Morgunblaðið - 23.07.2002, Page 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 19
TIL SÖLU HÁRGREIÐSLUSTOFA
Til sölu hárgreiðslustofa á góðum stað við Laugavegin.
Bjart og skemmtilegt húsnæði.
Hentar vel 2 samhentum aðilum.
Leiga gæti komið til greina.
Upplýsingar í síma 892-4243 eða 899-6000.
HÁÞRÝSTI
ÞVOTTATÆKI
Verð frá kr.
8.900,-
EDWARD Lee Howard, bandaríski
leyniþjónustumaðurinn fyrrverandi,
sem flúði til Sovétríkjanna um miðj-
an níunda áratuginn, lést nýverið á
heimili sínu í útjaðri Moskvu. Frá
þessu var greint í The Washington
Post á sunnudag. Howard var á sín-
um tíma sakaður um að hafa selt
sovésku leynilögreglunni, KGB, rík-
isleyndarmál og veittu stjórnvöld í
Moskvu honum pólitískt hæli eftir
að hann hafði sloppið úr klóm
bandarísku alríkislögreglunnar
(FBI) með ótrúlegum hætti.
Howard hvarf sporlaust í sept-
ember 1985 en hann bjó þá í Santa
Fe í Nýju Mexíkó. Var hann
skömmu síðar ákærður fyrir njósn-
ir í þágu Sovétríkjanna. Hann kom
fram í Moskvu um ári síðar og bjó
þar til dauðadags.
Því hefur verið haldið fram að
upplýsingar, sem Howard veitti
KGB, hafi skaðað njósnanet Banda-
ríkjamanna í Sovétríkjunum á tím-
um kalda stríðsins verulega og sagt
er, að uppljóstranir Howards hafi
orðið til þess að stjórnvöld í
Moskvu höfðu hendur í hári sov-
ésks sérfræðings á sviði flugmála.
Var maðurinn tekinn af lífi vegna
njósna í þágu Bandaríkjanna.
Talsmenn leyniþjónustunnar
bandarísku (CIA) hafa ekki getað
staðfest, að Howard sé látinn. Rich-
ard Cote, sem færði æviminningar
Howards í letur árið 1995, sagðist
hins vegar á sunnudag hafa fengið
sendan tölvupóst fyrir helgi þar
sem honum var tjáð að Howard
hefði látist í slysi á heimili sínu.
Ævintýraleg undankoma
Howard, sem var fæddur árið
1951, gekk til liðs við CIA árið
1981. Árið 1983 var í bígerð að
senda hann til starfa í Moskvu en
þá bar svo við að hann féll á lyga-
prófi. Var hann síðar rekinn úr
starfi. Howard sneri þá aftur til
æskustöðva sinna í Nýju Mexíkó en
er sagður hafa átt fund með er-
indrekum KGB í Austurríki árið
1984 og greiddu þeir honum 6 þús-
und dollara, um 350 þúsund ísl.
krónur á núvirði, fyrir ýmsar upp-
lýsingar sem hann bjó yfir.
Grunsemdir vöknuðu innan
veggja FBI um svik Howards og
stóð yfir rannsókn á máli hans er
hann hvarf í september 1985. Flótta
Howards bar þannig að hann fór
kvöld eitt ásamt eiginkonu sinni út
að borða. Er þau óku aftur heim á
leið yfirgaf Howard bifreiðina svo
lítið bar á og kom hann í staðinn
fyrir gínu í farþegasætinu, svo
grunsemdir vöknuðu ekki meðal
FBI-manna, sem höfðu gætur á
honum.
Þá hringdi eiginkona hans símtal,
þegar heim var komið, þar sem
spiluð var segulbandsupptaka með
rödd Howards og höfðu fulltrúar
FBI, sem hleruðu síma Howards,
því alla ástæðu til að ætla að hann
væri enn á heimili sínu löngu eftir
að hann var í reynd á bak og burt.
Howard skildi eiginkonu sína og
ungan son eftir í Bandaríkjunum.
Cote, sem eyddi ellefu dögum með
Howard í Moskvu árið 1995, í því
skyni að rita endurminningar hans,
sagði njósnarann hafa búið í „al-
gerri einangrun“ um árabil og voru
einu samskipti hans við ýmsa full-
trúa KGB eða sovéskra stjórnvalda.
Sjálfur neitaði Howard ávallt að
hafa látið KGB svo mikilvægar upp-
lýsingar í té, að þær hefðu getað
flett hulunni af njósnurum CIA í
Moskvu.
Edward Lee Howard, sem flúði Bandaríkin, látinn
Seldi KGB upplýsing-
ar um njósnanet CIA
Washington. The Washington Post.