Morgunblaðið - 21.02.2002, Blaðsíða 46
DAGBÓK
46 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Mánafoss kemur í dag.
Haukur, Helgafell,
Dettifoss, Trinket og
Helga
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Sel-
foss fór frá Straumsvík
í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, kl. 10
boccia, kl. 13 vinnu-
stofa, myndmennt og
bað.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, opin
handavinnustofan, bók-
band og öskjugerð, kl.
9.45–10 helgistund, kl.
10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13–16.30 opin
smíðastofan. Allar upp-
lýsingar í s. 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 10–17 fótaað-
gerð, kl. 14 dans.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Jóga á föstu-
dögum kl. 11. Kóræf-
ingar hjá Vorboðum,
kór eldri borgara í
Mosfellsbæ, á Hlað-
hömrum fimmtudaga kl.
17–19. Púttkennsla í
íþróttahúsinu á sunnu-
dögum kl. 11.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 9–13 handa-
vinnustofan opin, kl.
9.30 danskennsla, kl.
14.30 söngstund.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 11 leikfimi,
kl. 13 föndur og handa-
vinna.
Félag eldri borgara í
Garðabæ heldur aðal-
fund sinn föstudaginn
22. febrúar í Kirkju-
hvoli kl. 14:00. Félagar
eru hvattir til að fjöl-
menna.
Félag eldri borgara
Kópavogi, sæludagar á
Hótel Örk dagana 7.
apríl til 12. apríl.
Þátttökulistar eru í fé-
lagsheimilunum Gjá-
bakka og Gullsmára.
Aðalfundur félagsins
verður í Gullsmára 13
laugard. 9. mars.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Pútt í Bæjarútgerð kl.
10–11. Leikhúsferð í
kvöld í Borgarleikhúsið
að sjá „Boðorðin níu“.
Rúta frá Hraunseli kl.
19:15. Félagsmiðstöðin
verður lokuð vegna
flutnings að Flatahrauni
3 til 22. feb. Vígsla
nýrrar félagsmiðstövar í
Flatahrauni 3 verður
laugardagin 23. feb. kl.
14.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Fimmtud.: Brids kl. 13.
Brids fyrir byrjendur
kl. 19.30. Leikfélagið
Snúður og Snælda sýnir
í Ásgarði í Glæsibæ
söng- og gamanleikinn
„Í lífsins ólgusjó“ og
„Fugl í búri“, drama-
tískan gamanleik. Sýn-
ingar: Miðviku- og fös-
tud. kl. 14 og sunnud.
kl. 16. Miðapantanir í s:
588-2111, 568-8092 og
551-2203. Ath. föstud.
22. feb. er uppselt. Sun-
nud. 24. febrúar fellur
sýningin niður vegna
aðalfundar FEB. Aðal-
fundur Félags eldri
borgara í Reykjavík og
nágrenni verður haldinn
í Ásgarði, Glæsibæ sun-
nud. 24. feb. kl. 13.30.
Ársreikningar FEB
liggja frammi á skrif-
stofu félagsins. Árshátíð
FEB verður haldin 1.
mars í Versölum, Hall-
veigarstíg 1. Húsið opn-
að kl. 19 og borðhald
hefst kl. 19.30. Miða-
pantanir á skrifstofu
FEB, s: 588-2111. Nám-
skeið í framsögn og
upplestri er fyrirhugað
í byrjun mars ef næg
þátttaka fæst, leiðbein-
andi Bjarni Ingvarsson.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
glerskurður, kl. 9–13
hárgreiðsla, kl. 9–16
böðun, kl. 10 leikfimi,
kl. 15.15 dans. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–
16, blöðin og kaffi.
Félagsstarfið Furu-
gerði. Kl. 9 aðstoð við
böðun, smíðar og út-
skurður, leirmunagerð
og glerskurð-
arnámskeið, kl. 9.45
verslunarferð í Aust-
urver, kl. 13.30 boccia.
Laugardaginn 23. febr-
úar verður dansleikur
með Geirmundi Valtýs-
syni kl. 17–19.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug
Kl. 9.30, kl. 10.30 helgi-
stund, umsjón Lilja G.
Hallgrímsdóttir, djákni
í Fella- og Hólakirkju.
Frá hádegi spilasalur
og vinnustofur opin,
m.a. Veitingar í veit-
ingabúð. Fimmtud. 28.
feb. leikhúsferð í Borg-
arleikhúsið, „Boðorðin
níu“, skráning hafin.
Félagsvist verður 28.
feb. kl. 13.15 í samstarfi
við Seljaskóla, allir vel-
komnir, verðlaun. Upp-
lýsingar um starfsemina
á staðnum og í síma
575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9 handavinna, kl.
9.05 og kl. 9.50 leikfimi,
kl. 9.30 klippimyndir,
kl. 15 rammavefnaður,
kl. 13 gler og postulín,
kl. 16.20 og kl. 17.15
kínversk leikfimi, kl. 17
myndlist, kl. 20 gömlu
dansarnir, kl. 21 línu-
dans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 og kl. 10 jóga,
kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 13 brids, kl. 13–16
handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum,
kl. 17 línudans.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin vinnustofa, búta-
saumur, kortagerð og
perlusaumur, kl. 9.45
boccia, kl. 11 leikfimi,
kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og bútasaumur,
kl. 10 boccia, kl. 14 fé-
lagsvist. Hársnyrting
og fótaaðgerð.
Norðurbrún 1. Kl. 9
tréskurður og opin
vinnustofa, kl. 10–11
ganga, kl. 10–15 leir-
munanámskeið. Fé-
lagsstarfið er opið öllum
aldurshópum, allir vel-
komnir.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 10
boccia, kl. 13–14 leik-
fimi, kl. 13–16 kóræfing,
kl. 17–20 leirmótun.
Helgistund kl. 10:30 í
umsjón séra Jakobs
Hjálmarssonar dóm-
kirkjuprests.
Allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia, kl. 13
handmennt og frjálst
spil, kl. 14. leikfimi.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58–60, Biblíulestur kl.
17. Allar konur vel-
komnar.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtud. Skráning kl.
12.45. Spil hefst kl. 13.
Sjálfsbjörg, félagsheim-
ilið Hátúni 12. Kl. 19
tafl.
Sjálfboðamiðstöð
Rauða krossins, Hverf-
isgötu 105. Kl. 13–16
prjónað fyrir hjálp-
arþurfi erlendis. Efni á
staðnum.
Kiwanisklúbburinn
Geysir, Mosfellsbæ. Fé-
lagsvist spiluð í Kiw-
anishúsinu í Mosfellsbæ
í kvöld kl. 20.30.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa saln-
um.
Kvenfélag Kópavogs
Afmælisfundur verður
fimmtud. 21. febrúar kl.
20 í Hamraborg 10.
Spilað bingó.
Hana-nú Kópavogi
Fundur í Hláturklúbbi
Hana-nú í Gullsmára í
kvöld kl. 20. Ágætt að
vera með nokkrar gam-
ansögur í farteskinu.
Tæknilegar æfingar.
Samtök lungnasjúk-
linga halda fræðslufund
í dag kl. 20 í Safn-
aðarheimili Hallgríms-
kirkju. Gestur fund-
arins: Heimir Þór
Andrason lyfjafræð-
ingur. Hann fjallar um
aukaverkanir astmal-
yfja og annarra lungna-
lyfja.
Í dag er fimmtudagur 21. febrúar,
52. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Velgjörðasöm sál mettast ríkulega,
og sá sem gefur öðrum að drekka
mun og sjálfur drykk hljóta.
(Orðskv. 11, 25.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
: 1 reist, 4 ólæti, 7 rífur í
tætlur, 8 snúið, 9 blasir
við, 11 ruplað, 13 drepa,
14 fiskinn, 15 skinn, 17
höfuð, 20 hvíldi, 22 sveig-
ur, 23 kút, 24 skrifar, 25
jarðeign.
LÓÐRÉTT:
: 1 stubbur, 2 hrognin, 3
óbyggt svæði í borg, 4
fall, 5 metta, 6 aflaga,
10 glæsileika, 12 guð, 13
hryggur, 15 bolur, 16 log-
ið, 18 grenjar, 19 ganga,
20 hæðir, 21 vont.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 mótfallin, 8 frómt, 9 mærin, 10 tóm, 11 reisa,
13 afræð, 15 mýsla,
18 stórt, 21 lík, 22 grand, 23 aumur, 24 hlunnfara.
Lóðrétt: 1 ósómi, 3 fatta, 4 lumma, 5 iðrar, 6 afar, 7 anið,
12 sel, 14 fót,
15 magi, 16 skafl, 17 aldin, 18 skarf, 19 ólmur, 20 tæra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA fannst athyglisvertað lesa um áform Reykjavíkur-
borgar um að taka upp nýtt fyrir-
komulag við sorphirðu. Nýja kerfið
byggist á því að allar ruslatunnur í
borginni verða merktar með tölvu-
kubbi og strikamerki auk losunar-
spjalds sem íbúar nota til að segja til
um hvenær þeir vilja láta losa ruslið
hjá sér. Markmiðið með kerfinu er
að hvetja fólk til endurvinnslu, en til-
raunir með kerfið í Breiðholti benda
til að vænta megi þess að hægt sé að
fækka losunum úr sorptunnum um
20%.
Talsverð umræða skapaðist um
þetta mál á vinnustað Víkverja og
voru sumir með efasemdir um að það
borgaði sig að standa í þessu. Vík-
verji styður eindregið þessa tilraun.
Áhugi á umhverfismálum hefur auk-
ist mikið á Íslandi í seinni tíð, m.a.
vegna umræðu um nýtingu vatnsafls
á hálendinu. Ef marka má áhuga
fólks á þessu umhverfismáli má
vænta þess að fólk sé tilbúið að
leggja eitthvað á sig til að bæta um-
hverfið. Vonandi gerir fólk sér grein
fyrir að ef árangur á að verða í um-
hverfismálum verða allir að leggja
sig fram. Fólk getur ekki afgreitt
umhverfismál á þann hátt að það sé
eitthvað sem ríkisvaldið eigi að sjá
um og komi því að öðru leyti ekki við.
Víkverji hefur í nokkur ár flokkað
allt sorp á sínu heimili. Blöð og
mjólkurfernur fara í blaðagám og
flöskur og dósir í dósagám. Allar raf-
hlöður eru flokkaðar frá. Og fyrir
tveimur árum steig Víkverji það
skref að kaupa sér tunnu undir líf-
rænt sorp. Víkverja hefur gengið
mjög vel að tileinka sér þessa flokk-
un. Þetta er bara spurning um að
venja sig á hlutina. Vinnan við flokk-
un er sáralítil. Eina vinnan sem bæst
hefur við er vinnan við að koma blöð-
unum og dósunum út í gám.
Svo sjálfsagt finnst Víkverja að
flokka sorp að honum finnst bókstaf-
lega asnalegt þegar hann sér fólk
henda blöðum í ruslatunnuna.
x x x
Á höfuðborgarsíðu Morgunblaðs-ins var einnig fyrir skömmu
fjallað um tölvukennslu í leikskólum,
en einstakir leikskólar hafa verið að
gera tilraunir á því sviði. Að mati
Víkverja hlýtur það að gerast á
næstu árum að kennsla leikskóla-
barna verður aukin frá því sem nú er
og þá ekki síst tölvukennsla. Víkverji
á þriggja ára dóttur sem á síðustu
mánuðum hefur sýnt heimilistölv-
unni sífellt meiri áhuga. Víkverji hef-
ur keypt fyrir hana þroskaleiki sem
hún hefur á undraskömmum tíma
náð mikilli leikni við að leysa. Nú síð-
ast hefur hún tekið Netið í sína þjón-
ustu. Á heimasíðu Disney-fyrirtæk-
isins er að finna ýmsa skemmtilega
leiki. Leikirnir byggjast m.a. á því að
telja, mála og flokka hluti. Allt er
þetta fallið til þess að auka færni
barna við að nota tölvur.
En um tölvur gildir það sama og
um annað að allt er best í hófi. Mik-
ilvægt er að gæta þess að börn verji
ekki of miklum tíma í tölvunni. Í vik-
unni heyrði Víkverji frétt um að
dæmi væru um líkamleg veikindi hjá
börnum sem rekja mætti til of mik-
illar tölvunotkunar. Þótt mikilvægt
sé að örva áhuga barna á tölvum er
líka mikilvægt að þau haldi áfram að
leika sér í hefðbundnum leikjum og
eigi eðlileg samskipti við önnur börn.
Þá má heldur ekki gleyma því að
börn hreyfa sig almennt of lítið.
Glataðar
yfirhafnir
ÉG hef tekið eftir því að
fólk hefur verið að auglýsa
í Velvakanda undanfarna
daga eftir glötuðum yfir-
höfnum sem hafa horfið á
Pleyers. Ég var að velta
því fyrir mér hvort það
væru einhverjir sem stund-
uðu það að stela yfirhöfn-
um á staðnum. Við hjónin
lentum í því í lok desember
sl. að jökkum okkar beggja
var stolið sama kvöldið. Ég
veit að fleiri týndu flíkum
sínum þetta kvöld.
Mér finnst skrítið að
veitingastaðir skuli fá leyfi
til að reka staði með engri
fatagæslu, maður borgar
jú 900 kr. í inngangseyri.
Steinunn.
Dýrahald
Fressköttur
hvarf úr pössun
SVARTUR og hvítur hálf-
stálpaður fressköttur slapp
úr pössun við Hringbraut.
Hann er afar gæfur og
góður, geltur en ómerktur.
Hann á heima á Seltjarn-
arnesi og hefur kannski
reynt að komast heim en
mun koma að tómu húsi því
eigendur hans eru í útlönd-
um. Þeir sem hafa rekist á
Högna vinsamlegast hring-
ið í síma 694-8686 allan
daginn eða 552-1039 eftir
klukkan 17.15.
Tapað/fundið
Gucci-úr tapaðist
SILFURLITAÐ Gucci-úr
tapaðist í miðbæ Reykja-
víkur um síðustu helgi.
Skilvís finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 899-5020.
Fundarlaun.
Barnahjól í óskilum
BARNAHJÓL var dregið
upp úr Elliðaám og greini-
lega búið að vera þar nokk-
urn tíma. Telji einhver að
þarna sé sitt komið má
hringja í síma 568-1955 á
milli kl. 12 og 13 í dag eða á
morgun.
Gleraugu fundust
í vesturbænum
GLERAUGU fundust á
gatnamótum Víðimels og
Hofsvallagötu sunnudags-
morguninn 17. febrúar sl.
Upplýsingar í síma 692-
4550.
Giftingarhringur
tapaðist
GIFTINGARHRINGUR
tapaðist í Breiðholti (Þór-
ufelli 18–20) eða í Grafar-
vogi á svæðinu við Langa-
rima 21 eða Rimaskóla.
Hringurinn er merktur
Guðlaug 17.06. og 01.05.
Finnandi vinsamlegast
hafið samband í síma 893-
2732.
Bleikt veski tapaðist
BLEIKT veski úr Oasis
gleymdist í leið 6 hinn 19.
febrúar sl. snemma um
morguninn. Veskisins er
sárt saknað þar sem það
inniheldur mikilvægar per-
sónulegar eigur. Vinsam-
legast hafið samband við
Ragnheiði í síma 867-9496.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Í AÐALFRÉTTATÍMA
RÚV hinn 14. febrúar sl,
var verið að segja frá ein-
hverjum tveimur mönnum
í Noregi sem fengu þunga
dóma fyrir hrottalega
glæpi og önnur athæfi
sem voru tíunduð. Einnig
voru sýndar myndir sem
tilheyrðu þessu til að gera
þetta að einhverju. Þetta
vil ég ekki kalla frétt.
Þetta er hlutur sem ís-
lenskt þjóðfélag hefur
ekkert með að gera og því
í ósköpunum er þá verið
að þröngva þvílíkum sög-
um og viðbjóði upp á okk-
ur? Hver þarf á slíkum
fréttum að halda þegar
komið er heim úr vinnu
eða þegar sest er við mat-
arborðið? En þetta er ekki
í fyrsta skiptið sem svona
„fréttaskeyti“ er sýnt. Nei
því er nú öðru nær, frétta-
tímar fjölmiðlanna eru
fullir af þvílíku drasli.
Mér er það til efs að er-
lendir fréttamenn birti
svona fréttir héðan af Ís-
landi, enda eiga þeir nóg
með sitt heimaland. Hver
skyldi vera ástæðan? Ég
held að fréttamenn hér-
lendis elti uppi erlendar
fréttastofur eins og til að
fá eitthvert uppfylling-
arefni í fréttatímann og
helst á það að vera nógu
mikill viðbjóður og vekja
nógu mikinn óhug. Það er
svo sem lengi hægt að
segja að maður geti þá
bara slökkt á fréttunum ef
maður vill þetta ekki en
það er ekki svo einfalt.
Fullt er af börnum og
unglingum sem verða
vitni að þessu því miður
og til hvers? Mér og
mörgum öðrum sem ég
hef rætt þetta mál við
finnst þetta mjög óheilla-
vænleg þróun. En hver
ætti þá að vera tilgangur
fréttanna? Ætti hann ekki
að vera að uppfræða á já-
kvæðan hátt og koma já-
kvæðri og skemmtilegri
hugsun inn hjá landanum?
Jú, að sjálfsögðu. Með von
um bættann fréttatíma og
íslenskar fréttir.
Virðingarfyllst,
Magnús Guðmundsson.
Tilgangur frétta