Morgunblaðið - 03.05.2002, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.05.2002, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HERBERGI OG HÚSALEIGUBÆTUR Ámálþingi um fátækt, sem haldiðvar í Hallgrímskirkju um sein-ustu helgi, var m.a. gagnrýnt að húsaleigubætur væru ekki greiddar til þeirra, sem leigja einstök herbergi en ekki íbúðir. „Þeir sem eru verst settir eru þeir sem fá ekki niðurgreitt leiguhúsnæði og þurfa þar af leiðandi að leigja sér herbergiskytru á 30 þús- und krónur. Þar sem það getur ekki talizt leiguhúsnæði fær fólkið ekki húsaleigustyrk og er þar af leiðandi enn verr sett og greiðir í raun hærri leigu,“ sagði Bjarni Karlsson, sóknar- prestur í Laugarneskirkju, í samtali við Morgunblaðið eftir málþingið. Húsaleigubætur eru greiddar af sveitarfélögum en ríkið leggur fé í jöfnunarsjóð sveitarfélaga, sem kem- ur á móti kostnaði sveitarfélaga af greiðslu bótanna. Í lögum um húsa- leigubætur segir að markmið þeirra sé „að lækka húsnæðiskostnað tekju- lágra leigjenda og draga úr aðstöðu- mun á húsnæðismarkaðnum“. Þar er hins vegar líka girt fyrir að þeir, sem ekki leigja „venjulega og fullnægjandi heimilisaðstöðu“ fái bæturnar. Bætur eru þannig ekki greiddar vegna ein- staklingsherbergja eða ef eldhús eða snyrting er sameiginleg með fleirum. Er þó algeng leiga fyrir einstök her- bergi um 20-30 þúsund krónur á mán- uði og jafnvel hærri, eins og fram kom í samtali við Jón Kjartansson, for- mann Leigjendasamtakanna, hér í blaðinu 1. maí. Í Morgunblaðinu 1. maí kom fram í máli Inga Vals Jóhannssonar, deildar- stjóra í félagsmálaráðuneytinu, að við setningu laganna hafi markmiðið verið að „auka möguleika fólks á að búa í mannsæmandi húsnæði og ef stjórn- völd færu að setja upp styrktarkerfi miðað við að fólk byggi í herbergis- kytru og hefði ekki eldhús eða klósett fyrir sig, væri verið að viðurkenna það ástand“. Ingi Valur sagði hafa verið leitað að fyrirmyndum á Norðurlönd- um og þar hafi einstök herbergi hvergi verið inni í kerfinu. Sambærileg sjónarmið komu fram í máli Helga Hjörvar, forseta borgar- stjórnar Reykjavíkur, í blaðinu í gær. „Það er mikilvægt að ganga ekki of langt vegna þess að við viljum heldur ekki niðurgreiða óviðunandi eða heilsuspillandi húsnæði. Það yrði ein- ungis til þess fallið að festa slíka út- leigu í sessi, þ.e. útleigu á kjallarakytr- um, bílskúrsholum og öðru slíku. Það verður að gera skýrar kröfur um gæði húsnæðisins.“ Þá telur forseti borgar- stjórnar að eðlilegt sé að styðjast við fyrirmyndir frá löndum sem búa yfir „sæmilega þróuðum leigumarkaði“. Það er auðvitað göfugt markmið að tryggja öllum leigjendum góða íbúð. Húsaleigubótakerfið, eins og það er nú, þjónar hins vegar ekki því mark- miði. Raunveruleikinn á Íslandi er sá, að leigumarkaðurinn er afskaplega vanþróaður og lítið framboð af góðu leiguhúsnæði. Mörgu tekjulágu fólki, jafnvel fjölskyldufólki, stendur hvorki niðurgreitt félagslegt húsnæði til boða né sæmileg leiguíbúð á almennum markaði. Þessum hópi er nauðugur einn kostur að leigja t.d. stök herbergi, innréttaða bílskúra o.s.frv. Stuðlar það að því að þetta fólk komist einhvern tímann í betra húsnæði að það fái ekki húsaleigubætur, heldur detti út úr kerfinu? Hvorki lækkar það húsnæðis- kostnað tekjulágra né dregur úr að- stöðumun á húsnæðismarkaðnum. Ef aðstæður væru hér svipaðar og annars staðar á Norðurlöndum og mikið fram- boð af góðu leiguhúsnæði, horfði málið öðruvísi við. En eins og raunveruleik- inn er á Íslandi nú stuðlar óbreytt kerfi að því að halda fólki í fátæktargildru. STARFSEMI NEKTARSTAÐA Á fundi borgarstjórnar í gær varvísað til annarrar umræðu tillögu um að gera breytingu á lögreglusam- þykkt Reykjavíkur þess efnis að banna svokallaðan einkadans, sem boðið hef- ur verið upp á á nektardansstöðum borgarinnar. Eins og kom fram í sam- tali við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt- ur borgarstjóra í Morgunblaðinu í gær hefur verið deilt um hvort það stæðist lög að binda í reglur hvernig starfsemi eigi að fara fram á umræddum stöðum, en eftir að þau svör fengust frá dóms- málaráðuneytinu að ekkert væri því til fyrirstöðu að staðfesta slíka breytingu á lögreglusamþykktinni var ákveðið að keyra málið í gegn. Rökin fyrir því að banna sérstaklega einkadans eru þau að þar sé um að ræða tilfelli þar sem „áhorfandi er einn með einum eða fleiri sýnendum og því illmögulegt að hafa eftirlit með því sem þar fer fram“, eins og segir í mati starfshóps borgarstjóra og lögreglu- stjórans í Reykjavík sem fjallað hefur um veitingamál og lagði í október fram ýmsar tillögur til að bæta veitinga- húsamenningu og eftirlit og draga úr ölvun á almannafæri. Það er sem sagt talið að þar sem boðið sé upp á einka- dans sé engin leið til að fylgjast með því hvort í raun sé verið að stunda vændi eða ekki. Búlurekstur hefur sett svartan blett á miðborg Reykjavíkur. Nektarstaðir hafa verið áberandi í skemmtanalífi Reykjavíkur um nokkurra ára skeið. Undanfarið hafa komið fram margar vísbendingar um að vændi hafi verið að færast í vöxt hér á landi og hafa nektarstaðirnir tengst þeirri umræðu. Inn í þessa umræðu hefur einnig spunnist umræða um þá ógeðfelldu þróun í ýmsum nágrannaríkjum okkar að konur, sem eru að flýja kröpp kjör heima fyrir, lenda í klónum á glæpa- hringjum, sem meðhöndla þær eins og húsdýr og neyða til að stunda vændi. Það er kannski ekki að undra að þessi vandi skuli breiðast út hér á landi nú á tímum takmarkalausrar neyslu- hyggju þegar allt er falt ef rétt verð er sett upp. Samþykkt banns við einkadansi er skref í rétta átt, en betur má ef duga skal. Einn vandinn er hversu erfitt verður að fylgja því eftir að farið verði eftir banni við einkadansi, en mergur- inn málsins er hins vegar sá að nekt- ardansstaðirnir sjálfir eru rót vand- ans. Þar sem þeir eru til staðar virðist vændi vera skammt undan. Það dugir ekki að fórna höndum í uppgjöf þegar búlur spretta upp gegnt Alþingishús- inu. Ef það er vilji til að taka á málinu er alltaf hægt að finna leiðir. INGIBJÖRG Sólrún Gísladótt-ir borgarstjóri gerði greinfyrir helstu þáttum í árs-reikningnum. Hefur borgar- endurskoðandi lokið endurskoðun og áritað. Hún sagði að í niðurstöðu ársreikningsins fælist enn ein stað- festingin á gildi rammastjórnunar hjá borginni. Borgarstjóri vakti í upphafi at- hygli á bréfi sem sér hefði borist frá Símoni Hallssyni borgarendur- skoðanda þriðjudaginn 30. apríl. Þar hefði hann greint frá að endur- skoðunarskýrsla sem fylgja beri ársreikningi og eigi að vera tilbúin fyrir lok apríl svo sem sveitar- stjórnarlög tilgreini væri ekki tilbú- in. Yrði það ekki fyrr en 6. maí. Ingibjörg Sólrún vitnaði til bréfs sem hún sendi borgarendurskoð- anda í fyrradag þar sem hún segist enga skýringu hafa fengið á því að endurskoðunarskýrslan væri ekki tilbúin í tíma. „Ég hafði ekki hug- boð um að dráttur yrði á skilum Borgarendurskoðunar fyrr en kall- að var eftir skýrslunni hjá þér í gær, þegar ég ætlaði að hefja und- irbúning að framsögu minni í borg- arstjórn. Það er ekki geðþótti sem ákvarðar þá tímafresti, sem hér standast ekki, heldur eru þeir settir í landslögum,“ segir hún meðal ann- ars í bréfi sínu. „Ég lýsi undrun minni á að þú hafir varað við þeirri „hugmynd“ að fyrri umræða um ársreikning og skýrslu Borgarend- urskoðunar fari fram í byrjun maí. Þeir tímafrestir eru einfaldlega byggðir á lögum og fundartímum borgarstjórnar, sem ákveðnir eru í samþykktum um stjórn borgarinn- ar.“ Lýsti borgarstjóri furðu sinni á þessu verklagi en í lok bréfsins lýsti hún sig reiðubúna til að taka þátt í annarri lausn málsins ef um það næðist full sátt í borgarstjórn. Fram kom í umræðunni síðar að forseti borgarstjórnar hefði haft samband við oddvita sjálfstæðis- manna sem fallist hefði á aukafund í næstu viku en ákveðið hefði verið að hnika ekki til fundartíma. Í máli borgarstjóra kom fram að útgjöld til reksturs málaflokka að frádregnum sértekjum hafi numið 20,7 milljörðum króna sem hún sagði 0,4% undir áætlun. Að með- taldri hækkun vegna áfallinna líf- eyrisskuldbindinga væru rekstrar- útgjöld borgarsjóðs 2% umfram áætlun. Sagði hún áfallna lífeyris- skuldbindingu færða til gjalda í rekstrarreikningi í samræmi við álit bókhaldsnefndar Sambands ísl. sveitarfélaga frá árinu 1999. Þessi raunbreyting hefði numið 721 millj- ón króna í fyrra, 497 milljónir um- fram áætlun. Rekstur málaflokka ásam isskuldbindingum í hlutf skatttekjum lækkaði úr 8 81,7% og sagði borgarstjóri hafa verið lagða á að hafa h sem næst 80%. Veltufé frá rekstri sagði stjóri vera 5,1 milljarð kró það bættust nærri 2,7 mi sem rekja mætti til sölu p legra eigna sem borgarsjóðu eignast við sölu á Sjú Reykjavíkur og niðurfærslu fé Orkuveitu Reykjavíkur. S hefði borgarsjóður haft til r unar 7.850 m. kr. á árinu. F milljarðar í fjárfestingar, 83 ónir í niðurgreiðslu langtíma 551 milljón í fjárbindingu tímakröfum. Væru 314 vegn vögnum SVR við stofnun Str Af 6,5 milljarða króna f ingu voru tveir milljarðar u áætlun. Til gatna og holræ varið 1.744 milljónum, 1. fræðslumála, 339 til íþró tómstundamála, 292 til leiks 236 til menningarmála. Þ 1.189 milljónir í eignakaup. um eignasölu sagði borg ekki hafa gengið eftir og he mestu munað um að ekki samningar um sölu Heilsuv stöðvarinnar og tekjur a byggingaréttar urðu um 40 ónum undir áætlun. Þá voru kaup umfram áætlun, m.a. verð lóða- og landakaup, Úlfarsfell fyrir 427 milljón eignarhluta LR í Borgarleik á 204 milljónir. Fyrri umræða um ársreikning Reykjav Rekstur málaflokka 81,7% af skatttekjum Ársreikningur Reykjavíkurborgar var lagður fram í borgarstjórn í gær og fór þá fram fyrri umræða um reikninginn. Síðari umræðan verður að hálfum mánuði liðnum.                  INGA Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, sagði að ársreikningur Reykja- víkurborgar fæli í sér áfellisdóm yfir fjármálastjórn meirihlutans. Gerði hún í upphafi máls síns bréfaskipti borgarstjóra og borgarendurskoðanda að um- talsefni. Kvað hún þann hroka sem hún sagði einkenna borg- arstjóra í þeim bréfaskiptum fá- heyrðan. Málið hefði borið á góma í borgarráði sl. þriðjudag og komið fram þar að vegna ým- issa ástæðna yrði endurskoð- unarskýrslan ekki tilbúin fyrir umræðu borgarstjórnarfund- arins. Hún sagði ársreikninginn ekki hafa legið frammi fyrir lok apríl eins og lög gerðu ráð fyrir. Borgarfulltrúinn sagði ekki hafa verið tækifæri til að skoða ársreikninginn þar sem hann hefði ekki verið lagður fram fyrr en að morgni sl. miðviku- dags. Það yrði að bíða síðari um- ræðu og því yrði aðeins tæpt á meginatriðum nú. Fjármálastjórn farin úr böndum Inga Jóna sagði að oft hefði verið tekist á um það á síðustu árum hvert fjármálastjórn Reykjavíkurlistans hefði leitt borgina. Ársreikningurinn sýndi að í málflutningi sjálfstæð- ismanna hefði ekkert verið of- sagt, fjármálastjórn hefði farið gjörsamlega úr böndum. Hún sagði að óskað hefði verið eftir því í desember hver yrði áætluð staða efnahagsreiknings í árslok 2001. Þá hefði verið gert ráð fyrir að hreinar skuldir borg- arinnar væru 29 milljarðar króna, þeim upplýsingum hefði verið dreift við afgreiðslu fjár- hagsáætlunarinnar. Hver væri staðan nú? Áætlunin hefði hljóð- að upp á 22 milljarða og með framreikningi væri hún 24,4 milljarðar króna. Þessi tala væri nú komin í 33,9 milljarða, aðeins frá því í desember væru frávik frá áætlun um stöðu borgarinnar fimm milljarðar króna. Skoraði hún á borgarstjóra að gera sér- staka grein fyrir þessu atriði við síðari umræðuna. Spurði hún hvað hefði breyst þennan tíma. Á að halda áfram að bera það á borð fyrir okkur að hér sé ábyrg fjármálastjórn á ferðinni, spurði Inga Jóna. 25 milljóna króna skuldaaukning á dag Oddviti sjálfstæðismanna sagði stóru fréttirnar úr þessum ársreikningi þær að skuldasöfn- un borgarinnar væri komin á þann skrið sem hún hefði aldrei farið áður. Raunbreytingin væri 9,2 milljarða króna skuldaa ing. Þetta þýddi að skuldaa ing hvern dag síðasta árs h verið 25 milljónir króna. Sa hún sjálfstæðismenn hafa n lægri tölur í kosningabarát eða um 9 milljónir króna o hefði meirihlutinn fengið a njóta vafans í þessum efnu það kannski sérstakt keppi meirihlutans að auka skuld spurði borgarfulltrúinn. Sa hún þann málflutning hafa heyrst að það væri jákvætt auka skuldir. Kvaðst borg- arfulltrúinn kalla þetta að endaskipti á hlutunum og v ekki ábyrg fjármálastjórn. Inga Jóna sagði ársreikn inn einnig sýna að gengið h verið freklega á fyrirtæki arinnar. Hún hefði oft min það undanfarin ár að geng hefði verið á Orkuveitu Re víkur og fengið bágt fyrir. hún ársreikninginn sýna að gengið hefði verið freklega fyrirtækinu og reikningar sýndu að veltufjárhlutfall v komið niður í 1,15 og það v menn að hættumörkin vær 1. Veltufjárhlutfall OR vær aðeins að hrynja heldur mæ einnig líta á borgarsjóð. Í l kæmi þegar skoðuð væri fj hagsstaða hans og mælikva að meta greiðslustöðu, að v Segja skuldir hafa auk ist um 25 millj. á dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.