Morgunblaðið - 19.06.2002, Page 34
UMRÆÐAN
34 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Renault Megane Rt 9/99
Ekinn 65.000 km,
1600 cc, beinskiptur.
Ásett verð 1.150.000 kr.
Tilboð 930.000 kr.
Citroen Saxo 12/00
Ekinn 9.000 km,
1400 cc, beinskiptur.
Ásett verð 1.090.000 kr.
Tilboð 850.000 kr.
Opel Corsa 6/01
Ekinn 24.000 km,
1200 cc, beinskiptur.
Ásett verð 1.160.000 kr.
Tilboð 890.000 kr.
Daihatsu Terios 4X4
Ekinn 84.000 km,
1300 cc, beinskiptur.
Ásett verð 1.020.000 kr.
Tilboð 840.000 kr.
Renault Laguna 5/99
Ekinn 61.000 km,
1600 cc, beinskiptur.
Ásett verð 1.280.000 kr.
Tilboð 1.150.000 kr.
Renault Megane 3/99
Ekinn 65.000 km,
1600, beinskiptur.
Ásett verð 1.120.000 kr.
Tilboð 990.000 kr.
Daihatsu Gran Move 3/99
Ekinn 36.000 km,
1600 cc, sjálfskiptur.
Ásett verð 1.120.000 kr.
Tilboð 990.000 kr.
Vw Golf 6/97
Ekinn 89.000 km,
1600 cc, beinskiptur.
Ásett verð 790.000 kr.
Tilboð 670.000 kr.
Daihatsu Cuore 5/00
Ekinn 42.000 km,
1000 cc, beinskiptur.
Ásett verð 720.000 kr.
Tilboð 610.000 kr.
Ford Focus 11/99
Ekinn 49.000 km,
1600 cc, beinskiptur.
Ásett verð 1.230.000 kr.
Tilboð 1.090.000 kr.
Opið frá kl. 9-18 virka daga og kl. 13-17 laugardaga
Bíldshöfða 6, síma 515 7000 Tryggvabraut 5, Akureyri, sími 462 2700 www.brimborg.is
TOPP 10 kaupin í dag
Í KIRKJUNNI heyrum við oft þá
skoðun að Biblían banni samkyn-
hneigð og þess vegna eigi kristnir
menn að vera á móti samkynhneigð.
Sumir álasa samkynhneigðu fólki og
sakfella það sem syndara, og aðrir
telja samkynhneigð andstæða Bibl-
íulegri trú þótt þeir fallist ekki á að
álasa fólki persónulega. Biblían er að
sjálfsögðu grunnur fyrir trúaða til að
halda í trú sína og skilaboð hennar
eru tvímælalaust mikilvæg.
Hvað segir Biblían um samkyn-
hneigð? Ég get ekki bent á alla hluta
textans hér heldur vil aðeins taka
þrjú grundvallardæmi. Fyrsti hlut-
inn er frá Heilagleikalögum í Gamla
testamentinu: „Eigi skalt þú leggjast
með karlmanni sem kona væri. Það
er viðurstyggð.“ (3. Móse. 18:22.)
Annar hluti er frá orðum Páls post-
ula: „Bæði hafa konur breytt eðlileg-
um mökum í óeðlileg, og eins hafa
líka karlar hætt eðlilegum mökum
við konur og brunnið í losta hver til
annars … og tóku út á sjálfum sér
makleg málagjöld villu sinnar.“
(Róm. 1: 26–27.) Þriðji hlutinn er orð
Jesús um karl og konu sem hann
orðar í 1. Mósebók: „… skaparinn
gjörði þau frá upphafi karl og konu
… fyrir því skal maður … bindast
konu sinni, og þau tvö skulu verða
einn maður.“ (Matt.
19:4–5.)
Í stuttu máli sagt eru
rökin eftirfarandi. Í
fyrsta lagi á samlíf að
vera á milli karlmanns
og konu, því Guð ákvað
að slíkt væri eðli
mannsins. Sagt er að
þar af leiði að samkyn-
hneigð sé á móti vilja
Guðs, og í sjálfu sér
lauslæti. Í þessum rök-
um er einatt vísað til
Biblíunnar og mér virð-
ist sem margir telji
þetta Bibíulega trú.
Stundum eru slík við-
horf líka kölluð bókstaf-
leg trú. Ég er hvorki sannfærður af
þessum rökum né sammála að þetta
megi kalla Biblíulega trú.
Biblían og
skilaboð hennar
Trúarbrögð eru hluti af menningu
mannanna og eru þess vegna bundin
við tiltekna menningarheima og
sögu. Trúarbrögð eru gjarnan klædd
í mismunandi búning til að viðhalda
trúarlegum sannleika hvers tíma og
samfélags. Með þessu er ég ekki að
segja að sannleikurinn sé ekki sann-
leikur. Ég er einfald-
lega að segja að sann-
leikurinn verður að
tengjast áþreifanlegum
atburðum í sögunni og
reynsluheimi okkar
mannanna á hverjum
tíma til þess að birtast
okkur og vera okkur
skiljanlegur. Biblían
var ekki sköpuð í
menningarlegu eða
sögulegu tómi. Biblían
er bunki margra bóka
og hver þeirra var
skrifuð á tilteknu
menningarsvæði á til-
teknum tíma. Þess
vegna verðum við að
endurtúlka texta hennar ef við viljum
leita sannleikans, og við verðum að
forðast það að villast í túlkunum okk-
ar vegna mismunar á stund og stað.
Orðalag sem Páll postuli notar í texta
Biblíunnar getur t.d. þýtt allt annað á
hans tíma en við túlkum skv. okkar
orðalagi árið 2002. Að þessu leyti tel
ég að svokölluð „bókstafleg trú“ sé
ekki möguleg og í raun vanræksla á
trúariðkun. Biblían inniheldur því að-
eins sígild orð sannleikans ef við
höldum áfram að hafa fyrir því að
skilja hana og höfum til hliðsjónar
þekkingu okkar á hverri öld og hverj-
um menningarheimi. Aðeins með
þeim hætti getum við þróað kristna
kenningu á sviðum sem Biblían talar
ekki beinlínis um, eins og t.d. klónun
eða umhverfismál jarðarinnar. Að-
eins þannig getum við talað um satt
viðhorf biblíulegrar trúar. Við þurf-
um að taka ýmis mál Biblíunnar til
endurskoðunar því að þau hafa
greinilega aðra þýðingu í nútímanum
en þau gerðu á sínum tíma. Málefni
annarra trúarbragða er dæmi um
slíkt og að mínu mati er sömu sögu að
segja um málefni samkynhneigðra.
Biblíuleg trú er að hlusta eftir heild-
arskilaboðum Biblíunnar, en ekki að
koma fram með örsmáa hluta hennar
eftir eigin geðþótta.
Samkynhneigð og Biblían
Mig langar í þessu samhengi að
líta stuttlega á tvær staðhæfingar:
A) samkynhneigð er á móti því
mannlega „eðli“ sem Guð hefur skap-
að B) samkynhneigð er lauslæti.
Lítum fyrst á atriði B, en það er
aðallega rökstutt með Heilagleika-
lögum í 3. Mósebók og orðum Páls
postula. Varðandi Heilagleikalögin
mun enginn neita því að þau grund-
vallast á tilteknum menningarheimi
eins og ég hef orðað það hér að ofan.
Ef maður notar viðkomandi setning-
ar sem rök fyrir máli sínu verður
maður að sýna fram á skilning á Heil-
agleikalögunum sjálfum (þ.á m. á ít-
arlegum reglum um trúarlegar at-
hafnir í gömlum gyðingdómi).
Orð Páls eru einnig mjög bundin
við hans eigin menningarheim. Flest
okkar erum þegar búin að viður-
kenna það hvað varðar álit hans á
stöðu kvenna innan kirkjunnar. Mig
langar til að benda á tvö atriði um orð
Páls. Í fyrsta lagi ber að gæta þess að
í viðkomandi hluta Biblíunnar gagn-
rýnir hann aðallega kynferðislegt
lauslæti almennt frekar en samkyn-
hneigð. Í öðru lagi talar hann um til-
tekið fólk sem hann hefur þekkt en
ekki um siðferðilegar reglur al-
mennt. Munið að orð hans eru úr ein-
stökum bréfum hans þótt þau séu
notuð í opinberum tilgangi innan
kirkjunnar. Við getum ekki tekið orð
hans úr samhengi. Álit mitt um atriði
B er að það sé ekki hægt að fordæma
samkynhneigð beinlínis með viðkom-
andi orðum Biblíunnar. Þar vantar
rök til að aðgreina sígilt mat frá til-
teknu menningargildi.
Atriði A er ef til vill flóknara því að
það snertir viðhorf Biblíunnar til
hjónabands, en það er líka mjög
bundið við sérstakan menningarheim
(sjá sögur í 1. Mósebók. t.d. um Jak-
ob, Rakel og Leu) og ekki auðvelt að
fá skýra skilgreiningu. Hér bendi ég
hins vegar á tvö atriði sem ég tel mik-
ilvæg. Í fyrsta lagi: Hver er tilgangur
hjónabands í samhengi við Guðs
vilja? Hvað er að vera gagnkvæmur
hjálpari hvort við annað? Verður fólk
að vera karl og kona til þess að hjálpa
maka sínum og elska? Í öðru lagi:
Hvað er Biblíulegur skilningur á
tengslum milli hluta persónuleika
einstaklings og heildarpersónuleika
hans? Er hægt að aðskilja tilfinn-
ingalíf samkynhneigðrar manneskju
frá manneskjunni í heild sinni? Ég
þarf að bíða eftir öðru tækifæri til að
rökstyðja þessi atriði.
Niðurstaða mín er hins vegar sú að
við getum ekki fordæmt samkyn-
hneigð og samkynhneigt fólk með
beinum tilvitnunum í orð Biblíunnar
eins og svokallað „bókstafstrúarfólk“
heldur.
Samkynhneigð og biblíuleg trú
Toshiki
Toma
Samkynhneigð
Niðurstaða mín er
hins vegar sú, segir
Toshiki Toma, að við
getum ekki fordæmt
samkynhneigð og sam-
kynhneigt fólk með
beinum tilvitnunum í
orð Biblíunnar.
Höfundur er prestur innflytjenda.
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.