Morgunblaðið - 27.07.2002, Síða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 25
Útvarp Kántrýbær
96,7 og 102,2
Skagaströnd 2002Fjölskylduhátíðin
Aðgangur: kr. 3.900,-
Dagsverð: kr. 1.500,-
Ókeypis er fyrir börn
12 ára og yngri.
11:00 - 12:00
12:00 - 17:00
12:00 - > >
13:30 - 14:15
14:15 - 15:30
15:00 - 19:00
20.30 - 21.30
21:30 - > >
22:30 - 01:00
22:30 - 01:30
23:00 - 03:00
24:00 - 05:00
12:00 - 17:00
12:00 - > >
13:30 - 14:30
14:30 - 16:30
15:00 - 19:00
21:00 - 22:30
22:30 - > >
23:00 - > >
23:30 - > >
24:00 - 01:30
23:00 - 03:00
24:00 - 05:00
Marhnútakeppni á hafnarsvæðinu, sjóstangaveiði.
Útimarkaður í tjaldi. Fjölbreytilegar söluvörur, fjöldi seljenda.
Leikborg á hátíðarsvæði. Sprell og tívolí.
Tónleikar á palli, hljómsveitin BIG CITY.
Barna- og unglingadagskrá með Valgeiri Skagfjörð
og Helgu Möller: Söngvakeppni, Kántrýdansar og fleira.
Kántrýdansanámskeið í íþróttahúsinu, kennari Jóhann Örn Ólafsson.
Kántrýdanskeppni á palli.
Skemmtidagskrá á palli. Hinn eini og sanni Björgvin Halldórsson.
Hinar íslensku Surprimes.
Línudansball í íþróttahúsinu. Stjórnandi Jóhann Örn Ólafsson.
Dansleikur á palli, Hljómsveitin 17 vélar.
Dansleikur í Fellsborg, Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar.
Dansleikur í Kántrýbæ, Hljómsveit Harðar G. Ólasonar og
kóngurinn sjálfur Hallbjörn Hjartarson.
Útimarkaður í tjaldi. Fjölbreytilegar söluvörur, fjöldi seljenda.
Leikborg á hátíðarsvæði. Sprell og tívolí.
Gospelmessa á palli. Óskar Einarsson og hljómsveit ásamt kirkjukór
Hólaneskirkju og söngkonunni Heru Björk Þórhallsdóttur.
Skemmtidagskrá á palli: Kántrýdansasýning. Kóngurinn sjálfur
Hallbjörn Hjartarson með hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar.
Geirmundur Valtýsson og Helga Möller ásamt stórsveit.Velgeir Skagfjörð,
Jonny King og fleiri.
Kántrýdansanámskeið í íþróttahúsinu, kennari Jóhann Örn Ólafsson.
Uppákomur á palli, frjáls aðgangur trúbadora og annarra
tónlistarmanna úr hópi gesta.
Söngstemming á hátíðarsvæði með Geirmundi Valtýssyni.
Varðeldur.
Flugeldasýning.
Tónleikar á palli, Hljómsveitin 17 vélar.
Dansleikur í Fellsborg, Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar.
Dansleikur í Kántrýbæ, Hljómsveit Harðar G. Ólasonar og
kóngurinn sjálfur Hallbjörn Hjartarson.
Laugardagur 3. ágúst
Sunnudagur 4. ágúst
Björgvin Halldórsson
Stórhljómsveit Magnúsar Kjartanssonar
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
Hljómsveitin BIG CITY
Helga Möller
Valgeir Skagfjörð
Hallbjörn Hjartarson
Kynnir á Kántrýhátíð 2002
er Valgeir Skagfjörð
23:00 - > >
16:00 - > >
22:00 - 02:00
23:00 - 03:00
23:00 - 03:00
Opið í Kántrýbæ, Maggi og Villi ríða á vaðið.
Leikborg opnuð á hátíðarsvæði. Sprell og tívolí.
Tónleikar á palli, Hljómsveitin BER.
Dansleikur í Fellsborg, Hljómsveitin BIG CITY.
Dansleikur í Kántrýbæ, Maggi Kjartans,
Villi Guðjóns og Helga Möller sjá um fjörið.
Fimmtudagur 1. ágúst
Föstudagur 2. ágúst
www.kantry.is
H
U
G
VER
K
A
sm
iðja
SAMBAND
Grænlands við
Evrópusam-
bandið (ESB)
mun taka
breytingum, að
því er danska
dagblaðið Jyl-
lands-Posten
hefur eftir for-
manni græn-
lensku land-
stjórnarinnar, Jonathan
Motzfeldt. Hann segir að sam-
skipti sem aðeins byggist á fisk-
veiðisamningum fullnægi ekki
þörfum Grænlendinga og leggur
áherslu á mikilvægi góðra sam-
skipta við ESB.
Vilja aðgang
að áætlunum
Grænlendingar óska nú eftir
samningi við sambandið sem
tryggi þeim aðgang að hinum
mismunandi áætlunum sam-
bandsins, svo sem um umhverf-
isvernd, rannsóknir og menntun.
Hans Enoksen, sem fer með sjáv-
arútvegsmál í landstjórninni, seg-
ir ESB vera langstærsta mark-
aðinn fyrir grænlenskar
útflutningsvörur og að báðir að-
ilar muni hagnast á enn víðtæk-
ari verslun og samvinnu. Enok-
sen er einnig formaður
ríkisstjórnarflokksins, Siumut.
Sendiherrar Evrópusambands-
landanna hjá framkvæmdastjórn
ESB eru nú í heimsókn á Græn-
landi til að kynna sér lífskjör í
landinu og kanna hvaða hindranir
Grænlendingar hafa rekist á í
uppbyggingu sinni á sjálfbæru
efnahagskerfi. Er Grænlendingar
fengu aukna sjálfsstjórn frá Dön-
um 1982 sögðu þeir sig úr ESB
en Danir eru í sambandinu.
Aukið samstarf við ESB
Grænlenska landstjórnin tekur á móti sendiherrum Evrópusambandsins
Jonathan
Motzfeldt
LÖGMENN Frakkans Maur-
ice Papons, sem dæmdur var
árið 1998 fyrir samstarf sitt við
nasista í síðari heimsstyrjöld,
sögðu á fimmtudag að þeir
myndu fara fram á ný réttar-
höld í málinu í kjölfar úrskurð-
ar Mannréttindadómstóls Evr-
ópu, að brotið hefði verið á rétti
Papons er honum var meinað
að áfrýja dómi á sínum tíma.
Papon var dæmdur í tíu ára
fangelsi árið 1998 fyrir að hafa
á árunum 1942 og 1944 undir-
ritað skjöl, sem yfirmaður lög-
reglunnar í Bordeaux-héraði,
sem sendu 1.690 gyðinga í út-
rýmingarbúðir nasista. Hann
fór fram á það að þurfa ekki að
hefja afplánun fyrr en búið
væri að taka áfrýjun í málinu
fyrir og flúði land þegar þeirri
ósk var hafnað. Úrskurðaði
áfrýjunardómstóll þá að með
flóttanum hefði Papon, sem er
91 árs gamall, fyrirgert rétti
sínum til áfrýjunar og telur
Mannréttindadómstóll Evrópu
þá ákvörðun brot á réttindum
Papons.
Alexandra
komin heim
ALEXANDRA Danaprinsessa
fékk að fara heim af sjúkrahúsi
í gær með
fjögurra
daga gaml-
an son sinn.
Jóakim
prins, eigin-
maður Alex-
öndru, og
Nikolai,
þriggja ára
gamall son-
ur þeirra, sóttu mæðginin á
Landspítalann í Kaupmanna-
höfn og fengu Danir þá að sjá
nýja prinsinn í fyrsta skipti en
nokkur hundruð manns höfðu
safnast saman utan við sjúkra-
húsið og fögnuðu fjölskyldunni
vel þegar hún kom út.
Munaðar-
vörur hækka
um 500%
STJÓRNVÖLD í Zimbabwe
hafa hækkað tolla á innfluttar
munaðarvörur um nærri 500%
til að afla fjár til umbóta í land-
búnaði, til neyðaraðstoðar
vegna þurrka og til að greiða
laun ríkisstarfsmanna. Tollarn-
ir leggjast á bíla, drykkjarvör-
ur, tóbak og ýmsan iðnvarning
og er gert ráð fyrir að þessi
hækkun afli jafnvirði um 17
milljarða króna í ríkiskassann.
Meintum
ódæðismönn-
um stefnt
ÆTTINGJAR fórnarlamba
sprengjunnar í Omagh á Norð-
ur-Írlandi, sem olli dauða 29
manns í ágúst árið 1998, hófu í
gær málarekstur gegn fimm
mönnum, sem fastlega eru
grunaðir um að hafa borið
ábyrgð á ódæðinu. Var mönn-
unum birt stefna í gær.
Enginn hefur enn verið
ákærður fyrir aðild að
sprengjutilræðinu í Omagh,
þrátt fyrir yfirgripsmikla rann-
sókn lögreglunnar.
STUTT
Réttur
brotinn á
Papon