Morgunblaðið - 19.06.2002, Side 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
22 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
BANDARÍSKA dagblaðið The
New York Times fjallar í gær um
kort það yfir erfðamengi mannsins,
sem Íslensk erfðagreining hefur
unnið, og leit vísindamanna á veg-
um fyrirtækisins að erfðafræðileg-
um orsökum ýmissa illvígra sjúk-
dóma. Segir í fyrirsögn að vera
kunni að „fjársjóðsleit á vettvangi
erfðavísinda“ sé við að skila ár-
angri.
Fjallað er um þá sérstöðu, sem
saga Íslands, uppruni, smæð og
einangrun þjóðarinnar í gegnum
aldirnar, tryggi á sviði erfðarann-
sókna. Íslensk erfðagreining og for-
stjóri þess, Kári Stefánsson, hygg-
ist nú nýta þessa sérstöðu í þeirri
von að þannig megi vinna bug á
ýmsum illvígum sjúkdómum. Segir
og að Íslenskri erfðagreiningu hafi
tekist að staðsetja 20 erfðafræðileg
frávik eða erfðamörk, sem tengist
50 illvígum erfðasjúkdómum.
„Einstæður árangur“
Fram kemur í greininni að erfitt
sé fyrir utanaðkomandi að leggja
mat á þann árangur, sem fyrirtæk-
ið kveðist hafa náð á þessu sviði því
enn hafi aðeins verið birtar greinar
um erfðamörk tveggja sjúkdóma.
Hins vegar vitnar blaðið til Jonat-
han Knowles, sem er yfirmaður
hnattrænna rannsókna hjá lyfjafyr-
irtækinu Hoffmann-La Roche, sem
segir Íslenskra erfðagreiningu hafa
náð „einstæðum árangri“ („extraor-
dinary progress“ á enskri tungu).
Kemur þar fram að 13 erfðamörk,
sem Íslensk erfðagreining hafi skil-
greint samkvæmt samningi við
Hoffmann-La Roche, hafi verið
staðfest af óháðum sérfræðingum.
Dr. Nancy Cox erfðafræðingur,
sem starfar við Chicago-háskóla,
segir í samtali við The New York
Times að það megi kallast „fram-
úrskarandi“ árangur, reynist það
rétt að tekist hafi að skilgreina
erfðamörk þriggja flókinna sjúk-
dóma. Dr. Stephen Warren, rit-
stjóri tímaritsins The American
Journal of Human Genetics, segir í
viðtali við blaðið að Íslensk erfða-
greining nálgist verkefnið með afar
sannfærandi hætti. Nálgunin sé
rökrétt og því komi árangur fyr-
irtækisins honum ekki á óvart.
Talsmaður Bandarísku heilbrigðis-
stofnananna („National Institutes
of Health“), sem fjármagnaði frum-
gerð fyrsta korts yfir erfðamengi
mannsins, segir að ekki sé unnt að
leggja mat á yfirlýsingar Íslenskrar
erfðagreiningar fyrr en niðurstöður
rannsókna hafi verið birtar.
Vikið er að sögu Íslenskrar
erfðagreiningar í frásögn The New
York Times. Segir þar að Kári
Stefánsson hafi útvegað fjármagn
frá einkaaðilum til að fylgja eftir
hugmyndum sínum um rannsóknir
á illvígum sjúkdómum með því að
nýta sérstöðu íslensku þjóðarinnar.
Þau áform hafi mætt mótspyrnu en
nú hafi risið fyrirtæki í Reykjavík
þar sem starfi 600 vísindamenn.
Ræði þar um íslenska sérfræðinga,
sem starfað hafi erlendis en tekist
hafi að fá til að snúa aftur heim
sem og Bandaríkjamenn og aðra.
Jonathan Knowles segir í samtali
við blaðið að starfsemin, sem fram
fer í höfuðstöðvum Íslenskrar
erfðagreiningar, sé á „heimsmæli-
kvarða“ og ótrúlegt sé að slíkt fyr-
irtæki sé að finna í Reykjavík, sem
fram til þessa hafi einkum verið
þekkt fyrir rannsóknir á vettvangi
fiskveiða.
Sömu stökkbreytingar
að verki?
Sagt er ítarlega frá starsfemi Ís-
lenskrar erfðagreiningar og hvern-
ig fyrirtækið hyggist nýta sér þá
einsleitni, sem einkenni erfðafræði-
legan grunn íslensku þjóðarinnar.
Hún geri að verkum að margir Ís-
lendingar, sem þjáist af tilteknum
sjúkdómi, hafi erft þá hina sömu
stökkbreytingu, sem orsaki veik-
indin. Þannig reynist mun auðveld-
ara en ella að greina hana. Í stærri
samfélögum kunni fleiri stökk-
breytingar að vera að verki.
Fram kemur í frásögn banda-
ríska dagblaðsins að enn sé ekki
vitað hvort lyf, sem hugsanlega
kunni að verða þróuð fram á grund-
velli stökkbreytinga í Íslendingum,
komi að tilætluðum notum annars
staðar. Vera kunni að Íslendingar
„spanni ekki allt það svið“ stökk-
breytinga, sem valdi tilteknum
sjúkdómi í mönnum af öðrum upp-
runa og í öðrum löndum. „Jafnvel
þótt Íslensk erfðagreining finni
helsta genið, sem veldur geðklofa á
Íslandi, kann að vera að annað gen
sé einkum að verki í Bretlandi,“
segir Nancy Cox. The New York
Times segir vísindamenn Íslenskr-
ar erfðagreiningar vonast til þess
að lyf eða greiningarform, sem þró-
uð verði fram á grundvelli rann-
sókna á Íslendingum, komi einnig
til með að nýtast annars staðar.
Þannig liggi fyrir að framgangur
algengra sjúkdóma á Íslandi sé
þegar á heildina er litið mjög svo
sambærilegur við það, sem gerist í
Bretlandi og Bandaríkjunum.
Sérstaðan
nýtt í þágu
vísindanna
The New York Times fjallar um
starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar
og nýtt kort yfir erfðamengi mannsins
EIRÍKUR S. Jóhannsson lætur í
dag, miðvikudag, af störfum sem
kaupfélagsstjóri Kaupfélags Eyfirð-
inga og verður nú framkvæmdastjóri
Kaldbaks. Eiríkur hefur gegnt báð-
um þessum störfum að undanförnu.
Með þessari breytingu er verið að
undirstrika aðskilnað þessara
tveggja félaga, Kaldbaks og KEA,
samvinnufélags. Enn hefur ekki ver-
ið ákveðið hvernig daglegri stjórn
samvinnufélagsins verður háttað, en
ákvörðun þar um verður væntanlega
eitt af fyrstu verkum nýrrar sjö
manna stjórnar KEA svf. sem kjörin
verður á aðalfundi KEA í kvöld.
Benedikt Sigurðarson stjórnarfor-
maður KEA sagði að væntanlega
yrði innan skamms auglýst eftir nýj-
um kaupfélagsstjóra.
Eiríkur hefur gegnt starfi kaup-
félagsstjóra síðastliðin fjögur ár og á
þeim tíma hefur félagið tekið viða-
miklum breytingum. Rekstur KEA
var færður yfir í hlutafélög jafn-
framt því sem eignir og skuldir
Kaupfélags Eyfirðinga voru færðar
yfir í eignarhaldsfélagið Kaldbak og
samvinnufélaginu KEA var markað
nýtt hlutverk. Eiríkur sagði KEA
svf. síður en svo liðið undir lok, það
væri nú skuldlaust með öllu en eignir
þess næmu um þremur milljörðum
króna. Félagið hefði því mikinn slag-
kraft til að takast á við ný verkefni á
félagssvæðinu, en einkum myndi það
taka þátt í verkefnum á sviði nýsköp-
unar og styðja við menningarstarf-
semi.
„Þetta hefur verið mjög skemmti-
legt tímabil, það hefur verið gaman
að vinna að þessum breytingum, en
vissulega hafa fylgt því mikil átök.
Ég neita því ekki að ég er svolítið
þreyttur og það verður gott að geta
hvílt sig aðeins. KEA hefur lengi
verið hluti af samfélaginu hér
nyrðra, nánast eins og ríki í ríkinu.
Ég er stoltur af því að hafa verið val-
inn í þetta starf og þakklátur stjórn
og félagsmönnum KEA fyrir að leyfa
mér að ljúka þessum umfangsmiklu
breytingum á félaginu,“ sagði Eirík-
ur.
Öflugt fjárfestingarfélag
með sterka stöðu
Fram kom á fundi þar sem breyt-
ingarnar voru kynntar að almenn
ánægja er meðal félagsmanna með
þær samkvæmt skoðanakönnun sem
gerð var. Staða Kaldbaks væri afar
sterk, en Samherji og Lífeyrissjóður
Norðurlands hefðu gengið til liðs við
félagið og KEA selt hluta af sínum
hlutabréfum. Kaldbakur hefði nú um
580 milljónir króna handbærar til
fjárfestinga á næstu misserum. Bók-
fært eigið fé Kaldbaks nemur um 4
milljörðum króna. „Þetta er gríðar-
lega öflugt fjárfestingafélag, með
miklar og góðar eignir,“ sagði Eirík-
ur.
Unnið að því að fjölga
félagsmönnum
Félagsmenn í KEA svf. eru tæp-
lega 8 þúsund talsins og sagði Bene-
dikt að brýnt væri að fjölga þeim.
Meðalaldur þeirra væri nokkuð hár
og yrði einkum reynt að höfða til
ungs fjölskyldufólks varðandi aðild
að félaginu. Eitt af helstu verkefnum
nýrrar stjórnar yrði að koma upp
svonefndu Kostakorti í samvinnu við
Visa Ísland, en með því að veita
handhöfum þess margvísleg afslátt-
ar- og vildarkjör yrði auðveldara að
ná til nýrra félagsmanna.
Eiríkur S. Jóhannsson
verður framkvæmda-
stjóri Kaldbaks
Morgunblaðið/Kristján
Eiríkur S. Jóhannsson t.v. lætur af starfi kaupfélagsstjóra KEA í dag og
tekur við starfi framkvæmdastjóra Kaldbaks í kjölfarið. Við hlið hans situr
Benedikt Sigurðarson, formaður stjórnar KEA.
VIÐSKIPTARÉTTURINN í Le
Havre í Frakklandi hefur samþykkt
sameiginlegt tilboð frá SIF France,
dótturfélagi SÍF hf., og hópi stjórn-
enda frönsku matvælafyrirtækjanna
Servifrais og Pêcheries de Fécamp
um yfirtöku á tækjum og rekstri fé-
laganna tveggja. Tilboðið felur í sér
að SIF France kaupi öll framleiðslu-
tæki í verksmiðjum þrotabús félag-
anna, eignist vörumerki þeirra og
hefji samstarf við rekstrarfélag
starfsmanna um innkaup á um 7.000
tonnum af hráefni, tæknimál sem og
sölu og dreifingu á reyktri síld og
reyktum laxi.
Fyrirtækin Servifrais og Pêcher-
ies de Fécamp hafa selt afurðir und-
ir vörumerkinu „York“ og um árabil
verið helstu keppinautar SIF
France í helstu vöruflokkum þess,
svo sem frystum afurðum, reyktum
laxi, reyktri síld og saltfiski. Rekst-
ur félaganna tveggja hefur gengið
mjög illa undanfarin misseri og lýstu
þau yfir gjaldþroti undir lok apr-
ílmánaðar. Um 400 starfsmenn
störfuðu hjá fyrirtækjunum tveim-
ur, þau framleiddu um 17.000 tonn
af afurðum og veltu um 63 millj-
ónum evra.
Viðræður um hugsanlega aðkomu
SIF France að rekstrinum hafa
staðið yfir um nokkurt skeið. Nið-
urstöður viðræðnanna eru m.a. þær
að stofnað hefur verið nýtt, sjálf-
stætt fyrirtæki í eigu starfsmanna
Pêcheries de Fécamp sem heldur
áfram vinnslu á kældum afurðum í
Fécamp. Félagið mun leigja tæki til
framleiðslu reyktra afurða af SIF
France og vinna að öðru leyti náið
með fyrirtækinu. Eigendur þess og
stjórnendur eru fjórir fyrrverandi
stjórnendur fyrirtækjanna tveggja
og verða starfsmenn þess 170. Þar
sem SÍF er ekki eignaraðili að félag-
inu hefur rekstur þess takmarkaða
rekstraráhættu í för með sér fyrir
SIF France, að því er segir í til-
kynningu frá félaginu.
Þá mun SIF France kaupa öll
framleiðslutæki í verksmiðjum
þrotabúsins. Tækjabúnaður til fram-
leiðslu frystra afurða verður fluttur
úr verksmiðju Servifrais í sambæri-
lega verksmiðju SIF France í Wi-
mille í Frakklandi. Þá verða nokkrar
vörulínur Pêcheries de Fécamp og
viðeigandi tæki flutt í verksmiðju
SIF France í Jonzac. Með þessum
tilfærslum á tækjakosti og sölu-
samningum þeim tengdum upp á
7.000 til 8.000 tonn af fullunnum af-
urðum, skapast möguleikar á fjöl-
breyttari og hagkvæmari fram-
leiðslu bæði í Wimille og Jonzac. Þá
verður vörumerkið „York“ eign SIF
France með þessum samningum.
Samningar um samstarf SIF
France við rekstrarfélag starfs-
manna grundvallast á hráefnisöflun
eða sölu SIF France á um 7.000
tonnum af hráefni, mest ferskum
laxi og síldarflökum til rekstrar-
félags starfsmanna. Eins kveða
samningarnir á um tæknilega aðstoð
á nokkrum sviðum, auk sölu og
dreifingar á unnum, kældum sjáv-
arafurðum.
SÍF aðili að yfir-
töku í Frakklandi
SÆPLAST mun væntanlega styrkja
stöðu sína enn frekar á Asíumarkaði
á komandi árum, enda útlit fyrir að
markaðurinn muni vaxa umtalsvert
með auknu fiskeldi og matvælafram-
leiðslu, að mati Steindórs Sigur-
geirssonar, sjávarútvegsfræðings,
en hann er sölu- og markaðsstjóri
söluskrifstofu Sæplasts í Hong
Kong. Skrifstofan hefur með hönd-
um tengsl við viðskiptavini Sæplasts
í Ástralíu, Asíu og Rússlandi.
Sæplast hefur undanfarin ár selt
framleiðsluvörur sínar á þessum
mörkuðum, en með stofnun skrif-
stofunnar í Hong Kong hefur Sæ-
plast sett sér þá stefnu að sækja
verulega fram í þessum heimshluta.
Allt bendir til að markaðurinn vaxi á
næstu árum með aukinni tæknivæð-
ingu og mikilli aukningu í fiskeldi og
matvælaframleiðslu í þessum heims-
hluta. Hann segir að Sæplastkerin
hafi verið að tryggja markaðsstöðu
sína í Asíu og einnig hafi fyrirtækið
mjög sterka stöðu í sölu á nótaflotum
og baujum á svæðinu. Sæplast rekur
verksmiðju á Indlandi og vegna ná-
lægðar við hana eru sóknarfæri fyr-
irtækisins í Asíu meiri en ella.
„Í Asíu er vinnsla og eldi sjávaraf-
urða í örum vexti og því tel ég að hér
séu miklir möguleikar fyrir okkar
framleiðsluvörur í þeim geira sem og
öðrum greinum matvælaiðnaðar. Í
Asíu einni eru alin um 40 milljón
tonn af fiski árlega og gróflega áætl-
að eru veidd hér um 35 milljón tonn.
Það er því pláss fyrir nokkur ker og
baujur frá okkur á þessum markaði.
Hingað hefur matvælavinnsla verið
að flytjast í æ meiri mæli á síðast-
liðnum árum og við erum jafnvel að
sjá fisk fullunninn í verksmiðjum í
Asíu í dag sem veiddur er og frystur
t.d. á Íslandi eða Noregi og afurð-
irnar síðan fluttar aftur til Evrópu
og Bandaríkjanna til neytenda,“ seg-
ir Steindór.
Sæplast
styrkir
stöðu sína
í Asíu
SEXTÁN Falun Gong-iðkendur
mættu fyrir rétt í Hong Kong á
mánudag en þeir eru sakaðir um að
hafa valdið truflun þegar þeir mót-
mæltu fyrir utan skrifstofu kín-
verskra yfirvalda í borginni í mars.
Við réttarhöldin í gær sýndi sak-
sóknari myndband með mótmælun-
um sem leiddu til handtöku fólksins.
Fólkið segir kæruna vera tilbúning
sem ætlað sé að draga athyglina frá
málstað Falun Gong. Þá segja þau
einnig að mótmælin hafi verið frið-
söm og geti ekki talist ólögleg.
Þetta er í fyrsta skipti sem iðk-
endur Falun Gong eru dregnir fyrir
dóm í Hong Kong, en fjórir í hópn-
um eru svissneskir ríkisborgarar.
Níu af iðkendunum eru kærðir fyrir
að hafa hindrað störf lögreglu sem
reyndi að brjóta upp mótmælin 14.
mars síðastliðinn. Verði þeir fundnir
sekir eiga þeir yfir höfði sér allt að
tveggja ára fangelsi. Þá er þremur
gert að sök að hafa ráðist á lög-
reglumenn. Lögregla fór ítrekað
fram á það við Falun Gong-iðkend-
urna 14. mars að þeir færðu sig frá
byggingunni, áður en hún handtók
þá.
Falun Gong-iðkendur
fyrir rétti í Hong Kong
Hong Kong. AP