Morgunblaðið - 19.06.2002, Side 19
Fullt ver
ð 1535.
-
Aukasett + yfirlits
mynd + ULTRA fil
ma
Fullt
verð
183
5.-
Geisladisku
r + yfirlitsm
ynd + ULTR
A filma
www.hanspetersen.is SÍMI 570 7500
á afmælisverði
þegar valin er
EXCLUSIVE framköllun
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 19
ÞÓTT frekar hvasst hafi verið á
þjóðhátíðardaginn í Grindavík var
þokkalegt skjól við félagsheimilið
Festi þar sem heimafólk og gestir
skemmtu sér vel.
Að venju hófst dagurinn með há-
tíðarguðsþjónustu í Grindavík-
urkirkju en eftir hádegið tók við
karamelluregn og fallhlífarstökk.
Þá tók við skrúðganga sem reynd-
ar var með fáum blöðrum, rellum
og fánum en til að prýða gönguna
fór fjallkonan með þennan stutta
hring að Festi.
Hátíðarhöldin héldu áfram við
Festi að lokinni skrúðgöngu. Einar
Njálsson bæjarstjóri flutti hátíð-
arræðu en sú ræða var sú síðasta
hjá honum í Grindavík, í bili að
minnsta kosti, en Einar var ekki
endurráðinn eftir kosningar. Í
ræðu sinni þakkaði Einar meðal
annars Grindvíkingum fyrir þau
samskipti sem hann hefði átt og
einnig fyrir það hve vel heimamenn
hefðu tekið á móti þeim hjónum
þegar þau komu hér fyrst fyrir
fjórum árum.
Þótt aðkomin skemmtiatriði
hefðu staðið fyrir sínu var eins og
oft áður leitað til heimamanna með
að skemmta og þeir brugðust ekki
frekar en þau aðfengnu. Ýmsir kór-
ar stigu á stokk og ekki skemmdi
söngvakeppni unga fólksins fyrir
framtaki heimamanna en ljóst að
þar komu fram margir tilvonandi
stórsöngvarar. Kvöldinu lauk með
dansleik þar sem hljómsveitin Stóri
Björn spilaði fyrir unga sem aldna.
Fráfarandi bæjarstjóri
þakkar fyrir sig
Grindavík
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Börnin fylgjast spennt með skemmtiatriðum.
Óttast að aukning á botn-
fiskafla gangi til baka
HELDUR minni afli kom á land á
Suðurnesjum fyrstu fimm mánuði
ársins en á sama tíma á síðasta ári,
einkum loðna og síld. Grindavík er
sem fyrr mesta fiskihöfnin. Hafn-
arstjórinn þar óttast að aukning í
botnfiskafla gangi til baka í sumar
vegna kvótaleysis skipanna.
Heildarafli sem á land kom á Suð-
urnesjum í janúar til maí var liðlega
164 þúsund tonn á móti 175 þúsund
tonnum sömu mánuði síðasta árs,
samkvæmt yfirliti Hagstofu Ís-
lands. Botnfiskaflinn var nærri því
sá sami milli ára eða tæp 37 þúsund
tonn en mun minna barst að upp-
sjávarfiski, einkum loðnu, eða rúm
125 þúsund tonn á móti 137 þúsund
tonnum árið áður. Hefur hlutur
Suðurnesja í uppsjávaraflanum
minnkað verulega milli ára því
heildarafli landsmanna af þessum
tegundum jókst til muna. Minnkaði
landaður loðnuafli og Suðurnesja-
hafnir fengu engan kolmunna.
Liðlega 86 þúsund tonn af fiski
komu á land í Grindavík fyrstu
fimm mánuði ársins sem er sem
fyrr mesta fiskihöfn Suðurnesja. Er
það heldur minni afli en sömu mán-
uði 2001. Á Keflavíkurhöfn eru
skráð 46 þúsund tonn og er land-
aður afli í Helguvík og öðrum höfn-
um Hafnasamlags Suðurnesja þar
innifalinn. Þriðja höfnin er Sand-
gerði með 31 þúsund tonn.
Gengur til baka
Afli uppsjávarfisktegunda dróst
saman á öllum höfnunum og bolfisk-
afli minnkaði einnig heldur hjá
Hafnasamlagi Suðurnesja og í
Sandgerðishöfn en jókst nokkuð í
Grindavík. Sverrir Vilbergsson,
hafnarstjóri í Grindavík, segir að
hafa verði í huga að á síðasta ári
hafi komið nokkur síldarafli á land
en ekkert í ár. Það skýri minni upp-
sjávarafla í Grindavík því loðnuafl-
inn hafi lítið minnkað. Þá segir
hann varðandi þorskaflann að hafa
verði í huga að á síðasta ári hafi ver-
ið sjómannaverkfall og það skekki
samanburðinn.
Segist Sverrir hafa það á tilfinn-
ingunni að sú aukning sem orðið
hefur á lönduðum botnfiskafla
gangi til baka í sumar og haust.
Segir að tíminn sem í hönd fari
verði að líkindum ódrjúgur vegna
kvótaleysis. Línubátarnir muni til
dæmis liggja bundnir við bryggju
fram undir lok kvótaársins. Í fyrra
hafi útgerðarfélögin náð að vinna
upp aflasamdráttinn sem varð í
verkfallinu en ekki sé við slíkri þró-
un að búast nú.
Suðurnes
FJÖLMENNI var í skrúðgarðinum
í Keflavík þar sem meginhluti há-
tíðarhalda íbúa Reykjanesbæjar
fór fram á þjóðhátíðardaginn, 17.
júní. Samkvæmt venju var risa-
stór fáni dreginn að húni en það
gerðu skátar undir stjórn Önnu
Maríu Sveinsdóttur.
Fjölbreytt skemmtidagskrá var
í umsjón íþróttafélaganna ÍBK og
UMFN og kvöldskemmtun auk
þess sem fjöldi annarra atburða
var tengdur þjóðhátíðardag-
skránni. Hluti hátíðarhaldanna
var fluttur inn í Reykjaneshöllina
vegna veðurs.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Þjóðfáninn dreginn að húni
Keflavík