Morgunblaðið - 19.06.2002, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.06.2002, Qupperneq 12
FRÉTTIR 12 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ FRAKKINN Francois Scheefer, sem deilt hefur um forræði yfir tæplega þriggja ára gamalli dóttur sinni við franska móður hennar, var staddur hér á landi fyrr í þess- um mánuði til að freista þess að hitta barnið. Scheefer hitti ekki dóttur sína að þessu sinni en hann hafði óskað eftir því að eiga fund með henni án afskipta opinberra aðila. Scheefer var síðast á Íslandi í maí á þessu ári og átti þá klukku- stundarlangan fund með dóttur- inni, Lauru Sólveigu, undir eftirliti lögreglu. Hann segist undrandi á viðbrögðum íslenskra stjórnvalda í málinu. Morgunblaðið átti viðtal við móður barnsins, Caroline Lefort, skömmu eftir að hún sneri frá Frakklandi með dóttur sína í lok mars á þessu ári, eftir að hafa numið hana á brott úr höndum barnsföður síns í Lille. Scheefer segir að umræðan hér á landi hafi dregið nokkuð dökka mynd af sér og hefur því óskað eftir að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Scheefer hefur áður sagt að hann líti svo á að íslenskir dóm- stólar hafi ekki lögsögu í forsjár- deilunni og að samkvæmt frönsk- um lögum beri að flytja slík mál fyrir í dómstólum í Frakklandi þegar franskir ríkisborgarar eigi í hlut. Sem kunnugt er hefur móðirin bráðabirgðaforræði yfir dóttur sinni samkvæmt úrskurði íslenskra dómstóla og hafa þær verið búsett- ar hér á landi frá því Caroline kom með dóttur sína frá Lille. Scheefer undirstrikar að um- ræða hér á landi um að hann hafi rænt dótturinni frá Íslandi í sept- ember á síðasta ári sé byggð á misskilningi. Hann hafi verið í fullum rétti að fara með hana til Frakklands samkvæmt frönskum lögum. Hann segist á hinn bóginn hafa undir höndum gögn sem bendi til að Caroline hafi ætlað að fara með barnið til Frakklands án hans vitund- ar. Taldi Lauru Sólveigu ekki óhulta hjá móður sinni Scheefer segist hafa kunnað vel við sig á Íslandi þau ár sem hann bjó hér og að hann hafi ákveðið að fara með barnið ut- an fyrst og fremst vegna þess að hann áleit að Laura Sólveig væri ekki óhult hjá móður sinni sem hafi stundum beitt hana harðræði. Hann segist hafa ákveðið að leita álits franskra sérfræðinga en að sú heimsókn hafi aðeins átt að vera tíma- bundin. Þegar deila hjónanna hafi harðnað hafi dvölin ytra dregist á langinn. Scheefer hef- ur leitað réttar síns hjá mann- réttindadómstól Evrópu í Strassborg og segist hafa feng- ið þau viðbrögð þar að dæma bæri í málinu samkvæmt frönskum lög- um. Scheefer bendir á að við skoðun hafi ýmislegt komið fram sem bendi til þess að dóttirin hafi verið beitt harðræði og að barnageð- deild Ríkissjúkrahússins í Lille, sem framkvæmdi skoðunina, hafi komið á framfæri áhyggj- um þess efnis í bréfi til rík- issaksóknara í Frakklandi dag- sett 26. nóvember í fyrra og til barnaverndar Reykjavíkur dag- sett 4. apríl síðastliðinn. Scheefer er gagnrýninn á viðbrögð yfirvalda hér á landi og vísar meðal annars til þess að barnaverndarnefnd hafi ekki svarað fjölmörgum erindum hans og annarra sérfræðinga. Þá hafi Leikskólar Reykjavíkur neitað honum um upplýsingar varðandi dóttur hans þegar hann kallaði eftir þeim hjá stofnuninni. Hefur fundið fyrir velvilja almennings Scheefer segist halda í þá von að báðir foreldrar geti farið með sameiginlegt forræði yfir barninu að undangengnu mati á aðstæðum foreldra. Hann seg- ist hafa mætt miklum velvilja hér á landi meðal almennings en hann geri sér jafnframt grein fyrir að umræðan á Íslandi hafi skaðað málstað hans. Hann ítrekar að hann muni ekki freista þess að nema dóttur sína á brott héðan heldur leggi hann áherslu á að lausn náist fyrir frönskum dóm- stólum. Scheefer hafnaði á sínum tíma skilnaðarbeiðni eiginkonu sinnar og ber við af sömu ástæðum og varða forsjárdeiluna að það mál skuli rekið fyrir frönskum dóm- stólum þar eð þau eru franskir rík- isborgarar auk þess sem aðrar reglur séu í gildi þar. Spurður um eftirmála af átökum sem brutust út þegar Caroline nam barnið á brott frá Frakklandi í lok mars segir Scheefer að hann hafi ekki náð sér að fullu og muni aldrei gera. Meðal annars sé hluti andlits hans dofinn vegna átaka við foreldra og vitorðsmenn þeirra. Áverkavottorð sem læknar á sjúkrahúsinu í Lille gáfu út beri vott um þessa áverka og fleiri. Hann segir ljóst að samkvæmt frönskum refsilögum eigi Caroline yfir höfði sér 10 ára fangelsi vegna málsins og foreldrar hennar enn strangari dóm fyrir að aðstoða hana. Scheefer, sem staddur var hér ásamt aldraðri móður sinni, hafði vonast til að geta hitt dóttur sína þá daga sem hann dvaldi á Íslandi. Hann sagði aðspurður að Caroline hefði nefnt að hugsanlega gæti orðið af því fyrir milligöngu barna- verndar Reykjavíkur. Scheefer undirstrikar hins vegar að hann eigi rétt sem foreldri að hitta barnið án eftirlits opinberra aðila. Eins og áður sagði hitti Scheefer ekki dóttur sína á meðan hann dvaldi hér á landi. Hann segist litl- ar fréttir hafa fengið af dóttur sinni undanfarið og að oft reynist erfitt fyrir hann að ná tali af Car- oline og Lauru Sólveigu. Franskur faðir sem á í forsjárdeilu segir umræðu hér á landi hafa skaðað málstað hans Francois Scheefer segist halda í þá von að báðir foreldrar geti farið með sameig- inlegt forræði yfir barninu að undan- gengnu mati á aðstæðum foreldra fyrir frönskum dómstólum. Morgunblaðið/RAX Vill að málið verði til lykta leitt fyrir frönskum dómstólum TÆPLEGA 19 þúsund konur tóku þátt í Kvennahlaupi ÍSÍ sem haldið var á yfir 90 stöðum um land allt á sunnudaginn, að sögn Gígju Gunn- arsdóttur, framkvæmdastjóra hlaupsins. Í hlaupinu söfnuðust 800-900 þúsund krónur sem runnu til Samhjálpar kvenna. Fjölmennasta hlaupið var í Garðabæ og segir Gígja þátttak- endur þar hafa verið tæplega 7.000. „Þetta er nokkur fækkun síðan í fyrra en við erum samt mjög ánægð með þátttökuna þeg- ar haft er í huga að þetta var löng helgi og margir á faraldsfæti.“ Vigdís Finnbogadóttir flutti ávarp fyrir hlaupið í Garðabæ. Þar var elsta konan sem tók þátt 93 ára en sú yngsta einungis nokk- urra vikna gömul, að sögn Gígju. Morgunblaðið/Árni Sæberg Um sjöþúsund konur tóku þátt í Kvennahlaupi ÍSÍ í Garðabæ á sunnudag. Þúsundir kvenna hlupu KVENNAHLAUP ÍSÍ fór fram á Eskifirði eins og víða annars staðar um land á laugardaginn. Í hlaupinu tóku þátt fjórir ættliðir, ættmóðirin Sigríður Rósa Krist- insdóttir, Guðný Ragnarsdóttir, Rósa Björg Jónsdóttir og Áróra Erika Luciano. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Fjórir ættliðir MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ávarp frá Falun Gong iðkendum: „Þeim fjölmörgu Íslendingum og fjölmiðlum á Íslandi sem hafa stutt Falun Gong og mannréttindamáls- tað Falun Gong færum við okkar einlægustu og hjartanlegustu þakk- ir. Við óskum þess af heilum hug að mega áfram njóta stuðnings ykkar og samhygðar. Falun Gong er ævafornt kín- verskt æfinga- og hugleiðslukerfi til að þroska huga og líkama. Falun Gong snýst um þrjú grundvallarat- riði, sannleiksiðkun, kærleika og umburðarlyndi. Það er friðsamlegt, ópólitískt og öllum opið. Sjálfboða- liðar í yfir 50 löndum víða um heim kenna öllum þeim sem áhuga hafa æfingasamstæður Falun Gong án endurgjalds. Árið 1992 kenndi Mr. Li Hongzhi almenningi fyrst þetta forna æf- ingakerfi. Áhrif Falun Gong á iðk- endur þess og samfélag þeirra voru það jákvæð að tala iðkenda náði 70 milljónum í Kína árið 1999. Fordæmalausar vinsældir Falun Gong ógnuðu alræðisvaldi Kínafor- seta. Í júlí 1999 bannaði hann því iðkun Falun Gong og fyrirskipaði allsherjar rógs- og lygaherferð og ofsóknir á hendur iðkendum. Frá þessum tíma hafa 100.000 saklausir iðkendur verið sendir í fangelsi, þrælkunarbúðir eða á geð- sjúkrahús. Meira en 1.600 hafa ver- ið pyntuð til dauða í gæsluvarðhaldi og milljónum kínverskra fjölskyldna hefur verið splundrað vegna þess- ara ólöglegu og ómannúðlegu of- sókna. Augliti til auglitis við þessar hrottafengnu ofsóknir hafa iðkend- ur Falun Gong samt sem áður hald- ið á lofti undirstöðuatriðum iðkunar sinnar: sannleiksiðkun, kærleika og umburðarlyndi og á sama tíma haldið uppi friðsamlegri opinberri beiðni um að ofsóknunum megi linna. Í júní á þessu ári tóku fjölmargir iðkendur frá hinum ýmsu löndum sér frí frá vinnu og yfirgáfu fjöl- skyldur sínar til þess að ferðast til Íslands á meðan heimsókn forseta Kína á Íslandi færi fram. Við kom- um til þess að bera fram beiðni til kínverskra stjórnvalda, sýna iðk- endum Falun Gong í Kína samstöðu og til þess að standa vörð um sann- leikann. Í hinum óvæntu og ófyrirsjáan- legu erfiðleikum sem mættu okkur hér, voru það þið, fólkið á Íslandi og fjölmiðlar Íslands, sem sýnduð okk- ur fulla samstöðu og samhygð. Sam- hygð til þess að standa vörð um al- heimssannindin, sannleiksiðkun, kærleika og umburðarlyndi og til varnar grundvallarréttindum og frelsis fólks til skoðana, tjáningar og samfélags. Við erum ykkur inni- lega þakklát fyrir að sýna kínverska einræðisherranum með sameigin- legu átaki ykkar að mannréttindi og frelsi eru virt í lýðræðissamfélagi. Stuðningur ykkar hefur sýnt heimsbyggðinni að ofsóknirnar á hendur Falun Gong eru ekki ein- ungis mannréttindamál heldur einn- ig siðferðislegt mál. Þið hafið sýnt öllum heiminum að Íslendingar muni undir öllum kring- umstæðum standa vörð um það sem er rétt. Ótrúlega kröftugur stuðningur ykkar hefur hjálpað öllum Falun Gong iðkendum í Kína að hljóta áheyrn. Góðvild og styrkur allra ykkar sem tókuð ykkur tíma til þess að veita okkur lið og styðja málstað okkar hefur snert okkur djúpt. Þið verðið okkur ævinlega hjart- fólgin. Það sem þið gerðuð til þess að styðja Falun Gong er sögulegur minnisvarði um góðvild ykkar. Með dýpstu virðingu þökkum við fólkinu á Íslandi. Sameiginlega get- um við haldið á lofti grundvallarat- riðunum, sannleiksiðkun, kærleika og umburðarlyndi og gert heiminn betri öllum til handa.“ Þakkir til fólks- ins á Íslandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.