Morgunblaðið - 21.02.2002, Side 36

Morgunblaðið - 21.02.2002, Side 36
MINNINGAR 36 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Óskar Steindórs-son fæddist í Vestmannaeyjum 28. maí 1920. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 14. feb. síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru hjónin Steindór Sæmunds- son, f. í Auðsholtshjá- leigu í Ölfusi 26. jan. 1881, d. 9. ágúst 1948, og Guðbjörg Jóns- dóttir, f. í Nabba í Sandvíkurhreppi 13. okt. 1883, d. 13. sept 1980. Systkini Óskars voru Sófónías Sæmundur, f. 21. okt. 1905, d. 6. des. 1907, og Guð- finna Jóna, f. 27. feb. 1909, d. 14. maí 1998. Maki hennar var Gísli Wium, f. 22. maí 1901, d. 27. júní 1972. Óskar kvæntist 24. des. 1944 eft- irlifandi konu sinni, Margréti Ólaf- íu Eiríksdóttur, f. 24. feb. 1921. Foreldrar hennar voru Eiríkur Ögmundsson frá Svínhólum í Lóni, f. 14. júní 1884, d. 4. jan. 1963, og Júlía Sigurðardóttir frá Syðstu-Grund í V- Eyjafjallahreppi, f. 7. júlí 1886, d. 22. júlí 1979. Börn Óskars og Margrétar eru: Ólöf Erna, f. 2. apríl 1945; Dóra Björg, f. 6. maí 1947, maki Helgi Ragnar Mar- íasson, f. 8. nóv. 1939, d. 20 maí 2001; og Hallgrímur Helgi, f. 17. des 1949, eig- inkona Pálína Hall- dóra Magnúsdóttir, f. 27. jan. 1951. Óskar lauk námi frá Flensborg- arskóla í Hafnarfirði og stundaði verslunarstörf í Vestmannaeyjum, en fluttist síðan með fjölskyldu sína til Reykjavíkur árið 1948. Hann starfaði sem sýningarmaður við kvikmyndahús til ársins 1993. Útför Óskars fer fram frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þú kvaddir þennan heim þegar sól hneig til viðar og hélst til móts við ljósið, sem þú trúðir að biði þín þeg- ar þú legðir í síðustu ferðina. Und- anfarna mánuði höfum við vitað að hverju dró, þó ekki ættum við von á því að kveðjustundin væri svo skammt undan. Þú ræddir oft um að þú værir sáttur við lífshlaupið, taldir þig gæfumann og varst þakklátur fyrir gott líf og heilsu sem þér hefði verið gefin. Stundum fannst mér jafnvel örla á forvitni um það sem framundan væri. Það óþekkta heill- aði þig og vísindaskáldskapur jafnt á bókum og filmu var þér vel að skapi. Þú tókst á við erfið veikindi með reisn, sem þú hélst fram á síðasta dag, og hefur það verið okkur hinum lærdómsríkt að fylgjast með þér í þeirri baráttu. Og svo sannarlega var lífið með þér gott. Frá því ég kom fyrst inn á heimili ykkar Möggu, fyrir meira en 30 árum, duldist mér ekki að fjölskyldan var þar ávallt í fyrsta sæti, velferð henn- ar og hamingja. Samhent skópuð þið einstaklega fallegt og hlýlegt heim- ili, þar sem öllum var tekið opnum örmum og þið bæði boðin og búin að leiðbeina okkur börnunum ykkar og aðstoða á allan hátt. Ég fæ seint fullþakkað elskusemi ykkar í minn garð. Næst því að eiga góða foreldra eru maki og tengda- foreldrar það mikilvægasta í lífinu, þar fékk ég svo sannarlega stóra vinninginn. Elsku Óskar hafðu þökk fyrir allt og allt, minningin um þig mun lifa með okkur alla tíð. Pálína Magnúsdóttir. Óskar Steindórsson er látinn, hann var móðurbróðir okkar. Þau voru tvö systkinin sem upp komust, en bróðir þeirra, Sófónías Sæmund- ur, lést 1907. Mjög var kært með fjölskyldu okkar og afa, Steindóri Sæmunds- syni (af Bollagarðaætt og Auðsholts- ætt), og ömmu, Guðbjörgu Jónsdótt- ir, Vesturvegi 4 í Vestmannaeyjum. Fjölskyldan var ekki stór og voru dagleg samskipti milli okkar fjöl- skyldu og afa og ömmu. Þegar við vorum litlar var Óskar frændi mjög spennandi persóna fyrir litlar stelp- ur og eini frændinn sem við þekkt- um, því annað skyldfólk átti heima uppi á landi. Okkur fannst hann vinna skemmtilega vinnu en hann starfaði í bíó alla sína starfsævi sem sýningarstjóri og árum saman skrif- aði hann prógrömm. Oft fengu því litlar stelpur og bróðir þeirra að fara í bíó. Ekki er hægt að tala um Óskar án þess að minnast á hans elskulegu konu, Margréti Eiríksdóttur frá Dvergasteini, hún lifir mann sinn. Þau hjón áttu mjög fallegt heimili enda var Óskar listrænn og Margrét er mikil handavinnukona og listræn í öllu sem hún gerir. Þau hafa ávallt reynst okkur systrunum ákaflega vel og eftir að þau hjón fluttu til Reykjavíkur gist- um við alltaf hjá þeim þegar við vor- um í bænum. Við vorum í marga vetur við nám hér í Reykjavík og þá var gott að fara til þeirra í heimsókn og vera boðin í mat, ávallt vorum við vel- komnar. Móðir okkar naut líka gest- risni þeirra er hún var veik einn vet- ur og var þá hjá þeim. Fyrir nokkrum mánuðum fóru þau hjónin til Noregs til dóttur sinn- ar og allt virtist í besta lagi. Óskar frændi var svo unglegur í útliti og í sér að þetta kom mjög á óvart að hann færi svo fljótt. Við sjáum eftir honum frænda okkar, vegna þess að við höfðum alltaf gott og náið sam- band við hann. Að lokum þökkum við honum fyrir elskulegheitin við okkur systurnar og fjölskyldur okkar. Sér- staklega þökkum við honum hvað hann lét sér annt um hana mömmu í veikindum hennar síðustu mánuðina sem hún lifði. Við sendum samúðarkveðjur til Möggu, Ólu, Dóru Bjargar, Halla og Pálínu. Hnígur sól sofnar blóm sorgin gistir minn rann. Drýpur regn titra tár tregar hjarta mitt hann sem var angan míns vors sem var ylur míns lífs. Hnígur sól sofnar blóm sorgin gistir minn rann. (Sr. Sigurður H. Guðmundsson.) Lísa og Dóra. Óskar Steindórsson, fyrrverandi sýningarstjóri, er látinn, tæplega 82 ára að aldri. Með Óskari er genginn einstaklega góður drengur og dug- mikill foringi, sem veitti félagi sýn- ingarmanna við kvikmyndahús for- ystu í tæplega tvo áratugi og helgaði líf sitt íslenskri dægurmenningu og alþjóðlegum töfraheimi hvíta tjalds- ins. Fyrir nokkrum árum hóf ég í hjá- verkum að rita um innreið kvik- myndanna hingað til lands, upphaf sýninga hér á landi og uppbyggingu kvikmyndahúsa. Öðrum þræði var verkinu ætlað að vera félagatal eins fámennasta verkalýðsfélags lands- ins, Félags sýningarmanna við kvik- myndahús, FSK, en einnig stutt ágrip af sögu þess. Í því verki reynd- ist Óskar Steindórsson svo sannar- lega betri en enginn, enda hafsjór fróðleiks um kvikmyndir og allt sem þeim tengist, en ekki síður félagið og sögu þess. Óskar lauk prófi frá Flensborg- arskóla í Hafnarfirði en vann síðan við verslunarstörf í Vestmannaeyj- um um nokkurra ára skeið. Þar kynntist hann fyrst starfsemi kvik- myndahúsa og hóf störf sem sýning- armaður við Vestmannaeyjabíó. Hann fylgdist því með úr fjarlægð þegar nokkrir sýningarmenn í kvik- myndahúsum á höfuðborgarsvæðinu komu saman á Hótel Borg í maí 1945 og stofnuðu með sér félag. Óskar varð þó snemma félagi og átti í bréfaskrifum við forystu hins nýja félags frá Eyjum, en þegar hann flutti ásamt fjölskyldu sinni til Reykjavíkur árið 1948 og hóf störf við Hafnarbíó, varð hann einn helsti frumkvöðullinn í félagsstarfinu og hélst svo næstu fjóra áratugina og ríflega það. Óskar gegndi formennsku í FSK með hléum í tæplega tvo áratugi, var fyrsti fulltrúi félagsins á þingum Al- þýðusambandsins og varð svo fulltrúi í miðstjórn Rafiðnaðarsam- bandsins eftir inngöngu sýningar- manna í það. Um langt árabil gaf hann út í félagi við Ólaf Árnason, sýningarstjóra í Gamla bíói, tímarit- ið Sýningarmanninn, ómissandi fag- rit sýningarmanna í kvikmyndahús- um og áhugamanna um kvikmyndir, sem naut mikilla vinsælda. Óskar hóf störf í fyrsta fjölsala- bíóinu á Íslandi, Regnboganum við Hverfisgötu, um leið og það var tek- ið í notkun, þýddi og frumsamdi „bíóprógrömmin“ um langt árabil af mikilli elju og myndarskap. Þannig má segja að fjölþættir hæfileikar hans hafi nýst á mörgum sviðum, sem tengdust þó flest hinum heillandi heimi kvikmyndanna – eft- irlætisáhugamáli Óskars alla tíð. Það var Óskari mikil gæfa að njóta samvista við ástkæra eigin- konu sína, Margréti Eiríksdóttur frá Dvergasteini. Margrét studdi eigin- mann sinn ávallt af myndugleik og ást þeirra í garð hvors annars duld- ist engum sem sótti þau heim. Ég naut þess að sækja fróðleik og góð- gerðir á Kleppsveginn þegar komið var fram á ævikvöldið og vildi ekki vera án þeirra stunda, nú þegar kall- ið er komið. Ég leyfi mér að bera heiðurs- félaga og handhafa gullmerkis FSK góða kveðju frá íslenskum sýning- armönnum og sjálfur þakka ég sýn- ingarmanninum Óskari Steindórs- syni góð kynni og skemmtilegar samverustundir. Fjölskyldu hans votta ég mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu Óskar Stein- dórssonar. Björn Ingi Hrafnsson. Óskar Steindórsson var einn helsti forystumaður sýningarmanna í kvikmyndahúsum í áratugi. Hann var mikill áhugamaður um starfs- réttindi þeirra og bætta starfs- menntun. Félag sýningarmanna í kvikmyndahúsum er gamalt og gróið stéttarfélag og stóð m.a. fyrir glæsi- legustu dansleikjum Reykjavíkur um miðja síðustu öld og var slegist um miða á böllin, enda tengdust fé- lagsmenn öllum glæsilegustu kvik- myndastjörnum veraldar. Félag sýningarmanna gekk í Raf- iðnaðarsambandið árið 1987. Óskar náði strax athygli forystumanna Rafiðnaðarsambandsins og er kjör- inn í miðstjórn sambandsins 1989 og hann er þar til 1996. Þá var hann far- inn að draga sig í hlé frá félagsstörf- um. Hann var ávallt léttur og kátur, en mjög fastur fyrir. Hafði félagsleg- an þroska á mjög háu stigi og mjög gott stöðumat. Óskar hafði þannig útgeislun og framsetningu að hann þurfti ekkert að beita sér til þess að koma skoðunum sínum á framfæri og fá fólk til þess að fallast á sjón- armið sín. Þann tíma sem Óskar var í miðstjórn aflaði hann sér mikillar virðingar meðal miðstjórnarmanna, og náði það langt út fyrir raðir sýn- ingarmanna. Óskar kom í miðstjórn RSÍ á þeim árum sem ég er að koma til starfa í félagslegum geira rafiðnaðarmanna, hafði áður eingöngu sinnt starfs- menntunarmálum. Það tókust strax mjög góð kynni með okkur Óskari og leitaði ég oft til hans til þess að hlýða á álit hans á þeim málum sem til um- ræðu voru hverju sinni. Hann var traustur og góður vinur. Ég sendi fjölskyldu Óskars fyrir hönd okkar rafiðnaðarmanna innilegar samúðar- kveðjur. Guðmundur Gunnarsson, form. Rafiðnaðar- sambands Íslands. ÓSKAR STEINDÓRSSON Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Sönghópur undir stjórn organista. Fræðslukvöld kl. 20:00 í safnaðarheimilinu. Fjallað um bók Esekíels spámanns og upphaf gyðing- dóms. Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10– 12. Dómkirkjan. Opið hús í safnaðarheimilinu kl. 14–16. Kaffi og með því á vægu verði. Ýmsar uppákomur. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12:00. Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina. Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl. 10:00. Stúlknakór kl. 16:30 fyrir stúlkur fæddar 1989 og eldri. Stjórnandi Birna Björnsdóttir. Íhugun kl. 19:00. Taizé- messa kl. 20:00. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6:45– 7:05. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12:00. Orgeltónlist í kirkjunni kl. 12–12:10. Að stundinni lokinni er léttur málsverður í safnaðarheimili. Alfanámskeið kl. 19–22. Kennarar Ragnar Snær Karlsson, Nína Dóra Pétursdóttir og sr. Bjarni Karlsson. Fjölþjóðakvöld Adrenalínhóps kl. 20:00 gegn rasisma haldið á Ömmukaffi. 9. og 10. bekkingar úr Laugalækjarskóla koma saman ásamt nemendum úr nýbúadeild Austurbæjarskóla. Um er að ræða sam- starfsverkefni Laugarneskirkju, Þrótt- heima, nýbúadeildar Austurbæjarskóla og miðborgarstarfs KFUM og K. Neskirkja. Nedó kl. 17:00. Unglingaklúbb- ur fyrir Dómkirkju og Neskirkju fyrir 8. bekk. Nedó kl. 20:00 fyrir 9. bekk og eldri. Umsjón Sveinn og Þorvaldur. Árbæjarkirkja. Barnakóraæfing kl. 17– 18. Breiðholtskirkja. Biblíulestar kl. 20–22. Námskeið á vegum Reykjavíkurprófasts- dæmis og leikmannaskóla þjóðkirkjunnar. Á námskeiðinu verður leitast við að draga fram nokkra áhersluþætti í siðfræðiboðs- kap Jesú sem þessar hugmyndir höfða bæði réttilega til og annað sem er rang- túlkað. Farið verður í valda texta úr Nt og m.a. tekin fyrir stef úr fjallræðunni og dæmisögum Jesú. Fyrirlesari er dr. Sigur- jón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Á eftir fyrirlestrinum er boðið upp á umræður yfir kaffibolla. Mömmumorgunn föstudag kl. 10–12. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra. Leik- fimi ÍAK kl. 11.15. Bænastund kl. 12.10. Fyrirbænaefnum má koma til kirkjuvarða. Léttur hádegisverður eftir stundina. Alfa- námskeið kl. 19.00. Kvöldverður, fræðsla, umræðuhópar. Fræðsluefni: Hvað með handleiðslu Guðs? Kennari sr. Magnús B. Björnsson. Fella- og Hólakirkja. Helgistund og Bibl- íulestur í Gerðubergi kl. 10.30–12:00 í umsjón Lilju djákna. Starf fyrir 9–10 ára stúlkur kl. 17.00. Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10:00–12:00. Fræðandi og skemmtilegar samverustundir, ýmiss konar fyrirlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. Kirkjukrakkar í Húsaskóla fyrir 7–9 ára börn, kl. 17:30–18:30. Æskulýðs- félag í Grafarvogskirkju fyrir 8.–9. bekk, kl. 20:00–22:00. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30. Alfa-námskeið kl. 20. Kópavogskirkja. Starf með eldri borgurum í dag, kl. 14:30–16:30, í safnaðarheim- ilinu Borgum. Kyrrðar- og bænastund kl. 17:00. Fyrirbænaefnum má koma til sókn- arprests eða kirkjuvarðar. Seljakirkja. KFUM-fundur fyrir stráka á aldrinum 9–12 ára kl. 16:30. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl. 21. Tónlist, ritningarlestur, hugleiðing og bæn. Bænarefnum má koma til presta kirkjunnar og djákna. Hressing í safnaðar- heimilinu eftir stundina. Biblíulestrarnir sem verið hafa kl. 20 falla niður en bent er á Alfanámskeiðið á miðvikudögum. Prest- arnir. Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10– 12 ára kl. 17–18.30. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn- aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 10–12 ára börn (TTT) í dag kl 17:00. Foreldrast- und kl. 13–15. Kjörið tækifæri fyrir heima- vinnandi foreldra með ung börn að koma saman og eiga skemmtilega samveru í safnaðarheimili kirkjunnar. Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl. 20. Landakirkja. Kl. 10 foreldramorgunn. Æf- ingar falla niður hjá Litlum lærisveinum í öllum hópum í dag. Keflavíkurkirkja. Fimmtudagur 21. feb. Fermingarundirbúningur í Kirkjulundi, kl. 14:30–15:10 8. MK í Heiðarskóla, kl. 15:15–15:55 8. SV í Heiðarskóla. Al- mennir tónleikar Tónlistarskóla Reykja- nesbæjar kl. 20. Allir velkomnir. Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel- komnir. Glerárkirkja. Opið hús fyrir foreldra og börn kl. 10–12. Heitt á könnunni og Svali fyrir börnin. Ath. æfing barnakórsins er kl. 17.30. Safnaðarstarf Morgunblaðið/Þorkell Dómkirkjan í Reykjavík. FRÆÐSLUKVÖLD um unglinginn í sorg verður í Safnaðarheimili Há- teigskirkju í kvöld kl. 20–22. Kynnt verður námskeið fyrir unglinga sem misst hafa ástvin. Umsjón hafa Baldur Gylfason sál- fræðingur og Helga Jorgensdóttir og Linda Kristmundsdóttir geðhjúkrunarfræðingar. Allir vel- komnir. Aðgangseyrir kr. 500. Ný dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, netfang: nydog- un@sorg.is Veffang: www.sorg.is Er Guð í bíó? HVAÐ eiga Neo/Anderson í Matrix og Jesús Kristur sameiginlegt? Er eitthvað líkt með Pleasantville og sögunni af Adam og Evu í Paradís? Næstu þrjú fimmtudagskvöld frá kl. 20:00–22:00 verða í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarð- arkirkju, umræður um trúarstef í kvikmyndum. Áhugahópur um trúarstef í kvik- myndum, sem kallar sig Deus ex cinema, mun hafa umsjón með um- ræðunum og sýna dæmi úr þekkt- um kvikmyndum, en hópurinn held- ur úti heimasíðunni www.dec.hi.is. Hópurinn hefur m.a. komist að því að trúarstef eru í nær öllum kvik- myndum. Fyrst verða sýnd dæmi úr myndinni Matrix en þar er að finna fjölmargar hliðstæður við ævi Jesú Krists. Umræðukvöldin eru öllum opin en þau eru einkum miðuð við ungt fólk á framhaldsskólaaldri. Kvöldmessa í Langholtskirkju ÞORVALDUR Halldórsson syngur og leiðir almennan söng í kvöld- messu í Langholtskirkju í kvöld, fimmtudagskvöldið 21. febrúar, kl. 20.00. Tónlistin verður í léttum dúr, bæði lofgjörðarsöngvar og bæna- söngvar. Sóknarprestur og djákni annast altarisþjónustu og flytja hugvekju. Góður tími verður fyrir bænagjörð, og getur fólk þegið sjálft fyrirbæn eða komið bæn- arefnum sínum á framfæri með öðrum hætti, s.s. að skrifa þau á blað og setja í sérstaka bænakörfu. Að lokinni stundinni verður boðið upp á kaffisopa í safnaðarheim- ilinu. Allir eru velkomnir. Unglingurinn í sorg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.