Morgunblaðið - 27.07.2002, Page 23
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 23
HAGNAÐUR Baugs Group hf. á
fyrsta ársfjórðungi 2002, sem nær yf-
ir tímabilið frá mars til maí, nam 513
milljónum króna. Þar af nam hagn-
aður af verslunarrekstri félagsins hér
á landi og í Svíþjóð 136 milljónum,
hagnaður af eignaumsýslu nam 451
milljón, en tap af rekstri félagsins í
Bandaríkjunum nam 74 milljónum.
Heildarvelta Baugs Group á tíma-
bilinu nam 13,1 milljarði króna, sem
er 84% veltuaukning miðað við sama
tímabil á síðasta ári. Frá þessu er
greint í tilkynningu frá Baugi Group í
gær.
Tryggvi Jónsson forstjóri Baugs
Group segir í tilkynningunni að af-
koma félagsins sé viðunandi þegar á
heildina er litið. Skýr batamerki séu í
rekstri á Íslandi og rekstur dóttur-
og hlutdeildarfélaga Baugs-fjárfest-
ingar og þróunar sé á áætlun. Hann
segir að afkoma félagsins í Banda-
ríkjunum hafi valdið vissum von-
brigðum þótt þar horfi til betri vegar.
Félagið geri ráð fyrir að áætlun um
hagnað eftir skatta á yfirstandandi
rekstrarári sé á áætlun.
Hagnaður félagsins á árinu er
áætlaður 2,1 milljarður króna og
heildarvelta er áætluð 57 milljarðar.
Þá eru nettóskuldir áætlaðar 12,2
milljarðar.
Baugur Group hf. er eignarhalds-
félag sem á og rekur Baug-Ísland,
Baug-USA (starfsemi í Bandaríkjun-
um) og Baug-fjárfestingu og þróun.
Undir rekstrareininguna Baugur-
Ísland fellur allur verslanarekstur fé-
lagsins á Íslandi í matvöru, sérvöru
og lyfsölu auk reksturs í Svíþjóð
vegna Topshop, Miss Selfridge og
Debenhams. Samtals rekur Baugur-
Ísland 77 verslanir í þessum tveimur
löndum.
EBITDA hagnaður Baugs-Íslands
á fyrsta ársfjórðungi 2002 nam 328
milljónum króna og vörusala á tíma-
bilinu nam 8,3 milljörðum króna, sem
er 16,5% veltuaukning miðað við
sama tímabil á síðasta ári. Segir í til-
kynningu félagsins að rekstur Baugs-
Íslands hafi sýnt batamerki á tíma-
bilinu. Rekstur Debenhams er sagð-
ur hafa verið félaginu þungur í skauti
í mars og apríl en til betri vegar horfi
síðustu tvo mánuði. Þá hafi Baugur-
Ísland gert nýjan samning við Deb-
enhams PLC í Bretlandi sem muni
lækka kostnað Baugs-Íslands við
rekstur. Unnið hafi verið að hagræð-
ingu og að einfalda rekstur enn frek-
ar. Alls fækkaði stöðugildum hjá fyr-
irtækjum Baugs-Íslands um 70 á
umræddu tímabili en áhrif þess koma
að mestu fram á næsta ársfjórðungi.
Auknar arðgreiðslur frá Arcadia
Baugur-fjárfesting og þróun held-
ur utan um eignir í félögum þar sem
Baugur fer ekki með daglegan rekst-
ur. Helstu eignir Baugs-fjárfestingar
og þróunar eru Arcadia, SMS, Fast-
eignafélagið Stoðir hf. og Baugur.net.
Segir í tilkynningu félagsin að
hagnaður af Baugifjárfestingu og
þróun skýrist að mestu leyti af hlut-
deild í hagnaði Arcadia, sem hafi ver-
ið að auka veltu og framlegð. Þá segir
að markaðsaðilar geri ráð fyrir að
EBITDA hagnaður Arcadia á þessu
ári verði um 190 milljónir punda eða
rúmlega 26 milljarðar króna.
Fjárhagsári Arcadia lýkur 31.
ágúst næstkomandi. Félagið hefur
greitt upp allar skuldir sínar og sam-
kvæmt tilkynningu Baugs eykur það
líkur á því að arðgreiðslur aukist
verulega og að Baugur-fjárfesting og
þróun muni fá um 180 milljónir króna
greiddar í arð frá Arcadia.
Rekstur Fasteignafélagsins Stoða
og SMS verslunarfélagsins í Færeyj-
um hefur verið samkvæmt áætlun
eftir því sem fram kemur í tilkynn-
ingunni.
Stoðir og Þyrping sameinuð
Stjórn Baugs Group hefur sam-
þykkt að auka hlut sinn í Fasteigna-
félaginu Stoðum hf. vegna kaupa
þess félags á hlut í Þyrpingu hf. Fé-
lögin verða sameinuð undir nafni
Fasteignafélagsins Stoða hf. Stjórn
Baugs Group ákvað að auka hlut sinn
um 500 milljónir og verða þar með
fjórðungseigandi að sameinuðu fé-
lagi.
Í tilkynningunni segir að hið nýja
sameinaða fasteignafélag verði lang-
öflugasta fasteignafélag landsins
með margar af bestu verslunar- og
þjónustufasteignum landsins á sinni
hendi, þar á meðal Kringluna, Holta-
garða, Hótel Esju og Spöngina.
Af verslunarrými Baugs í dag er
1/3 í eigu Stoða eða Þyrpingar.
Í tilkynningunni er greint frá því
að ákveðið hafi verið að færa kaup-
réttarsamninga starfsfólks framveg-
is til gjalda í rekstri Baugs Group hf.
Hagnaður Baugs Group hf. 513 milljónir króna
Heildarvelta jókst
um 84% milli ára
HAGNAÐUR Íslandsbanka hf. á
fyrri helmingi þessa árs nemur sam-
tals 2.053 milljónum króna fyrir
skatta. Á sama tímabili í fyrra var
hagnaður fyrir skatta 2.228 milljónir,
en þá voru reiknuð gjöld vegna verð-
lagsbreytinga alls 559 milljónir.
Eftir skatta nemur hagnaður
bankans á fyrri helmingi þessa árs
samtals 1.647 milljónum króna en
var á sama tímabili á síðasta ári 1.655
milljónir. Arðsemi eigin fjár bankans
eftir skatta á fyrri helmingi þessa árs
var 17,6%. Frá þessu var greint í til-
kynningu frá Íslandsbanka í gær.
Vaxtatekjur drógust
saman um 9,1%
Kostnaður Íslandsbanka sem hlut-
fall af tekjum var 53,9% á fyrstu sex
mánuðum þessa árs. Hreinar vaxta-
tekjur bankans drógust saman um
9,1% frá sama tímabili í fyrra og seg-
ir í tilkynningu bankans að það skýr-
ist einkum af lækkun verðbólgu.
Vaxtamunur var 2,9%, en var 3,5% á
sama tímabili í fyrra.
Rekstrargjöld bankans, önnur en
vaxtagjöld, jukust um 3,6% á milli
ára. Framlag í afskriftareikning út-
lána nam 1.126 milljónum króna, sem
er 17,7% aukning miðað við sama
tímabil í fyrra.
Heildareignir námu 320 milljörð-
um króna í lok júní 2002 og hafa
dregist saman um 8,1% frá áramót-
um, einkum vegna gengisáhrifa,
samkvæmt því sem segir í tilkynn-
ingunni.
Eigið fé nam 20 milljörðum króna í
lok júní og eiginfjárhlutfall á CAD
grunni var 12,2%, þar af var eigin-
fjárþáttur A 9,2%.
Segir í tilkynningu Íslandsbanka
að í ljósi sterkrar eiginfjárstöðu hafi
bankaráð samþykkt að lækka úti-
standandi hlutafé um 100 milljónir
króna.
Ef verðbólgureikningsskilum
hefði verið breytt hefðu gjöld vegna
verðlagsbreytinga numið 130 millj-
ónum króna og hagnaður lækkað
sem því nemur.
Í tilkynningu Íslandsbanka segir
að Bjarni Ármannsson og Valur
Valsson, forstjórar bankans, hafi eft-
irfarandi um uppgjör fyrri árshelm-
ings 2002 að segja:
„Rekstur ÍSB fyrstu sex mánuði
ársins gekk að flestu leyti vel. Vegna
lægri verðbólgu en spáð var hefur
vaxtamunur dregist meira saman en
gert hafði verið ráð fyrir og vaxta-
tekjur því minnkað. Rekstrarkostn-
aður er á áætlun. Breytingar á út-
reikningi á framlagi í
afskriftarreikning til að styrkja al-
mennt framlag reikningsins hafa
einnig áhrif á afkomu þessa tímabils
en styrkja bankann til lengri tíma.
Arðsemin, 17,6%, er í samræmi við
langtímamarkmið bankans. Að öðru
jöfnu má búast við að afkoman sé
betri á síðari helmingi ársins, en mið-
að við óbreytt rekstrarskilyrði og
óróleika á erlendum mörkuðum er
ekki sjálfgefið að hagnaður fyrir árið
nái hagnaði ársins 2001 þegar reikn-
að er á sambærilegum grunni. Hins
vegar bendir margt til þess að ís-
lenskt efnahagslíf sé að ná sér á strik
á ný eftir nokkra lægð. Íslandsbanki
er vel í stakk búinn til að gegna lyk-
ilhlutverki í nýrri framfarasókn.“
Arðsemi eigin fjár Íslandsbanka hf. á fyrri helmingi ársins 17,6%
Hagnaður
1.647 milljón-
ir króna
!"
#
$
%&'()
*&+%'
'&%,%
-+%(
-%('
'*,&+%.
/0&00'
**1'2
/,1'2
,++
!
!
!
HAGNAÐUR Nýherja hf á fyrri árs-
helmingi 2002 nam 53,8 milljónum
króna en sama tíma í fyrra tapaði fé-
lagið 36,3 milljónum segir í tilkynn-
ingu frá Nýherja. Rekstrartekjur
tímabilsins í ár voru 2.074,4 milljón-
um sem er 4% aukning frá fyrra ári.
Á sama tíma jukust rekstrargjöld fé-
lagsins um 11,8%, úr rúmum 880
milljónum í fyrra og í um 990 millj-
ónir á fyrstu sex mánuðum þessa árs.
Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og af-
skriftir, EBITDA, ríflega tvöfaldað-
ist milli ára og var 114,2 á árinu 2001
en aðeins um 54,8 milljónir króna árið
áður. Vörusala var svipuð bæði árin
en þjónustutekjur jukust um 23%.
Nýherji hagnaðist um 23,3 milljón-
ir á gengismun á fyrri helmingi ársins
en gengistap félagsins nam hins veg-
ar 43,8 milljónum á sama tíma á síð-
asta ári. Í tilkynningu segir að Ný-
herji hafi ákveðið að halda áfram
verðleiðréttum reikningsskilum í
samræmi við bráðabirgðalaga-
ákvæði. Væru reikningsskil hins veg-
ar ekki verðleiðrétt hefði hagnaður
félagsins orðið 1 milljón króna hærri
á tímabilinu, en eigið fé aftur á móti
18 milljónum króna lægra. Eigið fé
Nýherja var í lok tímabilsins 1.274
milljónir króna sem er tæpum 4%
hærra en á fyrstu sex mánuðum síð-
asta árs.
Nýherji hagnast
um 54 milljónir
SH HEFUR selt 5% eignarhlut
sinn í kanadíska sjávarútvegs-
fyrirtækinu High Liner Foods
Inc. og á SH nú engin bréf í fé-
laginu. Alls var hér um að ræða
495 þúsund hluti og var meðal-
sölugengi þeirra 7,14 Kanada-
dalir á hlut. Hagnaður fyrir
skatta miðað við gengi í júlí
nemur um 58 milljónum króna,
að því er kemur fram í tilkynn-
ingu SH.
Gunnar Svavarsson fram-
kvæmdastjóri SH segir hagnað-
inn af sölu bréfanna hafa verið
minni en ella vegna óhentugrar
gengisþróunar Kanadadollars
þar sem kaupin voru fjármögn-
uð í annarri mynt. Kaupin voru
gerð á genginu 3,85. Hann segir
að kaupin á hlutnum hafi eink-
um verið hugsuð sem fjárfesting
sem seld yrði fyrr eða síðar.
„Okkur þótti þetta félag lágt
verðlagt á sínum tíma og
ákváðum að skella okkur á það.
Svo kom upp sú staða að gengið
var orðið ásættanlegt og því var
ákveðið að selja,“ sagði Gunnar.
High Line Inc. stundar veiðar
og vinnslu og rekur m.a. sjáv-
arrétta- og pastaverksmiðjur
sem selja vörur sínar til stór-
markaða og veitingahúsa um
gjörvalla Norður-Ameríku.
SH selur
hlut sinn í
High Liner
Foods Inc.
!
"
#$#%%
3
4
54
67
8 8"
9$ : $
5$ ;< $& /.
2
2
2
2
2
2
4
54
&
TAP af rekstri Baugs Invest ehf.
nam 74 milljónum króna á fyrstu
þremur mánuðum yfirstandandi
rekstrarárs, þ.e. á tímabilinu frá
mars til maí 2002. EBIDTA hagn-
aður félagsins nam 16 milljónum
króna en vörusala á tímabilinu nam
4,8 milljörðum króna.
Baugur Invest ehf. er eignar-
haldsfélag um fjárfestingu Baugs
Group hf. í Bonus Stores Inc., sem á
og rekur 384 verslanir í suð-austur-
ríkjum Bandaríkjanna.
Baugur Group mun ekki taka þátt
í fyrirhugaðri 7 milljóna Bandaríkja-
dala hlutafjáraukningu Bonus Stor-
es Inc., sem eigendur félagsins hafa
samþykkt að stefna að. Við hlutafjár-
aukninguna mun eignarhluti Baugs
Group í Bonus Stores Inc. fara niður
fyrir 50% og verður því ekki hluti af
samstæðuupgjöri Baugs Group frá
þeim tíma.
Í tilkynningu Baugs Group segir
að ástæða þess að félagið muni ekki
taka þátt í hlutafjáraukningu Bonus
Stores Inc. sé sú, að ekki liggi fyrir
ákvörðun um ráðstöfun hlutar Baugs
í Arcadia og vegna frekari fjárfest-
inga félagsins í sameinuðu félagi
Þyrpingar og Stoða.
Ákveðið að loka 20 verslunum
Fram kemur í tilkynningunni að
helsta skýringin á slakri afkomu
Baugs Invest í Bandaríkjunum sé
hár launakostnaður, en hann nam
um 18% af veltu. Þá segir að gert sé
ráð fyrir að þetta hlutfall lækki um-
talsvert á yfirstandandi ári. Samtals
hafi 212 milljónir króna verið skuld-
færðar í efnahagsreikningi til að
mæta kostnaði vegna lokana á versl-
unum, en þegar hafi verið ákveðið að
loka 20 óarðbærum verslunum fyrir
lok þessa árs. Auk þessa hafi 15
verslunum verið breytt og hafi það
skilað um 30% söluaukningu. Stefnt
sé að því að breyta um 250 versl-
unum fyrir lok apríl á næsta ári og sé
áætlaður kostnaður um 14 þúsund
dalir á verslun.
Tap af rekstri
Baugs í Bandaríkj-
unum 74 milljónir