Morgunblaðið - 19.06.2002, Síða 13
FRÉTTR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 13
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Stökktu til
Rimini
4. júlí í tvær vikur
frá kr. 39.663
Verð kr. 39.663
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára.
Flug, gisting, skattar, 4. júlí, tvær vikur.
Staðgreitt. Alm. verð kr. 41.646.
Verð kr. 49.750
M.v. 2 í íbúð, 4. júlí í tvær vikur.
Flug og gisting, skattar.
Staðgreitt. Alm. Verð kr. 52.238.
Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Rimini þann 4. júlí í tvær vikur.
Sumarið er komið og yndislegt veður á þessum vinsæla áfangastað
Íslendinga. Þú bókar núna, og tryggir þér síðustu sætin, og fjórum
dögum fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér hvar þú
býrð. Og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra
Heimsferða allan tímann.
HEKLA • Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000
Heimasíða www.hekla. is • Net fang hekla@hekla. is
Golf
Volkswagen Golf Highline 1.6 beinskiptur: kr. 1.850.000,-
Volkswagen Golf Highline 1.6 sjálfskiptur: kr. 1.995.000,-
Komdu strax og fáðu sumarbílinn í ár!
A
B
X
/
S
ÍA
ár á Íslandi
Volkswagen
NOKKRAR laxveiðiár voru opnað-
ar þessa löngu helgi sem afstaðin
er. Gekk á ýmsu, allt frá því að
menn voru sáttir mjög, t.d. í Langá
og yfir í að menn högguðust varla
úr sófum og rúmum þar eð gríð-
arlegt rok kom í veg fyrir að menn
gætu athafnað sig svo vit væri í.
Átti þetta við t.d. um ár norðan
heiða.
Langá byrjar vel
„Þetta er áin sem var í efsta sæti
ánna með náttúrulegu stofnana í
fyrra og mér finnst hún byrja tit-
ilvörnina vel. Við opnuðum með
átta löxum á land og aðrir átta
tóku, voru þreyttir og sluppu. Við
vorum að fá lax upp um allt, í
Hreimsáskvörn, Kattarfossbrún og
Ásgerðarholtskvörn. Sáum meira
að segja fjóra boltafiska í stiganum
í Sveðjunni. Síðan var líka líf á
neðstu svæðunum eins og vænta
mátti. Vatnið er gott, en það var
orðið ansi hvasst hérna áður en yfir
lauk,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson,
leigutaki Langár, en þar var form-
leg opnun á laugardaginn.
Skin og skúrir fyrir norðan
Sturla Birgisson, kokkur og leið-
sögumaður við Miðfjarðará, sagði
hollið sem opnaði hafa veitt sjö laxa
sem væri ásættanlegt miðað við að
síðustu tvær vaktirnar fóru fáir til
veiða vegna illviðris. „Þessir fiskar
veiddust víða, í Kistunum og Hlíð-
arfossi í Vesturá, gilinu í Austurá
og í Trumbu í Miðfjarðará. Þeir
veiddust allir utan einn á flugu og
þetta voru upp í 15 punda laxar,“
sagði Sturla.
Hildur Helga Gísladóttir í veiði-
húsinu við Víðidalsá sagði í gærdag
að fjórir laxar væru komnir á land.
Fyrsti hópurinn hefði veitt þrjá
laxa, tvo í Ármótum og einn í Dals-
árósi. Hópur númer tvö væri kom-
inn með einn úr Kerinu, en illviðri
væri að spilla sókninni. Þetta voru
allt 10 til 11 punda laxar og menn
hafa séð nokkra laxa, t.d. í Kerinu.
Pétur Pétursson í Vatnsdalsá
sagði menn hafa séð laxa stökkva,
en rokið væri svo mikið að það ýtti
ánni tilbaka gegn straumi, auk þess
væri árvatnið afar litað vegna þess
að rokið pískaði upp botndrulluna í
Flóðinu. „Hann er kominn, en við
verðum að bíða eftir að veðrið
gangi niður og vatnið sjatni og
hreinsi sig,“ sagði Pétur.
Hér og þar
Laxá á Ásum var opnuð á laug-
ardaginn og veiddist enginn lax
þann dag. Í gær tókst ekki að hafa
upp á veiðiverði til að fá frekari
fregnir.
Að minnsta kosti 7 laxar hafa
veiðst á Brennunni í Borgarfirði
síðustu daga og fyrstu laxarnir
veiddust í Elliðaánum um helgina,
tveir á laugardagsmorguninn og
aðrir tveir eftir hádegið. Þrír þess-
ara laxa veiddust fyrir ofan teljara,
aðeins einn fyrir neðan. Þetta voru
allt smáir laxar, þriggja til fjögurra
punda, en í Brennunni voru fisk-
arnir 9 til 12 pund.
Langá og Miðfjarðará byrja vel
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Morgunblaðið/Einar Falur
Jóhann Sigurður Þorbjörnsson þreytir bleikju í Brúará hjá Spóastöðum.