Morgunblaðið - 23.07.2002, Blaðsíða 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 7
LITAVER, Grensásvegi 18, s. 581 2444
MOSRAF, Mosfellsbæ, s. 566 6355
BYGGINGAHÚSIÐ, Akranesi, s. 431 5710
MÁLNINGARÞJÓNUSTAN, Akranesi, s. 431 1799
KB BYGGINGAVÖRUVERSLUN, Borgarnesi, s. 430 5544
LITABÚÐIN, Ólafsvík, s. 436 1313
GUÐNI HALLGRÍMSSON, Grundarfirði, s. 438 6722
SKIPAVÍK, Stykkishólmi, s. 430 1415
G.E.SÆMUNDSSON, Ísafirði, s. 456 3047
KAUPFÉLAG V-HÚNV., Hvammstanga, s. 451 2370
KAUPFÉLAG HÚNVETNINGA, Blönduósi, s. 455 9030
KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA, Sauðárkróki, s. 455 4610
BJARNI ÞORGEIRSSON, Siglufirði, s. 867 1590
JÓKÓ, Furuvöllum 13, Akureyri, s. 462 7878
ÖRYGGI, Húsavík, s. 464 1600
KJG, Þórshöfn, s. 853 1880
KAUPFÉLAG VOPNFIRÐINGA, Vopnafirði, s. 473 1203
KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA, Egilsstöðum, s. 470 1220
BYGGT & FLUTT, Norðfirði - Eskifirði - Fáskrúðsfirði, s. 477 1515
KASK, BYGGINGAVÖRUR, Höfn, s. 470 8210
KLAKKUR, Vík, s. 487 1223
BRIMNES, Vestmannaeyjum, s. 481 1220
KÁ, BÚREKSTRARDEILD, Austurvegi 69, Selfossi, s. 482 3767
HÚSIÐ VERSLUN, Grindavík, s. 426 7666
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Fagleg ráðgjöf
og þjónusta
SUMARTILBOÐ
á útimálningu og viðarvörn
590kr.
Verð á lítra
á Hörpusilki og Útitex
miðað við 10 lítra dós og ljósa liti
Íslensk gæðamálning
Endursöluaðilar
33. ÓLYMPÍULEIKARNIR í eðl-
isfræði voru settir í gær við há-
tíðlega athöfn í viðhafnarsal
Sheraton-hótelsins í Nusa Dua á
Balí í Indónesíu að viðstöddum
forseta Indónesíu, frú Megawati
Sukarnoputri.
Leikarnir eru hinir fjölmenn-
ustu hingað til, 307 keppendur
frá 66 löndum, þar á meðal 5
keppendur frá Íslandi, nýstúd-
entar frá Menntaskólanum á Ak-
ureyri og Menntaskólanum í
Reykjavík.
Indónesíska mennta-
málaráðuneytið er hinn op-
inberi gestgjafi eðlisfræðileik-
anna en starfsmenn
Tækniháskólans í Bandung hafa
skipulagt dagskrá leikanna og
samið keppnisverkefnin.
Litríkur klæðnaður starfs-
fólks leikanna setti mjög svip á
athöfnina og vöktu skrautlegur
höfuðbúnaður og glitrandi blúss-
ur þjóðlegra búninga athygli.
Forseti Indónesíu, frú Mega-
wati Sukarnoputri, ávarpaði
keppendur sérstaklega og sagðist
vera stolt af því að ungmenni
kepptu á friðsamlegum leikum og
heiðarlegum í verkefnum sem
marka myndu framtíðina.
Að lokum áritaði hún frímerki
sem gefin voru út í tilefni leik-
anna.
Í gær voru fararstjórunum
kynnt keppnisverkefnin til að
yfirfara þau og þýða á móðurmál
keppendanna.
Búast mátti við tímafrekum
umræðum um orðalag, innihald
og lausnir verkefnanna.
Síðustu þýðingarnar verða
væntanlega tilbúnar rétt áður en
keppendurnir eiga að byrja að
glíma við dæmin klukkan 9 í dag.
Morgunblaðið/Viðar Ágústsson
Íslenska keppnisliðið við inngöngu á opnunarhátíð 33. Ólympíuleikanna í
eðlisfræði ásamt innfæddum leiðsögumanni sínum, Neldu Riskawati.
33. Ólympíuleikarnir í eðlisfræði
Keppni í viðfangs-
efnum framtíðar
RAUÐI kross Íslands svaraði í dag
neyðarbeiðni Alþjóða Rauða kross-
ins vegna hungursneyðar í sunn-
anverðri Afríku. Að minnsta kosti
þrír sendifulltrúar munu fara á
svæðið og heitið er að styrkja verk-
efnið um að minnsta kosti fjórar
milljónir króna.
Að mati Alþjóðamatvælastofnun-
arinnar búa um þrettán milljónir
manna í sunnanverðri Afríku við
hungursneyð. Ekki er von á næstu
uppskeru fyrr en í mars á næsta
ári. Framlag Alþjóða Rauða kross-
ins felst í matvælasendingum til um
750.000 manna í Simbabve, Malaví,
Sambíu, Lesótó og Svasílandi.
Að sögn Sólveigar Ólafsdóttur,
sendifulltrúa RKÍ, er neyðin mjög
mikil á svæðinu. „Margir þættir
hafa gert það að verkum að upp-
skeran hefur brostið á svæðinu. Þar
blandast saman þurrkar, flóð, slæm
stjórnsýsla og efnahagsörðugleikar.
Að sama skapi er stór hluti vinnu-
aflsins smitaður af alnæmi, og það
minnkar framleiðslugetuna.“ Rauði
krossinn stendur einnig frammi fyr-
ir nýjum aðstæðum. „Þetta er í
fyrsta sinn í sögunni sem alnæm-
isfaraldur og hungursneyð blandast
saman. Áhrif þess verða eflaust
mikil, en við vitum ekki enn hve al-
varleg þau verða. Það skapast víta-
hringur, næring er sjúklingunum
nauðsynleg, að öðrum kosti brotnar
ónæmiskerfið fyrr niður en ella og
fleiri smitast, jafnt af malaríu,
berklum og alnæmi. Sömuleiðis eru
þess mörg dæmi að fólk leiðist út í
vændi til framfærslu, og þar með
dreifist alnæmi enn frekar.“
Starf Rauða krossins á svæðinu
mun einkum miða að því að aðstoða
og hlynna að sjúkum og fjölskyld-
um þeirra, og gæta þess að þeir fái
eitthvað að borða. Mun Rauði kross
Íslands beina þeim tilmælum til rík-
isstjórnar Íslands að hún leggi til
fjármagn í söfnunina. Þeir sem vilja
leggja söfnuninni lið geta hringt í
söfnunarsímann 907 2000 og gefið
1.000 krónur, eða lagt inn á reikn-
ing Hjálparsjóðs Rauða krossins í
Sparisjóðnum á Seltjarnarnesi,
reikning 1151-26-12 á kennitölu
530269-2649.
Ófremdarástand vegna
uppskerubrests
og alnæmisfaraldurs
Söfnun
hafin vegna
hungurs-
neyðar
í Afríku