Morgunblaðið - 23.07.2002, Blaðsíða 42
FÓLK Í FRÉTTUM
42 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
20.07. 2002
12
5 1 4 6 4
4 5 3 2 6
21 22 36 38
30
17.07. 2002
9 36 40
44 46 48
26 41
Fyrstu vinningar
fóru til Noregs.
Fjórfaldur
1. vinningur
í næstu viku
Gasol®
Heimsendingarþjónusta ÍSAGA
nær til Stór-Reykjavíkursvæðisins.
Heimsendingargjald er kr. 500,-
Afgreiðslan Breiðhöfða 11
er opin virka daga frá kl. 8 til 17.
800 5555
Hluti af Linde Gas Group
ÍSAGA ehf. • Breiðhöfða 11
Sími 577 3000 • Fax 577 3001
www.aga.is
IS
A
-2
43
.1
–
ÍD
E
A
meistar inn. is
ÁBYRGÐ ÁREIÐANLEIKI
ÁKVEÐIN forskrift hefur skap-
ast að hinni dæmigerðu tónlistar-
heimildarmynd, forskrift sem birtist
í sinni ýktustu mynd í háðsádeilunni
sígildu This is Spinal Tap. Nobody
Someday, spónný heimildarmynd
gerð sérstaklega fyrir mynddisk og
-band, fer í nær flestum atriðum eft-
ir þessari „öruggu“ forskrift, með
svolitlu aukakryddi af sérstæðum
heimildarmyndastíl Nicks Broom-
field, aðallega hvað snýr að málrómi
þularins og á tíðum pínlega opin-
skáum viðtölum og efnistökum.
Myndin er að upplagi þessi dæmi-
gerða tónleikaferðasaga og á sér
kannski nánastan ættingja í In Bed
With Madonna myndinni alræmdu
þar sem hún rembdist eins og rjúp-
an við staurinn við að telja manni
trú um að hún tæki ekki eftir
myndavélinni, væri bara alltaf svona
hress og ástúðleg við samstarfsfólk
sitt. En maður keypti það sko ekki.
Williams ku hafa farið fram á að sér
yrði í engu hlíft, að allt yrði látið
flakka, og hann leggur sig sjálfur
sannarlega fram um að vera hreinn
og beinn, væntanlega í þeim tilgangi
að almúginn fái loksins innsýn í
hans sanna eðli. Og svei mér þá ef
hann er ekki bara býsna sannfær-
andi. Alltént náði hann alveg að
telja mér trú um að hann væri ekk-
ert sérlega mikið að leika einhverja
týpu sem hann þráir að vera, eða
vill að aðrir haldi að hann sé. Mun-
urinn á Robbie og Madonnu er nátt-
úrlega sá að hann er lúmskur húm-
oristi og á köflum vellur upp úr
honum, að virðist ósjálfrátt, hin
skondnasta þvæla. En sjálfumglað-
ur er hann og at-
hyglissjúkur –
þótt hann leggi
mikið upp úr því
að sannfæra
mann um að
hann hati athygli
og þrái ekkert
heitar en að
verða einhvern
tímann enginn,
sbr. heiti mynd-
arinnar. En þetta
þarf vart að tilkynna Íslendingum,
eftir stormasama heimsókn hans
hingað. Svo virðist þó sem þessi
Robbie sem kom hingað og bölvaði
ljósmyndurum, móðgaðist við blaða-
menn og fór í fýlu út í áhorfendur
hafi þroskast töluvert síðan þá. Að
minnsta kosti gerir hann sérstak-
lega að umtalsefni að á sínum tíma
hafi hann ekki hikað við að storma
út af sviðinu og slíta tónleikum flygi
flaska í átt að sér. Í dag sé hann
hins vegar hættur að láta slíkt setja
sig út af laginu, sé umburðarlyndari
og taki frekar tillit til allra hinna,
meirihlutans, sem hagar sér ekki
svona og er kominn til að skemmta
sér á Robbie-tónleikum.
Á þessari mynd er hvort tveggja,
stórir kostir og gallar og fer það
eiginlega fyrst fremst eftir viðhorfi
manns til Robbie Williams hvort
manni tekst að leiða gallana hjá sér,
því það er auðveldlega hægt sé vilj-
inn fyrir hendi. Sjálfur lét ég kapp-
ann lítið fara í taugarnar á mér.
Hann er stjarna af guðs náð, eig-
inlega einstakur í dag. Fyrir unn-
endur er myndin því algjör hvalreki.
Aðrir sem horfa á myndina for-
dómalaust ættu að kynnast mann-
inum mun betur, en þeim sem ekki
þola hann er ráðlagt eindregið að
verja tíma sínum í annað.
Aukaefnið á mynddiskinum er af
skornum skammti. Ljósmyndir eru
hálftilgangslaust fyrirbrigði á
mynddiski, finnst mér, en afgangs-
aðriðin eru skemmtileg og vel þess
virði að bera sig eftir þeim.
MYND: AUKAEFNI: Einhvern
tímann enginn
Robbie Williams
Nobody Someday
Tónlistarmynd
Bretland 2002. Innihald: Heimildarmynd
um Evróputúr Robbie Williams 2001 í
leikstjórn Brian Hill. Gagnvirk spurn-
ingakeppni, afgangsatriði og ljósmyndir.
140 mín alls.
Skarphéðinn Guðmundsson
Robbie
Williams
Mynddiskar
!" #
$
%&'()
!$(
!"
!"
!" #
!" #
$
!"
!" $
!"
!"
!" $
$
$
*
+
+
+
+
,
,
+
+
*
,
+
,
+
,
,
,
+
,
,
! !
"
#
$%
& ' & ()*+,-$,.
& ()*+-/$-0
1
3#
HLJÓMSVEITIN Jet Black Joe
steig eftirminnilega inn á sjón-
arsviðið á nýjan leik í fyrra, eftir
um 5 ára hlé. Nú hyggjast þeir fé-
lagar endurtaka endurkomuna og
hófu tónleikaferð sína um landið
síðastliðinn fimmtudag á skemmti-
staðnum NASA.
Jet Black Joe er skipuð hinum
upprunalegu Gunnari Bjarna Ragn-
arssyni og Páli Rósinkranz, auk
Kristins og Guðlaugs Júníussona og
Þórhalls Bergmann.
Áhorfendur voru sýnilega
ánægðir að endurheimta Jet Black
Joe fram á sjónarsviðið og tóku
undir og dilluðu sér við rokktóna
sveitarinnar.
Morgunblaðið/Sverrir
Páll Rósinkranz hefur engu gleymt.
Jet Black Joe leggur upp í tónleikaferð
Endurkoman
endurtekin
Morgunblaðið/Sverrir
Jet Black Joe tryllti lýðinn á NASA.
Á DÖGUNUM var haldin Hem-
ingway-tvífarakeppnin á kránni
Sloppy Joe’s á Key West í Flórída í
Bandaríkjunum. Þessi vinsæla
keppni er hluti af árlegri Hem-
ingway-hátíð sem haldin er til
minningar um rithöfundinn Ernst
Hemingway sem bjó lengi og starf-
aði á Key West.
Á myndinni sjást sigurvegarar í
keppninni, þeir George Burley,
Jack Waterbury, Fred Burnham
og Fred Johnson fagna í undan-
úrslitunum.
AP
Allir eins og Hemingway
LEIKARINN Jude Law var
nýlega sakaður um bíl-
þjófnað þar sem hann er við
kvikmyndatökur í Rúmeníu.
Það var rúmenski stjórn-
málamaðurinn Dinu Patr-
iciu, sem er einn ríkasti
maður Rúmeníu, sem sakaði
Law um að reyna að stela
Land Rover jeppa bróður
síns á Otopeni-flugvelli í Búkarest.
Patriciu mun hafa hrópað að
Law og slegið til hans þannig að líf-
vörður Laws varð að skerast í leik-
inn og skilja þá
að. Síðar kom í
ljós að bróðir
Patriciu hafði
selt bílaleigu
jeppann og hefur
Patriciu beðið
leikarann afsök-
unar á atvikinu.
Hann segir fram-
komu leikarans
þó alls ekki hafa
verið til fyr-
irmyndar þar
sem hann hafi
bölvað og töngl-
ast á því að hann
væri að koma
með peninga inn í
landið. Law vinn-
ur nú að gerð myndarinnar Cold
Mountain en þar leikur hann á móti
áströlsku leikkonunni Nicole Kid-
man.
Sakað-
ur um
þjófnað
Peningarakarinn
Jude Law.
VEÐUR
mbl.is