Morgunblaðið - 03.05.2002, Síða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
REYKJAVÍKURLISTINNWWW.XR.IS • XR@XR.IS
Kl. 16 hefst útgáfu- og uppskeruhátí› í göngugötunni
vegna útkomu bæklings um átta ára árangur Reykjavíkurlistans
í borginni. Stultudansari, trú›ar og blómarósir.
Kl. 17 opnum vi› kosningaskrifstofu Í Mjódd. Sönghópurinn
Gestur og gangandi syngja og Szymon Kuran leikur á fi›lu.
Ingibjörg Sólrún og Alfre› flytja ávörp.
í Mjóddinni
SÍFELLT meira ber á því að for-
eldrum sé hótað öllu illu borgi þeir
ekki fíkniefnaskuldir barna sinna.
Skilaboð Vímulausrar æsku og lög-
reglunnar eru skýr. Neitið að borga
og kærið til lögreglu.
Vímulaus æska og foreldrahúsið
boðuðu til blaðamannafundar í gær
til „að mótmæla þeim skilaboðum
sem send hafa verið almenningi“ að
heppilegast sé fyrir aðstandendur
að þeir greiði fíkniefnaskuld eða
aðra skuld þegar hún er innheimt
með hótunum um líkamsmeiðingar.
„Okkar skilaboð eru hrein og tær.
Það á ekki að verða við hótunum,“
sagði Valdimar Jóhannesson,
stjórnarmaður í foreldrasamtök-
unum Vímulausri æsku. Sjaldnast
sé staðið við þessar hótanir en láti
foreldrar hins vegar undan sé eins
víst að handrukkararnir muni
halda áfram að þvinga þá til að
borga. Hótanirnar eigi því að kæra
til lögreglu og láta viðkomandi
sæta ábyrgð, en tveggja ára fang-
elsisrefsing liggur við því að vekja
ótta um líf eða heilbrigði.
Vímulaus æska hyggst beita sér
fyrir því að fjölskyldur sem sæta
hótunum geti fengið vernd með
vöktun. Komið verði fyrir örygg-
ismyndavélum eða upptökutækjum
til að ná sönnunum fyrir hót-
ununum. Valdimar sagði að reynd-
ur sakadómari hefði tjáð sér að
slíkar upptökur yrðu metnar sem
sönnunargögn fyrir dómi, sér-
staklega ef þær væru studdar með
framburði.
Hjálpar ekki
Ólöf Ásta Farestveit afbrota- og
uppeldisfræðingur sagði að margir
foreldrar héldu að þeir gætu hjálp-
að börnum sínum með því að borga
skuldirnar fyrir þau. Slíkt hefði
þveröfug áhrif. Viti börnin að for-
eldrar þeirra muni bjarga þeim úr
vandræðunum, viðheldur það fíkni-
efnaneyslunni. Reki börnin sig á að
þau fái enga hjálp, séu meiri líkur á
að þau fari í meðferð og hætti
neyslu. Sumir foreldrar haldi að
þeir séu að gera börnum sínum
óleik með því að kæra hótanir til
lögreglu, því með því komist börnin
á skrá. Þetta sé misskilningur, enda
sé allt eins líklegt að lögregla hafi
börnin þegar á skrá.
Á blaðamannafundinum voru við-
staddir foreldrar fíkniefnaneyt-
enda sem sjálfir höfðu lent í því að
vera hótað. Í máli þeirra kom fram
að fleiri en eitt dæmi væru til um að
fólk hafi tapað fasteignum vegna
fíkniefnaskulda barna sinna.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni-
efnadeildar lögreglunnar í Reykja-
vík, sagði að því miður þori fæstir
að kæra hótanir og því sé erfitt að
gera sér grein fyrir hversu algeng-
ar þær eru. Þessari aðferð sé mikið
beitt enda ekki önnur úrræði fyrir
fíkniefnasalana, þeir geti ekki inn-
heimt skuldirnar með öðrum hætti.
Ásgeir hvetur fólk til að kæra hót-
anir því að öðrum kosti sé lögreglu
erfitt að stöðva þá. Fái þessir menn
að vaða uppi megi jafnvel búast við
því að næst fari þeir að krefja versl-
unareigendur um „verndar-
greiðslur“ en annars verði unnar
skemmdir á húsnæðinu. Jónas
Hallsson aðstoðaryfirlögregluþjónn
tók undir með Ásgeiri og sagði að
lögregla hefði orðið vör við tals-
verða fjölgun í slíkum málum.
Brjóta fjölskylduna niður
Morgunblaðið ræddi við nokkra
foreldra fíkniefnaneytenda og í
skjóli nafnleyndar var einn þeirra
tilbúinn til að lýsa vinnubrögðum
handrukkara og hvernig hótanir
þeirra grafa undan eðlilegu fjöl-
skyldulífi. Drengurinn byrjaði ung-
ur að neyta fíkniefna og eftir því
sem árin liðu urðu efnin harðari.
Einn daginn var hringt frá banka
og foreldrum hans tjáð að ein-
staklingur með sama lögheimili
væri kominn í talsverð vanskil
vegna yfirdráttar hjá bankanum.
„Ég firrtist við enda hafði ég ekki
skrifað undir eitt eða neitt og þar
með var því lokið af minni hálfu. En
með þessu komst hann yfir reiðufé
sem gerði honum kleift að fá stærri
skammta af fíkniefnum til að selja.“
Hann gagnrýnir bankana harðlega
og á blaðamannafundinum kom
fram að Vímulaus æska hafi tvíveg-
is rætt við viðskiptaráðherra um
slík vinnubrögð. Fíklar geti auð-
veldlega útvegað sér yfirdrátt, ekki
sé gerð krafa um tekjur eða eignir
og sjaldnast beðið um ábyrgðar-
menn. Þegar það er gert hafi fíkl-
arnir gengist í ábyrgð hver fyrir
annan.
Viðmælandi Morgunblaðsins lýsti
vinnubrögðum fíkniefnasalanna
þannig að þeir fíklar sem geta
borgað fá stóra skammta, ¾ hlutar
eru ætlaðir til að selja öðrum en ¼
til eigin neyslu. Þetta gengur
sjaldnast eftir enda hafa fíkniefna-
neytendur sjaldnast mikla stjórn á
eigin lífi. Afleiðingin varð sú að
fljótlega skuldaði pilturinn fíkni-
efnasalanum háar fjárhæðir.
Eitt kvöldið réðst maður inn á
heimili þeirra og hafði í hótunum.
Sagði að ef hann fengi ekki peninga
myndi hann leita í húsinu að verð-
mætum. „Við tókum mjög fast á því
og greiddum ekki neitt. Þetta var
nú drengur sem var ekki mikið fyr-
ir mann að sjá og honum var ein-
faldlega snúið við í dyrunum og
sópað út. En þá fylgdu eftir hótanir
um að ráðist yrði á yngri systkini
hans á leið heim úr skóla. Þeir hót-
uðu að vinna skemmdir á fjöl-
skyldubílnum. Hægt væri að vakta
húsið þegar fjölskyldan færi að
heiman og nota tækifærið til að
leggja það í rúst,“ segir hann. Aldr-
ei var gerð alvara úr þessu en hann
segir hótanirnar hafi verið miklu,
miklu verri en það peningalega tap
sem hugsanlega hefði orðið af því
að borga sektirnar. Smátt og smátt
hafi hótanirnar brotið fjölskylduna
niður, yngri systkini verði miður
sín og móðir piltsins varð um tíma
óvinnufær af áhyggjum. Aldrei var
þó látið undan hótununum enda
hefði það verið firra, að hans sögn.
Rukkurum sem einu sinni tekst að
innheimta peninga frá foreldrum
muni áfram höggva í sama kné-
runn.
Aðspurður segir hann að hót-
anirnar hafi ekki verið kærðar til
lögreglu enda vissu þau ekki nöfn
eða heimilisföng ógnvalda sinna.
Þau nutu á hinn bóginn stuðnings
frá lögreglu og frá Foreldrahúsi
Vímulausrar æsku en starfsmenn
Foreldrahúss hafi veitt sér og konu
sinni ómetanlega hjálp. Í dag er
sonur þeirra kominn í fasta vinnu
„og sér um sig sjálfur“ eins og hann
orðar það. Hótanir frá handrukk-
urum og fíkniefnasölum berast ekki
lengur til fjölskyldu hans.
Foreldrum hefur í auknum mæli verið hótað við innheimtu á fíkniefnaskuldum
Neitið að
borga og kærið
til lögreglu
Morgunblaðið/Sverrir
Fundarmenn voru sammála um að ekki mætti láta undan hótunum.
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær aust-
urrískan ríkisborgara, Kurt Fellner í
9 ára fangelsi fyrir fíkniefnabrot, en
ákærði var handtekinn með 67.485
e-töflur á Keflavíkurflugvelli á leið
frá Amsterdam til New York í sept-
ember sl. Héraðsdómur Reykjavíkur
hafði dæmt ákærða í 12 ára fangelsi
sem var þyngsti dómur sem kveðinn
hafði verið upp í fíkniefnamáli.
Fíkniefnin voru falin í fölskum
botni í tösku ákærða. Hann hélt því
fram við yfirheyrslur að hann hefði
ekki vitað hvað var í töskunni. Hæsti-
réttur taldi hins vegar sýnt af fram-
burði tollvarða að ákærði vissi um
falska botninn í töskunni og hlaut að
vita að þar voru fíkniefni. Við ákvörð-
un refsingar var litið til þess að ekki
hefði annað verið leitt í ljós en að
ákærði hefði einungis verið flutnings-
maður efnanna.
Við munnlegan málflutning fyrir
Hæstarétti féll ákæruvaldið frá því
ákæruatriði að ákærði hefði sjálfur
ætlað að selja fíkniefnin í Bandaríkj-
unum og segir Hæstiréttur að eins og
málið liggur fyrir verði ekki á því
byggt að ákærði hafi verið eigandi
efnanna. Ferðasaga hans sé öll með
ólíkindum, en af hálfu ákæruvalds
hafi þó engar athuganir verið gerðar
sem gætu varpað á hana ljósi.
Þrír dómarar Hæstaréttar, Mark-
ús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason
og Haraldur Henrysson vildu dæma
ákærða í 9 ára fangelsi, en Haraldur
Henrysson og Pétur Kr. Hafstein
töldu, að fyrri dómar Hæstaréttar á
þessu sviði og hið gífurlega magn
hættulegra fíkniefna, sem ætti sér
engin fordæmi í réttarframkvæmd
hér á landi, gerðu það að verkum, að
refsingin ætti vera 10 ára fangelsi.
Skipaður verjandi ákærða fyrir
Hæstaréttir var Vilhjálmur Þórhalls-
son hrl. Málið sótti Bogi Nilsson rík-
issaksóknari.
Fangelsisrefsingin
milduð úr 12 árum í 9 ár
Maður með um 67 þúsund e-töflur dæmdur í Hæstarétti
FERÐASKRIFSTOFA í Kína sem
skipulagði för ellefu Kínverja hingað
til lands í mars sl. hefur verið krafin
um skaðabætur vegna þess að Kín-
verjunum var snúið við á Kastrup-
flugvelli í Kaupmannahöfn.
Krafan er sett fram af einni
stærstu ferðaskrifstofu í Kína en
Ólafur Egilsson, sendiherra Íslands í
Kína, hafði ekki upplýsingar um
hvort sett hefði verið fram krafa um
sérstaka upphæð. Ferðaskrifstofan
sem skipulagði ferðina er í Gu-
angzhou-borg og nefnir sig, „Iceland
Commerce and Tourist Bureau“.
Þetta er sama ferðaskrifstofa og
skipulagði ferð 16 manna hóps sem
leggja átti af stað til Íslands á þriðju-
dag. Sá hópur hefur hætt við ferða-
lagið. Útlit sé fyrir að vegabréfsárit-
anir fyrir hina hópana berist ekki fyrr
en eftir viku, sem að öllum líkindum
sé of seint.
Ólafur veit ekki til þess að krafist
hafi verið skaðabóta fyrir þessa hópa.
Hins vegar liggi fyrir að rússneska
flugfélagið Aeroflot hafi endurgreitt
ellefumenningunum. Ástæðan er sú
að rússneska flugfélagið bar ábyrgð á
fimm klukkustunda töf í Rússlandi
sem varð til þess að Kínverjarnir
misstu af flugvél í Kaupmannahöfn.
Meðan þeir biðu flugfars til Íslands
hafði danska landamæralögreglan af-
skipti af hópnum og stöðvaði för
þeirra. Íslenska sendiráðið í Peking
hefur greitt götu ferðaskrifstofunnar
í Guangzhou í samræmi við stefnu
stjórnvalda um að fjölga ferðalögum
Kínverja til landsins. Um 50 manns
hefðu þegar ferðast til Íslands á veg-
um skrifstofunnar án vandræða.
Kínverjar vilja
skaðabætur
38 ÁRA breskur fjallgöngumaður
lét lífið á Everestfjalli á miðviku-
dag. Slysið átti sér stað við þriðju
búðir, sem eru í 7.100 metra hæð.
Bretinn hét Peter Legate og
hrapaði niður rúmlega 200 metra
snarbratta hlíð og lenti í grjóturð.
Hann var látinn þegar að var kom-
ið. Haraldur Örn Ólafsson hefur
hvílt sig í öðrum búðum og stefnir
á þriðju búðir í dag, föstudag.
Peter Legate og félagi hans
Laszlo Mecs hófu uppgöngu frá
þriðju búðum klukkan 6.15 að
staðartíma á miðvikudag.
Skömmu síðar féll Legate niður
200 metra, en hann gekk á eftir
Mecs. Mecs varð vitni að slysinu
og fór strax niður til að huga að
Legate, en þegar þangað var kom-
ið var Legate látinn.
Haraldur er við góða heilsu og
hefur náð mjög góðri hæðaraðlög-
un á fjallinu. Minnkandi líkur eru
á að honum takist að ná tindi Ev-
erest 10. maí eins og áætlað var,
en þá eru liðin tvö ár frá því að
hann komst á norðurpólinn einn
síns liðs.
Ætla má að Haraldur og félagar
hvíli sig í tvo daga í grunnbúðum
áður en lagt verður af stað á topp
Everest, en það er háð veðurspám
hvernig framhaldið verður.
Breti lét lífið
á Everest
HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ
Teymi sagði upp sex starfsmönnum
um síðustu mánaðamót. Gunnar
Bjarnason, framkvæmdastjóri
Teymis, sagði að ástæðu uppsagna
hjá fyrirtækinu mætti rekja til sam-
dráttar á hugbúnaðarmarkaði.
„Um var að ræða hæfa starfsmenn
sem búa yfir mikilvægri þekkingu
sem því miður var ekki þörf fyrir
þessa stundina,“ sagði Gunnar.
Hann sagði að fyrirtækið mundi
gera sitt ýtrasta til þess að aðstoða
starfsmennina við að fá vinnu á öðr-
um vettvangi og ekki væri loku fyrir
það skotið að einhverjar uppsagnir
gengju til baka. Hjá Teymi, sem er
umboðsaðili fyrir Oracle-hugbúnað,
starfa um 70 manns, en fyrirtækið er
með skrifstofur hér og í Danmörku.
Teymi segir
upp starfs-
mönnum