Morgunblaðið - 03.05.2002, Qupperneq 56
56 FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
#
" BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
SENN líður að borgarstjórnakosn-
ingum. R-listinn, hræðslubandalag
vinstrisinna, býður nú fram í þriðja
sinn í von um sigur. Athyglisvert er
að nú hefur orðið sú breyting á, að
gamlir kommar, lengst til vinstri, svo-
kallaðir Vinstri grænir, hafa ekki
bara náð lykilaðstöðu í framboðinu,
heldur eru þeir gerðir að forystuafl-
inu og fulltrúi þeirra látinn leiða
listann. Þarna er því um mikla póli-
tíska tímaskekkju að ræða og hlýtur
að vera mörgum kjósendum verulegt
áhyggjuefni, sérstaklega þeim sem
aðhyllast frjálslynd viðhorf og vilja
stuðla að framförum á sem flestum
sviðum, borgarbúum til heilla.
Framsókn lætur
sig aftur hverfa
Athyglisverðast er þó það að
Framsóknarflokkurinn skuli enn og
aftur láta sig hverfa inn í þetta
hræðslubandalag vinstrimanna og nú
undir forystu þessa róttæka vinstri-
flokks. Stjórnmálaflokks, sem sann-
arlega mun hér eftir sem hingað til,
hafa allt á hornum sér og verða á móti
öllu sem til heilla horfir í málefnum
Reykvíkinga sem landsmanna. Fram-
sóknarflokknum er kannski vorkunn,
því þátttaka hans í vinstra samkrull-
inu undanfarin ár hefur verulega
dregið úr flokksstarfi hans í Reykja-
vík og fylgið við hann þar minnkað
mjög í samræmi við það. Þannig tóku
einungis 16% flokksmanna þátt í
könnun um áframhaldandi þátttöku í
R-listanum og af þeim voru tæp 15%
andvíg. Þetta sýnir betur en orð fá
lýst hvernig komið er fyrir næst-
stærsta stjórnmálaflokki þjóðarinnar
til skamms tíma, í höfuðborg lýðveld-
isins. Stjórnmálaflokki, sem áður fyrr
höfðaði til hinnar þjóðlegu miðju, og
hefði að sjálfsögðu átt að bjóða fram
sem slíkur nú, með nýrri kynslóð
frambjóðenda.
Kosning Björns Bjarnasonar
Fyrir okkur sem stutt hafa Fram-
sóknarflokkinn og erum stuðnings-
menn núverandi ríkisstjórnar kemur
ekki til greina að kjósa úreltar vinstri
áherslur við stjórn borgarmála og
allra síst að taka undir þá draumsýn
borgarstjóra þess efnis, að sigur R-
listans í Reykjavík í komandi borg-
arstjórnakosningum muni ráða úrslit-
um um þróun mála í landsmálapólitík-
inni. Þaðan af síður ber að styðja við
áframhaldandi gegndarlausa skulda-
söfnun, stóraukna skattheimtu og
pólitíska óstjórn, sem einkennt hefur
svo mjög valdatíma R-listans frá upp-
hafi. „Stjórnviska“ Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur borgarstjóra hefur
nefnilega valdið miklum vonbrigðum í
einu mesta góðæri Íslandssögunnar.
Þá „stjórnvisku“ ber alls ekki að
heimfæra á landsvísu, þegar Ingi-
björg haslar sér þar völl innan
skamms. Kosning Björns Bjarnason-
ar til borgarstjóra gæti því orðið bæði
í senn nauðsynlegt andsvar við óraun-
hæfri og hættulegri pólitískri draum-
sýn núverandi borgarstjóra, og til
heilla borgarbúum, og raunar þjóð-
inni allri, eins og mál standa í dag.
GUÐMUNDUR JÓNAS
KRISTJÁNSSON,
bókhaldari.
Höfnum R-listanum
Frá Guðmundi Jónasi
Kristjánssyni:
ÉG HEF alltaf verið þeirrar skoðun-
ar að óæskilegt væri að sömu stjórn-
sýslufulltrúar – t.d. í borgarstjórn,
stjórnuðu mörg kjörtímabil í röð.
Menn fara að umgangast fjármuni al-
mennings sem sína eign og fyrir-
greiðslupólitíkin fer að verða sérþjón-
usta við þá sterkustu.
Það leynir sér ekki að núverandi
borgarstjórn hefur síðastliðið kjör-
tímabil talið sig vera með það góða
fylgisstöðu að hún þyrfti ekki að
hlusta á aðra en þá sem borgarfulltrú-
ar hafa valið sem forgangsaðila.
Flugferð með fáeina útvalda, til að
sýna þeim dýrð drottnandi höfðingja
á kostnað – bendir til skammhlaups í
skynseminni.
Pólitíkusar eru klókir að nýta okk-
ur kjósendur sér í hag fyrir kosning-
ar, með því að vera sífellt að minna á
sig og gefa okkur allskonar loforð,
sem þeir ætla aldrei að efna í sam-
ræmi við loforðið. Við kjósendurnir
göngumst upp í þessu og finnst við
vera bundnir þessum mönnum og
kjósum alltaf það sama, sjálfum okk-
ur til skaða.
Hagsmunir heildarinnar byggjast
ekki á því að við þjónum valdi pólitík-
usa, heldur, að pólitíkusar þjóni sam-
eiginlegum hagsmunum heildarinnar,
óháð pólitískum skoðunum. Óvissan
um það hvar atkvæðið fellur verður
hvatning til að hugsa meira um heild-
ina. Þess vegna þurfum við að skipta
ört um pólitískt vald í stjórnsýslu.
Vegna þessa tel ég rétt að skipta nú
um pólitískt vald í borgarstjórn
Reykjavíkur.
Vegna framboðs Björns Bjarna-
sonar sem borgarstjóraefni sjálfstæð-
ismanna, kemur upp í hugann ávarp
séra Jónmundar Halldórssonar
prests á Stað í Grunnavík er honum
var boðið að sitja borgarstjórnarfund
í Reykjavík undir stjórn Bjarna
Benediktssonar. Töluvert hafði verið
um fólksflutninga úr Grunnavík og
suður.
Í ávarpi sínu sagði séra Jónmund-
ur:
„Mig dreymdi ekki alls fyrir löngu
að ég kom til himnaríkis og hitti þar
fyrir sjálfan Sankti-Pétur. Hinn heil-
agi faðir leit á mig byrstur á svip og
spurði: „Séra Jónmundur! Hvað hef-
ur þú gert við sálirnar sem þér var
trúað fyrir norður í Grunnavík?“ Mér
hnykkti ekki lítið við þessa spurningu
postulans. En þegar ég hafði áttað
mig örlítið, svaraði ég skömmustuleg-
ur: „Þær eru víst flestar komnar til
hans Bjarna Benediktssonar.“ Þá
brosti hinn heilagi faðir, tók upp
lyklakippu sína og hleypti mér inn í
hina himnesku sælu.“ (Ársrit sögu-
félags Ísfirðinga).
Það er því ekki ólíklegt að Pétri sé
allvel til Björns. Það gæti því komið
landbyggðarprestum vel á mikilvægri
stund, ef Björn kæmist að sem borg-
arstjóri í Reykjavík.
GUÐVARÐUR JÓNSSON,
Hamrabergi 5, Reykjavík.
Handhafi valds í eina sek-
úndu á fjögurra ára fresti
Frá Guðvarði Jónssyni: