Morgunblaðið - 27.07.2002, Page 17
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 17
RÚMLEGA 300 ungmenni á Balí
varpa öndinni léttar nú þegar þeirra
hlut í Ólympíuleikunum í eðlisfræði
er lokið. Í gær var seinni keppnis-
dagurinn, 5 klukkustundir við að
framkvæma 3 tilraunir og skila um
þær skýrslu. Tíminn reyndist allt of
stuttur og tækin óáreiðanleg.
„Straumgjafinn sem ég fékk fyrst
var bilaður og upp úr þeim næsta lið-
aðist reykur þegar ég fór að nota
hann,“ sagði Davíð Þór, nemandi við
Menntaskólann í Reykjavík. „Þegar
næsti keppandi bauðst til að lána
mér sinn straumgjafa hafnaði eftir-
litsmaðurinn því svo ég varð að
sleppa þriðjungi af framkvæmd-
inni.“ Sömu sögu hafði Sigurður Örn
að segja; fyrsti straummælirinn sem
hann fékk var bilaður og hann fékk 3
straumgjafa áður en tilraunin fór að
ganga.
Fyrri tilraunin var um rafgrein-
ingu vatns og ákvörðun á hlutfalli
rafeindarhleðslu og Bolzmans fasta.
Til að fá tölulega rétta niðurstöðu
varð keppandinn að búa til réttan
metrakvarða fyrir tilraunaglasið
sem var vísvitandi rangt kvarðað.
Seinni tilraunin fjallaði um að finna
þrjá óþekkta ljósfræðilega íhluti í
innsigluðum kassa með því að lýsa
með leisigeisla í gegn um hann. Í ljós
koma að um var að ræða tvö raufa-
gler og eina glerplötu með brotstuð-
ul 1,47.
Á morgun fá fararstjórarnir nið-
urstöður hinnar indónesísku dóm-
nefndar um frammistöðu keppend-
anna og munu þeir bera þá
niðurstöðu saman við eigin fyrirgjöf.
Síðsti hluti Eðlisfræðileikanna snýst
um samræður dómnefndarmanna og
fararstjóra um einkunnagjöf til
hvers keppenda. Hér getur verið um
að ræða að leiðrétta ranga fyrirgjöf,
útskýra óljós atriði eða túlka skýr-
ingar sem Indónesarnir skilja ekki á
erlendum tungumálum. Þessum
samræðum lýkur á sunnudag en
verðlaunaafhending verður á mánu-
dag.
33. Ólympíuleikarnir í eðlisfræði
Keppni lokið –
stigagjöf hafin
UNDIRBÚNINGUR fyrir Þjóðhá-
tíð í Vestmannaeyjum stendur nú
sem hæst.
Á hverju sumri þarf að laga og
bæta aðstöðuna í Herjólfsdal.
Húsmæður í Eyjum brugðu sér
fyrir nokkrum dögum í dalinn að
lokinni vinnu til að mála. Allt
verður því til reiðu þegar Þjóðhá-
tíð hefst eftir viku.
Málningarvinna
fyrir Þjóðhátíð
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Raðhús - Víkurhverfi
Vönduð og vel skipulögð 190 fm raðhús á einni hæð í Víkurhverfi,
Grafarvogi. 4 svefnherbergi. Bílskúr. Tvö af raðhúsunum eru með
tvöfaldan bílskúr. Byggingaraðili er Hrauntún ehf.
Upplýsingar í símum 896 1606 og 557 7060.