Morgunblaðið - 27.07.2002, Side 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LISTAHÓPUR Vinnuskól-
ans í Hafnarfirði heldur til
Cuxhaven, vinabæjar Hafn-
arfjarðar í Þýskalandi, um
miðjan næsta mánuð þar
sem hann mun dvelja í viku.
Hópurinn samanstendur af
níu ungmennum, 15–16 ára,
ásamt leiðbeinanda. Hefð er
orðin fyrir slíkum ferðum en
annað hvert ár skiptast bæ-
irnir á að senda unga fram-
tíðarlistamenn á milli vina-
bæja. Í Cuxhaven gefst
hópnum kostur á að skoða
sig um og kynnast ungmenn-
um sem hafa fengist við list-
sköpun ytra en einnig mun
íslenski hópurinn sýna atriði
á götum úti og á skemmt-
unum.
Að sögn Söru Hlínar Guð-
mundsdóttur, sem stýrir
Listahópnum, samanstendur
hann af listfengum krökkum
sem sóttu um í vinnuskól-
anum og var boðið að þreyta
inntökupróf í listahópinn. Að
sögn Söru sóttu um 50 ung-
menni eftir inngöngu í hóp-
inn en tíu voru valin úr þeim
hópi. Síðan þá hefur einn
helst úr lestinni en krakk-
arnir höfðu enga hugmynd
um að þau ættu eftir að sýna
á götum úti í Þýskalandi.
Koma fram á ýmsum
skemmtunum á
vegum bæjarins
Krakkarnir í listahópnum
vinna jafnlangan vinnudag
og aðrir krakkar í vinnuskól-
anum, að sögn Söru, nema
hvað ólíkt því sem flestir
krakkar í vinnuskólanum
fást við dag frá degi, þ.e.
garðyrkjustörf o.þ.h., eru
þau stöðugt að æfa ný atriði
og koma fram á hinum ýmsu
skemmtunum á vegum bæj-
arins. Má því segja að hér
séu á ferð atvinnulistamenn í
ákveðnum skilningi.
„Við höfum verið að búa
til atriði til að fara með á
leikjanámskeiðin. Fyrir
tveimur árum fórum við á
elliheimilin, í fyrra fórum
með leikrit á alla leikskóla í
Hafnarfirði og erum í raun
alls staðar þar sem einhverj-
ar skemmtanir eru í bænum
og þar sem eitthvað er að
gerast,“ segir Sara, sem hef-
ur haft umsjón með lista-
hópnum undanfarin ár.
„Við erum í raun að búa til
eitthvað nýtt á hverjum ein-
asta degi,“ segir hún og
bendir á að stundum sé mik-
ið að gera og lítill tími til
stefnu og þá þurfi að búa til
og æfa atriði á mjög stuttum
tíma. Það hafi t.d. gerst fyrr
í vikunni þegar Hafnfirðing-
ar héldu árlega sumar-
skemmtun Æskulýðs- og
tómstundaráðs á Thorsplani
og krakkarnir sýndu leikþátt
sem byggður var á Þyrnirós
og fluttur með óhefðbundnu
sniði.
Að sögn Söru er von til
þess að krakkarnir fái inni í
leikhússmiðju í Cuxhaven
þar sem þau fá tækifæri til
að læra af þýskum ung-
mennum. Þá verður einnig
farið út á götur og afrakst-
urinn sýndur gestum og
gangandi.
Sara segir að vinna í
tengslum við atriði sem hóp-
urinn muni sýna úti sé enn í
mótun. Hún nefnir að hún
hafi töluvert unnið með
ákveðin þemu í tengslum við
atriði sem sýnd hafi verið og
í fyrra, þegar Listahópurinn
hélt til Svíþjóðar, hafi verið
unnið með að búa til tónlist
úr ákveðnum töktum.
Ætla að búa til eitt
allsherjaratriði
„Þau geta öll spilað og
sungið á einhver hljóðfæri
og þau eru öll ótrúlegir leik-
arar. Þannig að við ætlum að
reyna að búa til allsherjarat-
riði; leikþátt með tónlist og
dansi jafnvel og reyna að
blanda öllum þessum list-
greinum saman,“ segir hún.
Krakkarnir hafa aðstöðu í
Hafnarfjarðarleikhúsinu þar
sem þau hafa æft atriði í
sumar og munu æfa atriði
fyrir ferðina.
Listahópurinn hefur þegar
fengið styrk til fararinnar
frá Æskulýðs- og tóm-
stundaráði, að sögn Söru.
Hún nefnir einnig að krakk-
arnir hafi fundið upp á ólík-
um leiðum til fjáröflunar og
meðal annars kom uppá-
stunga um að vera með upp-
boð á sjálfum sér í ágúst.
„Krakkarnir færu þá niður í
bæ og fólki gæfist kostur á
að bjóða í þau. Hæstbjóð-
andi fengi síðan að ráðstafa
hverjum og einum að vild,“
segir Sara og skellir upp úr.
Listahópur Vinnuskólans í Hafnarfirði heldur til Cuxhaven í ágúst
„Erum að búa til eitthvað
nýtt á hverjum einasta degi“
Morgunblaðið/Sverrir
Listahópur Vinnuskólans við æfingar í Hafnarfjarðarleikhúsi á leikþætti sem byggður er á
Þyrnirós og fluttur var samdægurs fyrr í vikunni á sumarhátíð Æskulýðs- og tómstundaráðs.
Sara Hlín Guðmundsdóttir hefur í sumar og undanfarin
sumur stýrt Listahópnum sem skipaður er 15 og 16 ára
listhneigðum ungmennum úr Hafnarfirði.
Hafnarfjörður ATVINNUÞÁTTTAKA
kvenna í Reykjavík minnkaði
lítillega í fyrra frá árinu á
undan eða um 0,6 prósent. Sé
árið í fyrra borið saman við
árin 1998 og 1999 hefur at-
vinnuþátttaka kvenna hins
vegar aukist, að því er fram
kemur í Árbók Reykjavíkur
2001.
Mestu munar að atvinnu-
þátttaka kvenna, 16–24 ára,
dregst saman um tæp sex
prósent, var 84% árið 2000 en
78,25% árið 2001. Hlutfalls-
lega jafnmargar konur á aldr-
inum 25–54 ára voru á vinnu-
markaðnum í Reykjavík árin
2000 og 2001 en hlutfall
kvenna 55–74 ára hækkar úr
48,75% í 56,85% milli ára.
Frá árinu 1998 til 2001
jókst atvinnuþátttaka kvenna
alls úr 76,75% í 77,8% og þátt-
taka karla úr 84,05% í 88,55%.
Atvinnu-
þátttaka
ungra
kvenna
minnkar
Reykjavík
KIRKJA Jesú Krists hinna
síðari daga heilögu hefur
óskað eftir viðbrögðum
Garðabæjar við þeirri ósk
að fá að kaupa landspildu
norðvestan við núverandi
lóð safnaðarins við Ásabraut
og gera þar almennings-
garð.
Í bréfi sem talsmaður
safnaðarins hefur sent bæj-
arráði segir að söfnuðurinn
hafi mikinn áhuga á að
leggja sitt af mörkum til að
bæta umhverfi og mannlíf í
nágrenninu. Hugmyndin er
að nota lóðina undir garð
sem hugsaður er til nota
fyrir almenning og yrði öll
uppbygging og viðhald kost-
að af söfnuðinum.
Bæjarráð hefur fjallað um
málið og var ákveðið að vísa
erindinu til skipulagsnefnd-
ar til frekari athugunar.
Kirkja Jesú
Krists
vill gera
almenn-
ingsgarð
Garðabær
ÚT er kominn ferða- og
kynningarbæklingur á ensku
um Mosfellsbæ og það sem í
boði er fyrir ferðamenn og
aðra gesti innan bæjarmark-
anna.
Að sögn Guðnýjar Dóru
Gestsdóttur, atvinnu- og
ferðamálafulltrúa Mosfells-
bæjar, er þetta í fyrsta sinn
sem bærinn gefur út bækling
sem eingöngu er ætlaður
ferðamönnum.
Hún nefnir einnig að bæj-
aryfirvöld sjái fyrir sér mikla
uppbyggingu í ferðamanna-
iðnaði í náinni framtíð, eink-
um í tengslum við Halldór
Laxness og kaup ríkisins á
Gljúfrasteini þar sem ráð-
gert er að opna safn á næsta
ári.
Kynningar-
bæklingur
á ensku
Mosfellsbær
HUGMYNDIR eru uppi um
að gera fullkominn gervi-
grasvöll þar sem núverandi
malarvöllur er á íþrótta-
svæðinu Ásgarði. Sam-
kvæmt tillögu sem Erling
Ásgeirsson, formaður bæj-
arráðs Garðabæjar, lagði
fram á bæjarráðsfundi í vik-
unni yrði vellinum snúið frá
norðri til suðurs í vestur til
austurs. Að sögn Erlings
tengist hugmyndin fram-
kvæmdum við Flataskóla en
samkvæmt tillögu Erlings
er bæjarstjóra falið að hefja
undirbúning að hönnun vall-
arins.
Völlurinn verður upphit-
aður og segir Erling að
gangi undirbúnings- og
hönnunarvinna eftir verði
unnt að hefja framkvæmdir
næsta vor og að þeim ljúki
um haustið.
Fyrir er lítill gervigras-
völlur við Garðaskóla sem
gerður var fyrir 15 árum og
nýst hefur íþróttaiðkendum
mjög vel, að hans sögn.
Hann segir að nú ætli bæj-
aryfirvöld að bæta um betur
en gert er ráð fyrir að völl-
urinn nýtist bæði knatt-
spyrnuiðkendum og skóla-
krökkum í Flataskóla.
Þá eru einnig áform um
að hefja byggingu vallar-
húss við grasvöllinn í Ás-
garði. Að sögn Erlings
verða þar búningsklefar og
áhaldageymsla sem einnig
gætu nýst hinum nýja gervi-
grasvelli. Ráðgert er að
framkvæmdir við vallarhús-
ið hefjist á haustmánuðum.
Áform um að breyta malarvellinum við
Ásgarð í fullkominn gervigrasvöll
Nýtist skólabörnum
og íþróttafólki
Morgunblaðið/Arnaldur
Ráðgert er að völlurinn verði upphitaður og hægt
verði að samnýta aðstöðu í nýju vallarhúsi sem ráð-
gert er að reisa við grasvöllinn í Ásgarði.
Garðabær
FRAMKVÆMDIR vegna
endurnýjunar á versl-
unarmiðstöðinni í Glæsibæ
og viðbyggingar við hana eru
nú í fullum gangi en ráðgert
er að verkinu ljúki í október
á þessu ári. Hér sést hvar
verið er að koma nýju lagna-
kerfi fyrir á bílastæði fyrir
framan verslunarmiðstöðina,
auk þess sem unnið er við að
setja upp nýjan verslunar-
inngang. Í júlí hefur verið
gengið inn í verslunarmið-
stöðina að vestanverðu.
Það eru Íslenskir að-
alverktakar hf. sem sjá um
framkvæmdir á svæðinu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Nýr verslunarinn-
gangur í Glæsibæ
Heimar/Vogar
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦