Morgunblaðið - 19.06.2002, Side 50

Morgunblaðið - 19.06.2002, Side 50
FÓLK Í FRÉTTUM 50 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Evrópukynning Samfylkingarinnar Opinn fundur í Evrópukynningu Samfylkingarinnar á Akranesi fimmtudaginn 20. júní. Fundurinn er á Barbró og hefst kl. 20.30 Framsögumenn: Ágúst Ólafur Ágústsson; sjávarútvegsmál. Svanfríður I. Jónasdóttir; byggðamál. Bryndís Hlöðversdóttir; fullveldis- og sjálfstæðismál. Fyrirspyrjendur: Gísli Gíslason, bæjarstjóri. Björn Lárusson, fréttamaður. Hjördís Hjartardóttir, kennari. Fundarstjóri: Björgvin G. Sigurðsson. www.samfylking.is ALLIR VELKOMNIR Svanfríður I. Jónasdóttir Björgvin G. Sigurðsson. Bryndís Hlöðversdóttir                                            !"" #   "" # $  "" # $   $%         $&      $ '  !    ()* +,-.-/  NÝ kvikmynd gerð eftir vinsælu teiknimyndaþátt- unum um hundinn Scooby Doo og vini hans glefsaði til sín toppsæti bandaríska bíól- istans um helgina. Myndin, sem heit- ir einfaldlega Scooby Doo, er hlaðin tölvubrell- um og skartar unglingastjörnu- parinu Söruh Michelle Gellar og Freddie Prinze yngri en Mathew Lillard leikur hinn renglulega Shaggy. Svo virðist sem Scooby Doo og vin- ir hans hafi engum vinsældum tapað þrátt fyrir að hafa óneitanlega verið börn síns tíma, og það blómabörn, en þættirnir voru frægir fyrir litadýrð og skýrar vísanir í hippatískuna sem ríkti á meðan þeir voru hvað vinsæl- astir. Myndin gekk reyndar svo vel að hún sló met, engin mynd hefur hlotið eins mikla aðsókn í júnímánuði, en fyrra metið átti Austin Powers: The Spy Who Shagged Me (þriðja myndin um Austin Powers verður frumsýnd vestra í næsta mánuði). Tvær aðrar myndir voru frum- sýndar vítt og breitt um Bandaríkin á föstudaginn; spennutryllirinn The Bourne Identity og stríðsmyndin Windtalkers, sem náðu öðru og þriðja sæti listans yfir tekjuhæstu myndir helgarinnar. The Bourne Identity er gerð eftir samnefndri spennusögu Roberts Ludlums og skartar Matt Damon í hlutverki manns sem rankar við sér á strönd og er minnislaus. Leikstjóri myndarinnar er Doug Limen, sem áð- ur hefur getið sér gott orð fyrir myndirnar Swingers og Go. Og nýja myndin virðist lítt síðri þótt stærri sé í sniðum. Gagnrýnendur eru almennt í skýjunum yfir henni og hafa flestir á orði að hér sé á ferð skotheld spennu- mynd, eins og þær gerðust hvað best- ar hér áður fyrr. The Windtalkers hefur ekki hlotið eins góða dóma en þar er á ferð nýj- asta mynd Hong Kong-búans Johns Woos. Líkt og í Face Off leikur Nicol- as Cage aðalhlutverkið, sárkvalinn liðsforingja á vígvelli seinni heims- styrjaldarinnar. Næstu helgi verða svo tvær stórar frumsýndar vestra, Disney-teikni- myndin Lilo & Stitch og nýja Spiel- berg-myndin Minority Report, með Tom Cruise í aðalhlutverki, en fyrstu viðbrögð við þessum framtíðartrylli eru vægast sagt jákvæð. Scooby Doo er hund- ur sem segir voff Það er hundur í bandarískum bíógestum þessa dagana. skarpi@mbl.is Vinsælustu bíómyndirnar í Bandaríkjunum                                                                             !  " ! #$  %&# #"#' #$% (((  )   % *#+*#((( , !+-# #!.,# ,  ' # % . # /!)              skrúða frá toppi til táar, hvort sem þeir voru að berjast eður ei. Markaður var opinn alla helgina en þar var hægt að fjárfesta í steinvölum, sverðum og ÞAÐ VAR þjóðlegur andi sem sveif yfir vötn- um í nágrenni Fjörukrárinnar í Hafnarfirði um helgina þar sem svonefnd Víkingahátíð var í algleymingi. Fjölbreytt dagskrá var í boði fyrir alla fjöl- skylduna. Boðið var upp á bardaga þar sem víkingar í fullum skrúða stunduðu sverða- glamur og klæddust viðstaddir víkinga- skjöldum, allt að víkingasið. Hverju kvöldi lauk svo með víkingakvöldverði og dansleik fram á rauða nótt. Átta íslenskir víkingar reyndu á hátíðinni með sér í aflraunum og einn þeirra stóð svo uppi sem sterkasti maður Íslands. Keppend- urnir reyndu krafta sína í drumbalyftum, hleðslu og bóndagöngu auk þessa að reyna við hina 173 kílóa Húsafellshellu. Sterkasti maður landsins reyndist svo vera Magnús Magnússon en hann sigraði hann í sex keppn- isgreinum af níu. Víkingahátíð í Hafnarfirði Morgunblaðið/Árni Sæberg Þessi víkingur sá til þess að enginn færi svangur heim. Fjöldi fólks lagði leið sína í Hafnarfjörðinn um helgina til að fylgjast með kúnstum víkinganna. Alfrida klórar pabba sínum, Róbert Frederiksen, í skegginu er hann var að vinna í tréskurði á hátíðinni. Sterkasti víkingur landsins MENNTAMÁL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.