Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.06.2002, Blaðsíða 34
UMRÆÐAN 34 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Renault Megane Rt 9/99 Ekinn 65.000 km, 1600 cc, beinskiptur. Ásett verð 1.150.000 kr. Tilboð 930.000 kr. Citroen Saxo 12/00 Ekinn 9.000 km, 1400 cc, beinskiptur. Ásett verð 1.090.000 kr. Tilboð 850.000 kr. Opel Corsa 6/01 Ekinn 24.000 km, 1200 cc, beinskiptur. Ásett verð 1.160.000 kr. Tilboð 890.000 kr. Daihatsu Terios 4X4 Ekinn 84.000 km, 1300 cc, beinskiptur. Ásett verð 1.020.000 kr. Tilboð 840.000 kr. Renault Laguna 5/99 Ekinn 61.000 km, 1600 cc, beinskiptur. Ásett verð 1.280.000 kr. Tilboð 1.150.000 kr. Renault Megane 3/99 Ekinn 65.000 km, 1600, beinskiptur. Ásett verð 1.120.000 kr. Tilboð 990.000 kr. Daihatsu Gran Move 3/99 Ekinn 36.000 km, 1600 cc, sjálfskiptur. Ásett verð 1.120.000 kr. Tilboð 990.000 kr. Vw Golf 6/97 Ekinn 89.000 km, 1600 cc, beinskiptur. Ásett verð 790.000 kr. Tilboð 670.000 kr. Daihatsu Cuore 5/00 Ekinn 42.000 km, 1000 cc, beinskiptur. Ásett verð 720.000 kr. Tilboð 610.000 kr. Ford Focus 11/99 Ekinn 49.000 km, 1600 cc, beinskiptur. Ásett verð 1.230.000 kr. Tilboð 1.090.000 kr. Opið frá kl. 9-18 virka daga og kl. 13-17 laugardaga Bíldshöfða 6, síma 515 7000  Tryggvabraut 5, Akureyri, sími 462 2700 www.brimborg.is TOPP 10 kaupin í dag Í KIRKJUNNI heyrum við oft þá skoðun að Biblían banni samkyn- hneigð og þess vegna eigi kristnir menn að vera á móti samkynhneigð. Sumir álasa samkynhneigðu fólki og sakfella það sem syndara, og aðrir telja samkynhneigð andstæða Bibl- íulegri trú þótt þeir fallist ekki á að álasa fólki persónulega. Biblían er að sjálfsögðu grunnur fyrir trúaða til að halda í trú sína og skilaboð hennar eru tvímælalaust mikilvæg. Hvað segir Biblían um samkyn- hneigð? Ég get ekki bent á alla hluta textans hér heldur vil aðeins taka þrjú grundvallardæmi. Fyrsti hlut- inn er frá Heilagleikalögum í Gamla testamentinu: „Eigi skalt þú leggjast með karlmanni sem kona væri. Það er viðurstyggð.“ (3. Móse. 18:22.) Annar hluti er frá orðum Páls post- ula: „Bæði hafa konur breytt eðlileg- um mökum í óeðlileg, og eins hafa líka karlar hætt eðlilegum mökum við konur og brunnið í losta hver til annars … og tóku út á sjálfum sér makleg málagjöld villu sinnar.“ (Róm. 1: 26–27.) Þriðji hlutinn er orð Jesús um karl og konu sem hann orðar í 1. Mósebók: „… skaparinn gjörði þau frá upphafi karl og konu … fyrir því skal maður … bindast konu sinni, og þau tvö skulu verða einn maður.“ (Matt. 19:4–5.) Í stuttu máli sagt eru rökin eftirfarandi. Í fyrsta lagi á samlíf að vera á milli karlmanns og konu, því Guð ákvað að slíkt væri eðli mannsins. Sagt er að þar af leiði að samkyn- hneigð sé á móti vilja Guðs, og í sjálfu sér lauslæti. Í þessum rök- um er einatt vísað til Biblíunnar og mér virð- ist sem margir telji þetta Bibíulega trú. Stundum eru slík við- horf líka kölluð bókstaf- leg trú. Ég er hvorki sannfærður af þessum rökum né sammála að þetta megi kalla Biblíulega trú. Biblían og skilaboð hennar Trúarbrögð eru hluti af menningu mannanna og eru þess vegna bundin við tiltekna menningarheima og sögu. Trúarbrögð eru gjarnan klædd í mismunandi búning til að viðhalda trúarlegum sannleika hvers tíma og samfélags. Með þessu er ég ekki að segja að sannleikurinn sé ekki sann- leikur. Ég er einfald- lega að segja að sann- leikurinn verður að tengjast áþreifanlegum atburðum í sögunni og reynsluheimi okkar mannanna á hverjum tíma til þess að birtast okkur og vera okkur skiljanlegur. Biblían var ekki sköpuð í menningarlegu eða sögulegu tómi. Biblían er bunki margra bóka og hver þeirra var skrifuð á tilteknu menningarsvæði á til- teknum tíma. Þess vegna verðum við að endurtúlka texta hennar ef við viljum leita sannleikans, og við verðum að forðast það að villast í túlkunum okk- ar vegna mismunar á stund og stað. Orðalag sem Páll postuli notar í texta Biblíunnar getur t.d. þýtt allt annað á hans tíma en við túlkum skv. okkar orðalagi árið 2002. Að þessu leyti tel ég að svokölluð „bókstafleg trú“ sé ekki möguleg og í raun vanræksla á trúariðkun. Biblían inniheldur því að- eins sígild orð sannleikans ef við höldum áfram að hafa fyrir því að skilja hana og höfum til hliðsjónar þekkingu okkar á hverri öld og hverj- um menningarheimi. Aðeins með þeim hætti getum við þróað kristna kenningu á sviðum sem Biblían talar ekki beinlínis um, eins og t.d. klónun eða umhverfismál jarðarinnar. Að- eins þannig getum við talað um satt viðhorf biblíulegrar trúar. Við þurf- um að taka ýmis mál Biblíunnar til endurskoðunar því að þau hafa greinilega aðra þýðingu í nútímanum en þau gerðu á sínum tíma. Málefni annarra trúarbragða er dæmi um slíkt og að mínu mati er sömu sögu að segja um málefni samkynhneigðra. Biblíuleg trú er að hlusta eftir heild- arskilaboðum Biblíunnar, en ekki að koma fram með örsmáa hluta hennar eftir eigin geðþótta. Samkynhneigð og Biblían Mig langar í þessu samhengi að líta stuttlega á tvær staðhæfingar: A) samkynhneigð er á móti því mannlega „eðli“ sem Guð hefur skap- að B) samkynhneigð er lauslæti. Lítum fyrst á atriði B, en það er aðallega rökstutt með Heilagleika- lögum í 3. Mósebók og orðum Páls postula. Varðandi Heilagleikalögin mun enginn neita því að þau grund- vallast á tilteknum menningarheimi eins og ég hef orðað það hér að ofan. Ef maður notar viðkomandi setning- ar sem rök fyrir máli sínu verður maður að sýna fram á skilning á Heil- agleikalögunum sjálfum (þ.á m. á ít- arlegum reglum um trúarlegar at- hafnir í gömlum gyðingdómi). Orð Páls eru einnig mjög bundin við hans eigin menningarheim. Flest okkar erum þegar búin að viður- kenna það hvað varðar álit hans á stöðu kvenna innan kirkjunnar. Mig langar til að benda á tvö atriði um orð Páls. Í fyrsta lagi ber að gæta þess að í viðkomandi hluta Biblíunnar gagn- rýnir hann aðallega kynferðislegt lauslæti almennt frekar en samkyn- hneigð. Í öðru lagi talar hann um til- tekið fólk sem hann hefur þekkt en ekki um siðferðilegar reglur al- mennt. Munið að orð hans eru úr ein- stökum bréfum hans þótt þau séu notuð í opinberum tilgangi innan kirkjunnar. Við getum ekki tekið orð hans úr samhengi. Álit mitt um atriði B er að það sé ekki hægt að fordæma samkynhneigð beinlínis með viðkom- andi orðum Biblíunnar. Þar vantar rök til að aðgreina sígilt mat frá til- teknu menningargildi. Atriði A er ef til vill flóknara því að það snertir viðhorf Biblíunnar til hjónabands, en það er líka mjög bundið við sérstakan menningarheim (sjá sögur í 1. Mósebók. t.d. um Jak- ob, Rakel og Leu) og ekki auðvelt að fá skýra skilgreiningu. Hér bendi ég hins vegar á tvö atriði sem ég tel mik- ilvæg. Í fyrsta lagi: Hver er tilgangur hjónabands í samhengi við Guðs vilja? Hvað er að vera gagnkvæmur hjálpari hvort við annað? Verður fólk að vera karl og kona til þess að hjálpa maka sínum og elska? Í öðru lagi: Hvað er Biblíulegur skilningur á tengslum milli hluta persónuleika einstaklings og heildarpersónuleika hans? Er hægt að aðskilja tilfinn- ingalíf samkynhneigðrar manneskju frá manneskjunni í heild sinni? Ég þarf að bíða eftir öðru tækifæri til að rökstyðja þessi atriði. Niðurstaða mín er hins vegar sú að við getum ekki fordæmt samkyn- hneigð og samkynhneigt fólk með beinum tilvitnunum í orð Biblíunnar eins og svokallað „bókstafstrúarfólk“ heldur. Samkynhneigð og biblíuleg trú Toshiki Toma Samkynhneigð Niðurstaða mín er hins vegar sú, segir Toshiki Toma, að við getum ekki fordæmt samkynhneigð og sam- kynhneigt fólk með beinum tilvitnunum í orð Biblíunnar. Höfundur er prestur innflytjenda. Gjafavara – matar- og kaffistell . All ir verðflokkar. - Gæðavara Heimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.