Morgunblaðið - 19.06.2002, Side 1
141. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 19. JÚNÍ 2002
sprengjutilræðinu í Jerúsalem á
hendur sér. Er þetta 69. sjálfsmorðs-
árás Palestínumanna á 21 mánuði.
Tilræðismaðurinn, 22 ára háskóla-
nemi, sagði í kveðjubréfi að hann
hefði tvisvar áður reynt að gera
sprengjuárás í Ísrael.
Reynt að afstýra frekari
tilræðum í Jerúsalem
Lögreglustjóri Jerúsalem, Micky
Levy, sagði að lögreglan væri að
leita að Palestínumönnum sem væru
grunaðir um að undirbúa fleiri
sprengjuárásir í borginni.
Gert er ráð fyrir því að George W.
Bush Bandaríkjaforseti kynni í vik-
unni nýja áætlun sem miðast að því
að binda enda á átök Ísraela og Pal-
estínumanna og búist er við að hann
leggi m.a. til að Palestínumenn stofni
bráðabirgðaríki að því tilskildu að
PALESTÍNUMAÐUR varð sjálfum
sér og nítján öðrum að bana í Jerú-
salem í gær þegar hann sprengdi
naglasprengju í strætisvagni sem
var fullur af skólabörnum og fólki á
leið til vinnu. Heimastjórn Palestínu-
manna fordæmdi árásina og sagði
hana minnka líkurnar á því að Pal-
estínumenn gætu stofnað eigið ríki.
Ísraelsstjórn kenndi Yasser Arafat,
leiðtoga Palestínumanna, um árás-
ina og ákvað að svara henni með
„ýmsum hernaðaraðgerðum“, að
sögn ísraelska ríkisútvarpsins í gær-
kvöldi.
Útvarpið sagði að stjórn Ísraels
hefði rætt þann möguleika að reka
helstu aðstoðarmenn Arafats í út-
legð, ekki þó hann sjálfan. Ísraelskir
skriðdrekar voru sendir inn í flótta-
mannabúðir í Jenín á Vesturbakka
Jórdanar í gærkvöldi og nutu vernd-
ar herþyrlna sem skutu flugskeytum
þegar Palestínumenn hleyptu af
byssum á skriðdrekana.
Íslömsku samtökin Hamas lýstu
bundinn verði endi á árásir hryðju-
verkamanna í Ísrael. Ariel Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, fussaði við
þessari tillögu þegar hann skoðaði
flak strætisvagnsins eftir tilræðið í
gær og sagði blóðsúthellingarnar
„sterkari rök en nokkur orð“ gegn
palestínsku ríki. „Palestínuríki? Það
væri áhugavert að vita hvers konar
Palestínuríki þeir eru að tala um,“
sagði hann.
Bush fordæmdi blóðsúthellingarn-
ar í gær og sagði að Palestínumenn
yrðu að hafna hryðjuverkum og
drápum. Bandarískir embættismenn
sögðu að gert væri ráð fyrir því að
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, færi til Mið-Austur-
landa skömmu eftir að Bush kynnti
nýju friðaráætlunina.
Palestínska heimastjórnin gaf út
yfirlýsingu þar sem hún fordæmdi
árásina á strætisvagninn og sagði að
markmið palestínsku hryðjuverka-
mannanna væri að „hindra tilraunir
þjóða heims til að binda enda á her-
nám Ísraela og stuðla að stofnun
Palestínuríkis við hliðina á Ísr-
aelsríki“.
Heimastjórnin sakaði einnig þjóð-
ir heims um að hafa heimilað „stjórn
Ísraels að hefna sín með því að hefja
gereyðingarstríð og þjóðernis-
hreinsanir“ á svæðum Palestínu-
manna.
„Sá eini sem hefur hag af þessari
árás er Sharon. Ísraelsstjórn mun
nota tækifærið til að herða árásirnar
á heimastjórnina,“ sagði Yasser
Abed Rabbo, upplýsingamálaráð-
herra heimastjórnarinnar.
Ísraelar sökuðu heimastjórnina
um að tala tveim tungum. „Því miður
koma fyrirmælin um drápin frá
sömu mönnum og fordæma þau,“
sagði talsmaður Ísraelsstjórnar.
Tuttugu manns bíða bana í sprengjuárás Palestínumanns í Jerúsalem
Óttast að árásin hindri
stofnun Palestínuríkis
„Eins og Guð hefði“/24
Jerúsalem. AFP, AP.
Ísraelsher ræðst inn í flóttamanna-
búðir í Jenín á Vesturbakkanum
KNATTSPYRNUSTJÖRNUR
á borð við Ronaldo þurfa ekki
að hafa áhyggjur af starfinu
sínu, enn sem komið er að
minnsta kosti.
Heims-
meistara-
keppni vél-
menna í
knattspyrnu
hefst í Japan
í dag, en
skipuleggj-
endur henn-
ar segja að
það verði
ekki fyrr en
eftir hálfa öld sem þeir geti
gert sér vonir um að tefla fram
vélmennaliði sem geti sigrað
heimsmeistarana í knatt-
spyrnu.
„Þegar ég fylgist með hreyf-
ingum Ronaldos virðist mark-
mið okkar harla vonlaust,“
sagði Minoru Asada, prófessor
í vélmennatækni við Osaka-há-
skóla.
Búist er við að 193 lið frá 30
löndum taki þátt í heimsmeist-
arakeppni vélmenna í japönsku
borginni Fukuoka. Reglurnar
eru að mestu þær sömu og í
venjulegum knattspyrnuleikj-
um, vélmennin hlaupa um
teppalagðan völl, sparka á milli
sín bolta og fá gul spjöld brjóti
þau af sér. Aðeins vantar rang-
stöðuregluna og yfirvöld þurfa
ekki að hafa áhyggjur af knatt-
spyrnubullum.
Fyrsta heimsmeistarakeppni
vélmenna var haldin fyrir sex
árum með þátttöku nokkurra
liða kassalaga þjarka sem gátu
varla hreyft sig. Að þessu sinni
taka tugir vélmenna með skýr
einkenni manna þátt í knatt-
spyrnunni en ekki er búist við
mörgum mörkum, nema úr
vítaspyrnum.
AP
Japanskt knatt-
spyrnuvélmenni.
Ætla að
sigra menn-
ina eftir
hálfa öld
Tókýó. AP.
MILLJÓNIR manna fögnuðu á götum borga í
Suður-Kóreu í gær eftir sigur landsins á Ítalíu í
sextán liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu. Eru þetta ein af óvæntustu úrslit-
unum í 72 ára sögu keppninnar.
Suður-kóreskir áhorfendur fagna hér sigr-
inum á knattspyrnuleikvanginum í Daejeon þar
sem leikurinn fór fram. Tvö þúsund flugeldum
var skotið af þökum skýjakljúfa í Seoul og Da-
ejeon þegar sigurmarkið, svokallað gullmark,
var skorað á 117. mínútu.
Lögreglan sagði að um 4,7 milljónir manna
hefðu safnast saman á götum suður-kóreskra
borga, þar af 1,7 milljónir í Seoul, til að fylgj-
ast með leiknum sem sýndur var á risastórum
skjám. Eru þetta fjölmennustu samkomur í
sögu Suður-Kóreu.
Um 300.000 Kóreumenn komu til Daejeon til
að geta verið nálægt knattspyrnuleikvanginum
þótt enginn möguleiki væri á að þeir kæmust á
leikinn. Margir foreldrar höfðu samband við
lögreglu með tárin í augunum til að tilkynna að
þeir hefðu týnt börnum sínum í fagnaðarlát-
unum.
Stúlkur á táningsaldri hafa setið um hótel
suður-kóreska landsliðsins í Daejeon í von um
að sjá þjóðhetjunum bregða fyrir og neitað að
hlýða foreldrum sínum og lögreglumönnum
sem hafa reynt að fá þær til að fara heim til sín
á næturnar.
Mikil reiði ríkti hins vegar á Ítalíu og stjórn-
sýsluráðherra landsins, Franco Frattini, sagði
að Ítalir hefðu ekki komist í átta liða úrslitin
vegna „dómarahneykslis“. „Það var eins og
þeir hefðu bruggað launráð og ákveðið fyr-
irfram að kasta okkur út úr keppninni,“ sagði
ráðherrann.
S-Kóreu-
menn í
sigurvímu
Reuters Kóreumartröð/ B2
YFIRVÖLD í Sádi-Arabíu hafa
handtekið ellefu Sádi-Araba, einn
Súdana og Íraka sem tengjast al-
Qaeda, hryðjuverkasamtökum
Osama bin Ladens, og eru grunaðir
um að hafa lagt á ráðin um sprengju-
og flugskeytaárásir á mikilvæg
mannvirki í landinu.
Súdaninn og sex Sádi-Arabanna
eru taldir hafa reynt að skjóta flug-
skeyti á bandaríska herþotu á flug-
velli í Sádi-Arabíu.
Er þetta í fyrsta sinn sem skýrt er
frá handtökum meintra liðsmanna
al-Qaeda í Sádi-Arabíu.
Sádi-Arabía
Al-Qaeda-lið-
ar handteknir
Jiddah. AP.