Morgunblaðið - 16.07.2002, Side 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 25
ORKUSTOFNUN
Nú þurfa allir notendur sem vilja njóta niðurgreiðslu að sækja
um það sérstaklega til Orkustofnunar sem hefur eftirlit með
framkvæmd laganna. Að öðrum kosti fellur niðurgreiðslan niður.
Eftir sem áður munu dreifiveiturnar sjá um að koma niður-
greiðslunum til notenda í formi lækkunar á raforkuverði.
Í meginatriðum má segja að sömu aðilar eigi rétt á niðurgreiðslum
og nutu þeirra áður. Nýmæli er þó að hitun með olíu verður niður-
greidd þar sem ekki er um aðra kosti að ræða. Einnig verður raforka
frá smávirkjunum og raforka á varmadælur niðurgreidd að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum.
Aðeins eigendur íbúðarhúsnæðis geta sótt um niðurgreiðslu og
eru þeir hvattir til að fylla út umsókn á Netinu og senda rafrænt
til Orkustofnunar.
Slóðin er http://www.os.is/nidurgreidslur. Einnig er hægt að fylla
út eyðublað og senda Orkustofnun með pósti.
Frestur til að senda inn umsókn rennur út 8. ágúst 2002.
Þeir sem nú njóta niðurgreiðslna eru sérstaklega hvattir til að
sækja um sem fyrst þar sem þær falla að öðrum kosti niður frá og
með 8. nóvember 2002.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Orkustofnun, sími 569 6000,
tölvupóstfang nidurgreidslur@os.is
Niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar
Ný lög um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar, nr. 78/2002.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
0
6
7
7
7
Stökktu til
Benidorm
24. júlí
frá 49.865
í 2 vikur
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Nú bjóðum við síðustu sætin í júlí til Benidorm á ótrúlegu
tilboði þann 24. júlí í tvær vikur. Beint flug með Heimsferðum
á þennan einstaka áfangastað. Þú bókar núna og tryggir þér
síðustu sætin, og þremur dögum fyrir brottför hringjum við í þig
og tilkynnum þér hvar þú býrð. Og að sjálfsögðu nýtur þú
traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Verð kr. 49.865
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar, 24. júlí, í tvær vikur.
Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.360.
Verð kr. 66.250
M.v. 2 í íbúð, 24. júlí, í tvær vikur.
Flug og gisting, skattar.
Staðgreitt. Alm. verð kr. 69.565.
FRANSKIR rannsóknarlögreglu-
menn sögðu í gær að þeir teldu að ný-
nasistinn Maxime Brunerie, sem
reyndi að ráða Jacques Chirac
Frakklandsforseta af dögum á sunnu-
daginn, hefði verið einn að verki. Bru-
nerie var í gær lagður inn á geðdeild
vegna þess að hann var talinn hættu-
legur sjálfum sér og öðrum.
Brunerie skaut einu skoti af 22 kali-
bera riffli að Chirac þegar forsetinn
ók í opnum jeppa framhjá Sigurbog-
anum í París við upphaf hátíðahald-
anna vegna þjóðhátíðardags Frakka,
bastilludagsins, á sunnudagsmorgun-
inn. Nærstaddir yfirbuguðu Brunerie
samstundis og forsetann sakaði ekki.
Brunerie er 25 ára Parísarbúi, fé-
lagi í hreyfingu nýnasista. Nokkrir
hægrisinnaðir aðgerðarsinnar sem
þekkja Brunerie tjáðu lögreglu að
hann hefði ítrekað látið í ljósi vilja til
að vinna forsetanum mein, en þeir
sögðust aldrei hafa tekið þessar hót-
anir alvarlega. Brunerie mun nú
dvelja á geðsjúkrahúsi í mánuð, og
verður eftir það ákveðið hvort hann
verði þar áfram eða settur í fangelsi.
Blaðið Le Monde sagði í gær að
lögregla hefði m.a. yfirheyrt hjón sem
Brunerie hefði heimsótt á laugar-
dagskvöldið. Þá var systir hans einnig
yfirheyrð í gær og lögregla kvaðst
líka vera að leita að manni sem sagður
var vera besti vinur Bruneries. En
rannsóknarlögreglumenn kváðust
„finna það á sér“ að hann hefði staðið
einn að tilræðinu.
Brunerie er námsmaður og hefur
unnið fyrir sér sem bílstjóri. Eftir að
hann var handtekinn eftir tilræðið
tjáði hann lögreglu að hann hefði ætl-
að að myrða Chirac og fyrirfara sér
síðan. Ruglingslegt tal Bruneries og
háttalag varð til þess að lögreglan
kallaði til lækna.
Lögregla þekkti til Bruneries
vegna tengsla hans við hreyfingu ný-
nasista, og hefur hann tekið þátt í
nokkrum útifundum hægriöfga-
manna síðan 1997. Kváðust lögreglu-
menn hafa fundið nýnasískan „öfga-
áróður“ á heimili Bruneries, og
nefndu að hann hefði birt tilkynningu
á vefsíðu þar sem hann hvatti lesend-
ur til að fylgjast með sjónvarpinu á
sunnudaginn.
Frakklandsforseta sakaði ekki er skotið var á hann
Reuters
Brunerie yfirbugaður af lög-
reglu á sunnudaginn.
Tilræðismaðurinn
talinn einn að verki
París. AFP.
MENN hafa í sér gen, sem virkar
sem vörn gegn HIV-sýkingum, að
sögn vísindamanna. Þeir vonast til
þess að uppgötvunin geti haft í för
með sér nýjar meðferðir gegn HIV,
sem veldur alnæmi, en nauðsyn á
nýrri meðferð er mikil þar sem
virkni núverandi lyfja verður sífellt
minni.
Vísindamenn hafa komist að því að
HIV-veiran truflar eðlilega starf-
semi gensins, sem kallað er CEM15,
með því að framleiða prótín er kall-
ast Vif. Þeir komust ennfremur að
því að þegar þetta prótín var fjar-
lægt úr HIV-veirunni gat CEM15-
genið hindrað fjölgun veirunnar.
Rannsóknina önnuðust að sögn
BBC Michael Malim, prófessor hjá
King’s College í London og rann-
sóknarlið frá læknadeild Pennsylv-
aníu-háskóla í Bandaríkjunum.
Sagt var frá tilraununum í netút-
gáfu tímaritsins Nature á sunnudag.
Vísindamenn vissu áður að Vif léki
lykilhlutverk í því að fjölga HIV en
þar til nú hefur hlutverk þess ekki
verið fullkomlega ljóst. „Þetta eru
mjög mikilvægar niðurstöður og
gætu rutt veginn fyrir nýjar með-
ferðir gegn HIV og alnæmi í framtíð-
inni. Ef við getum fundið leið til að
hindra virkni Vif getur CEM15 virk-
að eðlilega og hindrað HIV í að dreif-
ast,“ sagði Malim.
Þegar veira á borð við HIV smitar
ónæmisfrumu tekur hún hreinlega
yfir starfsemi frumunnar. Fyrst
renna frumveggir veirunnar og
ónæmisfrumunnar saman, síðan
dælir HIV-veiran erfðaefni inn í
kjarna ónæmisfrumunnar og breytir
henni í verksmiðju, sem framleiðir
enn fleiri sjúkdómsveirur. Nýju
HIV-veirurnar finna síðan og drepa
aðrar frumur og þannig heldur
hringrásin áfram.
Rannsóknir framtíðarinnar bein-
ast að því að finna efni, sem geta
hindrað virkni Vif-prótínsins. Sem
stendur er beitt meðferð með blöndu
af lyfjum sem beinast að því að stytta
líf veirunnar. Lyfin geta þó ekki út-
rýmt henni að öllu leyti. HIV er enn-
fremur búið að þróa með stökkbreyt-
ingum þol gegn lyfjunum í um
helmingi sjúklinga.
Arthur Löve, sérfræðingur í
veirufræði við Landspítalann – há-
skólasjúkrahús, segir vísindamenn
hafa íhugað margar leiðir til að berj-
ast gegn alnæmisveirunni og ein
þeirra sé að reyna að hindra hana í
að skipta sér. „Menn hafa meðal ann-
ars velt fyrir sér hvort hægt væri að
finna aðferð til að losa sýktu frum-
urnar við þau prótín í HIV-veirunni
sem stýra skiptingunni. Vandinn er
að ferlið er mjög flókið, veiran finnur
stundum fleiri en einar dyr til að
dæla erfðaefninu inn í ónæmisfrum-
una og loks er ekki útilokað að HIV-
veiran sé til staðar í frumum sem
ekki skipta sér, til dæmis í heila eða
vöðvum,“ segir hann.
Arthur segir að til séu efni sem
beinlínis blokkeri eða hindri HIV-
veiruna í að festa sig við vegg heil-
brigðu frumunnar en líklega hafi
aukaverkanir vegna slíkra efna
reynst of miklar og því ekki hægt að
nota þau gegn veirunni. Hefðbundin
lyf sem beitt hafi verið, eins og AZT,
geti haldið frumuskiptingunni niðri
þótt þau drepi ekki veiruna og þeim
fylgi einnig miklar aukaverkanir.
Hann segist telja að ekki sé lengur
deilt um það meðal vísindamanna
hvort HIV-veiran sé raunveruleg or-
sök alnæmis enda sýni fjölmargar
tilraunir með apa að svo sé. Smit-
unarleiðirnar séu fyrst og fremst
blöndun líkamsvessa, fólk geti smit-
ast við kynmök eða við blóðgjöf.
Hann segist efast mjög um að mosk-
ítóflugur geti dreift veirunni. Hún
þurfi hýsil þar sem hún geti skipt sér
en það geti hún ekki í flugunni og því
afar ósennilegt að flugan geti smitað
fólk með HIV-veirunni.
Vísindamenn vona að uppgötvun gensins leiði
til nýrra tegunda meðferðar gegn alnæmi
Gen stöðvar HIV-veiruna
París. AFP.
VACLAV Havel, forseti Tékk-
lands, tilnefndi í gær Vladimir
Spidla, leiðtoga flokks sósíal-
demókrata (CSSD) í embætti
forsætisráðherra en flokkurinn
sigraði í þingkosningum í liðn-
um mánuði. Spidla sagði stjórn
sína þurfa að leysa „einstakt,
sögulegt verkefni“ sem væri að
leiða þjóðina inn í Evrópusam-
bandið.
Stjórnin tekur við á mánudag
en hún hefur mjög nauman
meirhluta, 101 sæti af 200 á
þingi. Nýja þingið kaus á
fimmtudag nýjan þingforseta,
Lubomir Zaoralek, úr CSSD en
áður gegndi embættinu hægri-
maðurinn Vaclav Klaus. Gert er
ráð fyrir að af 17 ráðherrum
verði ellefu úr CSSD en sex úr
bandalagi nokkurra miðju-
flokka. Margir af ráðherrum
fyrri stjórnar halda embættum
sínum en líklegt er talið að Cyril
Svoboda, leiðtogi Kristilegra
demókrata, verði nýr utanrík-
isráðherra.
Ný stjórn í Tékklandi
Prag. AFP.