Morgunblaðið - 19.06.2002, Page 36
MINNINGAR
36 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Else MargretheRunólfsson
fæddist í Tranekær
á Langalandi í Dan-
mörku 25. janúar
1921. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Sóltúni í Reykjavík
11. júní síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Nils og Marie
Rasmussen og systk-
ini hennar voru
Henning og Karen.
Else giftist eftirlif-
andi eiginmanni sín-
um, Sigurði Runólfs-
syni mjólkurfræðingi, 19.
febrúar 1939. Þau eiga tvö börn:
a) Runólfur, kvænt-
ur Þórunni Skapta-
dóttir og eiga þau
þrjá syni, Skapta
Þór, Sigurð Arnar,
og Frosta Jón. b)
Þórdís, gift Halldóri
Hjaltasyni og eiga
þau tvær dætur,
Hrafnhildi og Sif
Ellen. Langömmu-
börn Else eru sex,
Ragnar Þór, Brynj-
ar, Elsa Margrét,
Daniel, Tyler og
Corteney.
Útför Else var
gerð frá Laugarneskirkju í kyrr-
þey 18. júní.
Elsku amma mín er látin og eftir
sitja minningar um gleðistundir og
sorgir sem við höfum átt í gegnum
árin.
Ég á eftir að sakna ömmu mikið
því samband okkar var mjög náið og
hef ég alltaf litið til hennar eins og
móður minnar og vinkonu. Ég á
margar góðar minningar með henni
úr æsku minni. Einnig er ég þakklát
fyrir að hafa átt með henni síðustu
tuttugu árin hennar, eftir að ég flutti
heim frá Bandaríkjunum.
Amma mín hafði marga góða
kosti. Hún var ákveðin við sjálfa sig
og gerði miklar kröfur til sín og hafði
metnað í leik og starfi, var fæddur
listamaður, fór því miður aldrei í
listaháskóla, en verkin hennar
standa áfram fyrir okkur sem eftir
lifum. Hún saumaði ýmislegt í
saumavél en hafði einnig gaman af
því að sauma í púða, rókokkóstóla og
strengi. Hún prjónaði og heklaði
líka. Oft fór hún sínar leiðir og gerði
peysur eða veski eftir eigin höfði, án
uppskriftar úr blaði. Hún málaði
myndir á striga og á postulín. Hún
gaf stundum handavinnu á basar hjá
Dansk kvindeklub, en þangað sótti
hún félagsskap til margra ára.
Hún var þekkt fyrir að vera snjöll
og gat búið til alveg ótrúlega hluti úr
efni sem aðrir sáu ekkert í. Hún nýtti
rekavið úr fjörunni, steina og annað
úr náttúrunni til að skapa listaverk.
Amma sagði ávallt við mig, „et hast-
verk er et lastværk“ sem ég skyldi
þannig að ef þú gerir eitthvað í fljót-
heitum verður lítið varið í það. Enda
lagði hún mikla vinnu í vandaðan frá-
gang á öllu sem hún kom nálagt.
Matarboð heima hjá ömmu voru
alveg sértök. Á stórhátíðum var ekk-
ert til sparað. Allt besta leirtauið var
tekið út úr skápnum, silfur og bestu
kristalglösin lögð á borð. Maturinn
var einstaklega góður, eins og bestu
veisluborð úr Hjemmet.
Hún var dönsk í húð og hár og
fylgdist með því sem var að gerast í
Danmörku í gegnum dönsku blöðin.
Hún var mikið fyrir að hafa um-
gjörðina huggulega. Jólaborðið
hennar var einstaklega glæsilegt
heimagerður matur að dönskum
hætti og ekki má gleyma handavinn-
unni, sérsaumaðar diskamottur og
annað fallegt sem prýddi borðið.
Marga siði hef ég tekið upp frá henni
og mun halda áfram í minni fjöl-
skyldu.
Amma var einnig mikið fyrir aðrar
listgreinar, sem dæmi má nefna ball-
ett og sinfóníutónlist. Ég þakka
henni fyrir að hvetja mig til að
stunda nám við tónlistarskóla og hún
gaf mér fiðluna mína í fermingar-
gjöf. Hún hvatti mig einnig til fram-
haldnáms við Háskólann og minnti
mig á að nám opnar möguleika til
góðs árangurs í lífinu.
Þrátt fyrir hennar miklu veikindi
erum við búin að eiga mörg yndisleg
ár síðan ég flutti heim frá Bandaríkj-
unum 1984. Hún tók vel á móti mér
eins og hún hefur gert allt mitt líf.
Við erum búnar að spjalla mikið um
heima og geima og ég mun áreið-
anlega sakna þess að eiga ekki kost á
því að heyra í henni. Ég fór stundum
með henni í selskap hjá Dansk
kvindeklub og fékk einnig að vera
með þegar dönsku vinkonurnar
hennar komu í heimsókn til að
drekka kaffi, borða petitefors og fá
sherry. Eins mun ég sakna gardenp-
artía í Hátúni á sumrin. Hún var
mikið fyrir blóm og fegurð. Garður-
inn í Hátúni var alltaf fullur af fal-
legum sumarblómum og sérstaklega
vel snyrtur.
Lífið er ekki alltaf dans á rósum,
því miður fékk amma að reyna það,
eins og svo margir aðrir. Slys og
óhöpp settu sitt mark á hennar
seinni ár. Síðustu tuttugu og fimm
árin hefur hún verið að berjast við
eftirmála af alvarlegu slysi sem hún
varð fyrir. Það var þess vegna mikið
áfall fyrir mig að hún skyldi lenda í
enn einu slysinu sem varð til þess að
hún lést og fékk því ekki að njóta síð-
ustu ævidaga sinna eins og við von-
uðumst til að hún mundi geta gert.
Ég bið Guð að blessa afa minn sem
eftir lifir, veita honum styrk og
mæta honum í þeirri miklu sorg og
tómarúmi sem skapast núna þegar
amma er farin. Hann hefur gefið
ömmu það dýrmætasta sem hægt er
að gefa annarri manneskju í þessu
lífi, óeigingjarna ást, þolinmæði,
góðvild, trúfestu og kærleika, allt
þeirra líf saman og sérstaklega í
veikindum hennar. Þökk sé þér afi
minn fyrir að vera eins og þú ert, al-
vega einstakur.
Elsku amma mín, ég bið engla
Guðs um að leiða þig áfram í nýju lífi
sem ég trúi að bíði okkar allra. Þín
verður saknað á svo margvíslegan
hátt. Vertu sæl, þangað til við
sjáumst aftur ...
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Kær ástarkveðja,
Hrafnhildur.
ELSE MARGRETHE
RUNÓLFSSON
0
"
" "
0- 00:>0)-*
>2'B
5 &5
1
2
)
2
( #!4
#!4 ( "# 5<#
"#&+ (# >!!#> !
3+
3
>6090 2( ' &$
!&(C
#4%
(! #+
3
"
"
$0)/,*
> D
>44(
#
5
6
2
" $ > (##
>!!$ # ''
.! $ #
33+
3
"
"
0,8%))E
#
/
F
5 ( <<
#
$%
$"
)
7
6
1
"
)
.8
-
>!! 0&5# $' #
(0&5 > !%+. #
: %!0&5 .':#
#
33+
!
"
"" ,8E)$8-99-*0GE
HIB;
#9 !
$
%!4&
# 9:
,
;
1,(
-
&
2
.7
& 3"&"
--/
,
"&
2
<
&
3#
" )
=
>
2?3@@1
7--/55A
$*
#(
* 9! /! ( $&!!
? !9! - &$&!! ?
< $9! %&$&!!
= 9! .&*
#(#
9! *&(*
#(#+
"
"
)
/-98 >--9 9::,
#
1( )
B
+ > (& # .5
>!!# J'( "# !!#
33+
0
"
" 0,K:"
0,
(3(
&
#
1
@
&
C
..
//
<
&
(1
"
C
# "#'#
> !0# >!!##
" ( 0# #
'0 ! 6
33
5 !2+
LEGSTEINAR
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar eða
fáið sendan myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
Erfisdrykkjur
50-300 manna
Glæsilegir salir
Bræðraminni ehf., Kíwanishúsinu,
Engjateigi 11, sími 588 4460.