Morgunblaðið - 21.02.2002, Side 38

Morgunblaðið - 21.02.2002, Side 38
MINNINGAR 38 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Hannes Ó. John-son fæddist á Blönduósi 12. sept- ember 1923. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans þriðjudaginn 12. febrúar síðastliðinn. Foreldrar Hannesar voru Ólafur Þ. John- son, stórkaupmaður í Reykjavík, f. 29.5. 1881, d. 9.11. 1958, og Guðrún Árnadótt- ir frá Geitaskarði í Húnavatnssýslu, f. 27.5. 1902, d. 11.9. 1973. Systkini Hannesar eru: Agn- ar læknir, f. 1908, d. 1990, Frið- þjófur forstjóri, f. 1909, d. 1955, Pétur hagfræðingur, f. 1912, d. 1996, Örn, f. 1914, d. sama ár, Örn forstjóri, f. 1915, d. 1984, Ólafur forstjóri, f. 1931, d. 2001 og Helga Hersey húsfreyja, f. 1930, sem lifir bræður sína. Fyrri eiginkona Ólafs var Helga Thorsteinsson, f. 22.1. 1884, d. 22.9. 1918. Hannes kvænt- ist 24.6. 1949 Sigríði Guðbjörgu nemi, f. 23.7. 1983, b) Kristinn, f. 2.10. 1986 og c) Sigrún, f. 7.6. 1989. Hannes nam við Verzlunarskóla Íslands frá 1938–1940 og Admiral Billard Academy í Bandaríkjunum 1941–1942. Hann var búsettur í Bandaríkjunum 1940–1945 og vann á skrifstofu Ó. Johnson og Kaaber hf. og Innflytjendasam- bandsins í New York 1942–1945. Eftir heimkomuna starfaði Hannes hjá Páli Stefánssyni 1946, Flug- félagi Íslands hf. 1947–1949 og Trolle & Rothe hf. 1950–1954. Hann var fulltrúi hjá Vátrygginga- félaginu hf. 1954 til áramóta 1955 og síðan framkvæmdastjóri hjá Tryggingu hf. til 1983. Hann ein- beitti sér eftir það að störfum í stjórnum fjölskyldufyrirtækjanna og starfaði einnig sem ráðgjafi á sviði tryggingamála. Hannes átti sæti í stjórn Sambands bruna- tryggjenda á Íslandi 1964–1975 og var formaður síðustu fimm árin. Þá sat hann í stjórn Sambands ís- lenskra tryggingafélaga 1972– 1975, stjórn Verslunarráðs Íslands 1974–1976 og í stjórn Ó. Johnson og Kaaber og systurfyrirtækja þess frá 1967 til 2001. Hannes starfaði lengi í Lions-hreyfingunni. Útför Hannesar fer fram frá Sel- tjarnarneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Pálsdóttur, f. 3.1. 1929. Foreldrar henn- ar voru þau Páll Bjarni Sigfússon skip- stjóri, f. 1900, d. 1970, og Þórhildur Lilja Ólafsdóttir húsfreyja, f. 1905, d. 1977. Börn Hannesar og Sigríðar eru: 1) Hildur Elín þjónustufulltrúi, f. 16.2. 1952, búsett í Sví- þjóð, eiginmaður hennar var Magnús Guðbjartur Helgason verktaki, f. 20.3. 1950, þau skildu. Börn þeirra eru: a) Sigríður Ýr sölu- fulltrúi, f. 27.1. 1972, sambýlismað- ur hennar er Phillip Strandmark tryggingafulltrúi, f. 10.11. 1971, b) Helgi Þór háskólanemi, f. 13.9. 1975, og c) Kristín Lára mennta- skólanemi, f. 9.3. 1983. 2) Agnar, rekstrarverkfræðingur M.Sc., f. 25.11. 1958, eiginkona hans er Sig- rún Gunnarsdóttir hjúkrunarfræð- ingur, M.Sc., f. 16.5. 1960. Börn þeirra eru a) Hannes menntaskóla- Trúmennska, lífsvilji og lán var meðal þess sem einkenndi líf Hannesar, tengdaföður míns. Hann vann störf sín af alúð, hafði ánægju af samskiptum við fólk og naut oft gagnkvæmrar góðvildar. Hann sagði okkur mörgum sinnum frá því hvernig honum tókst með hjálp Agnars bróður síns, sem þá var læknastúdent, að læknast af alvarlegri brjósthimnubólgu og fá tækifæri til að ná aftur heilsu á heimili foreldra þeirra undir verndarvæng Agnars. Hannes bjó þá í faðmi fjölskyldunnar að Esju- bergi og átti þar góð ár með bræðrum sínum og systur. Hann sagði okkur líka frá því hvernig góðvinur hans bjargaði honum undan ísnum á Tjörninni og var Hannes afar þakklátur þessum bjargvættum sínum í æsku og mat lífgjafirnar. Seinna þegar Hannes var kom- inn á fullorðinsár fékk hann aftur tækifæri til að þakka hugulsemi og einstaka hjálp. Hann minntist heimilislæknisins síns sem brást snarlega við einkennum um alvar- legan veikleika í hjarta Hannesar fyrir 14 árum sem leiddi til þess að hann náði fullum bata. Síðastliðið ár höfum við öll sem þekkjum Hannes verið sammála um að enn og aftur naut líf hans einstakrar verndar. Það var fyrir réttu ári þegar hann veiktist aftur og þrátt fyrir tvísýnt útlit var lífinu bjargað enn og aftur með ótrúlegu snar- ræði og Hannesi tókst með góðra manna hjálp að berjast til bata. Þetta síðasta ár var gæfuár í lífi Hannesar og Sirrýjar í skugga sorgar í tengslum við andlát Ólafs bróður hans. Hannes naut um- hyggju Sirrýjar og með einstökum lífsvilja, bjartsýni og glaðværð naut hann vellíðunar og ánægju- stunda, bæði á heimili þeirra á Sel- tjarnarnesi og í sumarbústaðnum á Þingvöllum sem hann mat svo mik- ils. Hann var afar þakklátur fyrir allar samverustundir með fjöl- skyldunni og hafði mátt til að gefa af sér til ættingja og vina sem börðust á sama tíma við sjúkdóma og áföll. Allt fram á síðasta dag var bjart fyrir hugskotssjónum Hannesar og hann var reiðubúinn sem aldrei fyrr að rétta öðrum þá hjálp sem honum var auðið. Þannig var það daginn fyrir skyndilegt fráfall Hannesar að hann safnaði í sig krafti til að heimsækja æskuvin sinn á sjúkrahús til að stytta hon- um stundir og syngja fyrir hann nokkur lög sem þeir voru vanir að syngja saman í gamla daga. Hannes kvaddi okkur umvafinn friði og ró og hafði falið fólkinu sínu þau verkefni sem hann vildi að yrðu unnin áfram í nafni hans. Við minnumst Hannesar þegar hann glaðvær slær á létta strengi, býður okkur góða nótt og segir að núna líði honum mikið betur. Við þökkum Guði fyrir að vernda líf Hannesar og taka á móti honum í ríki sínu. Megi vernd Guðs áfram fylgja fjölskyldu hans. Sigrún Gunnarsdóttir. Til afa. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvíl- ast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Þín Sigrún Agnarsdóttir. Við andlát föðurbróður míns koma í hugann ýmsar gamlar og góðar minningar. Samband okkar var býsna náið og stafaði í upphafi af sjónvarpsleysi landsmanna og að þá gáfust frekari tilefni til að heimsækja ættingja sína en virðist vera siður nú á tímum. Ég man fyrst eftir Hannesi og Sirrý er þau bjuggu á Miklubraut, fáeinum hús- um frá mér. Hildur var þá fædd og var ég þá tilvalinn til þess að gæta litlu frænku minnar ef hjónin þurftu að skreppa af bæ. Þar var upplagt að lesa aðrar bækur en voru til á mínu heimili, t.d. áttu þau Öldina okkar sem mér frétta- þyrstum þótti mikill fengur að lesa, auk þess bókina Þriðja augað, sem opnaði manni fyrstu sýn til Tíbet. Árið 1954 fluttu afi og Nunna, móðir hans, heim frá Bandaríkj- unum. Þau höfðu keypt sér hús- næði á Grenimel og var Hannes fenginn til þess að stjórna breyt- ingum á íbúðinni eftir þeirra höfði. Þótti hann standa sig svo vel að þegar foreldrar mínir skiptu um húsnæði árið 1964 var enginn bet- ur til þess fallinn en hann að stjórna framkvæmdum þar. Eitt aðaleinkenni Hannesar var frændrækni hans. Kunni hann deili á nær öllum ættingjum sínum og var stöðugt að segja manni frá fyrri tímum eins og þegar þeir bræður voru að alast upp. Eldri bræður hans voru móðurlausir eft- ir spönsku veikina og var faðir minn þeirra yngstur. Voru átta ár á milli þeirra, en elstir voru Agnar og Friðþjófur, sem voru þegar Hannes fór að muna eftir sér mikl- ir höfðingjar í borginni, ef ekki líka á Borginni. Gekk örugglega á ýmsu á heimilinu þótt Nunna hafi stutt föður piltanna dyggilega í uppeldinu. Annað einkenni Hannesar, sem að minnsta kosti sneri að mér, var traust hans og hjálpsemi. Birtist það í því að ekki var mikið mál að fá bílinn hans lánaðan, sem þó var ekki af verri endanum, til þess að rúnta um miðborgina á kvöldin. Hannes og Sirrý voru meðal fyrstu aðfluttu íbúa hér á Seltjarn- arnesi. Bjuggu þau sér þar fagurt heimili sem Sirrý á ekki minnstan þátt í, enda listræn kona. Þar var alltaf gaman að koma og margt rætt, allt frá ættfræði til hesta- mennsku, enda voru hestar þeirra áhugamál um tíma og átti Sirrý verðlaunahest. Við andlát Hannesar eru nú allir synir Ólafs afa míns farnir og að- eins dóttirin Helga á lífi. Hannesi var það örugglega þungt áfall þeg- ar Ólafur yngri bróðir hans lést, langt fyrir aldur fram, síðastliðið sumar. Vinátta þeirra var svo mikil og einlæg, enda báðir fjörkálfar og hrókar alls fagnaðar. Með Hannesi er genginn góður drengur og vinmargur. Hans verð- ur minnst með þakklæti af þeim fjölmörgu sem hann átti kost að greiða götu, sem var örugglega oftar en okkur flest grunar. Ég sendi Sirrý, Hildi og Agnari og þeirra börnum innilegustu samúð- arkveðjur. Örn Johnson. Að morgni nýársdags 1961 vökn- uðu foreldrar okkar við mikinn reykjarmökk sem lagði um allt húsið. Skelfingu lostin æddu þau um húsið að leita að okkur tveimur elstu sonum sínum, 4 og 5 ára gömlum. Fundumst við loks í stof- unni, þar sem við höfðum lagt eld að miklum dagblaðabing sem við höfðum safnað saman á miðju stofugólfinu. Þegar pabbi hafði ráðið niðurlögum eldsins, spurði hann okkur forviða hví í ósköp- unum við hefðum gert þetta. Og ekki stóð á svarinu: „Við vildum hafa eld í stofunni. Eins og Hann- es frændi!“ Hannes og Sirrý höfðu þá búið sér fallegt heimili vestur á Sel- tjarnarnesi og var stofustássið ein herjans mikil kamína sem kynt var uppí þegar mikið stóð til. Og kvöldið áður höfðu þau haldið upp á áramótin með miklum bravúr og blysagangi og þá að sjálfsögðu fýr- að upp í kamínunni. Æ síðar var það fastur passi að steðjað var vestur á Skólabraut 61 þegar hall- aði í áramótin og þá sem alltaf tek- ið á móti manni með mikilli rausn og myndarskap. Þeir bræður Hannes og pabbi voru miklir og góðir vinir; svo kært var með þeim að leitun mun að jafn fölskvalausri vináttu. Aldr- ei var blásið til mannfagnaðar á hvorugu heimilanna án þess að þeir bræður byðu ekki hvor öðrum fyrstum manna. Iðulega fóru þeir saman með fjölskyldurnar í frí, jafnt utan lands sem innan, þeir unnu saman að stjórn fjölskyldu- fyrirtækisins og leystu í samein- ingu þau vandamál sem komu upp í lífi og starfi hvors um sig. Hannes ólst upp í stórum systk- inahópi vel sigldra eldri bræðra og prakkaralegra yngri systkina, sem hann reyndist góður bróðir. Heim- ili fjölskyldunnar að Esjubergi við Þingholtsstræti hefur verið eins og hálfgerð höll á þeim tíma, glæsi- bygging með mörgum leyndarmál- um og full af fjörugu fólki. Skömmu áður en nýir eigendur tók við húsinu af Borgarbókasafninu fyrir tæpum tveimur árum, fórum við systkinin ásamt fleirum, með Hannesi í skoðunarferð um húsið og báðum hann að segja okkur frá daglegu lífi á uppvaxtarárum hans. Þetta voru tímar sem okkur eru mjög fjarlægir í dag. Þarna tók hver stássstofan við af annarri, eldhúsið í kjallaranum og lítil vöru- lyfta milli hæða. Voldugir stigar og risastór herbergi. Meira að segja tehús í garðinum! Hannes rifjaði upp fermingarveislu sína þegar um hundrað manns sátu til borðs á að- alhæðinni, fyrstu tilraun sína til að reykja í laumi á bak við hús og var gripinn glóðvolgur og erilinn í eld- húsinu þegar verið var að útbúa mat ofan í tugi manna. Frásögn hans var skýr og skemmtileg og einu skiptin sem hann varð alvar- legur og alltað því hátíðlegur á svip var þegar hann lýsti ein- stökum kærleik og vináttu við bræður sína og systur. Hannes var ávallt hress og kát- ur, fylgdist vel með lífinu í kring- um sig og hafði mjög ákveðnar skoðanir sem hann lá ekki á, held- ur lét hvern mann heyra. Oft var maður ósammála honum og það þótti honum skemmtilegast. Logn- molla og værð var honum ekki að skapi. Hann vildi hafa líf og fjör í kringum sig. Ættfræði og átthaga- fræði lágu vel fyrir honum og þannig gat hann sett menn og mál- efni í samhengi þannig að allir skildu. Húnvetnska eðlið var ríkt í honum. Hann var prakkari og óhlýðinn við alla, nema lækna. Þeim hlýddi hann skilyrðislaust og án málalenginga. Hann varð bind- indismaður á vín og tóbak, fór að ganga og synda sér til heilsubótar og hamast í líkamsræktinni af því að læknarnir sögðu honum það. Ekki hefði hvarflað að honum að gera það ella! Um síðustu áramót var að sjálf- sögðu partý á Nesinu. Þótt húsið héti núna Valhúsabraut 37 og ýms- ir fleiri hefðu bæst í hópinn en aðr- ir horfið úr stað, þá var enn sami rausnarskapurinn og ávallt. Ekki uggði nokkurn þá að Hannes ætti svo skammt ólifað, þótt hann hefði komist í talsvert návígi við dauð- ann sléttu ári áður. Hann lék á als oddi og skálaði við gestina (lækn- arnir höfðu gefið grænt ljós á obbolítið sherrý) og naut kvöldsins og áramótanna til hins ýtrasta. Við þökkum fyrir þá stund og allar hinar sem við áttum með þessum einstaka manni. Far þú í friði, elsku frændi. Friðþjófur, Gunnlaugur, Ólafur og Helga Guðrún. Kynni okkar Hannesar Ó. John- son hófust þegar hann í lok síðari heimsstyrjaldarinnar fluttist heim frá Bandaríkjunum, eftir að hafa dvalið þar megnið af styrjaldarár- unum við nám og störf. Faðir hans, Ólafur Johnson, var þá búsettur í New York með fjölskyldu sinni og rak þar skrifstofu fyrir fyrirtæki sitt, Ó. Johnson & Kaaber hf., og Innflytjendasambandið. Eftir að hafa lokið námi starfaði Hannes á skrifstofunni í New York, þar til hann fluttist heim aftur árið 1945. Um þessar mundir hafði ég unnið í nokkur ár á skrifstofu O. Johnson & Kaaber hf. í Reykjavík og þann- ig lágu leiðir okkar saman og kynni hófust, sem fljótlega urðu að ævilangri vináttu, sem seint verður fullþökkuð. Eftir heimkomuna urðu ævistörf Hannesar einkum tengd vátryggingastarfsemi, auk starfa á fleiri sviðum viðskipta, og var hann farsæll í þessum ævi- verkefnum sínum enda kjörinn til stjórnar- og forystustarfa í þessum efnum. Nú, við andlát Hannesar, þegar leiðir skiljast um sinn, hrannast að minningarnar um reynslu og sam- skipti liðinna áratuga, samskipti sem tengjast félagslífi, ferðalögum og margskonar öðrum áhugamál- um og atvikum í áranna rás. Það er þó örugglega ekki ofmælt, að það atvik í lífi Hannesar, þegar hann sá fyrst og kynntist Sigríði Guðbjörgu Pálsdóttur (Sirrý), var sá atburðurinn, sem hann setti of- ar öðrum og mat mest. Var þá strax augljóst að vanga- veltur voru óþarfar og niðurstaðan þessi: Þetta er hún. Framtíðar- förunauturinn er fundinn. Aðrar koma ekki til greina. Okkur, sem þekkjum þau bæði, þótti það svo vera nokkuð augljóst, að þeim reyndist raunar báðum harla auð- velt að komast að sameiginlegri niðurstöðu í þessu efni. En brúð- kaup þeirra er atvik, sem ávallt verður okkur er þátt tókum í því ferskt í minni. Síðar þegar við Hannes höfðum báðir stofnað heimili, varð það okkur Elísabetu ómetanleg reynsla að fá að njóta HANNES Ó. JOHNSON      !      "#A7"-B"#&&  ,C  ) 1 )!      /   -!      8    ! ##   //  0*  D   ,0'     )  0    2)) 0  D  0'  0 ! -!        4   . ,0      )! ! ,         %        #/   , ; )   -     @        !

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.