákvarðanatöku. Þannig
tel ég að megi ná fram breytingum
sem myndu bæta mannlífið í Kópa-
vogi og skapa fjölskylduvænt sam-
félag sem við gætum verið stolt af.
Ég er tilbúin til að vera áfram í for-
ystusveit Samfylkingarinnar í
Kópavogi og vinna að því að gera
góðan bæ betri.
Samráð um
stefnumótun
Sigrún Jónsdóttir
Höfundur er bæjarfulltrúi og tekur
þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar
í Kópavogi 23. febrúar nk.
Kópavogur
Með þátttöku íbúa í
ákvarðanatöku í bænum
og opnari stjórnsýslu
telur Sigrún Jónsdóttir
að hægt sé að ná fram
breytingum sem myndu
bæta mannlífið.
VGR býður nú í
fyrsta skipti fram sem
flokkur í sveitarstjórn-
arkosningum einn sér
eða í samstarfi við
aðra. Mikilvægt er að
vel takist til, ekki síst
hér í Reykjavík.
Þrátt fyrir að R-list-
inn hafi margt gert vel
sl. átta ár er margt
sem betur hefði mátt
fara.
Reykjavík þarf að
vera aðlaðandi borg
fyrir þá sem hér vilja
hefja atvinnurekstur
eða eru nú þegar í
rekstri en öflugt at-
vinnulíf er ein meginforsenda al-
mennrar velsældar borgaranna.
Reykjavíkurborg á að vera sam-
keppnisfær við nágrannasveitar-
félög þegar kemur að
úthlutun byggingar-
lóða hvort sem er fyrir
fyrirtæki eða einstak-
linga.
Auka þarf framboð á
leiguhúsnæði í borg-
inni.
Borgarsjóður þarf
að setja verulegt fjár-
magn í uppbyggingu
leiguhúsnæðis, hugs-
anlega í samstarfi við
lífeyrissjóði eða aðra
fjárfesta en mikil þörf
er fyrir slíkt átak.
Vöntun á hjólreiða-
stígum í borginni er
áberandi og nýr R-listi
þarf að bæta þar úr.
Miðbær Reykjavíkur hefur mikið
breyst á undanförnum árum. Versl-
un hefur flust úr miðbænum inn í
Kringlu og að hluta til inn í Kópa-
vog. Skemmti- og matsölustaðir
hafa aukið vægi sitt verulega í mið-
borginni en mörgum finnst þetta
slæm þróun.
Það bíður nýs meirihluta að rífa
miðbæinn upp úr þessari lægð.
Tillaga um nýhöfn í Reykjavík er
í mínum huga áhugaverður kostur
sem skoða verður vandlega.
Stuðningur við íþróttafélög og
uppbygging aðstöðu fyrir almenn-
ingsíþróttir er góð fjárfesting og
skilar sér m.a. sem fyrirbyggjandi
aðgerð gegn vímugjöfum.
Lagning göngustíga meðfram
strönd borgarinnar er dæmi um vel-
heppnaða aðgerð núverandi R-lista
til að bæta útivistaraðstöðu borg-
aranna.
Talsverður árangur hefur náðst í
leikskólamálum á undanförnum ár-
um en enn er langt í land með að
öllum börnum standi til boða fagleg
dagvistun.
Það er markmið sem vinna verð-
ur skipulega að.
R-listaflokkanir hafa mótað metn-
aðarfullan samstarfssamning sem
unnið verður eftir að afloknum
kosningum þar sem tekið er á skóla-
málum og mörgum öðrum mála-
flokkum.
Ekkert er þó mikilvægara en að
hinn almenni borgari taki þátt í
störfum R-listans og beri hann fram
til sigurs í vor.
Byggjum betri borg
Jóhannes T.
Sigursveinsson
Reykjavík
Vöntun á hjólreiða-
stígum í borginni er
áberandi, segir Jóhann-
es T. Sigursveinsson,
og nýr R-listi þarf að
bæta þar úr.
Höfundur er félagi í Reykjavíkur-
félagi Vinstri grænna og býður sig
fram til setu á R-listanum.
Mikið úrval af
brjóstahöldurum
verð frá kr. 700
Mömmubrjósta-
haldarar kr. 1900
Úrval af náttfatnaði
fyrir börn og fullorðna
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433