Morgunblaðið - 03.05.2002, Side 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 39
ÁLFTANESHREYFINGIN hef-
ur í stefnuskrá sinni sett fram það
markmið að uppbygging hreppsins
verði í takt við þarfir
fólks og umhverfis.
Nýframkvæmdir hald-
ist í hendur við fjár-
hagsgetu og ógni ekki
sjálfstæði Bessastaða-
hrepps.
Á næsta kjörtíma-
bili verði stefnt á að
íbúum fjölgi um u.þ.b.
200, aðallega með
byggingu húsa í reiti á
þegar byggðum svæð-
um m.a. byggingu
smærri íbúða fyrir
ungt fólk og eldri íbúa
sem vilja minnka við
sig. Álftaneshreyfing-
in hyggst síðan nota
kjörtímabilið til að
endurskoða allar skipulagstillögur í
samvinnu við íbúa hreppsins og
vinna að heildstæðu skipulagi sem
sátt getur ríkt um. Í þessu sam-
bandi er m.a. mikilvægt að efna til
samkeppni um vandaða hönnun á
miðsvæðinu í hreppnum og svæðinu
við Breiðumýri og í Sviðholtslandi
en þessi svæði verða í framtíðinni
helstu þróunarsvæði byggðarinnar.
Til að auðvelda framkvæmd já-
kvæðrar uppbyggingar í samræmi
við nýja heildstæða skipulagsstefnu
er mikilvægt að Bessastaðahreppur
eignist, á næstu árum, sem mest af
því landi sem hugmyndin er að
byggja eða gera að útivistarsvæð-
um.
Skuldastefna
Álftaneshreyfingin hefur varað
við skuldastefnu D-listans sem mun
ef áfram verður haldið á þeirri
braut ógnað sjálfstæði Bessastaða-
hrepps.
Skuldir hreppsins hafa á kjör-
tímabili D-listans vaxið
úr u.þ.b. 150 milljónum
í 600 milljónir. Allar
áætlanir D-listans á
síðasta kjörtímabili
hafa brugðist.
Þrátt fyrir skuldirn-
ar ætla þeir að fjár-
festa í nýframkvæmd-
um fyrir u.þ.b. 250
milljónir, samkvæmt
þriggja ára áætlun sem
samþykkt hefur verið
af meirihluta þeirra í
hreppsnefnd.
Í nýrri skólaáætlun
D-listans í Bessastaða-
hreppi er gert ráð fyrir
að brjóta þennan fjár-
hagsramma og auka en
frekar fjárfestingar. Í málgagni
sínu Grásteini þar sem kosninga-
stefna D-listans er kynnt er bætt
um betur, loforðalistinn lengdur og
skuldasúlan um leið. Þar boðar D-
listinn fjárfestingar upp á 400–500
miljónir á næstu árum. Skuldir á
hvern íbúa voru um síðustu áramót
samkvæmt nýlegum ársreikningi
346 þúsund á hvern íbúa. Til sam-
anburðar skal vakin athygli á að í
Reykjavík hamast sjálfstæðismenn
á R-listanum vegna 286 þúsund
króna skulda á hvern íbúa og eru þá
meðtaldar milljarða lántökur vegna
fjárfestingar í nýjum orkuveitu-
mannvirkjum að Nesjavöllum.
Falleinkunn
Hver væri umsögn sjálfstæðis-
manna í Reykjavík um fjármála-
stjórn félaga þeirra í Bessastaða-
hreppi? Það er óþarfi að spyrja, þeir
fengju falleinkunn.
Slagorð þeirra frá Reykjavík,
„skuldir í dag – skattar á morgun“ á
vel við í Bessastaðahreppi.
Þessi stefna er glórulaus skulda-
stefna, vítahringur þenslu og
skulda. Skuldastefnan er sett fram
sem jákvæð framfarastefna til að
blekkja kjósendur – sýndarveru-
leiki. Henni verður ekki fylgt eftir
nema með áframhaldandi lántökum
og skuldsetningu sveitarsjóðs sem
bryti í bág við lög og reglur um fjár-
mál sveitarfélaga. Núverandi meiri-
hluti hefur þegar fengið gula spjald-
ið frá félagsmálaráðuneytinu og
sækir greinilega í það rauða. Íbúar
Bessastaðahrepps sem vilja varð-
veita sjálfstæði sveitarfélagsins
þurfa að stöðva þessa þróun í kom-
andi kosningum.
8. bekkur grunnskólans
Framkvæmd skólastefnu í Bessa-
staðahreppi er að sjálfsögðu ná-
tengd fjárhagsstöðu sveitarfé-
lagsins, en bygging og rekstur
skólans er stærsta einstaka verk-
efni sveitarfélagsins. Þannig hindr-
ar skuldastefna D-listans nú að
hægt sé að byggja upp með hraði
unglingadeild við Álftanesskóla.
Álftaneshreyfingin talar í skólamál-
inu fyrir raunsærri umbótastefnu
meðan D-listinn lofar umfram efni
og heldur sig við sýndarveruleika.
Í málefnum Álftanesskóla ætlar
Álftaneshreyfingin að hefja kennslu
8. bekkjar, sem nú fer fram í Garða-
bæ, haustið 2003. Námskrá þessa
aldurshóps fellur vel að núverandi
kennslu Álftanesskóla sem gerir að-
lögun hans að skólanum auðveldari.
Heimkomu 9. og 10. bekkjar
verður hinsvegar frestað enn um
sinn, þar til undirbúningi unglinga-
deildar skólans er að fullu lokið. Að
þessum undirbúningi verður unnið í
samræmi við fjárhagsgetu í sam-
vinnu við foreldra, kennara og
skólanefnd.
Álftaneshreyfingin telur að það
samrýmist ekki hagsmunum ung-
linganna að hefja kennslu fyrir eldri
bekkina í ófullnægjandi skólaum-
hverfi, í bráðabirgðahúsnæði, við
skort á valgreinum og án nauðsyn-
legrar félagsaðstöðu.
Staðið verður þannig að heim-
komu 8. bekkjar að það raski ekki
skólaumhverfi nemenda yngri
bekkja skólans. Þannig þarf m.a. að
byggja við enda skólahússins nýjar
kennslustofur, en þessar fram-
kvæmdir munu kosta fullbúnar um
60 milljónir króna.
Stefna Álftaneshreyfingarinnar í
málefnum Álftanesskóla er þannig
ábyrg og traust.
Við hvetjum íbúa Bessastaða-
hrepps til að kjósa í maí ábyrgð og
framsýni en hafna skuldastefnu
hins þreytta meirihluta D-listans.
Kjósum X-Á í vor fyrir umhverfið
og börnin okkar.
Uppbygging í takt við þarfir
fólks og umhverfis
Sigurður
Magnússon
Höfundur skipar 1. sæti
Álftaneshreyfingarinnar.
Bessastaðahreppur
Nýframkvæmdir, segir
Sigurður Magnússon,
haldist í hendur við
fjárhagsgetu og ógni
ekki sjálfstæði
Bessastaðahrepps.
KOSNINGAR eru í
nánd. Eins og alltaf
þegar slík tímamót
nálgast hefur svart-
sýniskórinn upp raust
sína. Í Reykjavík hefur
R-listinn samkvæmt
heimildum Sjálfstæðis-
flokksins algjörlega
gengið fram af debet-
reikningnum. Sami kór
heldur því fram að fólk
flykkist frá borginni
þar sem allt sé þar
ómögulegt og setjist
að í nágrannasveitar-
félögum þar sem lífs-
gæði eru umtalsvert
betri en í Reykjavík.
Sjálfstæðisflokkurinn kveðst hafa
lausnir á vanda Reykvíkinga stórum
og smáum. Leikskólapláss fyrir öll
börn eldri en 18. mánaða; skífur í
bílrúður sem leysa vanda kaup-
manna og bílstjóra í miðbænum –
og síðast en ekki síst, varanleg
lausn á húsnæðisvandanum.
Heimilislausum í Reykjavík hefur
fjölgað sl. ár og telur Björn Bjarna-
son ástæðuna vera óvenjuhátt lóða-
verð og lítið framboð af lóðum í
borginni. Björn segist hafa hitt
hundruð ef ekki þúsundir Reykvík-
inga sem segja honum þá sögu að
þeir hreinlega neyðist til þess að
flytjast búferlum frá Reykjavík til
Garðabæjar, í Kópavoginn eða á
Seltjarnarnesið, vegna þessa vanda
– enda nóg af lóðum þar. Einkenni-
legur málflutningur, svo ekki sé
meira sagt, að ætla að heimilislausir
muni njóta þess ef framboð af lóð-
um verði aukið í Reykjavík. Um
langt árabil hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn stjórnað landsmálunum og
m.a. með þátttöku von-
biðils Reykjavíkur-
borgar, Björns Bjarna-
sonar.
Sjávarútvegsstefna og
aðrar aðgerðir í
byggðamálum hafa
gert það að verkum að
gríðarlegur flótti hefur
verið frá landsbyggð-
inni á höfuðborgar-
svæðið. Þetta fólk skil-
ur eftir stórar eignir,
sem seljast ef þær ná
því á slikk, sem aftur
veldur því að fólk get-
ur ekki keypt sér íbúð
í höfuðborginni – né
annarsstaðar á höfð-
uborgarsvæðinu.
Það er napurt til þess að hugsa að
ef Björn Bjarnason og co. komast til
valda í Reykjavík sé það efst á
baugi að taka Garðabæ og litla Nes-
ið, sem Þórbergur orti um, sér til
fyrirmyndar. Þessi sveitarfélög
starfa í anda alþýðulýðveldisins
Kína þegar kemur að félagslegum
vandamálum. Verði á vegi þeirra
„félagslegt vandamál“ er því útrýmt
með þeim orðum að „félagsleg
vandamál“ fyrirfinnist ekki þar á
bæ – eða með orðum Kínverja: „...
þetta er vestrænn sjúkdómur og
þekkist ekki í Kína“. Björn, sem
hefur miklar áhyggjur af ástandi
húsnæðismarkaðarins, hefur hug á
að innleiða hugmyndafræði áður-
nefndra sveitafélaga og telur það
muni redda málunum. Á Seltjarn-
arnesi eru 9 félagslegar leiguíbúðir
og 4663 íbúar – það gerir 518 íbúa á
hverja íbúð. Í Reykjavík eru 1310
félagslegar leiguíbúðir og 112.276
íbúar sem gerir 86 íbúa á hverja
íbúð. Í Kópavogi eru 186 félagslegar
leiguíbúðir sem gerir 130 íbúa á
hverja íbúð. Seltjarnarnesaðferðin í
Reykjavík myndi því þýða fækkun
íbúða um 1100 eða í 210 íbúðir. Því
er erfitt að sjá hvernig hugmynda-
fræði sótt í smiðju nágrannasveit-
arfélaganna megi verða til þess að
ástandið á húsnæðismarkaðnum
batni og að heimilislausir komist í
hús.
Allur sá loforðapakki sem rennur
undan Sjálfstæðisflokknum er
móðgun við Reykvíkinga. Að bera
borgina saman við nágrannasveit-
arfélögin er með öllu óskiljanlegt og
sérstaklega þegar samanburðurinn
er rifinn úr öllu samhengi við heild-
armyndina. Það er kannski betra að
vera múltimilljóner og búa í Garða-
bæ frekar en Reykjavík – en um
leið og tekjurnar fara minnkandi og
einstaklingar þurfa á félagslegri
þjónustu að halda virðist fátt um
fína drætti í Garðabæ. Gleymum því
ekki að í Garðabæ, Kópavogi og Sel-
tjarnarnesi stjórna Sjálfstæðismenn
og hafa gert lengi. Þar er gott að
vera ríkur. Þetta sést einnig þegar
litið er til landsmálanna en er allt á
einn veg: Þeir sem minna mega sín
hafa það skítt en ríkir menn í vina-
sambandi við Landshöfðingjann
hafa það gott – peningalega. Því er
það í raun einföld spurning sem
Reykvíkingar þurfa að spyrja sig á
kjördag: „Er ég múltímilljóner eða
venjulegur maður?“
Björn og hús-
næðisvandinn
Grímur
Atlason
Reykjavík
Það er napurt til þess
að hugsa, segir Grímur
Atlason, ef Björn
Bjarnason og co. kom-
ast til valda í Reykjavík.
Höfundur er verkefnisstjóri hjá
Félagsþjónustunni í Reykjavík.
EINHVER falleg-
asti hluti Ölfusár er frá
kirkjunni á Selfossi og
upp fyrir Laugardælur.
Við ána skiptast á fal-
legir grónir bakkar og
klettar og úti í ánni eru
fallegar eyjar. Vestan
við ána eru fallegir
klettar og mýrarsund,
þar sem verið er að
rækta skóg í landi
Hellis. Austan ár eru
ræktuð tún þar sem
Golfklúbbur Selfoss
hefur gert 9 holu golf-
völl og byggt golfskála.
Í ánni skiptast á lygnur,
straumrastir og hring-
iður sem eru síbreytilegar frá degi til
dags, eftir veðri og vatnsmagni árinn-
ar. Næst ánni gnæfir Ingólfsfjall yfir
en fjær sést sunnlenski fjallahring-
urinn, með Jarlhettur, Langjökul,
Bláfell og austur til Heklu og Eyja-
fjallajökuls. Yfir hyldjúpa gjána í
ánni er hengibrúin, fallegt mannvirki
og tákn Selfoss.
Í núverandi aðalskipulagi er gert
ráð fyrir að Suðurlandsvegurinn
verði fluttur norður fyr-
ir þéttbýlið á Selfossi, í
gegnum Hellisskóginn,
með brú yfir Ölfusá og
stöpul á Laugardæla-
eynni og áfram á hárri
uppfyllingu yfir golf-
völlinn á milli Laugar-
dæla og Selfoss.
Þessar hugmyndir
um vegagerð eru barn
síns tíma og það er eðli-
legt að þær verði end-
urskoðaðar nú þegar
fyrir liggur að gera þarf
nýtt aðalskipulag fyrir
Sveitarfélagið Árborg.
Vinstrigrænir í Árborg
leggja til að hætt verði
við þessi áform en í staðinn verði sett
brú yfir Ölfusá miklu vestar. Þá kem-
ur nýr vegur fyrir sunnan Selfoss og
flugvöllinn og austur á núverandi
Suðurlandsveg svo langt austan bæj-
arins að hann sker ekki í sundur eft-
irsóknarverð byggingasvæði í fram-
tíðinni. Með þessu vinnst það að öll
þungaumferð flyst út fyrir bæinn.
Umferð um Suðurlandsveg flyst úr
veðravítinu undir Ingólfsfjalli, þar
sem árlega verða nokkur slys þegar
bílar fjúka af veginum. Suðurlands-
vegurinn mun tengjast byggðinni á
Selfossi mjög vel um torg vestan
Kögunarhóls, sem tengir veginn inn á
Biskupstungnabraut og til Selfoss
um gömlu brúna. Annað torg yrði á
Eyrarveginum með tengingu við
Stokkseyri og Eyrabakka og í iðn-
aðarhverfið í suðvesturhluta Selfoss.
Þar yrði einnig tenging við flugvöll-
inn, sem getur orðið hluti af sam-
göngukerfi Vestmannaeyja og Hafn-
ar í Hornafirði, ef innanlandsflugið
hverfur af Reykjavíkurflugvelli. Þá
yrðu innkeyrslur í bæinn sunnan-
verðan, hvort sem er við Votmúla eða
um Gaulverjabæjarveg. Úr austri
yrði svo tenging eftir gamla Suður-
landsveginum. Þessi leið er sjálfsagt
heldur dýarari, og ef til vill lengir hún
Suðurlandsveginn eitthvað, en hún er
miklu eftirsóknarverðari fyrir sveit-
arfélagið, en úreltar hugmyndir um
veg í gegnum ákjósanlegasta og fal-
legasta útivistarsvæði Selfyssinga,
Hellisskóg og yfir golfvöllinn.
Einn kostur við þessa leið er að
fljótlega mætti hefja framkvæmdir
við veg fyrir sunnan Selfoss yfir á
Eyrarveginn þó að ný brú sé ekki
komin á áætlun. Þungaflutningarnir
sem munu vaxa á næstu árum til og
frá Þorlákshöfn með efni austan af
Mýrdalssandi og ofan frá Heklu, fisk
austan af landi í flug um Suður-
strandarveg og áburð frá Þorláks-
höfn fara þá fram hjá Selfossi. Með
endurbótum á Þrengslavegi er líklegt
að flutningabílstjórar velji heldur að
fara um Þrengsli og Óseyrarbrú á
leið sinni frá Reykjavík austur á land
en að troðast um Austurveginn og
klifra yfir Hellisheiði.
Nýr þjóðvegur
1 fyrir sunnan
Selfoss
Þorsteinn
Ólafsson
Árborg
Með þessu vinnst það,
segir Þorsteinn Ólafs-
son, að öll þungaumferð
flyst út fyrir bæinn.
Höfundur er dýralæknir og skipar
3. sæti á lista VG í Árborg.