Morgunblaðið - 19.06.2002, Page 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HEIMILISMÁLARI, ATVINNUMÁLARI,
LANDSLAGSMÁLARI, LISTMÁLARI?
Dugguvogi 4 • www.slippfelagid.is
Allt fyrir málarann og myndlistarmanninn í Litalandi,
nýrri verslun okkar í Domus Medica.
Komdu og fáðu góð ráð þegar þú ætlar að mála.
Domus Medica við Snorrabraut
Í TILEFNI af kvennadeginum,
19. júní, hefur verið tekinn saman
ýmis fróðleikur um kvenréttinda-
mál á mbl.is.
Þar má m.a. finna upplýsingar
um áfanga í íslenskri kvenrétt-
indabaráttu auk þess sem stiklað
er á stóru í sögu Kvennahlaups
ÍSÍ og fjallað er um Aung San Suu
Kyi sem hefur barist fyrir lýðræð-
islegum umbótum í Búrma. Einn-
ig er þar að finna ártöl og áfanga í
sögu íslenskra kvenna ásamt list-
um yfir kvenforseta og forsætis-
ráðherra víða um lönd.
Umfjöllunina má finna með því
að smella á hnapp sem er að finna
efst í hægri dálki á forsíðu mbl.is
eða undir hausnum „Nýtt á
Efni um kvenna-
daginn á mbl.is
FJÖGUR biðu bana er bíll sem þau
voru farþegar í lenti í Blöndulóni á
mánudagskvöld. Ökumaðurinn
slapp ómeiddur. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar á Blönduósi
virðist ökumaðurinn hafa misst
stjórn á bílnum við svonefnda
Kolkustíflu þar sem bíllinn fór yfir
lágan garð og niður í lónið, fjórum
til fimm metrum neðar. Lögreglan
telur bílinn, Pajero-jeppa, ekki hafa
verið á miklum hraða.
Þau sem fórust voru Jing Li, eig-
inkona ökumannsins, fædd 27. júlí
1970, Albert Junchen Li, sonur
þeirra á fyrsta ári, fæddur 30. ágúst
2001, og foreldrar ökumannsins,
Shou Yuan Li, fæddur 29. septem-
ber 1936, og Xiuping Lin, fædd 15.
ágúst 1942. Þau voru af kínversku
bergi brotin og öll búsett í Læk-
jasmára 21 í Kópavogi.
Fólkið var á ferð suður Kjalveg á
þremur bílum. Samferðamenn
fólksins gátu kallað á lögreglu en
GSM-samband er stopult á þessum
slóðum og varð að aka spölkorn frá
slysstaðnum til að unnt væri að
hringja. Lögreglan á Blönduósi
fékk tilkynningu um slysið um kl.
21 og var komin á vettvang um hálf-
tíma síðar. Kafari frá Skagaströnd
var einnig kallaður á slysstað. Lög-
reglan kallaði jafnframt strax til
starfsmenn í Búrfellsstöð sem fóru
rakleiðis á slysstað enda um styttri
veg að fara. Auk lögreglu voru
sjúkralið, slökkvilið og björgunar-
sveitir kallaðar út. Þyrla Landhelg-
isgæslunnar var kölluð út kl. 21.35.
Kom hún á slysstað laust fyrir kl.
23 og var áhöfn þyrlunnar lögregl-
unni til aðstoðar.
Í læknisskoðun á Blönduósi
Kristján Þorbjörnsson, yfirlög-
regluþjónn á Blönduósi, segir að
þegar að var komið hafi verið ljóst
að fólkinu yrði ekki bjargað. Fór
hann niður að bílnum sem var í kafi
og braut rúðu en bíllinn var þá full-
ur af vatni. Hlúð var að ökumann-
inum sem reyndist ekki slasaður.
Prestur kom á staðinn og síðan hélt
hópurinn til læknis á Blönduósi.
Síðar um nóttina var hópnum ekið
til Reykjavíkur.
Slysið varð á vegarkafla við
Blöndulón þar sem hann liggur við
Kolkustíflu við suðurhluta lónsins.
Telur lögreglan að bíllinn hafi kast-
ast til þegar hann kom á ristahlið á
garðinum og kastast síðan uppá lág-
an varnargarð til vinstri og ofan í
lónið. Bíllinn náðist upp síðar um
kvöldið og var fluttur til Blönduóss.
Unnið er að rannsókn á slysinu
og verður ítarleg skýrsla tekin af
ökumanninum bráðlega. Fulltrúi
rannsóknanefndar umferðarslysa
fór einnig á vettvang í gær.
Fjórir biðu bana er
bíll fór í Blöndulón
Frá vettvangi við Blöndulón seint á mánudagskvöld.
*
+) ,
#"
+%
"
KONA lést þegar jeppi, sem hún
var farþegi í, fór út af brú um kl.
13 í fyrradag á Finnafjarðará í
Finnafirði sem gengur inn af
Bakkaflóa. Ökumaður, sem komst
sjálfur út úr bílnum, gat kallað eft-
ir hjálp og var hann fluttur á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
en útskrifaður þaðan að kvöldi
sunnudagsins.
Konan hét Þórdís Björgvinsdótt-
ir, fædd 14. september 1944, til
heimilis að Mjóanesi á Austur-Hér-
aði. Hún lætur eftir sig eiginmann
og þrjú uppkomin börn.
Lögreglan á Vopnafirði fékk til-
kynningu um slysið kl. 13.03 á
mánudag og hélt þegar áleiðis af
stað. Björgunarsveitir frá Vopna-
firði, Bakkafirði og Þórshöfn fóru
einnig á vettvang svo og slökkvi-
liðs- og tækjabíll frá Þórshöfn en
hann sinnir bæði Þórshöfn og
Vopnafirði.
Nærri 40 mínútna ferð er frá
Vopnafirði á slysstaðinn og tjáði
Rúnar Valsson, hjá lögreglunni á
Vopnafirði, Morgunblaðinu að lög-
regla frá Þórshöfn hefði verið fljót-
ari á staðinn, 10-15 mínútur, enda
mun styttra að fara. Þá voru björg-
unarsveitirnar á æfingu á Þórshöfn
og voru þær því einnig fljótar á
vettvang. Rúnar sagði að læknir,
sem kom á vettvang frá Þórshöfn,
hefði úrskurðað konuna látna.
Lögreglan segir að bíllinn hefði
komið að einbreiðri brú yfir Finna-
fjarðará að austan. Þoka var, rok
og vatnsveður er slysið varð. Virt-
ist bíllinn hafa lent á vegriði við
brúna og henst eftir því áður en
hann stakkst ofan í ána sem var
nokkuð vatnsmikil og straumhörð.
Hann segir aflíðandi beygju að
brúnni að austan en þegar yfir
hana er komið er kröpp beygja til
norðurs. Níu einbreiðar brýr eru á
veginum milli Þórshafnar og
Bakkafjarðar. Vegrið á brúnni var
endurnýjað fyrir nokkrum árum.
Kranabíll frá Þórshöfn var feng-
inn til að hífa bílinn úr ánni, sem
verður fluttur til Reykjavíkur til
rannsóknar og málið er áfram í
rannsókn hjá lögreglunni á Vopna-
firði.
Lést í bílslysi í Finnafirði
Morgunblaðið/Líney
Bifreiðinni var ekið að brúnni yfir Finnafjarðará að austan, fjær á mynd-
inni, og lenti hún í ánni, sem var nokkuð vatnsmikil og straumhörð.
-
! #
*
ÍSLENSKA landsliðið í opnum flokki
á Evrópumótinu í brids hefur byrjað
ágætlega en mótið hófst á sunnudag.
Eftir sjö umferðir af 37 var liðið í 2.
sæti með 135 stig en Ítalir höfðu for-
ustu með 146 stig. Norðmenn voru í 3.
sæti með 131 stig, Búlgarar höfðu 130
stig og Tékkar og Hollendingar 128
stig hvor þjóð.
Íslenska liðið byrjaði á sunnudag á
að vinna Belga, 25:2, og síðan Letta,
23:6 en Lettar fengu eitt refsistig. Á
þjóðhátíðardaginn 17. júní unnu Ís-
lendingar Austurríkismenn, 16:14, og
síðan Rúmena, 21:9, en í fimmtu um-
ferðinni lutu þeir í lægra haldi fyrir
Spánverjum, 11:19. Í gær vann Ísland
Wales, 24:6 í 6. umferð en í 7. umferð
gerði liðið jafntefli við Skota, 15:15, í
leik sem sýndur var á sýningartöflu. Í
gærkvöld spilaði Ísland síðan við
Mónakó í 8. umferð.
Keppni í kvennaflokki hefst í dag
og þá spilar íslenska kvennaliðið við
Ísrael og San Marínó. Í opnum flokki
verður dagurinn erfiður því þá spilar
íslenska liðið við Ítala, Tékka og Líb-
ana.
Færeyingar taka nú þátt í sínu
fyrsta Evrópumóti. Liðið tapaði
fyrstu þremur leikjum sínum en vann
síðan tvo þá næstu, gegn Portúgölum,
20:10, og Slóvenum, 19:11. Eftir sjö
umferðir voru Færeyingar í 35. sæti
með 80 stig en einu sæti ofar voru
Danir með 82 stig en Danir og einnig
Svíar byrjuðu mjög illa á mótinu þrátt
fyrir að lið þessara þjóða séu skipuð
reyndum landsliðsmönnum.
Ágæt byrj-
un Íslands á
EM í brids
ÍSLENSKA kokkalandsliðið hefur
hlotið tvenn gullverðlaun á Seoul
International Expo 2002, al-
þjóðlegri matreiðslukeppni sem
nú fer fram í Seoul í Suður-
Kóreu.
Í fyrradag hreppti það fyrsta
sæti fyrir framlag sitt í keppninni
um besta kalda borðið og í gær-
morgun bættu íslensku kokkarnir
öðrum gullverðlaunum sínum í
safnið er það hreppti einnig
fyrstu verðlaun í keppninni um
bestu heitu máltíðina.
Í dag verður tilkynnt um sig-
urvegarann í heildarstigakeppn-
inni og er ljóst að það verða ann-
aðhvort Íslendingar eða
Kóreumenn sem bera munu sigur
úr býtum.
Kokkarnir sóttu gull
til Suður-Kóreu