Morgunblaðið - 19.06.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Alþjóðleg sýning fyrir alla í Smáralind
Heilbrigði,
tækni og
vísindi 2002
ÓLAFUR RagnarGrímsson, forsetiÍslands, opnar í
dag sýninguna Heil-
brigði, tækni og vísindi
2002, sem haldin verður í
Smáralind Kópavogi.
Sýningin stendur til 21.
júní og er opin alla dag-
ana frá kl. 10 til 18. For-
setinn er verndari sýn-
ingarinnar.
Á sama tíma og sýn-
ingin stendur fer fram
ráðstefna á sviði heil-
brigðistækni og vísinda,
12 NBC og einnig fyr-
irtækjastefnumót á sviði
heilbrigðistækni. Rætt
var við Ólöfu Söebech hjá
Impru síðastliðinn föstu-
dag og Þórð Helgason
hjá Heilbrigðistækni-
félagi Íslands síðastliðinn laug-
ardag vegna ráðstefunnar og
fyrirtækjastefnumótsins.
Samtök iðnaðarins tóku að
sér að skipuleggja og sjá um
sýninguna og Brynjar Ragnars-
son, markaðsstjóri Samtaka iðn-
aðarins, og sýningarstjóri á sýn-
ingunni í Smáralind, sagði
okkur nánar frá henni.
Hvert er tilefni sýningar af
þessu tagi hér á Íslandi?
Tilefnið er hin alþjóðlega ráð-
stefna 12 NBC sem haldin er í
tólfta sinn frá 1970 og nú í
fyrsta sinn hér á landi. Ráð-
stefnuna situr fjöldi manns sem
starfar á heilbrigðissviði, þar af
eru um 150 útlendingar og fjöl-
margir Íslendingar. Einnig
munu Norræni heilbrigðistækni-
vettvangurinn og IRC Medical
Thematic Group halda fundi
sína hérlendis í tengslum við
sýninguna. Þá fer fram fyrir-
tækjastefnumót þar sem fulltrú-
ar íslenskra og erlendra fyrir-
tækja ræða hugsanleg viðskipti
sín í milli en Impra hefur um-
sjón með stefnumótinu.
Síðast en ekki síst verður
kynnt stofnun sérstaks starfs-
greinahóps íslensks heilbrigðis-
tækniiðnaðar innan Samtaka
iðnaðarins en sú kynning mun
fara fram föstudaginn 21. júní
og hefst kl. 8.30.
Hve margir taka þátt í sýn-
ingu af þessu tagi?
Þátttakendur í sýningunni
eru um 95 og meðal þeirra eru
50 læknar, vísindamenn og
verkfræðingar víðs vegar að úr
heiminum sem kynna verkefni
sín í heilbrigðistækni og vísind-
um af hvaða tagi sem er á heil-
brigðissviði. Auk þess kynna 45
fyrirtæki á sviði heilbrigðis-
tækni starfsemi sína, þar af
fjögur erlend.
Hverjir standa að sýning-
unni?
Helstu aðstandendur sýning-
arinnar eru Heilbrigðistækni-
vettvangurinn, Sam-
tök iðnaðarins,
Heilbrigðistæknifélag
Íslands, Nýsköpunar-
sjóður, Rannsóknar-
ráð Íslands, heilbrigð-
isráðuneytið, iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytið og
Impra.
Er sýningin öllum opin?
Öllum er heimill aðgangur að
sýningunni gegn vægu gjaldi
sem rennur til kaupa á lækn-
ingatækjum fyrir börn og
barnabörn Íslands í samvinnu
við Lionsklúbbinn Fjörgyn og
Barnaspítala Hringsins.
Hvert er gildi sýningar og
ráðstefnu af þessu tagi?
Í nýrri úttekt, sem gerð var á
vegum Heilbrigðistæknivett-
vangs sem Samtök iðnaðarins
standa að, kemur fram að velta
íslensks heilbrigðistækniiðnaðar
var um 30 milljarðar króna á sl.
ári. Þessi fjárhæð kemur mörg-
um utan greinarinnar á óvart
þar eð aðeins rúmur þriðjungur
hennar kemur fram í íslenskri
þjóðarframleiðslu en skýringu á
þeim mismun er að finna í veltu
dótturfyrirtækja íslenskra fyr-
irtækja erlendis. Þessi niður-
staða sýnir, svo að ekki verður
um villst, að greinin er orðin ný
stóriðja í íslensku atvinnulífi og
þarf að eignast öflugan vettvang
til að vinna að sameiginlegum
hagsmunum, samskiptum og
þróun. Stór og smá fyrirtæki
innan þessarar starfsgreinar
eru nú þegar innan Samtaka
iðnaðarins en til að
þétta samstöðuna enn
frekar vilja Samtökin
bjóða fleiri fyrirtækj-
um innan greinarinn-
ar að ganga í SI og
taka þátt í að vinna að
sameiginlegum hagsmunum
hennar.
Landsmenn eru hvattir til að
koma í Vetrargarðinn í Smára-
lind Kópavogi og sýna stuðning
í verki í söfnun sýningarinnar til
kaupa á lækningatækjum fyrir
börn á Íslandi, í samvinnu við
Lionsklúbbinn Fjörgyn og
Barnaspítala Hringsins.
Brynjar Ragnarsson
Brynjar Ragnarsson, mark-
aðsstjóri Samtaka iðnaðarins,
fæddist 17. maí 1966. Útskrif-
aðist sem tækniteiknari úr Iðn-
skóla Hafnarfjarðar 1984, starf-
aði með námi á tæknideildum og
verkfræðistofum en hóf störf
sem útlitshönnuður hjá Morg-
unblaðinu þá um haustið. 1987
stofnaði Brynjar auglýsingastofu
og starfaði sem sjálfstæður
hönnuður og ráðgjafi í 10 ár eða
þar til hann söðlaði um og réði
sig til Samtaka iðnaðarins sem
markaðsstjóri árið 1997. Brynjar
hefur nú starfað síðastliðin 5 ár
hjá SI við markaðs- og kynning-
armál, þróun, hönnun og ráðgjöf
auk þess sem hann tekur að sér
skipulagningar vörusýninga,
kaupstefna, ráðstefna og ann-
arra viðburða Samtakanna og
samstarfsaðila. Kona hans er
Sigrún Jónsdóttir hjúkr-
unarfræðingur og eiga þau tvö
börn, Ingu Huld og Ragnar.
Allur ágóði til
kaupa á lækn-
ingatækjum
fyrir börn
Ekki eru allir jafn par hrifnir með að 58 ára afmæli Nonna Boy
væri haldið með kínverskum stæl.
STANDARD +
Bílskúrs-
hurðir
Sími 525 3000 • www.husa.is
STANDARD+ bílskúrshurðirnar frá Garaga
eru framleiddar undir ströngu eftirliti í
mörgum stærðum og litum. Framleiddar
með varanleika og fallega hönnun í huga.
PRESTASTEFNAN verður haldin
dagana 19. og 20. júní á Egils-
stöðum. Helsta viðfangsefni
prestastefnunnar að þessu sinni
verður stefnumótun fyrir Þjóð-
kirkjuna.
Prestastefna hefst með messu í
Egilsstaðakirkju kl. 9 fyrir hádegi í
dag, 19. júní, en síðan setur biskup
Íslands prestastefnuna og flytur
yfirlitsræðu sína þar sem fjallað er
um starfsemi Þjóðkirkjunnar. Að
því loknu verður tekið fyrir helsta
verkefni prestastefnunnar en það
er að þessu sinni stefnumótun fyrir
Þjóðkirkjuna. Dr. Runólfur Smári
Steinþórsson, dósent við Háskóla
Íslands, flytur erindi sem nefnist
„Hvað er stefnumótun? Hvers
vegna að fara í stefnumótun?“
Því næst verður þátttakendum á
prestastefnu skipt upp í hópa þar
sem fer fram greining á stöðu
Þjóðkirkjunnar í samtímanum,
styrkleikum hennar og veikleikum,
tækifærum sem hún hefur og ógn-
unum sem að starfi hennar stafa.
Seinni dag Prestastefnunnar verða
síðan niðurstöður þessarar grein-
ingarvinnu kynntar. Af öðrum mál-
um sem tekin verða fyrir á presta-
stefnu má nefna umfjöllun um
svokallað brauðamat og nefnd sem
fjallar um val á prestum mun
kynna störf sín.
Stefnumótun
rædd á
prestastefnu
á Egilsstöðum
♦ ♦ ♦
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók
á mánudagskvöld tæplega fertugan
karlmann sem grunaður er um að
hafa tilkynnt um sprengju í danska
sendiráðinu fyrr um kvöldið. Hann
mun eiga við andleg veikindi að stríða.
Tilkynning um að sprengja væri í
sendiráðinu barst um klukkan 19 og
lokaði lögregla þá götum í nágrenninu
og kallaði til sprengjusérfræðinga
Landhelgisgæslunnar. Engin
sprengja fannst og var hættuástandi
aflýst á tíunda tímanum.
Hótun um
sprengju í
sendiráði