Morgunblaðið - 21.02.2002, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 47
DAGBÓK
Einbýli óskast - staðgreiðsla
Æskileg staðsetning:
Stigahlíð - Hlíðar (t.d. Háahlíð) - Stóragerðis-
svæðið - Norðurmýri - Þingholt.
Traustur viðskiptavinur óskar eftir 280-400 fm
einbýlishúsi á einhverjum af ofangreindum stöð-
um. Staðgreiðsla í boði. Allar nánari upplýsing-
ar veita Óskar og Sverrir.
SMÁRALIND - KRINGLUNNI - AKUREYRI
KULDADAGAR Í
TILBOÐIÐ STENDUR FRÁ FIMMTUDEGI TIL
SUNNUDAGSINS 24. FEBRÚAR
30% AFSLÁTTUR AF
ÖLLUM KULDASKÓM FRÁ
OG
• Veist þú hver er framtíðarsýn borgaryfirvalda
í málefnum lengdrar viðveru/heilsdagsskólans?
• Fær barnið þitt sömu kennslu
eða sambærilega þegar kennari forfallast?
Foreldraþing SAMFOK
23. febrúar
l i
Þessum spurningum, og fleiri, vonumst við til að fá
svör við laugardaginn 23. febrúar frá kl. 09:30-12:30
í Hamraskóla í Grafarvogi. Nánari dagskrá á www.samfok.is .
Allir foreldrar grunnskólabarna
í Reykjavík hjartanlega velkomnir!
Árnað heilla
LJÓÐABROT
STÖKUR OG BROT
Ísinn breiðist yfir lá
undir heiði bláu,
geymir neyð og frosti frá
fiska seiðin smáu.
Norður- loga -ljósin há
loft um bogadregin,
himins vogum iða á
af vindflogum slegin …
Sem gullreimuð blæja blá
breidd sé eimi viður,
ljósin streyma ofan á
okkar heima niður.
Sigurður Breiðfjörð
1. c4 Rf6 2. Rc3 c6 3. e4 e5 4.
d4 d6 5. d5 g6 6. Be3 Rg4 7.
Bc1 f5 8. f3 Rf6 9. exf5 gxf5
10. Bg5 Be7 11. Bxf6 Bxf6
12. Bd3 0–0 13. Dc2 Ra6 14.
a3 Bd7 15. Rh3 Hc8 16. dxc6
bxc6 17. 0–0–0
Rc5 18. Kb1 Be7
19. Rf2 Hb8 20. g4
Rxd3 21. Dxd3
Db6 22. Hd2 Db3
23. gxf5 Bxf5 24.
Rfe4 Dxa3 25.
Hg1+ Kh8 26.
Hdg2 Db3 27. Kc1
Hbc8 28. h4 d5 29.
Rd6 Bxd3??
Staðan kom
upp í Norður-
landamóti ein-
staklinga í skóla-
skák sem lauk
fyrir skömmu.
Oystein Boyum
Fossum (1.682), hvítt, bauð
landa sínum, Inge Skrondal
(1.435), upp á að verða
drottningu eða riddara yfir.
Drottningin varð fyrir val-
inu sem var of stór biti að
kyngja. 30. Hg8+! Hxg8 31.
Rf7#. Í D-flokki fékk Atli
Freyr Kristjánsson 2½ v. og
lenti í 9. sæti en Ólafur
Evert Úlfsson fékk ½ v. og
lenti í 12. sæti.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
ÞAÐ eru mörg „ef“ í spili
dagsins. Fyrsti vafinn er
hvort spila eigi geim eða
slemmu. Síðan er álitamál
hvort spila eigi grand eða
hjarta. Og loks, þegar í úr-
spilið er komið, þarf að
ákveða hvor mótherjinn
heldur á laufkónginum.
Þetta þarf allt að skýra:
Austur gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ ÁKG2
♥ D5
♦ ÁDG98
♣Á6
Vestur Austur
♠ 3 ♠ D98754
♥ 732 ♥ K6
♦ K7654 ♦ 3
♣8742 ♣KG93
Suður
♠ 106
♥ ÁG10984
♦ 102
♣D105
Spilið er frá tvímenningi
Bridshátíðar. Yfirleitt
vakti austur á veikum
tveimur í spaða og sú sögn
rúllaði til norðurs. Hann á
tvo kosti, dobl eða stökk í
þrjú grönd. Doblið heldur
slemmu betur inni í mynd-
inni, en tvíspilið í hjarta er
óþægilegt. Margir dobluðu
þó og enduðu í 4–6 hjört-
um. Báðir rauðu kóngarnir
liggja fyrir svíningu, en
tígulkóngurinn er við
fimmta spil og því fást að-
eins þrír slagir á litinn.
Sem dugir auðvitað í tólf
og sá þrettándi er alls ekki
langt undan. Þar kemur
laufkóngurinn við sögu.
Út kemur spaði, sem
sagnhafi tekur í borði og
svínar í trompinu. Hann
aftrompar mótherjana og
lætur svo tígultíuna svífa
yfir. Aftur er tígli svínað
og legan kemur í ljós. Nú
er leiðin að þrettánda
slagnum þessi: Laufásinn
er tekinn og tígull tromp-
aður. Síðan er hjörtunum
spilað í botn:
Norður
♠ KG
♥ –
♦ D
♣–
Vestur Austur
♠ – ♠ D9
♥ – ♥ –
♦ – ♦ –
♣874 ♣K
Suður
♠ 10
♥ 8
♦ –
♣D
Þegar síðasta trompinu
er spilað í þessari stöðu
þvingast austur í svörtu
litunum.
Ekki fengu þó allir
sagnhafar þrettán slagi.
Það er nefnilega hægt að
spila vestur upp á laufkóng
og reyna að þvinga hann í
láglitunum. Þá þarf að
meðhöndla spilið á annan
hátt: geyma laufásinn í
borði en taka á spaðakóng-
inn áður en trompin eru
kláruð.
Brúðkaup. Gef-
in voru saman í
hjónaband 15.
september sl. í
Dómkirkjunni
af sr. Pálma
Matthíassyni
Saga Ómars-
dóttir og Matt-
hías H. Johann-
essen. Heimili
þeirra er í
Kaupmanna-
höfn.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert tilfinningavera, djúpt
hugsandi einstaklingur. Aðr-
ir virða þig fyrir heiðarleika.
Það munu verða breytingar í
lífi þínu í ár.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þér finnast aðrir vilja ráðsk-
ast um of með þín málefni.
Nú er tími til að gera það
sem þig hefur lengi langað
til.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það getur verið gaman að
láta gamminn geisa um allt
milli himins og jarðar en
mundu að viðmælandi þinn
kann líka að hafa margt
skemmtilegt fram að færa.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það gengur ekki að láta allt
reka svona á reiðanum. Þú
verður að setjast niður,
setja þér takmark og vinna
síðan skipulega til að ná því.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur meira sjálfstraust
en áður. Reyndu að nýta þér
það og trúðu á sannfæringu
þína. Þú átt sjálfur þinn til-
verurétt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu þér ekki detta í hug,
að þú kunnir skil á öllum
hlutum. Það er engin
minnkun að viðurkenna tak-
mörk sín, heldur þvert á
móti þroskamerki.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver er tilbúinn að rétta
þér hjálparhönd í dag.
Hlustaðu á aðra og taktu við
því sem að þér er rétt.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Nú er komið að því að þú
leggir lausnir þínar á borðið
og sjáðu til; þú munt eiga
aðdáun félaga þinna vísa, ef
þú ert hreinskilinn og gagn-
orður.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Hugsaðu um heilsuna því
hún er lykillinn að lífsham-
ingju. Taktu andbyr með
brosi á vör, því þinn er sig-
urinn, þegar upp verður
staðið.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þegar verkefnaskráin er
orðin svona hlaðin eins og
hjá þér er nauðsynlegt að
raða hlutunum upp í for-
gangsröð. Aðeins þannig
getur þú um frjálst höfuð
strokið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Eyddu meiri tíma heima hjá
þér til að hlaða upp orku.
Það sem þú leggur á þig í
dag á eftir að nýtast þér
þegar fram líða stundir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Reyndu að miðla af reynslu
þinni til þeirra yngri. Gefðu
þér tíma til þess að eiga með
þeim stund utan vinnutíma.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þetta á eftir að vera góður
dagur fyrir þig. Það er kom-
inn tími til að þú dekrir svo-
lítið við sjálfan þig.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags-
blað. Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100,
sent í bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
ATVINNA mbl.is
Með morgunkaffinu
Tilkynni að
hershöfðing-
inn var send-
ur á sjúkra-
hús. Hann
settist á
hjálminn sinn.
Já, en sérðu hvað ég fékk. Hann er átta pund!