Morgunblaðið - 27.07.2002, Qupperneq 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 21
ÞAÐ var merkur áfangi í sögu gamla
prestsbústaðarins á Sauðanesi þegar
þjóðminjavörður afhenti Sauðnes-
nefnd húsið formlega til reksturs og
umsjónar en sveitarstjóri Þórshafn-
arhrepps er formaður þeirrar nefnd-
ar. Athöfnin var einn liður í dagskrá
Kátra daga á Þórshöfn og var fjöl-
menni á Sauðanesi af þessu tilefni.
Athöfnin hófst með guðsþjónustu í
Sauðaneskirkju þar sem núverandi
prestur, sr. Sveinbjörn Bjarnason, og
fyrrverandi prófastur Þingeyjarpró-
fastsdæmis, sr. Ingimar Ingimarsson,
þjónuðu en séra Ingimar og fjöl-
skylda hans voru síðustu íbúar gamla
prestsbústaðarins.
Sauðaneshúsið var byggt á árunum
1879–1881 en þróuð og hefðbundin
steinhöggstækni var notuð við bygg-
ingu þess. Húsið tilheyrir nú hús-
verndardeild Þjóðminjasafnsins.
Endurbygging hússins hófst árið
1991 en það var mikið verk sem út-
heimti umtalsvert fjármagn. Þjóð-
minjasafnið studdi framkvæmdina
verulega og héraðsnefnd Þingeyinga
kom einnig að verkinu, svo og heima-
menn og fleiri en mikill einhugur var
heima fyrir um varðveislu og endur-
byggingu hússins.
Halldór Blöndal afhenti Sauðanes-
nefnd gjöf frá Alþingi en það eru
gamlar myndir af þingmönnum N-
Þingeyinga allt frá þjóðfundi til ársins
1959 og munu prýða veggi hússins.
Þórshafnar- og Svalbarðshreppur
ásamt Átthagafélagi Þórshafnar
fengu til varðveislu svokallað Sig-
marssafn en það eru ýmis smáverk-
færi og nytjahlutir að mestu leyti frá
þessu svæði, sem Sigmar Ó. Maríus-
son hefur safnað í gegnum tíðina.
Gengið var frá samningi um kaup á
safninu sem verður varðveitt í Sauða-
neshúsi.
Stefnt er að því að húsið verði form-
lega opnað næsta sumar og er hugsað
sem minjasafn að hluta og að þar
verði upplýsingamiðstöð og kynning á
héraðinu, einnig íveruaðstaða fyrir
fræðimenn og eða listamenn sem
tengjast svæðinu og vilja dvelja hér í
lengri eða skemmri tíma.
Sauðaneshúsið
formlega afhent
Þórshöfn
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Frá gamla prestsbústaðnum á Sauðanesi.
FJÖLGUN farþega sem fljúga með
Flugfélagi Vestmannaeyja milli
Bakka og Eyja er að meðaltali 35% á
mánuði frá síðustu áramótum, að
sögn Valgeirs Arnórssonar, fram-
kvæmdastjóra Flugfélags Vest-
mannaeyja. Hann telur að ein helsta
ástæða aukningarinnar sé að flug
milli Bakka og Eyja, sem tekur á
bilinu 5–10 mínútur, sé ódýr kostur
og aðeins sé um eins og hálfs tíma
akstur milli Reykjavíkur og Bakka.
„Því er þetta ekki dýrt, sérstaklega
ef margir ferðast saman og deila
aksturskostnaði. Þá eiga margir
Vestmannaeyingar bíla uppi á
Bakka og eru með bílageymslur þar.
Annars getur fólk tekið bílaleigubíla
þegar komið er á Bakka. Sú aukning
sem orðið hefur á farþegafjölda flug-
félagsins er nær eingöngu komin til
vegna ferða Íslendinga, einkum fjöl-
skyldufólks, þótt alltaf sé eitthvað
um erlenda ferðamenn,“ segir Val-
geir.
Valgeir segir nýja eigendur hafa
tekið við Flugfélagi Vestmannaeyja í
maí í fyrra en áður hafði Valur
Andersen rekið það í 18 ár.
Flugfélag Íslands hætti flugi til
Vestmannaeyja síðastliðið haust og
tók þá Íslandsflug við og hefur hald-
ið uppi flugi milli Reykjavíkur og
Eyja.
35% fjölgun
farþega
hjá Flug-
félagi Vest-
mannaeyja
Vestmannaeyjar