Morgunblaðið - 19.06.2002, Síða 18
AKUREYRI
18 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www. .is
ÍBÚÐIR TIL SÖLU • ÍBÚÐIR TIL LEIGU • TÆKJALEIGA • ÚTBOÐ
KÍKTU
Á NETIÐ
ÞAÐ var mikið um dýrðir hjá
útibúi Landsbankans á Akureyri í
gær þegar haldið var upp á 100
ára afmæli þess. Bæjarbúum var
boðið í afmæliskaffi í útibúin við
Strandgötu og í Kaupangi og þá
gafst gestum kostur á að hlýða á
vandaða tónlist á afgreiðslutíma
bankans. Fjölmargir nýttu tæki-
færið, heimsóttu afmælisbarnið,
hlýddu á tónlist og þáðu veit-
ingar. Leikskólabörnum var boðið
að fylgjast með dagskrá sem
Gunnar og Felix héldu í Íþrótta-
höllinni og þá skemmtu þeir fé-
lagar einnig í bankanum síðdegis.
Hátíðarfundur bankaráðs var
einnig haldinn síðdegis. Þar var
samþykkt að stofna til tveggja
náms- og rannsóknastyrkja við
Háskólann á Akureyri í tilefni af
afmælinu. Hvor styrkur er 500
þúsund krónur, samtals ein millj-
ón króna á ári í fimm ár eða alls
fimm milljónir króna. Fyrsta út-
hlutun verður í júní á næsta ári.
Verða styrkirnir veittir til nem-
enda sem brautskráðir hafa verið
frá sjávarútvegs- eða rek-
stardeild háskólans. Þeir verða
veittir til framhaldsnáms í grein-
um sem tengjast sjávarútvegi og
eða fjármálum og banka-
starfsemi. Þá verður einnig hægt
að sækja um styrk til rannsókn-
arverkefnis á sömu sviðum. Einn
nemandi frá hvorri deild verður
styrktur, en heimilt verður að
veita báða styrkina til nemenda
annarrar deildarinnar ef ekki
berast styrkhæfar umsóknir frá
báðum deildum.
Mikið um dýrðir á 100 ára afmælishátíð Landsbanka Íslands á Akureyri
Stofnað til náms- og
rannsóknastyrkja
við háskólann
Morgunblaðið/Kristján
Helgi S. Guðmundsson, formaður stjórnar Landsbanka Íslands t.v., af-
hendir Jóni Þórðarsyni, deildarforseta auðlindadeildar Háskólans á Ak-
ureyri, stofnskjal vegna náms- og rannsóknastyrkja. Með þeim á mynd-
inni er Bjarni Hjarðar, deildarforseti rekstrar- og viðskiptadeildar HA.
SÝNING á listaverkum eftir Sigríði
Ágústsdóttur á Akureyri hefur verið
opnuð í Safnasafninu á Svalbarðs-
strönd.
Hún hefur stundað myndlistar-
nám í Englandi og Frakklandi. Á
sýningu hennar eru leirverk sem
reist eru á sígildri fagurfræði og per-
sónulegri formkönnun, segir í frétt
um sýninguna.
Sigríður hefur áður haldið tvær
sérsýningar og tekið þátt í samsýn-
ingum bæði hér heima og víða í út-
löndum þar sem verk eftir hana
prýða opinberar stofnanir.
Sýning hennar stendur yfir til 12.
júlí næstkomandi. Fleiri sýningar
standa yfir í Safnasafninu sem er op-
ið daglega frá kl. 10 til 18, en hægt er
að panta tíma kvölds og morgna til
að skoða sýningarnar.
Sigríður
sýnir
KENNSLA í félagsvísindadeild hefst við
Háskólann á Akureyri haustið 2003, en nú
er unnið að stofnun slíkrar deildar. Stefnt
er að því í fyrstu að bjóða upp á nám
í félagsfræði og lögfræði við deild-
ina og mun það standa nemendum
til boða þar næsta haust.
Þetta kom fram í ræðu Tómasar
Inga Olrich menntamálaráðherra á
háskólahátíð Háskólans á Akureyri
um helgina.
Menntamálaráðherra sagði til-
ganginn með stofnun félagsvísinda-
deildar að færa út starfssvið háskól-
ans, auka námsframboð og styrkja
grundvöll háskólans. Tómas Ingi
sagði að við undirbúning að fjár-
lagafrumvarpi fyrir árið 2003 væri
gert ráð fyrir að nemendum myndi
fjölga mun hraðar en gert var ráð
fyrir. Jafnframt sagði hann að allar
vonir sem bundnar voru við stofnun há-
skólans á sínum tíma hafi ræst.
Alls voru 134 kandidatar brautskráðir
á háskólahátíð á Akureyri og 9 á há-
skólahátíð sem haldin var á Ísafirði á
þjóðhátíðardaginn, eða samtals 143
kandidatar.
Landsvirkjun kostar stöðu
prófessors í jarðhitafræði
Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskól-
ans á Akureyri fjallaði um helstu þætti í
starfsemi háskólans í ræðu sinni. Fram
kom að nafni sjávarútvegsdeildar hefði
verið breytt í auðlindadeild, en markmiðið
er að auka fjölbreytni náms við háskólann,
sérstaklega á sviði raunvísinda. Fjórar
námsbrautir verða í auðlindadeild; fisk-
eldisbraut, líftæknibraut, sjávarútvegs-
braut og umhverfisbraut og hefst nám í
þremur þeim síðasttöldu næsta haust.
Landsvirkjun styrkir kennslu og rann-
sóknir í deildinni, kostar m.a. stöðu pró-
fessors í jarðhitafræði til næstu 5 ára. Tók
Hrefna Kristmannsdóttir við stöðu
fyrsta prófessors í jarðhitafræðum við
háskólann um nýliðin mánaðamót. „Starf
hennar mun án efa verða mikil-
vægt framlag til að byggja upp
nám í umhverfisfræði í deildinni,“
sagði Þorsteinn.
Samstarf milli
háskólans og FSA
Rektor greindi frá því að fyrir
lægju drög að samningi um sam-
starf milli háskólans og Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri m.a. um
rannsóknir og kennslu, klínískt
vettvangsnám, endur- og símennt-
un. Á grundvelli hans yrði FSA
skilgreint sem háskólasjúkrahús
og Heilbrigðisvísindastofnun kom-
ið á fót við háskólann.
Fram kom í máli Þorsteins að
fjarnám á leikskólabraut hafi styrkt sig
mjög í sessi og áætlað væri að 125 nem-
endur myndu stunda það nám næsta
haust. Áberandi flestir byggju á höfuð-
borgarsvæðinu. Þá sagði Þorsteinn að
mikil sókn hefði verið í rekstrardeild á
nýliðnu skólaári og nemendafjöldi hefði
tvöfaldast milli ára. Nafni deildarinnar
hefur nú verið breytt í rekstrar- og við-
skiptadeild og voru fyrstu viðskiptafræð-
ingarnir brautskráðir frá háskólanum nú
um helgina.
Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra á hátíð Háskólans á Akureyri
Félagsvísindadeild tek-
ur til starfa haustið 2003
Kennsla í félagsfræði
og lögfræði
Morgunblaðið/Kristján
Mæðgurnar Erla Björg Viðarsdóttir t.v. og Hafdís Aust-
fjörð Harðardóttir t.h. luku saman BS-prófi í hjúkrunar-
fræði frá Háskólanum á Akureyri og fékk Erla Björg
verðlaun fyrir hæstu meðaleinkunn í heilsugæslufræðum.
Á milli þeirra situr frænka þeirra, Eyrún Björg Þorfinns-
dóttir, sem einnig lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði og fékk
hún verðlaun fyrir hæstu meðaleinkunn á hjúkrunar-
fræðibraut og fyrir hæstu meðaleinkunn í hjúkrun full-
orðinna. Þær eru allar frá Húsavík.
Feðginin Sonja Björk Elíasdóttir og Elías Þor-
steinsson útskrifuðust saman frá Háskólanum á
Akureyri. Sonja Björk lauk BS-prófi í viðskipta-
fræði en faðir hennar lauk prófi í kennslufræðum
til kennsluréttinda.