Morgunblaðið - 19.06.2002, Qupperneq 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 45
Milljónaútdráttur
Þar sem einvörðungu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigendi bæði að
hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
6. flokkur, 18. júní 2002
Kr. 1.000.000,-
18821E
19337F
29743E
31718B
32173H
37567E
40991G
44148H
46169G
48674B
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
-
IT
M
9
01
6
Heilir
sturtuklefar
í horn
með öryggisgleri og
segullæsingu.
Innifalið í verði:
sturtubotn með
vatnslás,
blöndunartæki með
sturtusetti.
Tilboðsverð kantaðir:
70x70 cm kr. 48.950,- stgr
80x80 cm kr. 50.250,- stgr
Tilboðsverð rúnnaðir:
80x80 cm kr. 65.780,- stgr
90x90 cm kr. 67.450,- stgr
Baðkars-
sturtuhlífar
úr öryggis-
gleri
Verð frá:
14.900,-
Handlaugar í borð
Verð frá 8.950,- stgr
Handlaugar á vegg
Verð frá 3.950,- stgr
WC með stút
í vegg eða
gólf
Með setu-
festingum
Tvöföld
skolun
Verð frá
17.250,- stgr
Inn-
byggingar
WC
Verð sett
með öllu
kr. 43.800,-
stgr
E ldhússtá lvaskar í úrval i
sumartilboðDÚNDUR
V. Fellsmúla • S. 588 7332
Ný vefsíða: www.i-t.is
Baðkör
Stærðir
160x70,
170x70,
160x75 form. m. handföngum
170x75 form. m. handföngum
170x83 form. m. handföngum
180x83 form. m. handföngum
Verð frá 12.350,- stgr.
Opið:
Mán - fös 9-18
Lau 10-14
Verð frá
7.350,- stgr
„LANDHNIGNUN og eyðimerkur-
myndun er einhver alvarlegasti um-
hverfisvandi heimsins. Til að efla
samstöðuna í baráttunni gegn þess-
um vágesti hafa Sameinuðu þjóðirn-
ar tileinkað 17. júní ár hvert verndun
jarðvegs. Sameinuðu þjóðirnar hafa
upplýst að eyðimerkurvofan ógni nú
lífsafkomu um 1200 milljón manns
víða um heim, en verst er ástandið í
Afríku, Asíu og þeim löndum sem áð-
ur mynduðu Sovétríkin. Talið er að
um 20 milljarðar tonna af jarðvegi
glatist á ári hverju. Frjósemi jarð-
vegsins, sem er undirstaða fæðuöfl-
unar fyrir jarðarbúa, hnignar ört og
vatnsmiðlun hrakar á stórum svæð-
um. Í nýjast hefti Kríunnar, frétta-
bréfi Landverndar, er greint frá
þessu alvarlega ástandi,“ segir í
fréttatilkynningu frá Landvernd.
„Mikill árangur hefur náðst í
gróður- og jarðvegsvernd á Íslandi
frá því að markvisst var byrjað að
vinna að þeim málum í byrjun tutt-
ugustu aldar. Á tilteknum svæðum
hefur þó enn ekki tekist að koma á
viðunandi aðgerðum til varnar jarð-
vegseyðingu. Úr því þarf að bæta.
Landvernd telur að sjálfbær land-
nýting sé hagkvæmasta leiðin til að
koma í veg fyrir eða stöðva gróður-
og jarðvegseyðingu. Það er mikil-
vægt að sett séu skýr markmið um
sjálfbæra landnýtingu og að lög og
reglugerðir verði samræmd í þess-
um tilgangi og felld að þessum
markmiðum.
Ástand gróðurs á hálendinu er
enn víða bágborið og uppi eru áform
um virkjanir sem munu eyða gróðri
og kunna jafnframt að skapa hættu á
áfoki. Í byggð er gróðureyðing einn-
ig víða verulegt vandamál, sérstak-
lega af völdum hrossabeitar. Land-
vernd skorar á alla sem hlut eiga að
máli að stuðla að sjálfbærri nýtingu
lands og gróðurs og hefja ekki fram-
kvæmdir sem hætta er á að valdi víð-
tækri jarðvegseyðingu.
Aðild Íslands að samningnum um
baráttu gegn myndum eyðimerkur
skyldar íslensk stjórnvöld til að
sinna alþjóðlegu vísindasamstarfi og
til að miðla þekkingu og fjármagni til
þróunarlanda. Þekking Íslendinga á
þessum málum er mikil og því telur
Landvernd eðlilegt að þetta við-
fangsefni fái hlutdeild í þróunarsam-
vinnu landsins.
Samningurinn um líffræðilega
fjölbreytni og náttúruverndarlögin
kveða á um að sýnd sé varúð við
notkun framandi (erlendra) tegunda
og við einsleita ræktun sem getur
dregið úr fjölbreytni í gróðurfari.
Þetta þarf að hafa í huga við upp-
græðslu og skógrækt hér á landi,“
segir þar enn fremur.
Alþjóðlegi jarðvegs-
verndardagurinn
VEFRITIÐ tikin.is verður form-
lega opnað og kynnt á kvennafrí-
deginum 19. júní. Opnunarhófið
verður á milli kl. 17:00 og 19:00 á
Thorvaldsen-bar. Guðríður Sigurð-
ardóttir og Helga Árnadóttir rit-
stjórnarfulltrúar opna vefritið og
kynna það gestum.
„Að Tíkinni stendur hópur ungra
kvenna sem deila þeirri skoðun að
einstaklingsfrelsi, einkaframtak og
jafnrétti séu grundvöllurinn að
heilbrigðu samfélagi og að allir
skuli hafa jöfn tækifæri til að raun-
gera möguleika sína. Flestar skil-
greina sig hægra megin við miðju í
pólitík en Tíkin tengist ekki stjórn-
málaflokkum eða hagsmunasam-
tökum. Skoðanir sem fram koma
kunna að vera skiptar um hin ýmsu
mál og eru pistlar á ábyrgð höf-
unda einna. Sjónarmið ungra
kvenna á hægri væng stjórnmál-
anna hafa ekki farið ýkja hátt í
þjóðfélagsumræðunni, hverju svo
sem það sætir.
Kominn er tími til að ráða bót á
þessu og skapa vettvang þar sem
ungar hægrikonur geta kynnt
skoðanir sínar og tjáð sig um þau
málefni sem eru efst á baugi , jafnt
varðandi efnahagsmál, utanríkis-
mál, heilbrigðis- og menntakerfið,
sveitarstjórnarmál og jafnréttis-
baráttuna, svo nokkuð sé nefnt.
Brýnt er að koma á framfæri
hægrisinnuðum sjónarmiðum í
jafnréttismálum, en í umræðum
um þennan málaflokk hafa vinstri
viðhorf um langt skeið verið meira
áberandi.“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Nýtt vefrit opnað
MIÐVIKUDAGINN 19. júní kl. 16.00
flytur Björn Brynjúlfsson fyrirlestur
um verkefni sitt til meistaraprófs í
rafmagns- og tölvuverkfræði við Há-
skóla Íslands. Fyrirlesturinn nefnist
„Tenging við endanotendur – Einfalt
og sjálfskipandi IP margvarp“. Fyr-
irlesturinn verður haldinn í stofu 158 í
húsi verkfræði- og raunvísindadeilda,
VR-II, Hjarðarhaga 2-6.
„Á síðustu árum hafa rannsakend-
ur áttað sig á því að flækjan sem nú-
verandi margvarpsprótókollar bæta í
Internetið er of mikil ef miðað er við
ávinninginn sem af þeim næst. Ein-
faldleiki IP einvarpslíkansins hefur
aftur á móti leitt af sér gríðarlega
aukningu á umferð um Internetið.
Hafa menn tekið mið af því og leitað
nýrra og einfaldari leiða til að útfæra
margvarp og þá sérstaklega með til-
liti til þeirrar staðreyndar að marg-
varp hentar best þegar sendendur á
hóp eru einn eða fáir, t.d. við sjón-
varpsútsendingar.
Í rannsóknarverkefninu um einfalt
og sjálfskipandi margvarp er sett
fram ný útfærsla á margvarpi.
Umsjónarkennarar voru Gísli
Hjálmtýsson, prófessor við Háskól-
ann í Reykjavík, og Sigfús Björnsson,
prófessor við verkfræðideild Háskóla
Íslands. Prófdómari er Pálmi Ragnar
Pétursson,“ segir m.a. í fréttatilkynn-
ingu.
Meistaraverk-
efni um teng-
ingu við enda-
notendur
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Háskóla Íslands útskrifaði 93 nem-
endur við hátíðlega athöfn í Há-
skólabíói 7. júní síðastliðinn, en
nemendurnir hafa allir stundað
nám samhliða vinnu.
Útskrifað var af fjórum náms-
brautum og luku flestir rekstrar-
og viðskiptanámi eða 34 manns.
Átta nemendur útskrifuðust úr
framhaldsnámi í rekstrarfræðum,
29 nemendur úr markaðs- og út-
flutningsfræði og 22 nemendur frá
námsbraut í opinberri stjórnsýslu
og stjórnun. Kristín Jónsdóttir end-
urmenntunarstjóri og Ingimundur
Sigurpálsson, forstjóri Eimskips,
fluttu ávarp við athöfnina og Páll
Skúlason, rektor Háskóla Íslands,
afhenti prófskírteini.
Endurmenntun HÍ hefur braut-
skráð 1.450 nemendur frá því byrj-
að var að bjóða upp á nám samhliða
vinnu á árinu 1990. Nú stunda alls
um 320 nemendur slíkt nám á níu
námsbrautum.
Endurmenntunarstofnun
HÍ útskrifar 93 nemendur
FYRIRHUGUÐU fjöruhlaðborði
Húsfreyjanna í Hamarsbúð á Vatns-
nesi, sem vera átti laugardaginn 22.
júní nk., er aflýst af óviðráðanlegum
ástæðum.
Fjöruhlaðborði í
Hamarsbúð aflýst
♦ ♦ ♦