Morgunblaðið - 03.05.2002, Síða 32

Morgunblaðið - 03.05.2002, Síða 32
MENNTUN 32 FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MBA-nám • Öll kennsla fer fram á ensku. • 11 mánaða almennt MBA-fjármálanám. • Nemendur alls staðar að. • Meðalaldur 32 ár og 7 ára starfsreynsla. • „Hands-on“ ráðgjafarverkefni. Inntökuskilyrði • Háskólagráða eða tilsvarandi starfsreynsla. • A.m.k. þriggja ára starfsreynsla. • GMAT-próf. • 3 meðmælabréf. • Viðtal. Ertu að spá í alþjóðlegt MBA-nám í haust? vinsamlegast hafðu samband við Norwegian School of Management BI, Postboks 9386 Grønland, 0135 Oslo, Noregi. Sími +47 22 57 62 00, eða mba@bi.no Ef þú óskar eftir að komast að í MBA-námið sem hefst í byrjun ágúst Netfang: mba@bi.no http://www.bi.edu FÓLK sem þarf að notakamar gerir sér grein fyr-ir að með lífi sínu og úr-gangi hefur það áhrif og vegna þeirra áhrifa verður það að gera ráðstafanir. Þetta fólk fer líka óhjákvæmilega út fyrir hússins dyr nokkrum sinnum á dag. Vatnskló- settið gerir það að verkum að fólk getur auðveldlega losað sig við það sem frá því kemur, fólk sturtar því í burt og fær aftur tært vatn, sér hvorki né skynjar áhrif sín og hefur því ekki áhyggjur. Það kemst líka hjá því að fara út, finnur ekki vind á vanga, lítur ekki til sólar eða stjarna, skynjar ekki náttúruna utanhúss. Það verður firrt, fáfrótt, áhugalaust, skortir alla náttúru- eða umhverfis- vitund. Ekkert er mannkyni hættu- legra.“ Firring borgarbúans getur gert það að verkum að vatnsklósett verð- ur hættulegra en kjarnorku- sprengja. Í kafla í bókinni Græn- skinna, umhverfismál í brennidepli (MM, 2002), fjallar Sigrún Helga- dóttir, kennari og auðlindafræðingur um um mikilvægi fræðslu segir m.a. frá þessari hugmynd að hættuleg- asta uppfinning mannsins ef til vill sé vatnsklósettið. Tæknin og umhverfið Tæknin skapar falskt öryggi, því hún dregur úr umhverfisvitund. „Sá sem hefur umhverfisvitund skynjar umhverfi sitt og veit hvað er við hæfi og hvað ekki. Hann sýnir tillitssemi, virðingu og kurteisi,“ skrifar Sigrún í grein sinni „Náttúrubörn 21, um- hverfismennt á tækni- og upplýs- ingaöld“. Sigrún óttast að náttúran sé að verða of mörgu nútímafólk framandi. „Fólk lokar sig frá nátt- úrunni og skynjar ekki þá siði og þær reglur sem þar ríkja.“ (182). Lausnin felst þó ekki í að afneita tækninni, það er einmitt tækninni að þakka að manneskjan hefur öðlast sýn á heildina; jörðina, ósonlagið, regnskóganna. Þrátt fyrir firr- inguna, verður það sennilega í krafti tækninnar sem hægt verður að end- urmennta nútímafólk, þannig að það vinni bug á skeytingarleysi sínu og læri að sýna náttúrunni virðingu. Sigrún segir frá fræðsluaðferð sem nefnd er náttúrutúlkun, en hún hefur þróast á náttúruverndarsvæð- um. Lokatakmark náttúrutúlkunar er að auðvelda yfirvöldum að vernda friðlýstu svæðin. „Sú verndun næst ekki nema gestir svæðanna beri þá virðingu fyrir þeim að þeir séu fúsir til að leggja ýmislegt á sig, taka tillit og breyta lífsháttum sínum á meðan þeir dvelja þar. Til að fólk öðlist þessa virðingu fyrir náttúrunni þarf það að hafa ákveðinn skilning á gildi hennar, átta sig á hve sérstök hún er, lífsnauðsynleg, mikilvæg, fögur. Góður náttúrutúlkandi leggur því áherslu á að opna augu fólks fyrir þessum jákvæðu þáttum í náttúrunni ásamt samspili og hringrásum.“ (184). Aðferð náttúrutúlkunar Sigrún segir að árangur fræðslu með aðferðum náttúrutúlkunar hafi verið undraverður. Milljónir manna heimsækja sum hinna friðlýstu svæða og virðast gestir verða fyrir miklum áhrifum, og setja hag náttúr- unnar í forgang umfram eigin þæg- indi, hagræði og lúxus. En það er auðvitað „ekki nóg að leggja áherslu á að vernda og taka tillit til náttúru, ganga vel um og með virðingu sums staðar, á afmörkuðum, sérstökum svæðum“ (185). Ef einstaklingar yf- irfæra ekki virðingu sína á önnur „minna metin“ svæði, og verða skeytingarlausir utan girðingar, ef ekki til mikils unnið. Aðferð náttúru- túlkunar þarf því að beita hvarvetna. Rachel Carson sem skrifaði tíma- mótaverkið Raddir vorsins þagna, lýsti í bókinni The Sense of Wondar mikilvægi þess að börn umgangist náttúruna og njóti hennar. Hún dró þá ályktun að áhugi á náttúrunni væri börnum meðfæddur og „það væri lífsspursmál fyrir þau að sá eig- inleiki fengi að þroskast og dafna með umgengni við náttúrna allt frá frumbernsku.“ (185). Sigrún telur að slíkt uppeldi sé ekki aðeins mikil- vægt fyrir einstaklinginn sjálfan heldur samfélagið allt, náttúruna alla. Hún skrifar að umhverfis- menntun þurfi að vera hluti af upp- eldi til að umhverfisvitund og virkni verði samofin menningu þjóða. Og að það sé á ábyrgð foreldra og skóla. Sigrún hefur stundað útikennslu í Selásskóla, og verkstýrir þróunar- verkefni til að efla umhverfismennt og útikennslu við Selásskóla. Selás- skóli er einn af sk. móðurskólum í náttúrufræði og útikennslu í Reykja- vík. Hún stundaði nám í umhverfis- fræðum við Edinborgarháskóla í Skotlandi og hefur kynnt sér þau í öðrum löndum m.a. í Kanada. Hún hefur kennt námskeið í Kennarahá- skólanum, þýtt bækur um þessi efni. Árið 2001 hlaut Sigrún viðurkenn- ingu nokkurra náttúru- og umhverf- isverndarsamtaka fyrir störf sín og fræðslu um umhverfis- og náttúru- verndarmál. Selásskóli hlaut einnig umhverfisviðurkenningu umhverfis- ráðuneytisins fyrir framúrskarandi starf og þróun umhverfisfræðslu. Í útikennslunni, sem er ólík eftir ald- urshópum, kanna nemendur Selás- skóla umhverfi skólans síns með því að stunda m.a. veðurathuganir og smádýraleit, kanna Elliðaárdalinn og sögu hans, kynna sér jarðfræði, skoða hraun og jarðlög umhverfis skólann og velta fyrir sér fjöllum við sjóndeildarhringinn. Þau tileinka sér sorpflokkun og stunda endurvinnslu með safnkassa. Að njóta eða týna rusl? En hvernig er staðan með um- hverfismennt í íslenskum grunnskól- um? Í skólum á umhverfismennt að vera þáttur í öllum námsgreinum. Ef það á að virka vel, þurfa allir kenn- arar að hafa kunnáttu í umhverfis- málum og færni í verkefnum þeim tengdum. Einnig ættu að finnast verkefni í hverri kennslubók um um- hverfismennt. En svo er ekki. „Jafn- vel kennarar sem hafa áhuga á um- hverfismálum finna sig vanmegnuga til að takast á við umhverfismenntun. Þá skortir uppörvun, námsefni, hug- myndir að verkefnum, samstarfsvilja frá öðrum kennurum og aðstöðu í skólunum.“ (186). Við þetta má bæta að oft hafa umhverfisverkefnin nei- kvætt yfirbragð. Dæmi um það er að fara með nemendum sínum út til að týna rusl. Aðalnámskrá og sveitarfélög Í kaflanum um náttúrufræði í Að- alnámskrá grunnskóla frá 1999 stendur að umhverfismennt eigi að vera mikilvægur þráður í skólastarfi og kennslu ólíkra námsgreina frá upphafi skólagöngu. Gallinn er hins vegar sá að þessu yfirmarkmiði er ekki fylgt vel eftir í undirmarkmið- um námsgreina. Sigrún skrifar. „Að- alnámskrá mótar ekki aðeins skóla- námskrár heldur líka kennslubækur Umhverfis- vitund skólabarna Morgunblaðið/Jim Smart Hér er útikennslan í jákvæðum anda – börn við nám við Vífilsstaðavatn í Garðabæ. Umhverfismenntun/Grænskinna – er les- og kennsluefni um umhverfismál í alþjóðlegu samhengi. Þrettán höf- undar skrifa greinar sem nýtast almenningi og nemendum. Gunnar Hersveinn las bókina og valdi grein um um- hverfismennt, sem sýnir ljóslega að börnin þurfa skilningsríkt samband við náttúru landsins.  Áhugi íslenskra barna á náttúrunni dafnar ekki nægilega  Umhverfisvitund og -uppeldi barna er á ábyrgð foreldra og skóla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.