Morgunblaðið - 03.05.2002, Side 53

Morgunblaðið - 03.05.2002, Side 53
<  % !   $       + 5    5                L1!  'L ' 1  6 !  /:). 0 2"   $ !    -% + *       * +       +       $ " 5 )   $#%   > / 5 )   $  0   ! . "))5 )   /#$"    $#%  5 )  )+ 5 )  5    *)     5 )   $ # $"              0 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 53 BARNAMESSUFERÐ Grafarvogs- kirkju verður nk. laugardag 4. maí. Lagt verður af stað kl. 10. Haldið verður að Flúðum þar sem séra Ei- ríkur Jóhannsson sóknarprestur mun taka á móti hópnum. Helgi- stund verður í kirkjunni að Hruna. Grillað verður fyrir börnin og boðið upp á veitingar. Sunnudaginn 12. maí verður síð- an uppskeruhátíð barnastarfsins í fjölskyldumessu kl. 11. Barnamessuferð Grafarvogskirkju Morgunblaðið/Ómar Sauðárkrókskirkja Háteigskirkja. Samverustund eldri borg- ara kl. 13 í umsjón Þórdísar þjónustufull- trúa. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45– 7.05 alla virka daga nema mánudaga. Mömmumorgunn kl. 10–12 í umsjá Hrundar Þórarinsdóttur djákna. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir börn. Ath. Í dag leggur stór hópur unglinga í Adrenalínferð gegn rasisma. Farið verður í Flatey á Breiðafirði. Miðborgarstarf KFUM&K leiðir starfið í samvinnu við Laug- arneskirkju, Þróttheima, Nýbúadeild Aust- urbæjarskóla og Alþjóðahúsið, auk fleiri samstarfsaðila. (Sjá síðu 650 í Textavarpi). Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Varm- árskóla kl. 13.15–14.30. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkom- ur alla laugardaga kl. 11–12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun og biblíufræðsla. Barna- og unglingadeildir á laugardögum. Létt hressing eftir samkomuna. Allir vel- komnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM 105,5. Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Unglinga- samkoma í kvöld kl. 21. Sjöundadags aðventistar á Íslandi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu- fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Björgvin Snorrason. Biblíurannsókn og bænastund á miðviku- dagskvöldum kl. 20. Allir hjartanlega vel- komnir. Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðs- þjónusta kl. 11. Umsjón: Ungt fólk úr Reykjavík og Hafnarfirði. Samlestrar- og bænastund á föstudags- kvöldum kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir. Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs- þjónusta kl. 11. Ræðumaður Eric Guð- mundsson. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmanna- eyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Samlestrar og bænastund í safnaðarheimilinu á fimmtu- dögum kl. 17.30. Allir hjartanlega velkomn- ir. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðsþjónusta/biblíufræðsla kl. 11. Ræðu- maður Ólafur Kristinsson. Biblíurannsókn/bænastund á miðviku- dagskvöldum kl. 20. Allir hjartanlega vel- komnir. Safnaðarstarf KIRKJUSTARF %  $  *    5 +, +   5        > 5 3B6$62?1 $62861   6 ") )/# ! )) ") DD "(  &/ 0 2"   $ !       2%+  *        )* +      5 )" 0 =  $ *    5      5            1!11'31 + % # ! .  "(  &/ +#  " HP "(  &/ 0 $ # > )    ,03" " $ :  " 5 /              .) ()0 =  $ *  5    ,  5  $1!' 2$6219  $6$'   6 :E +  &  ";; 0 ,) () 0 Elsku amma mín. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því. Þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Ragnar Bjarki og Valur Gauti. Elsku amma. Margs er að minn- ast er þú kveður þennan heim. HERMANNÍA SIGUR- RÓS HANSDÓTTIR ✝ Hermannía Sig-urrós Hansdóttir fæddist á Móum í Ólafsvík 25. septem- ber 1921, hún lést á Sjúkrahúsi Suður- lands 16. apríl síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Sel- fosskirkju 16. apríl. Mér fannst alltaf svo gaman að koma til þín bæði í Austurey og seinna í Hvera- gerði. Þú kenndir mér mörg spil og það var svo gaman að spila við þig. Þú varst alltaf svo hress og lífleg. Það átti svo vel við þig að fara í Hveragerði og hitta þar fullt af fólki sem fannst líka gaman að spila. Ég held að þú hafir spilað hvern einasta dag eða þar til áfallið dundið yfir. Allar þær minningar sem ég á í huga mínum munu lifa eins lengi og ég. Amma. Ég mun sakna þín sárt. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þín Sigurrós Lilja. Elsku Hermannía. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum þig. Ég man svo vel eftir þér kvöldið áður en þú veiktist. Þú varst að sýna mér föt sem þú ætl- aðir að hafa með þér á Örkina. Hvort þetta eða hitt passaði sam- an. Þú varst eins og stelpa að fara út á lífið. Með þitt létta skap og spilin í vasanum voru þér allir veg- ir færir. Þú vildir fylgjast með í sveitinni og alltaf varstu tilbúin í sláturgerð með mér. Þær eru orðnar ansi margar hrærurnar hjá þér. Aldrei notaðir þú vigt, allt eftir hendinni og það stóð. Við fórum saman í ferðalög ásamt öðrum. Eitt sinn til Edin- borgar og á Snæfellsnesið. Þú varst Snæfellingur, fædd þar og uppalin, varst stolt af því. Síðasti bíltúrinn okkar saman var á afmælisdaginn þinn 25. sept- ember þegar þú varðst 80 ára. Þér fannst svo gaman að ferðast og sjá þig um sveitir og land. Þú komst oft með mér í Stóra-Dal þegar ég náði í Ragnar Bjarka. Hann mun sakna þín mjög og spyrja um ömmu. Hermannía mín, hafðu þökk fyr- ir allt og allt. Takk fyrir tímann sem með þér við áttum. Ljós þitt mun loga og leiðbeina áfram, lýsa upp veg okkar fram á við. Gefi þér Guð og góðar vættir góða tíð eftir kveðjuna hér, þinn orðstír mun lifa um ókomna daga – indælar minningar hjarta okkar ber. (P.Ó.T.) Þín Fríða. Fyrir hálfum fjórða áratug var Golfklúbb- urinn Keilir stofnaður og vinna hófst þá við golfvallargerð á túnum nokkurra smájarða á Hvaleyri. Flest var þá með byrj- endabrag og hópurinn sem síðan myndaði hinn harða kjarna var merkilegur þverskurður af flestum stéttum þjóðfélagsins. Þar voru virðulegir hæstaréttarlögmenn, en einnig sjómenn, listamenn, flug- menn, prentarar, læknar, múrarar og margir fleiri. Þar var einnig vél- smiðurinn Pétur Auðunsson sem hér er kvaddur. Pétur var ekki langt að kominn; Hafnfirðingur að uppruna og aðeins snertuspölur út á Hvaleyri frá vél- smiðjunni sem bar nafn hans. Gamla íbúðarhúsið í Vesturkoti varð klúbb- hús og þar mátti oft heyra rödd Pét- urs þegar menn ræddu um völlinn eða golfreglur sem menn þekktu ugglaust ekki út í hörgul á þessu PÉTUR AUÐUNSSON ✝ Pétur Auðunssonfæddist í Hafnar- firði 16. mars 1924. Hann lést á St. Jós- efsspítala 13. apríl síðastliðinn. Pétur var jarðsunginn frá Víðistaðakirkju föstudaginn 19. apr- íl. byrjunarstigi. Þeim sem mynduðu þennan fyrsta kjarna Keilis eru þessar líflegu umræður minnisstæðar; stund- um með slíkum gný að mörgum þótti nóg um. Pétur hafði krafta í kögglum eins og með þarf í hans fagi og handstyrkur hans nýttist honum vel í golfinu. En jafnframt náði hann góðum tök- um á hinum fínlegri þáttum golfsins; tók þátt í keppnum framan af og þótti liðtækur. Keppnisskapið brást honum ekki, en allt lét undan síga þegar heilsan gaf sig smám saman. En Pétur missti aldrei áhugann; hugur hans var mjög bundinn við golfvöllinn á Hvaleyri og oft mátti sjá hann koma akandi á bílastæðið og horfa yfir völl- inn eftir að hann hætti í rauninni að geta leikið. Sú var tíð að Keilisfélagar þekkt- ust allir, en þegar félagarnir skipta orðið hundruðum er sú tíð að baki. Allir eiga golfið sem sameiginlegt áhugamál en félagsskapurinn er að sjálfsögðu frábrugðinn því sem var á fyrstu áratugum Keilis í Vesturkoti. Frumherjarnir falla frá og þeir sem verða þeirrar gæfu aðnjótandi að geta leikið golf fram eftir árunum taka eftir því að þeir þekkja sífellt færri og færri í golfklúbbnum sínum. Að enduðu verður það eitt eftir að virða fyrir sér völlinn af bílastæðinu. Þannig er lífið. Við þökkum Pétri Auðunssyni fyr- ir samfylgdina og sendum fjölskyldu hans samúðarkveðjur. Keilisfélagar. ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minningar- greina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.