Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 16
LANDIÐ
16 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MEISTARINN.IS
SÍÐASTA embættisverk fráfar-
andi oddvita og sveitarstjórnar í
Djúpárhreppi í Rangárvallasýslu
var að afhenda hreppsbúum glæsi-
legt fjölnota samkomuhús, sem
héðan í frá mun nýtast íbúum hins
nýsameinaða sveitarfélags í vest-
anverðri sýslunni, áður Djúp-
árhrepps, Holta- og Landsveitar og
Rangárvallahrepps. Við hátíðlega
athöfn í tilefni af vígslu hússins
rakti Heimir Hafsteinsson fráfar-
andi oddviti byggingarsögu þess
og sr. Halldóra Þorvarðardóttir
prófastur Rangæinga flutti bless-
unarorð. Fjölbreytt tónlistaratriði
settu svip sinn á samkomuna og
ekki má gleyma skemmtilegri
júdósýningu barna úr héraðinu.
Gamla samkomuhúsið í Þykkva-
bæ hafði þjónað hreppsbúum vel
og lengi eða allt frá 1936, þegar
fyrsti hluti þess var byggður. Árið
1998 eignaðist hreppurinn burð-
arvirki, styrkingar og tilheyrandi
uppsetningar úr öðru Tívolíhús-
anna í Hveragerði og var Vífill
Magnússon arkitekt fenginn til að
teikna fjölnota hús utan um þær
uppistöður. Í upphafi var gert ráð
fyrir að samnýta eldra húsið með
tengibyggingu, en þau áform urðu
að engu eftir jarðskjálftana í júní
2000, en þá gjöreyðilagðist gamla
samkomuhúsið og var í kjölfarið
bönnuð öll notkun á því.
Var þá teikningum breytt og
bætt í það eldhúsi með kennsluað-
stöðu og mötuneyti sem nýtast
mun grunnskólanemum í Þykkva-
bæ. Að loknu útboði var tilboði J.Á.
verktaka á Selfossi í smíði hússins
tekið, en fjölmargir verktakar
komu að frágangi og innréttingum
í húsið. Í ávarpi oddvitans kom
fram að heildarkostnaður við húsið
og tækjakaup nemur um 135–140
milljónum krónum, sem hrepp-
urinn hefur fjármagnað með sölu
eigna, tryggingabótum vegna
gamla hússins og lögbundnu fram-
lagi jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Aðeins hafi þurft að taka 25 millj-
óna króna lán til framkvæmdanna
hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Menningarhús
með íþróttagólfi
Heimir sagði í ávarpi sínu frá
margvíslegum notum hins nýja
húss sem er að grunnfleti 1014 fer-
metrar, en í því er aðstaða sem
fyrr segir til kennslu í heim-
ilisfræðum, skrifstofuaðstaða, bún-
ingsklefar, áhaldageymsla, rými
ætlað fyrir félagastarfsemi og leik-
skólann Gljábæ. Í íþróttasalnum
sjálfum, sem er 546 fermetar að
flatarmáli, er hægt að setja upp
svið, keyptir hafa verið kórpallar
og myndarlegur flygill, þannig að
húsið er tilbúið til hvers konar
menningar- og tónleikahalds. Má
segja að Djúpárhreppur taki með
sér glæsilegan heimanmund inn í
hið nýja sveitarfélag og styrki
þannig stöðu dreifbýlisins svo um
munar.
Glæsilegt fjölnota samkomuhús í Þykkvabæ tekur við af því gamla
Hýsir
íþrótta-
og menn-
ingarstarf-
semi
Morgunblaðið/Aðalheiður
Fjölmargir gestir voru við vígslu nýja fjölnota samkomuhússins í Þykkvabæ og nutu veitinga Kvenfélagsins
Sigurvonar í boði hreppsins. Tónlistaratriði rangæskra listamanna glöddu huga og eyru gestanna en á mynd-
inni hefur Karlakór Rangæinga upp raust sína undir stjórn Halldórs Óskarssonar.
Hella
GRUNNSKÓLA Borgarness var
slitið á hefðbundinn hátt í vor þótt
skólaslitin væru nú í fyrsta sinn í júní.
Skólanum var slitið formlega í
íþróttahúsinu þar sem nemendur í 1.
til 9. bekk fengu einkunnir sínar af-
hentar. Sídegis var svo útskriftarhá-
tíð fyrir 10. bekkinga haldin á Hótel
Borgarnesi. Þar voru flutt ávörp, tón-
listarflutningur og afhending ein-
kunna og viðurkenninga. Glæsilegt
veisluborð, hlaðið tertum og brauð-
meti var í boði foreldra.
Sá nemandi sem náði bestum ár-
angri á grunnskólaprófi og er jafn-
framt með hæstu einkunn í íslensku,
dönsku og náttúrufræði er Jóhanna
Sveina Hálfdánardóttir. Hún var með
10 í dönsku og náttúrufræði, auk þess
sem hún tók próf við Verkmennta-
skólann á Akureyri í ensku 103 og
stærðfræði 103 og fékk 10 í stærð-
fræðiáfanganum. Tveir nemendur
fengu viðurkenningar fyrir góðan
námsárangur í stærðfræði, þau Einar
Ágúst Gylfason og Ólöf Erla Hauks-
dóttir. Einar Ágúst lauk ensku 103 og
stærðfræði 103 og fékk hann 10 í
stærðfræðinni. Í ensku fengu tveir
nemendur viðurkenningar, þau Ólöf
Erla Hauksdóttir og Guðmundur
Björn Þorbjörnsson. Guðmundur tók
jafnframt próf við VMA í ensku 103
og lauk því með sóma. Ennfremur var
tekin upp sú nýbreytni að veita við-
urkenningar fyrir framúrskarandi ár-
angur í list- og verkgreinum. Við val
var litið til áhuga og hönnunar, sjálf-
stæðis og frumkvæðis, vinnulags og
frágangs. Þeir nemendur sem hlutu
þær voru Harpa Dröfn Blængsdóttir í
textílmennt, Ingibjörg Þorsteinsdótt-
ir í myndmennt, Jóhanna Lóa Sigur-
bergsdóttir í heimilisfræði og í tækni-
mennt Sonja Petra Stefánsdóttir.
Kvenfélagið í Borgarnesi veitir þeim
viðurkenningar sem mestar framfarir
hafa sýnt í námi og voru það að þessu
sinni Laufey Rós Hallsdóttir og Geir
Konráð Theodórsson.
Undanfarin árin hafa grunnskólinn
og Rotaryklúbbur Borgarness starf-
að saman að undirbúningi og fram-
kvæmd með starfskynningar fyrir
nemendur. Að loknum starfskynning-
um hafa nemendur kynnt þau fyrir-
tæki sem þau hafa heimsótt á fundi
hjá Rotary. Þær kynningar sem hafa
þótt skara fram úr hafa hlotið viður-
kenningar á skólaslitum og að þessu
sinni voru þær fleiri en venjan er
vegna góðrar frammistöðu í ár.
Útskrift í Grunnskóla Borgarness
Borgarnes
Guðmundur Þorbjörnsson, Ein-
ar Ágúst Gylfason, Ólöf Erla
Hauksdóttir og Jóhanna Sveina
Hálfdánardóttir.
DYRHÓLAEY er einn af þeim stöð-
um á Íslandi sem draga til sín mikinn
fjölda ferðalanga á hverju ári. Dyr-
hólaey er lokuð á vorin og fram í júní
til að vernda viðkvæmt fuglalíf og
gróður eyjarinnar. Myndin er tekin
þegar sólin var að setjast einn góð-
viðrisdag nú í júní og sýnir hún gatið
á eynni sem hún er hvað þekktust
fyrir og framan við hana stendur
Háidrangur, en þar verpir fjöldi sjó-
fugla.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sólsetur í gatinu á Dyrhólaey.
Sólarlag við
Dyrhólaey
Fagridalur
Á FUNDI bæjarstjórnar 14. maí
s.l. var samþykkt að í tilefni 60 ára
afmælis kaupstaðarins skyldi gert
átak í skipulags-
og umhverfis-
málum bæjarins.
Í því skyni yrði
ráðinn til
tveggja ára aðili
er hefði mennt-
un og reynslu af
skipulagsvinnu
og hönnun. Bæj-
arstjóri hefur
gengið frá ráðn-
ingarsamningi,
með fyrirvara um samþykki bæj-
arstjórnar, við Ólöfu Guðnýju
Valdimarsdóttur til tveggja ára
um starf skipulagsfulltrúa Akra-
ness.
Starf skipulagsfulltrúa verður
fólgið í vinnu við endurskoðun að-
alskipulags og svæðisskipulags,
umsjón með ýmissi aðkeyptri
vinnu við gerð skipulaga, svo og
skipulagningu ýmissa svæða og
samræmingu þeirra við nánasta
umhverfi.
Skipulags-
fulltrúi
ráðinn
Akranes
Ólöf Guðný
Valdimarsdóttir
MIKIÐ fjölmenni var saman komið
í Íþróttahúsinu Reykjahlíð á sunnu-
daginn þegar Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands, 80 manna blandaður
kór úr Þingeyjarsýslu ásamt
Kammerkór Norðurlands, einnig
Ásgeir H. Steingrímsson tromp-
etleikari, Margrét Bóasdóttir sópr-
an, Sigrún Arngrímsdóttir mezzo-
sópran, Óskar Pétursson tenór,
Benedikt Ingólfsson bassi, fluttu
fjölbreytta dagskrá við prýðilegar
undirtektir tónleikagesta. Fyr-
irferðarmest á efnisskránni var
Krýningarmessa KV 317 eftir Moz-
art. Stjórnandi alls þessa var Guð-
mundur Óli Gunnarsson.
Stjórnandi og sólistar hlutu
hverarúgbrauð og andaregg að
mývetnskum hætti í stað blóma í
þakkarskyni. Salur íþróttahússins
var skreyttur birkigreinum. Hús-
fyllir var á tónleikunum sem tókust
framúrskarandi vel.
Morgunblaðið/BFH
Frá tónleikunum í Mývatnssveit, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og kór.
Hátíðartónleikar í
Reykjahlíð
Mývatnssveit