Morgunblaðið - 03.05.2002, Side 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓRSÁRVERANEFND á eftir að
skila af sér umsögn um matsskýrslu
Landsvirkjunar varðandi umhverfis-
áhrif Norðlingaölduveitu og meta
hvort framkvæmdir rýri náttúru-
verndargildi Þjórsárvera sem ráðgef-
andi Náttúruverndar ríkisins, en Gísli
Már Gíslason, prófessor og formaður
nefndarinnar, telur að þegar 86%
hagkvæmra vatnsaflsvirkjunarkosta
séu enn til staðar í landinu sé ekki
réttlætanlegt að virkja á svæði sem
allir telji eitt verðmætasta svæði
landsins frá náttúrfarssjónarmiðum
og gefi um 1,5% af þeirri raforku sem
eigi eftir að virkja.
Gísli Már Gíslason segir að margir
aðrir kostir standi til boða. Þeir sem
hafi starfað að rammaáætluninni hafi
bent á kosti þess að auka vatnsmagn í
Tungnaá, en slík framkvæmd hafi
miklu minni umhverfisáhrif. Þá verði
ekkert stórt lón til heldur verði
Langisjór notaður sem miðlun og
jafnmikil orka fáist fyrir minni pen-
ing. Þegar sé búið að raska öllum
austurhluta Þjórsárvera eins og Ey-
vindarveri, Þúfuveri og Stóraveri,
sem hafi farið undir 30 km² lón, og
enn sé verið að sækja á sama svæði
með 32 km² lón til viðbótar. „Það er
verið að höggva í sama knérunn og
þegar upp verður staðið verða lón á 60
ferkílómetra svæði. Ef einhver ætlar
að segja mér að það hafi ekki áhrif á
landslag og náttúrufar þá á ég bágt
með að trúa því. Ég hefði viljað að
aðrir virkjunarkostir yrðu nýttir og
ekki sótt inn á þessi verðmætustu
svæði landsins.“
1981 ákvað Náttúruverndarráð að
friðlýsa Þjórsárver. Í reglum um
svæðið kemur m.a. fram að sérstök
nefnd sé Náttúruverndarráði til ráðu-
neytis um málefni friðlandsins.
Mannvirkjagerð, jarðrask og aðrar
breytingar á landi, svo og breytingar
á rennsli vatna og vatnsborðshæð,
séu óheimilar án leyfis Náttúruvernd-
arráðs og óheimilt sé að skaða gróður
og trufla dýralíf, svo og að hrófla við
jarðmyndunum, gæsaréttum og öðr-
um minjum. Náttúruverndarráð geti
veitt heimild til þess að vikið verði frá
reglunum í einstökum tilfellum.
Landsvirkjun sé heimilt að veita til
Þórisvatns úr upptakskvíslum Þjórs-
ár á Sprengisandi og austurþverám
hennar enda verði umhverfisáhrifum
mannvirkja haldið í lágmarki. „Enn-
fremur mun Náttúruverndarráð fyrir
sitt leyti veita Landsvirkjun undan-
þágu frá friðlýsingu þessari til að
gera uppistöðulón með stíflu við
Norðlingaöldu í allt að 581 m y.s.,
enda sýni rannsóknir að slík lóns-
myndun sé framkvæmanleg án þess
að náttúruverndargildi Þjórsárvera
rýrni óhæfilega að mati Náttúru-
verndarráðs. Rannsóknir þessar
skulu gerðar á vegum ráðgjafar-
nefndar samkvæmt 1. tl. Skal nefndin
ennfremur fjalla um endanleg mörk
umræddra mannvirkja, ráðstafanir til
að draga úr óæskilegum áhrifum
þeirra á vistkerfi Þjórsárvera og
hugsanlega endurskoðun á vatns-
borðshæð miðlunarlónsins. Nefndin
skal og gera tillögur til stjórnar
Landsvirkjunar og Náttúruverndar-
ráðs um nauðsynlegar rannsóknir í
þessu sambandi og skal Landsvirkjun
kosta þær að svo miklu leyti sem hlut-
aðeigandi rannsóknaráætlun hlýtur
samþykki stjórnar Landsvirkjunar
og Náttúruverndarráðs.“
Formaður Þjórsárveranefndar gagnrýnir matsskýrslu Landsvirkjunar
Ekki rétt að virkja á verð-
mætasta svæði landsins
!
"
!
"
#
$
%
#
$
!
"
DELTA hf. hlaut útflutnings-
verðlaun forseta Íslands fyrir árið
2002. Róbert Wessman, forstjóri
Delta, veitti verðlaununum viðtöku
á Bessastöðum í gær. Þetta er í fjór-
tánda sinn sem útflutningsverðlaun
forseta Íslands eru afhent en þau
eru veitt í viðurkenningarskyni fyr-
ir markvert framlag til eflingar út-
flutningsverslun og gjaldeyrisöflun
íslensku þjóðarinnar.
Úthlutunarreglur kveða á um að
verðlaunin skuli veitt fyrirtækjum
eða einstaklingum, íslenskum eða
erlendum, fyrir árangursríkt starf
að útflutningi á íslenskum vörum
eða þjónustu á erlendum markaði.
Veiting verðlaunanna tekur mið af
verðmætisaukningu útflutnings,
hlutdeild útflutnings í heildarsölu,
markaðssetningu á nýjum markaði,
ásamt fleiru.
Öflugt alþjóðlegt
þekkingarfyrirtæki
Páll Sigurjónsson, formaður út-
hlutunarnefndarinnar, sagði í
ávarpi í tilefni verðlaunaveiting-
arinnar, að Delta hf. hlyti verð-
launin fyrir þann árangur sem fyr-
irtækið hafi náð í sölu- og
markaðsmálum á samheitalyfjum
og lyfjatengdu hugviti og fyrir þá
framsýni sem fyrirtækið hefur sýnt
í uppbyggingu sinni sem öflugt al-
þjóðlegt þekkingarfyrirtæki á sínu
sviði. „Fyrirtækið er góður fulltrúi
fyrir þann vaxandi fjölda íslenskra
fyrirtækja, sem um þessar mundir
hasla sér völl á alþjóðlegum mark-
aði þar sem söluvaran er þekking,
reynsla og þjónustulund íslenskra
starfsmanna og stjórnenda,“ sagði
Páll.
Lyfjafyrirtækið Delta var stofn-
að árið 1981. Fyrirtækið á dótt-
urfélög bæði hér á landi og á Bret-
landseyjum, Danmörku og Möltu.
Framleiðslugeta fyrstu verksmiðju
fyrirtækisins var um 250.000 töflur
á ári, en framleiðslugetan nú, eftir
kaupin á lyfjafyrirtækinu Pharma-
med á Möltu í fyrra, er um 3,5 millj-
arðar taflna á ári. Fyrirtækið seldi
um 20 lyfjategundir til jafnmargra
landa á síðasta ári og voru 85%
tekna félagsins tilkomin vegna sölu
erlendis.
Eftir sameiningu Delta og
Omega Pharma fyrr á þessu ári er
gert ráð fyrir að erlend sala verði
enn hærra hlutfall heildartekna og
að velta fyrirtækisins verði á þessu
ári um 10,5 milljarðar.
Fram kom í máli Páls Sigurjóns-
sonar að verkefni Delta í framtíð-
inni væru mýmörg og gert sé ráð
fyrir áframhaldandi örum vexti
með kaupum á erlendum fyr-
irtækjum og stofnun söluskrifstofa
erlendis. Stefnt sé að því að ljúka 8–
10 þróunarverkefnum á hverju ári
næstu árin og jafnframt að 25 ný
samheitalyf fari á markað til árs-
loka 2005.
Verðlaunahafi útflutnings-
verðlauna forseta Íslands fær í
hendur sérhannaðan verðlaunagrip
og skjal, auk þess sem hann fær
leyfi til að nota merki verðlaunanna
á kynningarefni sitt í fimm ár frá
afhendingu.
Verðlaunagripurinn í ár var
gerður af Kristni E. Hrafnssyni en
merki útflutningsverðlaunanna er
eins og áður hannað af Hilmari Sig-
urðssyni. Listaverkið heitir Eitt
þrep og er táknmynd stígandi
hreyfingar og framþróunar – flutn-
ings af einum stað á annan.
Delta hf. hlaut út-
flutningsverðlaun
forseta Íslands
Morgunblaðið/Kristinn
Róbert Wessman, forstjóri Delta, veitir verðlaununum viðtöku.
Hætti við
að sækja
um hæli
RÚMENSKUR karlmaður, sem
framvísaði fölsuðu vegabréfi í Leifs-
stöð í gærmorgun, sótti um hæli sem
pólitískur flóttamaður eftir að hann
var stöðvaður af landamæradeild lög-
reglunnar á Keflavíkurflugvelli en
hætti við hælisumsóknina síðar um
daginn.
Að sögn Halldórs Rósmundar Guð-
jónssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns
á Keflavíkurflugvelli, kom Rúmeninn
til landsins fyrir nokkrum dögum frá
Kaupmannahöfn. Ekkert formlegt
vegabréfaeftirlit er innan Schengen-
svæðisins en maðurinn var stöðvaður
í svonefndu innra eftirliti. Hann
framvísaði þá rúmensku vegabréfi. Í
gærmorgun hugðist maðurinn fara til
Glasgow og þaðan til Írlands. Lög-
reglumaðurinn, sem hafði rætt við
hann við komuna til landsins, ræddi
við hann á nýjan leik en að þessu sinni
framvísaði hann hollensku vegabréfi.
Við athugun kom í ljós að vegabréfinu
hafði verið stolið, en mynd af mann-
inum límd á það á fremur viðvanings-
legan hátt, að sögn Halldórs. Mað-
urinn var handtekinn og óskaði þá
eftir pólitísku hæli á hér á landi en
hætti við síðdegis. Við leit á dvalar-
stað mannsins hér á landi fannst rúm-
enska vegabréfið hans.
Afar ólíklegt er að maðurinn hefði
hlotið hæli hér á landi og reyndar er
ólíklegt að mál hans berist nokkurn
tíma á borð Útlendingaeftirlitsins.
Sýslumaður hefði væntanlega neitað
honum um hælismeðferð en snúið
honum þess í stað umsvifalaust aftur
til Rúmeníu. Það var gert við sam-
landa mannsins sem sótti um hæli
fyrir nokkrum vikum og var neitað
um hælismeðferð á grundvelli þess að
framburður hans um að hann sætti
pólitískum ofsóknum væri ekki trú-
verðugur. Var þetta gert skv. 10.
grein núgildandi útlendingalaga.
Ekkert sambærilegt ákvæði er í nýj-
um útlendingalögum sem voru sam-
þykkt á Alþingi í gær.
♦ ♦ ♦
Nýir eigendur
að Hótel Örk
NÝIR eigendur hafa tekið við Hótel
Örk í Hveragerði. Jón Ragnarsson
hefur gert leigu- og kaupréttar-
samning við fyrirtækið Grand Ísland
ehf., sem er í eigu Stefáns Arnar
Þórissonar og Vals Magnússonar.
Stefán Örn vildi ekki gefa upp
kaupverð hótelsins. Hann sagði að
samið hefði verið til tíu ára og um
væri að ræða einskonar kaupleigu-
samning. Leiguverð næstu tveggja
ára gengi upp í kaupverðið.
Stefán Örn á einnig þriðjung í fyr-
irtæki sem heitir Icelandic Hotels,
sem rekur m.a. City Hótel, Hótel
Garð og nýtt hótel á Suðurgötu sem
opnað verður í sumar. Þá rekur hann
lítið gistiheimili á Reykhólum. Valur
Magnússon hefur verið í veitinga-
rekstri í 30 ár og rekur nú m.a.
Naustið í Reykjavík.
„Við munum leggja af stað með
metnaðarfullar áætlanir varðandi
veitinga- og þjónustureksturinn í
hótelinu ásamt því að við leggjum
mikla áherslu á funda- og ráðstefnu-
hald,“ sagði Stefán Örn.
Í hótelinu eru 85 herbergi, flest
tveggja manna.