Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 39
og eflir löngun til friðar. Að syngja í kór er hverjum manni hollt enda er góður samhljómur kórs ekki aðeins til kominn af hljómnum sjálfum heldur því bræðraþeli sem ríkir milli manna einnig. Þar lagði sá er hér er kvaddur, Gunnar Yngvi Tóm- asson, þung lóð á vogarskálarnar með góðum drengskap sínum. Okkur í Karlakórnum Fóst- bræðrum reyndist Gunnar einstak- ur söngfélagi og vinur allt frá því hann gekk til liðs við kórinn árið 1987. Gunnar bast traustum bönd- um við félag sitt og söngfélaga alla. Hann gegndi um árabil trúnaðar- störfum í nefndum fyrir kórinn og lagði sitt af mörkum í þeirri vinnu sem inna þurfti af hendi við rekstur kórsins. Hann var ötull í söngstarfi og lagði sig allan fram um að taka þátt í hverju því sem kórinn tók sér fyrir hendur. Gunnar var hæglátur maður og var lítið fyrir að hafa sig mikið í frammi þó svo að hann kæmi sjónarmiðum sínum á framfæri ef með þurfti. Hann stundaði æfingar með kórnum vel, enda duldist eng- um sá hlýhugur sem hann bar til Fóstbræðra. Það var gjarnan stutt í brosið hjá Gunnari. Mér þótti upplífgandi að líta yfir til hans á æfingum, því þegar Gunn- ar söng færðist bros yfir andlit hans allt. Þegar litið er yfir farinn veg rifj- ast upp margar góðar stundir með Gunnari, en þó stendur uppúr sex- tugsafmæli Gunnars sem hann fagnaði í Fóstbræðraheimilinu með fjölskyldu sinni, félögum og vinum. Gunnar hafði átt við heilsuleysi að stríða undanfarin 9 ár, en heilsu hans var ógnað úr fleiri en einni átt. Með jákvæði tókst hann á við örlög sín og mætti mótlæti sínu af miklu æðruleysi. Aldrei heyrðist hann kvarta og ekki var hann fyrir að bera mótlæti sitt á torg. Hann var þó ekki einn, Anna kona hans stóð honum við hlið sem klettur í þessu mótlæti hans. Þegar Fóstbræður héldu í söng- för til Mið-Evrópu sl. sumar leit ekki vel út með að Gunnar kæmist með. Löngun hans var mikil, enda stefndu Fóstbræður meðal annars á alþjóðlega kórakeppni. Svo fór þó að Gunnar tilkynnti okkur stoltur að hann hefði fararleyfi frá lækn- unum og ekkert væri því til fyrir- stöðu að hann héldi í förina ásamt Önnu konu sinni. Þessi ferð varð Gunnari mikils virði og ekki síst okkur hinum. Það var ómetanlegt að hann skyldi ná þessum áfanga. Í Prag, Búdapest og Vín nutu þau hjón góðra daga við allt það besta sem þessar borgir bjóða upp á, skemmtun, tónleika og ekki síst við keppnina sem skilaði Fóstbræðrum gullverðlaunum. Þorrablót Fóstbræðra er alltaf fyrsta laugardag í febrúar og lætur enginn Fóstbróðir sig vanta þar. Þegar sá dagur rann upp í febrúar sl. vissum við af Gunnari á sjúkra- húsi og var mjög af honum dregið og tvísýnt um heilsu hans. Við höfð- um þó af því spurnir að hugur hans væri hjá okkur, hann væri að spyrj- ast fyrir um og ræða um þorrablót- ið. Í tilefni dagsins sendum við hon- um mikinn blómvönd. Um mánuði síðar mætti Gunnar öllum að óvör- um á æfingu til að heilsa upp á okk- ur. Hafði Gunnar á orði að blóm- vöndurinn góði hefði fyllt sig lífi að nýju og gefið sér orku til þess að komast á fætur aftur. Í maí sl. var Gunnar svo enn mættur til að fylgj- ast með sínum mönnum á vortón- leikum í Langholtskirkju og kom hann okkur þar enn á óvart. Svo fór þó að Gunnar varð að lúta í lægra haldi fyrir manninum með ljáinn eftir harðar glímur. Með þessum fátæklegu orðum viljum við kveðja góðan dreng og fé- laga. Hugur okkar er fullur þakk- lætis fyrir gott samstarf með Gunn- ari gegnum árin og ekki síst fyrir þann ríka vinarhug sem hann sýndi okkur og félagi sínu alla tíð. Við biðjum góðan Guð að blessa Önnu, eiginkonu Gunnars, í sorg hennar, svo og ástvini hans alla. Guð blessi minningu Gunnars Yngva Tómassonar. F.h. Karlakórsins Fóstbræðra, Eyþór Eðvarðsson. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 39 Það var á kvöld- skemmtun í Handíða- skólanum sem ég sá Valgerði Briem í fyrsta sinn. Skólinn var þá til húsa á efstu hæð á Laugavegi 118 og fór skemmtunin fram í stærstu skólastofunni. Þennan vetur sótti ég kvöldnámskeið í skólanum og komst fyrir tilviljun á skemmtunina, en hún mun eingöngu hafa verið fyrir nemendur og kennara dagdeilda skólans. Sjálfsagt hafa einhver skemmtiatriði verið höfð í frammi, en þeim hef ég löngu gleymt. Það eina sem mér er minnisstætt frá þessu kvöldi er konan glæsilega sem mér varð starsýnt á. Hún var klædd hvítri dragt og hvítum skóm, hárið dökkt og mikið sett upp í hnút. Um úlnliðinn bar hún sérkennilegt armband. Hún dansaði við ungan og fríðan ljóshærð- an mann. Ég fékk að vita að konan héti Valgerður Briem, væri kennari við skólann og sá sem hún dansaði við VALGERÐUR BRIEM ✝ Valgerður Briemfæddist á Hrafnagili í Eyjafirði 16. júní 1914. Hún lést í Reykjavík 13. júní síðastliðinn og fór útför hennar fram í kyrrþey. væri einn af nemendum hennar. Ári síðar stend ég í hópi nemenda í sömu skólastofunni og skemmtunin var haldin. Við bíðum eftir að kennslan í einni náms- greininni hefjist. Dyrn- ar opnast og inn kemur konan glæsilega, Val- gerður Briem, kennar- inn okkar. Strax eftir þessa fyrstu kennslu- stund gerðum við okkur grein fyrir hvílíkur af- bragðs kennari hún var. Við bárum mikla virðingu fyrir henni, en það var ekki óttablandin virðing, því þótt Valgerður væri stundum nokkuð brúnaþung fundum við fljótt að bak við alvarlegt fasið bjó mikil hlýja og glettni. Tímarnir hjá henni voru okkur alltaf tilhlökkunarefni. Oft kom hún með hnyttnar athuga- semdir um það sem við vorum að gera. „Eins og upp úr niðursuðudós“ sagði hún einhverju sinni. En stund- um sagði hún líka „Húrra“ eða „þetta er grand“. Erfitt er að lýsa í fáum orðum hvað gerði kennslu Valgerðar svo einstaka. Þrennt kemur einkum upp í hugann. Mikil þekking hennar, víðsýni og sá hæfileiki að skynja og skilja persónu- leika hvers og eins nemanda. Hún kenndi okkur vinnubrögð sem hafa komið okkur til góða æ síðan. Enginn kennari fyrr eða síðar hefur haft jafn mikil áhrif á mig og Valgerður og engum kennara á ég jafn mikið að þakka. Í gegnum myndlistarkennslu sína hafði hún mikil áhrif á íslenska myndlist á síðari hluta tuttugustu ald- ar og fram á þennan dag. Sjálf var Valgerður góður myndlistarmaður, en sýndi verk sín alltof sjaldan. Eft- irminnileg er sýning hennar á andlits- myndum á vegum FÍM á Kjarvals- stöðum fyrir mörgum árum. Sterk og persónuleg sýning. Alltaf var jafn gaman að hitta Val- gerði hvort sem það var á förnum vegi, heima hjá henni í Lönguhlíð eða af einhverju sérstöku tilefni. Hún var sjálfri sér samkvæm í öllu, en þó var hún sífellt að koma manni á óvart. Fyrir átta árum ákváðum við gaml- ir nemendur úr Handíðaskólanum að hittast og gera okkur glaðan dag. Við buðum Valgerði að vera heiðursgest- ur okkar. Nokkrum klukkustundum áður en veislan átti að hefjast fengum við þau boð að Valgerður hefði orðið lasin fyrr um daginn og því óvíst að hún gæti komið. Ekki gátum við frestað samkomunni þar sem búið var að panta sal og veisluföng. Mikill var því fögnuður okkar í upphafi veislunnar þegar Valgerður gekk allt í einu inn í salinn hnarreist og glæsileg í hárrauðum kjól með þykka fallega hárið sem nú var orðið silfurgrátt fléttað í eina fléttu við ann- an vangann. Ekki var hægt að sjá að þar færi kona um áttrætt. Það var eins og við værum komin meira en 40 ár aftur í tímann. Það geislaði af Valgerði þar sem hún sat fyrir miðju borði, sömu töfrarnir í frá- sögn hennar og fyrrum, sama hnyttn- in, sami hláturinn, sömu tígulegu hreyfingarnar. Þetta kvöld var ævin- týri líkast. Sjálf var Valgerður eins og álfkona eins og þær gerast bestar í ís- lenskum þjóðsögum og ævintýrum. Álfkona sem með töfrasprota sínum breytir umhverfinu svo allt verður fegurra, betra og litríkara en áður. Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá. 5  6      6    "    &  &     !    $    $ !  !   !  - /= <J8K 1== '(/& &   .   6      $    3 3  "2"2   -& 8& &  &) )* && "2  )*   &&% 2(& -& && 5*&& & 8*&2& -& $/ && 1'% & )* + & +&+ & + & +& + & + & + & +&-$ 3 ,&&& (&. 5  6     6   "     &  &    !     %6=6. / $!?  &)$. *- !     " )* +2$* )*. :    6      &  ! 6   "  "    &    !  !      '$ %8=1 < L $+ 2*  '( & ) .    6         $     / ;( )  & 3 '  -     !   ;' -! % & %2  & )* 5-$ " )* -& K& ) %2  & -&"'& " $ )* + & +&+ & + & +& -$ 3 ,&. <!    "  &     !    $   $ !  "6  51"  / ,*$ A. 5**'8* && -& +-$8*& )* %-+ &))  )* #&  -& 8*&=   -& % &=&&  )*. 3  6   -  &  " &   $   $   - 1 4  1==  +   )+9, & $ )+9, & +2$$+$ )* ))&M &) )* &  &) )*. 3  6   -  "   &  &     !   '$      "6N/  ;' -! && -'' "(,-& )* N($ -& 3 ,& , 0 -$+&. 3  6      6  "      &   &     ! !    ! $ !      51 1 < '()) K$#,.    6      &     $   3 =#3    -     &  !     "$.5*  -& =-$).4-& & 5*&&5* )* $5. &) -& % &&  )* + & +&+ & + & +& -$+ & + & + & +&. Erfisdrykkjur 50-300 manna Glæsilegir salir Bræðraminni ehf., Kíwanishúsinu, Engjateigi 11, sími 588 4460.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.