Morgunblaðið - 03.05.2002, Síða 40

Morgunblaðið - 03.05.2002, Síða 40
UMRÆÐAN 40 FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í ÞÆTTINUM Silf- ur Egils 28. apríl kom fram í umræðum Ingi- bjargar Sólrúnar og Björns Bjarnasonar að hann hafði miklar áhyggjur af skuldum borgarsjóðs. Í auglýs- ingum hans flokks í blöðum hefur komið fram að skuldir borg- arsjóðs séu 286 þús- und á íbúa. Samt lofa Björn og félagar margvíslegum framkvæmdum og um- bótum. Skuldir eiga þó ekki að hækka, gjöld ekki heldur. Skýringin sem Björn gaf var að „Sjálfstæð- ismenn kynnu betur að fara með fé.“ Staða Reykjanesbæjar Nú vill svo til að einn af helstu forystumönnum sjálfstæðismanna í Reykjavík til skamms tíma, Árni Sigfússon, er nú leiðtogi sjálf- stæðismanna í Reykja- nesbæ. Eins og við var að búast af manni í hans stöðu, þá kynnti hann sér fjárhags- stöðu Reykjanesbæjar vel. Sjálfstæðismenn hafa farið með stjórn bæjarins um langt skeið. Árni komst að þeirri niðurstöðu að staða bæjarsjóðs Reykjanesbæjar væri harla góð. Það sem ég skil ekki er að ef 286 þúsund kr. skuld Reykvíkings er óviðunandi, hvernig getur staðan í Reykja- nebsæ verið harla góð? Skuldir á mann í Reykjanesbæ eru töluvert hærri eða 399 þúsund. Eftir því sem ég best veit eru sömu krónur í gildi á báðum stöðum. Ber e.t.v. að skilja Sjálfstæðis- menn í Reykjavík þannig að ef Ingi- björg Sólrún og félagar bættu við skuldir Reykvíkinga þannig að þær yrðu svipaðar þeim sem er í Reykjanesbæ undir stjórn Sjálf- stæðismanna, þá væru fjármál borgarinnar í harla góðu lagi? Það gæfi henni heimild til að hækka skuldirnar um ca. 113 þúsund á íbúa. Miðað við 108 þúsund íbúa í Reykjavík mættu skuldir borgar- sjóðs því hækka um rúma 12 millj- arða. Þá fyrst yrði staðan harla góð að mati Sjálfstæðismanna í Reykja- nesbæ? Ekki einsdæmi Svipað er uppá teningnum ef við skoðum afrek Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Þar eru skuldir bæj- arsjóðs svipaðar á mann og þær eru í Reykjanesbæ. Auk þess er í raun um heilmiklar skuldir til viðbótar að ræða sem eru faldar í svoköll- uðum einkaframkvæmdum. Eitthvað finnst mér skrítið við málflutning sjálfstæðismanna þeg- ar þeir tala um fjármál sveitarfé- laga. Ef til vill bendir þetta til þess að Björn hafi bara haft rangt fyrir sér þegar hann segir að Sjálfstæð- ismenn kunni betur að fara með fé. Sennilega er mín skoðun réttari en hún er sú að Sjálftæðismenn hafi aldrei kunnað með fé að fara og allra síst opinbert fé. Þegar ég hugleiði 286 þúsund kr. skuld hvers Reykvíkings undir stjórn R-listans og 399 þúsund kr. skuld á íbúa í Reykjanesbæ undir stjórn Sjálfstæðismanna þá er nið- urstaða mín sú að ekki sé æskilegt að sjálfstæðismenn stjórni sveitar- félögum, þau séu betur komin í höndum okkar hinna. Kunna Sjálfstæðis- menn að fara með fé? Jóhann Geirdal Reykjanes Ekki er æskilegt, segir Jóhann Geirdal, að sjálfstæðismenn stjórni sveitar- félögum. Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ. ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I FRÁ KÓPAVOGSSKÓLA Nokkra kennara vantar til starfa á komandi skólaári, 2002/03. Meðal kennslugreina eru: • Íslenska á unglingastigi • Stærðfræði á unglingastigi • Bekkjarkennsla á barnastigi • Sérkennsla Laun skv. kjarasamningi Kennarasambands Íslands og Launanefndar sveitarfélaga. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um störfin. Frekari upplýsingar gefur skólastjóri, Ólafur Guðmundsson, í símum 5540475 eða 8979770. Umsóknarfrestur er til 15. maí næstk. Starfsmannastjóri KÓPAVOGSBÆR R A Ð A U G L Ý S I N G A R FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Stangaveiðifélag Reykjavíkur Opið hús verður í kvöld, föstudagskvöldið 3. maí, í sal félagsins á Háaleitisbraut 68. Húsið opnað kl. 20.30, en dagskráin byrjar kl. 21:00. Dagskrá: 1. Veiðistaðalýsing á Leirvogsá í umsjón Júlíusar Jónssonar og Sverris Kristinssonar (Svedda). 2. Happahylur, fullur af stórglæsilegum vinningum frá Veiðihorninu. (Sjá vinningaskrá á www.svfr.is). Skemmtinefndin. Aðalfundur Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar hf., fyrir reikn- ingsárið frá 1. sept. 2001 til 31. des. 2001, verð- ur haldinn í Akógeshúsinu í Vestmannaeyjum föstudaginn 10. maí 2002 og hefst hann kl. 16. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr. sam- þykkta félagsins, sbr. bráðabirgðaákvæði í samþykktum félagsins. 2. Önnur mál, löglega upp borin. Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. TIL SÖLU Umboð á frábærum heilsuvörum Einstakar vörur með sérstöðu. Svo sem prótein fyrir varnir líkamans, prótein gegn svefnleysi, vítamín, húðkrem, orkudrykkur og margt fleira. Upplýsingar í síma 899 9046. TILKYNNINGAR Auglýsing frá yfirkjörstjórn Seltjarnarnesbæjar Framboðsfrestur til sveitarstjórnarkosninga, sem fram skulu fara laugardaginn 25. maí 2002, rennur út laugardaginn 4. maí 2002 kl. 12.00 á hádegi. Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum þann dag á milli kl. 11.00 og 12.00 í fundarsal bæjar- stjórnar á Austurströnd 2, Seltjarnarnesi. F.h. yfirkjörstjórnar Seltjarnarnesbæjar, Ingi R. Jóhannsson. UPPBOÐ Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Fagrasíða 11A, Akureyri, þingl. eig. Þorvaldur R. Kristjánsson og Helga Steingrímsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudag inn 8. maí 2002 kl. 10:00. Grenilundur 7, Akureyri, þingl. eig. Heiður Jóhannesdóttir, gerðar- beiðendur Akureyrarkaupstaður og Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 8. maí 2002 kl. 10:30. Rauðamýri 11, Akureyri, þingl. eig. Sólrún Helga Birgisdóttir, gerðar- beiðendur Íbúðalánasjóður og Landsbanki Íslands hf., miðvikudaginn 8. maí 2002 kl. 11:00. Strandgata 39, efsta hæð, Akureyri, þingl. eig. Stefán Ásgeir Ómars- son, gerðarbeiðendur Bílós ehf., Íbúðalánasjóður og Landssími Íslands hf., innheimta, miðvikudaginn 8. maí 2002 kl. 11:30. Sýslumaðurinn á Akureyri, 2. maí 2002. Harpa Ævarrsdóttir, ftr. SMÁAUGLÝSINGAR DULSPEKI Sálarrannsókna- félag Suðurnesja Skyggnilýsingarfundur María Sigurðardóttir, miðill, verður með skyggnilýsingarfund í húsi félagsins, Víkurbraut 13 í Keflavík, sunnudaginn 5. maí kl. 20.30. Húsið verður opnað kl. 20.00. Allir velkomnir. Stjórnin. FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 1  183538  8½ III I.O.O.F. 12  183538½  9.0. Kevin White predikar á samkom í kvöld og annað kvöld kl. 20.30 Kvennamót Hjálpræðishers ins hefst í kvöld kl. 20.00. Laugardag kl. 16 og sunnuda kl. 16. Oberst. laut. Marit Berre er ges ur mótsins. Á miðvikudag, 8. maí kl. 21, e Lótusfundur í húsi félagsins, Ing ólfsstræti 22. Sýnt verður Myndband me ljóðum Sigvalda Hjálmarssona og myndum Snorra Sveins Frið rikssonar. Starfsemi félagsins er öllum opin. www.gudspekifelagid.is Laugardagur 4. maí Helgufoss — Gljúfrasteinn Gengin verður nýopnuð göngu- leið frá Helgufossi að Gljúfra- steini. Fararstjóri Bjarki Bjarna- son. Brottför kl. 13.00 frá íþrótta- miðstöðinni Mosfellsbæ. Að- gangur ókeypis. Sunnudagur 5. maí Skipsstígur — Grindavík. Skemmtileg fyrrum fjölfarin forn þjóðleið, þvert yfir Reykjanes- skagann úr Innri-Njarðvík til Grindavíkur. Um 5 klst. ganga. Fararstjóri Ásgeir Pálsson, Leið- sögumaður Elín Hermannsdótt- ir. Verð 1.700/2.000. Brottför frá BSÍ kl. 10.30 með viðkomu í Mörkinni 6, kl. 11.15 frá íþrótta- miðstöðinni Mosfellsbæ og sunnan við kirkjugarðinn í Hafn- arfirði. Kaffibollar Cappucino verð kr. 2.700 Mokka verð kr. 1.890 Kaffikönnur verð kr. 1.890 Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mánudag-föstudag 11-18, laugardag 11-15 Begga fína

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.