Morgunblaðið - 19.06.2002, Side 23

Morgunblaðið - 19.06.2002, Side 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 23 DONALD Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, varaði á mánu- dag við því að sífellt meiri ógn stafaði af Írak enda ynnu stjórnvöld þar í landi að því hörðum höndum að þróa gereyðingarvopn. Rumsfeld lét þessi ummæli falla í kjölfar frétta um að George W. Bush Bandaríkjaforseti hefði veitt bandarísku leyniþjónust- unni (CIA) víðtækt umboð til að binda enda á valdaskeið Saddams Hussein í Írak. Slíkt umboð fæli m.a. í sér heim- ild til að ráða Saddam af dögum við tilteknar aðstæður. Rumsfeld vildi ekki svara því beint hvort bandarísk stjórnvöld hefðu ákveðið að taka upp þá stefnu í varn- armálum að bregðast við hugsanleg- um ógnum erlendis frá með „fyrir- byggjandi“ aðgerðum, þ.e. efna til hernaðaraðgerða gegn tilteknum ríkjum áður en þau hefðu hrint fyr- irætlunum sínum í framkvæmd. Hann gaf hins vegar til kynna að rík- isstjórn Bush hefði tekið skref í þessa átt með hernaðaraðgerðum sínum í Afganistan, þar sem ráðist var í það verkefni að uppræta hryðjuverka- starfsemi al-Qaeda þar í landi og steypa af stóli talibanastjórninni sem hélt verndarhendi yfir hreyfingunni. Stjórnvöld í Írak létu sér hins veg- ar fátt um meinta stefnumörkun Bush finnast. „Þetta er ekkert nýtt,“ sagði Naji Sabri utanríkisráðherra er hann var spurður um fréttaflutning dagblaðsins The Washington Post frá því á sunnudag. „Bandaríkin hafa haft horn í síðu Íraks í meira en þrjátíu ár og skipuleggja jafnan aðgerðir gegn hverju því ríki í heiminum sem leyfir sér að sýna sjálfstæði,“ sagði hann. Þá sagði í leiðara dagblaðsins Bab- el í gær að áætlanir Bandaríkja- manna, um að steypa Saddam af stóli, væru „fyrirlitlegur glæpur“. „Það sem er nýtt við þessar fréttir er að stjórn Bush yngri virðist ekki lengur kunna að skammast sín; þar á bæ reyna menn ekki lengur, eins og fyrri stjórnir hafa þó gert, að breiða yfir áætlanir sínar í þessum efnum,“ sagði í leiðara blaðsins, sem lýtur stjórn Udays, eldri sonar Saddams Hussein. Sérsveitum beitt til að steypa Saddam Skv. frétt The Washington Post á sunnudag skrifaði Bush undir fyrir- skipun þess efnis í mars sl. að CIA væri heimilt að hefja undirbúning leyniaðgerða til að steypa Saddam af stóli. Kom fram að þetta fæli í sér aukinn stuðning við írakska stjórnar- andstöðuhópa sem og tilraunir til að safna leynilegum upplýsingum úr innsta valdahring í Bagdad. Einnig að sérsveitum yrði hugsanlega beitt til að handsama forsetann, eða ráða nið- urlögum hans. Yrði sérsveitarmönn- um heimilt að beita öllum brögðum til að handsama Saddam, þ.m.t. vopnum. Strax á sunnudag var ljóst að al- menn ánægja var meðal áhrifamanna á Bandaríkjaþingi með meintar fyr- irætlanir Bush forseta. Sagði repú- blikaninn Richard Armey, leiðtogi meirihlutans í fulltrúadeildinni, m.a. að aukinn viðbúnaður CIA væri rétt- lætanlegur sökum þess að Írak styddi hryðjuverkasamtök sem ógnuðu ekki aðeins Bandaríkjunum, heldur öðrum löndum einnig. Leiðtogi minnihlut- ans, demókratinn Richard Gephardt, tók í sama streng og sagði leynilegar aðgerðir á vegum CIA eðlilegar í ljósi tilrauna Íraka til að koma sér upp gereyðingarvopnum og tregðu þeirra til að fara að ályktunum Sameinuðu þjóðanna um vopnaeftirlit. Þá sagði John McCain, öldunga- deildarþingmaður Repúblikana- flokksins, að rétt væri hjá Bush- stjórninni að halda áfram á þessari braut en að jafnframt þyrfti að búa bandarískan almenning undir þann möguleika að Bandaríkin þyrftu að efna til eiginlegs hernaðar gegn Írak til að þvinga Saddam frá völdum. Áhrifamenn lýsa stuðn- ingi við stefnu Bush Bandaríkjaforseti sagður hafa veitt CIA víðtækt umboð til að binda enda á valdaskeið Saddams Hussein Washington, Bagdad. AFP, The Washington Post. George W. Bush Saddam Hussein KÍNVERSK yfirvöld hafa í kjölfar bruna netkaffihúss í Peking aðfara- nótt sunnudags að kínverskum tíma, þar sem 24 námsmenn létu lífið af völdum reyks, látið loka öðrum net- kaffihúsum í borgum víðsvegar um Kína. Jafnframt hefur víða verið til- kynnt um hertar reglur um starfsemi netkaffihúsa, að sögn kínverskra rík- isfjölmiðla. Í Peking hafa eigendur ólöglegra netkaffihúsa verið varaðir við hörðum refsingum og mörg þeirra höfðu þegar hætt starfsemi á mánu- dag. Netkaffihúsum hefur fjölgað ört í Kína undanfarin ár og laða þau að sér mikinn fjölda ungs fólks, sem kemur þangað aðallega til að senda tölvupóst og nota spjallrásir. Yfirvöld í Kína líta þessa þróun hins vegar hornauga og hafa þau þráfaldlega bent á að þau telji netkaffihús hafa slæm áhrif á ungt fólk. Þessir staðir ræni ung- menni dýrmætum tíma sem annars fari í nám og veiti þeim stundum að- gang að ólöglegu efni eða klámsíðum. Hafa kínversk stjórnvöld strangt eftirlit með efni á Netinu og reyna af fremsta megni að hindra aðgang al- mennings að vissum síðum. Má þar nefna síður sem innihalda pólitískt andóf og vissa vestræna fréttamiðla. Útgangur kaffihússins sem brann var læstur Algengt mun vera að fólk sé á net- kaffihúsunum alla nóttina, enda er nettengingin ódýrust á þeim tíma. Eigendur kaffihúsanna læsa þeim oft utanfrá yfir nóttina og voru viðskipta- vinirnir þá læstir inni þar til starfsfólk kæmi aftur næsta morgun. Hefur komið í ljós að útgangur kaffihússins sem brann á sunnudag var læstur. Auk þeirra 24 ungmenna sem lét- ust í brunanum, slösuðust 13 manns og hlutu sumir mjög alvarleg bruna- sár. Hafði fólkið nýverið lokið prófum við Vísinda- og tækniháskólann í Pek- ing en níu þeirra sem létust á sunnu- dag voru þar við nám. 24 fórust er netkaffihús brann í Kína Yfirvöld herða eftirlit til muna AP Slökkviliðsmenn virða fyrir sér afleiðingar bruna netkaffihúss- ins í Peking þar sem 24 létu lífið á sunnudag. Peking. AFP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.