Morgunblaðið - 03.05.2002, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 59
DAGBÓK
Opið mánudaga—föstudaga frá kl. 10-18
og laugardaga frá kl. 11-15
Skólavörðustíg 2 – sími 544 8880.
Glæsilegt úrval minkapelsa
Áttu gamlan pels - langar þig í nýjan?
Komdu með þann gamla og við tökum hann
upp í nýjan.
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Hinn 8.maí nk. verður átt-
ræður Garðar Sigurgeirs-
son, Víkurgötu 11, Súðavík.
Af því tilefni taka hann og
kona hans, Ragnheiður
Gísladóttir, á móti ættingj-
um og vinum í Grunnskól-
anum í Súðavík laugardag-
inn 4. maí milli kl. 15 og 18.
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 3. maí,
er fimmtugur Aðalsteinn
Gottskálksson, Norðurtúni
19, Bessastaðahreppi. Kona
hans er Fríða Björk Gunn-
arsdóttir. Þau hjónin taka á
móti vinum og ættingjum í
dag í hátíðarsal Íþróttamið-
stöðvar Bessastaðahrepps
kl. 19–22.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert gefinn fyrir útiveru
og nýtur þín best úti í nátt-
úrunni. Sjálfsstjórn þín vek-
ur aðdáun annarra.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Fátt er dýrmætara í lífinu en
að eiga góða vini svo leggðu
þig fram um að halda þeim.
Sýndu fyrirhyggju í fjármál-
um því óvæntir atburðir geta
gerst.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú gerir rétt í því að ræða
hugmyndir þínar við félaga
þinn því sameiginlega eigið
þið auðvelt með að hrinda
þeim í framkvæmd og getið
haft hag af þeim.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Taktu mark á ráðleggingum
þeirra sem láta sér annt um
þig, en mundu að þú verður
fyrst og fremst að gera hlut-
ina upp við sjálfan þig.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert ekki nógu harður í
samskiptum við aðra og
þyrftir að taka þig á og vera
fastari fyrir. Taktu ekki öllu
sem sjálfsögðum hlut.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ýmsir möguleikar eru í stöð-
unni svo þú skalt ekki skrifa
undir neitt fyrr en þú hefur
kynnt þér alla möguleika.
Eitthvað gæti komið þér á
óvart.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú átt auðvelt með að laða
fram það besta í öðrum og
miðla málum þegar menn eru
ekki á eitt sáttir. Hlúðu líka
að sjálfum þér og gefðu þér
tíma til að leita að innri friði.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þér finnast öll spjót standa á
þér þannig að þú hafir lítið
svigrúm. Reyndu að skipu-
leggja tíma þinn þannig að þú
getir sinnt sjálfum þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Láttu það vera að flýta þér
um of því það býður þeirri
hættu heim að þú skilar ekki
þínu besta. Með yfirvegun
vinnur þú best
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Gerðu sjálfum þér eitthvað
gott í dag því það er fyrir öllu
að þú sért ánægður með sjálf-
an þig. Að öðrum kosti getur
allt farið úrskeiðis.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú gætir lent í því að hæfni
þín sé dregin í efa. Láttu sem
ekkert sé því þú munt upp-
skera laun erfiðis þíns.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að hafa frumkvæði
að því að grafast fyrir um or-
sakir afskiptasemi vinnu-
félaga þíns. Þótt aðstæður
séu snúnar ættirðu að reyna
að sýna aðgát í nærveru sál-
ar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér gætu boðist nýir mögu-
leikar sem þú ert ekki viss um
hvernig þú getur notfært þér.
Gefðu þér tíma til að velta því
fyrir þér því ekkert liggur á.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
ERINDI Í NJÁLU UM
GUNNAR Á HLÍÐARENDA
Engr var sólar slöngvir
sandheims á Íslandi
(hróðr er) af heiðnum lýðum
(hægr) Gunnari frægri.
Njörðr nam hjálma hríðar
hlífrunna tvá lífi,
sár gaf stála stýrir
stórum tólf ok fjórum.
Þormóður prestur Ólafsson
1. c4 Rf6 2. Rc3 b6 3. d4 Bb7
4. d5 e6 5. a3 Bd6 6. Rf3 O-O
7. e4 exd5 8. exd5 He8+ 9.
Be2 c5 10. O-O Bf8 11. Bd3
d6 12. Bg5 Rbd7 13. Bc2 h6
14. Bh4 a6 15. a4 Dc7 16. Rd2
g6 17. f4 Bg7 18. Df3 b5 19.
axb5 axb5 20. Rxb5 Db6 21.
Hxa8 Bxa8
22. Ba4 Da5
23. Rc3 Hb8
24. Bb5 Db4
25. Rde4
Rxe4 26.
Rxe4
Staðan
kom upp á
meistara-
móti Kúbu
sem lauk
fyrir
skömmu.
Neuris Delg-
ado (2506)
hafði svart
gegn gamla
brýninu Jes-
us Nogueir-
as (2521).
26 … Hxb5! 27. cxb5 Bxd5
28. He1 f5 29. Da3 Bd4+ 30.
Kh1 Dxa3 31. bxa3 Bxe4 32.
Be7 d5 33. a4 Bc3 34. Hc1 d4
og hvítur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, föstudaginn 3. maí, eiga 50 ára
hjúskaparafmæli hjónin Elín Sigurðardóttir ljósmóðir og
Sigurður Ágústsson flugvallarvörður, Laufásvegi 14,
Stykkishólmi. Þau eru að heiman í dag.
Með morgunkaffinu
Mamma var-
aði mig við
piltum eins
og þér,
Steini, en ég
hélt að hún
væri að
grínast!
MORGUNBLAÐIÐ birt-
ir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ættar-
mót og fleira lesendum
sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100,
sent í bréfsíma 569-
1329, eða sent á netfang-
ið ritstj@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
HINDRUNARSAGNIR
bera nafn með rentu. Nán-
ast undantekningarlaust
tekst að hindra einhvern
við borðið og makker er
þar síður en svo undan-
skilinn. Lesandinn ætti
fyrst að líta á spil suðurs í
einangrun og reyna að
finna viturlegt framhald
eftir opnun norðurs á
þremur laufum. Spilið er
frá úrslitum Íslandsmóts-
ins í tvímenningi:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ –
♥ 7653
♦ 986
♣ÁDG642
Vestur Austur
♠ 76432 ♠ DG10
♥ ÁD108 ♥ G42
♦ 54 ♦ DG732
♣95 ♣87
Suður
♠ ÁK985
♥ K9
♦ ÁK10
♣K103
Suður á falleg spil – 20
punkta í ásum og kóngum
og það þarf lítið annað en
ásinn sjöunda í laufi hjá
makker til að gera slemmu
góða. Hins vegar er gosinn
sjötti tæplega nóg, en
sumir hika ekki við að
opna á þremur með slík
spil í fyrstu hendi utan
hættu.
Á einu borði vissi suður
ekki sitt rjúkandi ráð, en
ákvað þó að spyrja um ása
með fjórum gröndum.
Áætlunin var þá að passa
fimm lauf ef makker var
áslaus, en fara ella í
slemmu:
Vestur Norður Austur Suður
– 3 lauf Pass 4 grönd
Pass 5 tíglar Pass 6 grönd
Pass Pass Pass
Suður sagði sex grönd
frekar en sex lauf af tveim-
ur ástæðum: Hann vildi
vernda hjartakónginn fyr-
ir útspili og svo var þetta
tvímenningur. Það var
gæfuleg ákvörðun. Vestur
lagði af stað með hjartaás-
inn (tvímenningsóttinn við
slagaþjófnað) og spilaði
svo laufi.
Sagnhafi á nú ellefu
slagi og gerir best í því að
tvísvína fyrir DG í tígli til
að ná í þann tólfta. Það
heppnast, en suður ákvað
að fara aðra leið. Hann tók
slaginn heima, svo hjarta-
kóng og laufin öll. Vonin
var sú helst að vörnin
henti vitlaust af sér, en í
reynd þvingaðist austur í
spaða og tígli og munaði
þar mikið um spaðaNÍU
suðurs. Tólf slagir og 36
stig af 38 mögulegum, en
þrír sagnhafar sögðu og
unnu sex grönd.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Alltaf á þriðjudögum